Morgunblaðið - 05.08.2014, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014
Smáauglýsingar 569 1100
Sumarhús
Sumarhúsalóðir í Vaðnesi
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með
aðgangi að heitu og köldu vatni í
vinsælu sumarhúsahverfi í landi
Vaðness í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi, ca. 45 km frá Rvk. Allar nánari
upplýsingar í síma 896 1864.
Rotþrær – vatnsgeymar
– lindarbrunnar
Rotþrær og siturlagnir.
Heildarlausnir – réttar lausnir.
Heitir pottar.
Borgarplast.is,
Mosfellsbæ, sími 561 2211.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Málverk
Módelmynd
Hef verið beðinn að útvega
gott eintak af módelmynd
eftir Gunnlaug Blöndal.
Upplýsingar í síma
898 4403
Stúdíó Stafn
Til sölu
Lok á heita potta og
hitaveituskeljar
Stærðir í cm: 235x235, 217x217,
210x210, 200x200, 217x235,
217x174.
Lokin þola 1000 kg jafnarðarþunga af
snjó. Vel einangruð og koma með 10
cm svuntu. Sterkustu lokin á markað-
num. Litir: Brúnt eða Grátt. Opnarar
til þess að auðvelda opnun á loki.
heitirpottar.is – Sími 777 2000
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Byggingar
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
NÝTT NÝTT
Teg 31016 - rosalega mjúkur með
fyllingu, fæst í 70-85B, 75-85C á kr.
5.800,- buxur á kr. 1.995,-
Teg 8115 - létt fylltur og fæst í 70-
85B, 75-85C á kr. 5.800,- buxur á kr.
1.995,-
Teg. 11001 - gamli góði í nýjum lit
fæst 80-95CDE á kr. 5.800,- buxur á
kr. 1.995,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.–föst. 10–18,
laugardaga 10–14.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
Teg. 1718: Léttir og þægilegir sum-
arskór úr leðri, skinnfóðraðir. Litir:
Rautt og beige. Stærðir 37–40.
Verð: 11.585.
Teg. 1720: Léttir og þægilegir sum-
arskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir 37–40.
Verð: 11.585.
Teg. 2766: Léttir og þægilegir sum-
arskór úr leðri, skinnfóðraðir. Litir:
Rautt og blátt. Stærðir 37–41.
Verð: 14.785.
Teg. 204-05: Ótrúlega mjúkir og
þægilegir sumarskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 36–40.
Verð: 13.885.
Teg. 232-06: Ótrúlega mjúkir og
þægilegir sumarskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 36–40.
Verð: 16.885.
Teg. 1100-02: Ótrúlega mjúkir og
þægilegir sumarskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 36 – 40.
Verð: 12.800.
Teg. 144-01: Ótrúlega mjúkir og
þægilegir sumarskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 36 – 40.
Verð: 14.800.
Teg. 327-08: Ótrúlega mjúkir og
þægilegir sumarskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 37 – 40.
Verð: 15.885.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.– föst. 10–18,
Lokað laugardaginn 2. ágúst.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
NICOLAI
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Hreinsa ryð af þökum,
hreinsa þakrennur,
laga veggjakrot
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Þjónustuauglýsingar 569 1100
www.adal.isSími 590 6900
þetta snýst um
svomiklumeira
en bílinn
Félagsstarf eldri borgara
in frá öllum að óvörum. Við hitt-
umst fyrir rúmlega 25 árum, þeg-
ar ég kom í heimsókn í fyrsta sinn
á Dragaveginn. Móttökurnar voru
eins og alltaf síðan, ekkert nema
elskulegheit, snarað fram allskon-
ar góðgæti og rætt um alla heima
og geima. Viðmót Láru var glað-
legt og hlýtt. Hún var alltaf á ferð
og flugi – eins og hvítur storm-
sveipur – ráðagóð, smekkleg, list-
ræn, skarpgreind, hrein og bein.
Elskaði fjölskylduna alla og varði
hana með kjafti og klóm. Virkaði
hvatvís en var kannski bara svona
fljót að hugsa. Minnist þess ekki
að okkur hafi orðið sundurorða þó
við værum ekki alltaf sammála.
Kveð einstaka konu og góðan vin
með söknuði en um leið kæru
þakklæti fyrir samveruna.
Friðrik Örn
Weisshappel.
Elsku amma Lára. Ég skrifa
þetta bréf frá Svíþjóð til þess að
þakka þér.
Mig langaði til þess að þakka
þér fyrir allar stundirnar sem við
eyddum í að teikna og leira saman
sem kveiktu áhuga minn á listum.
Takk fyrir að segja mér sögur og
leika með mér leikrit sem enduðu
oftast með því að við hlógum báð-
ar eins og vitleysingar og gáfu
mér minningar sem ég get yljað
mér við enn þann dag í dag. Takk,
elsku amma mín, fyrir öll þín fal-
legu orð og hlýju faðmlög.
Þú smitaðir mig af krafti þín-
um, atorku og ást á lífinu. Þú elsk-
aðir skilyrðislaust. Þú munt alltaf
eiga stóran hlut í hjarta mínu. Ég
mun alltaf sakna þín. Þín
Katrín Þórarinsdóttir (Kata).
Það er þungbært að kveðja
elsku Láru mágkonu mína og vin-
konu.
Þegar litið er yfir farinn veg
eru margar sólríkar minningar
sem streyma um hugann. Lára
var stórglæsileg, hláturmild, ljóð-
elsk, stálminnug og fróð um
margt. Hún kunni utan að ósköpin
öll af ljóðum og ógleymanlegt að
heyra hana fara með Gunnars-
hólma hátt og snjallt. Henni óx
ekkert í augum og var fljót að
koma auga á kjarna málsins, hafði
ákveðnar skoðanir sem voru
sprottnar af ríkri réttlætiskennd.
Lára var mikill fagurkeri og naut
þess að fegra allt í kringum sig og
margir eru listmunirnir eftir hana.
Það er erfitt að nefna Láru án
þess að minnast á bróður minn, en
þau voru ætíð hvort við annars
hlið, samhent og umhyggjusöm.
Fyrstu minningar mínar um
Láru voru þegar bróðir minn kom
að Laugarvatni til foreldra okkar
til að kynna konuefnið sitt. Þau
komu frá Akureyri, nýlega búin að
setja upp stúdentshúfurnar og
trúlofunarhringana. Það geislaði
af þessu fallega unga pari. Ári
seinna giftu þau sig á Ísafirði, þar
sem Lára var fædd og uppalin.
Frumburðurinn var þá skírður og
haldin vegleg brúðkaupsveisla
sem foreldrar Láru, Ragnhildur
og Samúel, stóðu fyrir af orðlagðri
gestrisni og myndarskap.
Jólin með allri fjölskyldunni á
Laugarvatni var fastur liður, jafn-
vel þótt snjóaði mikið og færðin erf-
ið, enda mikil tilhlökkun að öll stór-
fjölskyldan kæmi saman. Ferðalög
okkar Daníels með Láru og Bóbó
voru mörg og skemmtileg, bæði
innanlands sem utan. Einnig áttum
við notalegar stundir í sumarbú-
stöðum okkar í Laugardalnum.
Lára var myndlistakennari og
kenndi í mörg ár við Laugalækj-
arskóla og einnig kenndi hún við
Húsmæðraskólann að Laugar-
vatni. Lára var mikil hannyrða-
kona og prjónaði marga tískukjóla
sem voru eftirsóttir. Henni var
margt til lista lagt.
Á kveðjustund vil ég þakka af
hjarta dýrmæta vináttu þína,
elsku Lára mín, og finn ég sárt til
með mínum kæra bróður sem hef-
ur misst elskaðan lífsförunaut.
Er sárasta sorg okkur mætir,
og söknuður huga vorn grætir,
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(Höf. HJH)
Við Daníel og fjölskylda send-
um Bóbó og fjölskyldu hans inni-
legar samúðarkveðjur og biðjum
elsku Láru guðsblessunar.
Erna H. Þórarinsdóttir.
Það var gott að alast upp á Ísa-
firði, og elsku Lára, mín æskuvin-
kona, við kynntumst mjög ungar,
vorum alltaf sammála og rifumst
aldrei. Margar eru minningarnar
frá t. d. Tungudal, sumarbústaða-
sælureit Ísfirðinga. Þar höfðu for-
eldrar okkar byggt sumarbústaði,
Lynghóll hét Láru bústaður, minn
var Grænahlíð. Þar lékum við okk-
ur saman ungar, ásamt systkinum
og hópi af öðrum krökkum, og í
minningunni var alltaf sólskin og
stuttbuxnaveður. Oft lékum við
okkur við Siggakofa og Tungu-
foss, ímynduðum okkur Fossbú-
ann og heyrðum í fiðlunni hans,
dáðumst að garði Símsons og
fengum að fara í litlu sundlaugina
hans. Fórum oft í berjamó, þar
sem við tíndum krækiber, bláber
og einstaka hrútaber, og ekki
mátti koma heim nema brúsinn
væri fullur. Á hverjum morgni fór
hópur af krökkum „ að ná í mjólk-
ina“ um 1/2 tíma gang út á Kúabú
og „út að brú“ með tóma mjólk-
urbrúsa, og tókum heim fulla, og
enginn var ísskápurinn, allur mat-
ur geymdur „norðan undir húsi“.
Við Lára vorum fæddar sama ár
og skólasystur, tókum mikinn þátt
í félagslífi og margt var brallað.
Við höfðum mjög gaman af að
teikna, og teiknuðum mikið sam-
an, enda fengum við 10 í teikn-
ingu! Mikið uppáhald var Bók-
hlaðan þar sem hægt var að kaupa
blýanta, liti og teiknipappír. Góð
bakarí voru mörg á Ísafirði og
komum við stundum við í Gamla
bakaríinu á leið heim úr skólanum
og keyptum Berlínarbollur eða
Vínarbrauð. Fórum svo heim til
mín og fórum í „ Danskan“, bolta-
leik upp við steinvegg. Við Lára
vorum komnar upp í 5 bolta. Í
barnaskóla vorum við í skemmti-
nefnd, bjuggum til Hawai-dans,
saumuðum búninga, máluðum
leiktjöld með pálmatrjám o. fl.
Helgi Hannesson, kennari, var
mjög hjálplegur sýningardaginn.
Einnig man ég eftir danssýningu í
Gagnfræðaskóla, þar sem Lára
dansaði aðalhlutverkið og ég spil-
aði undir á píanó. María Gunnars-
dóttir, leikfimiskennari, hjálpaði
okkur mikið við þá sýningu. Sýn-
ingin hét „Dolls dream“. Við stofn-
uðum hljómsveit er við kölluðum
Brak og bresti. Vorum átta skóla-
systur, fjórir gítarar, ein tromma,
einn potthlemmur, Lára spilaði á
bjöllutrommu og ég á píanó. Við
sungum svo með af miklum krafti.
Fjölskyldur okkar þekktust vel og
vorum við mikið heima hvor hjá
annarri. Heimili Láru hét Bjarg,
þar var gaman að vera, mikil list,
lífsgleði og gestagangur.
Vinskapur okkar hélt áfram
eftir að við urðum fullorðnar, gift-
umst og eignuðumst börn. Ég hef
búið í Bandaríkjunum með minni
fjölskyldu í mörg ár og alltaf vor-
um við velkomin til Láru og Stef-
áns er við komum til Íslands, börn
okkar kynntust og eigum við
margar góðar minningar. Aldrei
get ég nógsamlega þakkað um-
hyggju og gæsku Láru til móður
minnar, er hún var á DAS.
Elsku Lára, þú hefur óendan-
lega auðgað mitt líf og alltaf verið
mín besta vinkona.
Í faðmi fjalla blárra, þar freyðir aldan
köld,
í sölum hamra hárra á huldan góða völd
sem lætur blysin blika um bládimm
klettaskörð,
er kvöldsins geislar kvika og kyssa Ísa-
fjörð.
(Guðm. Guðmundsson)
Innilegar samúðaróskir til fjöl-
skyldunnar.
Margrét Arnar.
Fleiri minningargreinar
um Láru Kristínu Samúels-
dóttur bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.