Morgunblaðið - 05.08.2014, Page 30

Morgunblaðið - 05.08.2014, Page 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014 Dagarnir sem nú eru framundan verða ljúfir og afmælið haldiðhátíðlegt. Núna erum við í sumarbústað austur í sveitum meðdætrum okkur og fjölskyldum þeirra. Árunum fjölgar, maður er farinn að hægja á sér í vinnu og er smátt og smátt að sætta sig við það og þar kemur á móti að góðum stundum með fólkinu manns fjölg- ar,“ segir Guðjón H. Finnbogason matreiðslumaður sem er 67 ára í dag, Guðjón er fæddur og uppalinn í Reykjavík en rekur ættir sínar til Eyja. „Eyjataugin er sterk,“ segir Guðjón sem nam kjötiðn og starfaði sem slíkur, meðal annars hjá Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki. „Svo fórum við suður og ég lærði matreiðslu. Ég var í 27 ár á sjónum; lengst á varðskipunum og seinna frökturum Eimskips. Síðustu árin var ég á Evrópurútu á Dettifossi með úrvalsmannskap,“ segir Guðjón sem heilsunnar vegna kom í land fyrir nokkrum misserum. Er nú kokkur á leikskólanum Vinagerði í Reykjavík og segist kunna því vel. „Krakkarnir hafa góða lyst, eru skemmtilegir og samstarfsfólkið fínt,“ segir Guðjón sem er kvæntur Jóhönnu Jónu Hafsteinsdóttur og eiga þau fjórar dætur. „Í seinni tíð hefur golfið gripið mig sterkum tökum sem áhugamál. Svo finnst mér líka gaman að hlusta á góða tón- list og lesa; til dæmis fróðleik um landið okkar og fólkið sem það byggir.“ sbs@mbl.is Guðjón H. Finnbogason er 67 ára í dag Morgunblaðið/Kristinn Við störf Í seinni tíð hefur golfið gripið mig sterkum tökum sem áhugamál,“ segir Guðjón H. Finnbogason, sem er nú kominn í land. Kokkurinn á Detti- fossi nú í leikskóla Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. H anna Katrín fæddist í París en þegar hún var um tveggja ára gömul flutti fjöl- skyldan til Íslands. Eftir nokkurra ára búsetu í Álfheim- unum lá leiðin í Breiðholtið þar sem Hanna Katrín og bræður hennar tveir slitu barnsskónum. Hanna Katrín gekk í Breiðholts- skóla og Hólabrekkuskóla, lauk stúdentsprófi frá MR 1985 og lærði eftir það hagfræði og heimspeki við HÍ: „Ég átti erfitt með að finna mér farveg í upphafi, byrjaði í við- skiptafræði, skipti yfir í hagfræði og kolféll svo fyrir heimspekinni þegar ég tók nokkra kúrsa þar. Ég endaði á því að ljúka prófi í heimspeki og hagfræði og það er góð blanda sem hefur reynst mér vel.“ Hanna Katrín mætti á sína fyrstu handboltaæfingu 10 ára gömul hjá ÍR og lék þar upp alla yngri flokk- ana í mjög sigursælum hópi. Fyrir tvítugt skipti hún yfir í Val og spilaði þar í tíu ár. Það var í gegnum handboltann sem starfsferill Hönnu Katrínar sem blaðamanns á Morgunblaðinu hófst: „Ég sótti um sumarstarf á blaðinu vorið 1988 eftir að hafa kynnst starf- inu aðeins sem íþróttafréttaritari, Hanna Katrín Friðriksson, framkvæmdastj. hjá Icepharma - 50 ára Með dætrunum Hanna Katrín með dætrum sínum, Elísabetu og Margréti, á fögrum haustdegi á Þingvöllum í fyrra. Valsari og veiðimaður Í blaðaviðtali Hanna Katrín svarar spurningum Ágústs Inga Jónssonar, blaðamanns Morgunblaðsins, í tilefni af Íslandsmeistaratitli ÍR í handbolta í 3 flokki. Viðtalið og myndin voru tekin á fermingardeginum hennar. „Íslendingar“ er nýr efnis- liður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Ullarnærföt í útivistina Þinn dagur, þín áskorun OLYMPIA Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími 561 9200 • run@run.is • www.run.is 100% Merino ull Góð og hlý heilsársföt fyrir karla og konur Stærðir: S – XXL Sölustaðir: Útilíf • Vesturröst • Hagkaup • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar Verslunin Bjarg, Akranesi • Verslunin Tákn, Húsavík Verslunin Blossi, Grundafirði • Kaupfélag Skagfirðinga Bjarnabúð, Bolungarvík • Hafnarbúðin Ísafirði Efnalaug Vopnafjarðar • Nesbakki, Neskaupsstað Kaupfélag V-Húnvetninga • Heimahornið, Stykkishólmi Eyjavík, Vestmannaeyjum 30 ÁRA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.