Morgunblaðið - 05.08.2014, Side 31
þar sem ég skrifaði um handbolta.
Þetta sumarstarf entist mér nokkuð
lengi, eða til sumarsins 1999 þegar
ég fór í framhaldsnám til Bandaríkj-
anna.“
Eftir nokkurn tíma sem íþrótta-
blaðamaður fór Hanna Katrín yfir á
viðskiptaritstjórn Morgunblaðsins
og varð síðar yfirmaður sérblaðsins
Daglegt líf auk þess sem hún stýrði
Ferðablaði blaðsins: „Ég vann á
Morgunblaðinu með fjölmörgum
frábærum einstaklingum sem marg-
ir eru meðal minna bestu vina í dag.
Og ekki er minnst um vert að það
var á Morgunblaðinu sem ég kynnt-
ist konunni minni, Ragnhildi Sverr-
isdóttur.“
Hanna Katrín og Ragnhildur
fluttu til Kaliforníu sumarið 1999
þar sem Hanna Katrín hóf MBA
nám hjá University of California í
Davis. Þar fæddust dætur þeirra,
Elísabet og Margrét í mars 2001.
Hanna Katrín starfaði hjá HR
fyrstu árin eftir heimkomuna. Vorið
2007 skipti hún um kúrs og tók við
starfi aðstoðarmanns Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar heilbrigðisráðherra.
Frá ráðuneytinu fór Hanna Katrín
til Icepharma þar sem hún er nú
framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs.
Jafnframt hefur hún setið í stjórn
MP banka frá árinu 2011.
„Mér líður yfirleitt best þegar ég
hef marga bolta á lofti í einu. Ég hef
í gegnum tíðina sinnt ýmsum verk-
efnum sem tengjast íþróttastarfi og
er líka mikil áhugamanneskja um
stjórnmál. Ég sit í stjórn Sjálf-
stæðra Evrópumanna og í stjórn
Hlíðarenda ses, sem m.a. er ætlað að
halda utan um fasteignir Vals.
Þess utan höfum við fjölskyldan
gaman af því að þvælast um fjöll og
firnindi, innan lands sem utan og er-
um þá oftar en ekki í hópi góðra vina
eða stórfjölskyldu sem við erum
báðar ríkar af.
Við höfum stundað veiði töluvert
og næst á dagskrá er að koma dætr-
unum yfir í fluguveiðina. Við Ragn-
hildur erum hins vegar að bæta
skotveiðinni á listann, öfluðum okk-
ur réttinda síðasta haust og stefnum
að því að borða okkar eigin villbráð
hér eftir.“
Fjölskylda
Eiginkona Hönnu Katrínar er
Ragnhildur Sverrisdóttir, f. 28.8.
1960, upplýsingafulltrúi Novators.
Foreldrar hennar: Sverrir Her-
mannsson, f. 26.2. 1930, fyrrv. alþm.,
ráðherra og bankastjóri í Reykjavík,
og Greta Lind Kristjánsdóttir, f.
25.7 1931, d. 20.11. 2009, húsfreyja.
Dætur Hönnu Katrínar og Ragn-
hildar eru Elísabet Friðriksson, f.
19.3. 2001, grunnskólanemi, og Mar-
grét Friðriksson, f. 19.3. 2001,
grunnskólanemi.
Bræður Hönnu Katrínar eru
Steen Magnús Friðriksson, f. 12.9.
1961, læknir í Svíþjóð, og Knútur
Þór Friðriksson, f. 15.10. 1968, flug-
maður í Garðabæ.
Foreldrar Hönnu Katrínar: Tor-
ben Friðriksson, f. 21.4. 1934, d. 4.2.
2012, fyrrv. ríkisbókari, áður fram-
kvæmdastjóri Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar, og Margrét
Björg Þorsteinsdóttir f. 17.10. 1930,
fyrrv. handavinnukennari.
Úr frændgarði Hönnu Katrínar Friðriksson
Hanna Katrín
Friðriksson
Frederik Frederiksenv
lögfræðingur í Faaborg
Astrid Frederiksen
húsfr. í Faaborg
Knud Frederiksen
landsréttarlögm. í Faaborg
Karen Signe Cecilie Skovgaard
húsfr. í Faaborg í Danmörku
Torben Friðriksson
ríkisbókari í Rvík
Thorvald Skovgaard
kaupm. á Fjóni
Kamma Skovgaard
húsfr. á Fjóni í Danmörku
Morten Skovgaard,
framkvæmdastj. í
Kaupmannahöfn
Jan Skovgaard
kennari á Sjálandi í
Danmörku
Guðrún Ólafsdóttir
húsfr. í Ólafsvík
Þorsteinn Jónsson
skrifstofustj. hjá Heildv.
Garðars Gíslasonar í Rvík
Katrín Jóhannsdóttir
ráðskona og húsfr. í Rvík
Margrét Björg Þorsteinsd.
handavinnukona í Rvík
Margrét Magnúsdóttir
frá Snjallsteinshöfða
Þorsteinn Magnússon
aðstoðarskrifstofustj.
Alþingis
Guðmundur Magnússon
blaðamaður á
Morgunblaðinu
Magnús Þorsteinsson
læknir í Rvík
Jóhanna Vigdís
Sæmundsdóttir
húsfr.í Rvík
Jóhann Sæmundsson
b. á Lækjarbotnum
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir
fréttam. á RÚV
Ragnhildur Hjaltadóttir
ráðuneytisstj.
Guðrún Erlendsdóttir
fyrrv. hæstaréttard.
Jóhanna Vigdís
Arnardóttir
leik- og söngkona
Sigríður
Erlendsdóttir
sagnfr. í Rvík
Signý Sæmundsdóttir
óperusöngkona
Katrín Sæmundsdóttir,
húsfr. í Austvaðsholti
Sæmundur Jónsson
fulltr. í Rvík
Jóhann Jónsson
skáld
Dýrunn Jónsdóttir
síðar Thulstrup, húsmóðir
í Danmörku
Steen Thulstrup
bankamaður í Ribe í
Danmörku
Jón Þorsteinsson
verkam. og sjóm. í
Ólafsvík
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014
Mánudagur
90 ára
Björgvin Ólafsson
Sigurjón Ágústsson
Sveinn Ólafsson
Þorbjörg Eiðsdóttir
85 ára
Jóna I. Hall
Jón William Sewell
Kristbjörn Eydal
Valdís G. Jónsdóttir
80 ára
Diðrik Jóhannsson
Guðný Jenny Bjarnadóttir
75 ára
Hjörtur Ágúst Magnússon
Kristín Friðfinnsdóttir
Kristjana Björnsdóttir
70 ára
Einar Einarsson
Elín Magnúsdóttir
Emilía Líndal Gísladóttir
Guðmundur Kr.
Kristjánsson
Haraldur Hrafnkelsson
Kristján Kristjánsson
Þorsteinn Björgvin
Jónmundsson
Þórunn Ellertsdóttir
60 ára
Eiríkur Arnar Harðarson
Gunnar Smári
Guðmundsson
Hansína Rut Rútsdóttir
Haraldur Sigurðsson
Katrín J. Björgvinsdóttir
María Editha Unabia
Ólafur Þór Jóhannsson
Ólöf Guðmundsdóttir
Þorgerður Gísladóttir
Þorvaldur Kristján
Sverrisson
50 ára
Antonín Zamykal
Árni Jónsson
Brynjólfur Jóhannsson
Díana Liz Franksdóttir
Elísabet Erla Dungal
Haraldur Magnússon
Magnús Jens Gunnarsson
Margrét Gunnarsdóttir
Margrét Kristjánsdóttir
Óskar Teitur Kristinsson
Ragnar Kristján Gestsson
Ragnheiður Kristín
Björnsdóttir
Sigríður Ása Sigurðardóttir
Sigrún Stefanía
Ingólfsdóttir
40 ára
Anna Þórsdóttir
Ásdís Björk Kristinsdóttir
Eygló Huld Jónsdóttir
Guðmundur Heimir
Jónsson
Kristinn Hafþór
Sæmundsson
Linda Einarsdóttir
Þórhildur Guðmundsdóttir
30 ára
Alban Daci
Anna Katarzyna Krzak
Davíð Alexander Corno
Garðar Heiðar Eyjólfsson
Helga Dögg Helgadóttir
Jón Kristjánsson
Magnea Ósk Sigrúnardóttir
Magnús Sigurðsson
Malgorzata Klonowska
Margrét Guðmundsdóttir
Símon Cecil Leplar
Sævar Örn Guðmundsson
Tomasz Cybulski
Þóra Björg Gísladóttir
Þriðjudagur
85 ára
Sigurborg
Sigurbjörnsdóttir
Sigurður Kristjónsson
80 ára
Gísli Steingrímsson
Ída Sigurðardóttir
Magnúsína Sæmundsdóttir
Sigríður C. Nielsen
75 ára
Adolf Haraldsson
Alexey Moroshkin
Anna M. Þorsteinsdóttir
Áslaug Þorsteinsdóttir
Guðbrandur Valtýsson
Guðrún Aðalsteinsdóttir
Guðrún Jóhanna
Jóhannsdóttir
Karl Steinberg
Steinbergsson
Matthías Hjartarson
70 ára
Ástríður Svala
Svavarsdóttir
Benedikt Jónmundsson
Guðrún María
Jóhannsdóttir
Inger Bjarna Ipsen
Sigfríð Þorvaldsdóttir
Sveinn Ingibergsson
60 ára
Adda Björk Jónsdóttir
Anna Stefanía
Þorvaldsdóttir
Ari Sigurðsson
Áslaug Magnúsdóttir
Ásta Ingvarsdóttir
Brynjólfur W. Karlsson
Drífa Lárusdóttir
Guðmundur Björgvinsson
Inga Pála Línberg
Runólfsdóttir
Jóna Rósbjörg
Þorvaldsdóttir
Magnús Eiríkur Jakobsson
Mustafa Magnús Koca
Nikulás Stefánsson
Soffía Guðrún
Gunnarsdóttir
50 ára
Ester Magnúsdóttir
Gunnar Marteinsson
Hafdís Guðmundsdóttir
Klara Valgerður
Sigurðardóttir
Kristján Kjartansson
Sigríður Sveinsdóttir
Sigurður Rúnar Hauksson
Sigurjón B. Hafsteinsson
Sonja Kjartansdóttir
Unnur Margrét Karlsdóttir
Þorbjörg G. Friðbertsdóttir
Þórir Aðalsteinsson
40 ára
Arnheiður I.
Svanbergsdóttir
Björn Markús Þórsson
Bryndís Líndal
Arnbjörnsdóttir
Hermann Þorsteinsson
Martha Elena Laxdal
Natallia Zlokh
Petra Halldórsdóttir
30 ára
Arkadiusz Grzegors
Kawalek
Guðrún Kristjana
Reynisdóttir
Helga Lára Sigurjónsdóttir
Huld Hafsteinsdóttir
Ingunn Helga Árnadóttir
Jón Magnús Jónsson
Kristín Ásta Kristinsdóttir
Márton Czenek
Til hamingju með daginn
Ásta Rut Hjartardóttir hefur lokið
doktorsverkefni sínu í jarðeðlisfræði
við jarðvísindadeild Háskóla Íslands.
Ritgerðin ber heitið Sprungusveimar
Norðurgosbeltisins á Íslandi (Fissure
swarms of the Northern Volcanic Rift
Zone, Iceland).
Norðurgosbeltið er hluti af fleka-
skilum Atlantshafshryggjarins, þar
sem Evrasíuflekann og Norður-
Ameríkuflekann rekur í sundur. Gos-
beltið samanstendur af 5-6 eldstöðva-
kerfum, sem hvert inniheldur meg-
ineldstöð og sprungusveima. Auk
þeirra liggur eldstöðvakerfi Tungna-
fellsjökuls í jaðri gosbeltisins. Í þessari
rannsókn voru sprungur og gos-
sprungur innan Norðurgosbeltisins
kortlagðar með mikilli nákvæmni eftir
loftmyndum. Niðurstöður rannsókn-
arinnar gefa til kynna að eldgos innan
sprungusveima Norðurgosbeltisins
séu algengari nær megineldstöðvunum
en fjær. Þéttleiki sprungna innan
sprungusveima er yfirleitt mestur
næst megineldstöðvunum, jafnvel þeg-
ar tekið hefur verið tillit til aldurs yf-
irborðshraunlaganna sem sprungurnar
liggja í. Sprungur innan sprungusveima
Norðurgosbeltisins stefna jafnan til
norðurs eða til norð-norðausturs,
meira og minna
hornrétt á fleka-
rekið. Þó má finna
undantekningar á
vissum svæðum.
Sprungur og gos-
sprungur nærri
þeim öskjum Norð-
urgosbeltisins sem
ekki eru huldar
jökli (í Öskju og Kröflu) hringa sig um
öskjurnar eða eru geislalægar út frá
þeim í stað þess að fylgja hefðbundinni
sprungustefnu Norðurgosbeltisins. Þá
má finna sprungur og gossprungur
nærri Vatnajökli sem stefna í austur-
vestur. Auk þessara dæma má finna
sprungur innan Norðurgosbeltisins
með vest-norðvestlæga stefnu þar
sem Norðurgosbeltið og þver-
brotabeltin fyrir norðan land mætast,
en slík þverbrotabelti geta einnig haft
önnur áhrif á sprungusveimana. Til að
mynda er hámarksþéttleiki sprungna í
sprungusveim Kröflu á móts við
Húsavíkurmisgengið, og þar víkkar
einnig sigdalurinn til norðurs í
sprungusveimnum. Þetta bendir til að
Húsavíkurmisgengið nái að sprungu-
sveim Kröflu, þótt yfirborðssprungur
misgengisins sjáist ekki.
Ásta Rut Hjartardóttir
Ásta Rut Hjartardóttir fæddist 17. maí 1978. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti árið 1997 og BSc-prófi í jarðfræði árið 2003. Árið
2008 lauk hún meistaranámi í jarðeðlisfræði frá Háskóla Íslands og doktorsnámi
2013. Hún vinnur á Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Foreldrar hennar eru
Auður Gunnarsdóttir og Hjörtur Jakobsson.
Doktor
OKKAR MISSIR ALDREI
EINBEITINGUNA
ÚRSMÍÐAMEISTARI
www.gilbert.is