Morgunblaðið - 05.08.2014, Page 32

Morgunblaðið - 05.08.2014, Page 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er erfitt að fást við foreldra, kennara, lögreglu eða yfirmenn í dag. Gættu þess að ganga ekki á hlut annarra. 20. apríl - 20. maí  Naut Ákvarðanirnar sem þú tekur í vinnunni í dag hafa áhrif á frama þinn. Taktu lífið ekki of alvarlega. Hvort það leiðir til einhvers eða ekki er undir báðum aðilum komið. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er óðs manns æði að leggja út í vandasamar samningaviðræður án þess að kynna sér málin fyrst ofan í kjölinn. Farðu á stað sem þú hefur aldrei komið á áður og lestu eitthvað nýtt. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Haltu fast um veskið í dag. Hafðu hemil á þér og hugsaðu um líkamann og hlífðu honum við gotteríi, súkkulaði og ábætisréttum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert ekkert fórnarlamb lengur! Æfðu þig að ganga, tala og vinna eins og þínum nýja sjálfum er einum lagið. Að skiptast á einhverju við systkin getur verið sérstaklega umbunandi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú bókstaflega ljómar þessa dagana og vekur eftirtekt hvar sem þú kemur. Vertu vakandi. Fasteignaviðskipti sem gerð eru í dag reynast skynsamleg fjárfesting. 23. sept. - 22. okt.  Vog Gættu tungu þinnar því aðrir kunna að vera mjög auðsærðir. Ein leið til að berjast fyrir lífreglum þínum er að lifa eftir þeim. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Núna koma ráð þín beint frá stjörnunum, svo fólk ætti virkilega að fylgja þeim. Breytingarnar bíða handan hornsins og það skiptir öllu máli að standa sig þang- að. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það verða báðir aðilar í sam- bandi að leggja sitt af mörkum ef sambandið á að geta gengið. Ræddu vandamálin við vini þína. Hlýddu á þá sem eru reynslunni ríkari. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er hætt við að þú lendir í deilum við valdamikinn einstakling í dag. En brjóttu odd af oflæti þínu því annars stefnir þú þér og verkum þínum í of mikla tvísýnu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ert fullur af krafti og iðar í skinninu eftir að koma öllu því í verk sem hefur verið á biðlistanum. Tafarlaus umbun skilur ekkert eftir sig. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þær aðstæður hafa skapast að þú ert í óvenju valdamikilli aðstöðu og því skiptir miklu máli að þú kunnir með vald þitt að fara. Að öðrum kosti visnar hún og deyr. Sigrún Haraldsdóttir skráði íLeirinn á mánudag að „í gær horfði ég á gæðinginn Storm frá Herríðarhóli og Árna Pál vinna Ís- landsmeistaratitilinn í tölti í þriðja sinn sem er einstakt. Ég var uppnumin af hrifningu yf- ir þessum dásamlega gæðingi og hugsaði: Hvergi á búenda bóli, á berangursmel eða í skjóli er annar svo lipur öndvegisgripur og Stormur frá Herríðarhóli.“ Páll Imsland skrifaði Sigrúnu og sagði sér hefði dottið í hug hinn endinn á kvarðanum, þ.e.a.s. aftur- endinn, þar sem þetta allt endar nú um síðir: Hvergi á ferlegri fótum fúnum og skökkum og ljótum gat aumari klár, sem eitt sinn var frár, en Uppspuna gamla frá Rótum. Sigrún svaraði Páli og sagði að þetta stæði nú allt saman til bóta hjá Uppspuna karlinum: Frjáls yfir steina og stokka, státinn, með unghestsins þokka, í heilmiklu stuði á himnum hjá Guði mun Uppspuni bráðlega brokka. Páll tók því vel, að Uppspuni karlinn væri í sæmilegum fé- lagsskap í Himnaríki, en ekki leist honum á lýsingu Sigrúnar á reið- götunum þar í sveit. Á Himnanna götunum grýttum gráskjóttur Uppspuni’ á spíttum böðlast á brokki og bróðir hans Sokki, að góðgangi öllum ónýttum. Jón Arnljótsson veltir fyrir sér hvernig knapa Uppspuni hafi þurft að þola. Misjafn er mannanna þokki, mest skal þó dást að þeim kokki, óra- sem -leið Uppspuna reið, oftast á fasmiklu brokki. Sigrún telur sig búa yfir upplýs- ingum sem rétt sé að miðla til þeirra sem hafa áhuga á að vita meira um Uppspuna: Hann Uppspuni er ansvítans klunni sem ærist við beisli í munni. Móðir hans er margfræg og þver, hin lullgenga Lygi frá Grunni. Og enn var kveðið um góðhest- ana Storm og Uppspuna, sem rúms- ins vegna verður að bíða morguns. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Stormur frá Herríðarhóli og Uppspuni frá Rótum Í klípu „EKKI LÁTA NÁ ÞÉR!“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞETTA ERU ANNAÐHVORT TVEIR MENN AÐ BERA KANÓ, EÐA LANGUR HESTUR Í STRIGASKÓM.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... hvernig hún sér þig. UMBÚÐALAUS FJÁRMÁLARÁÐGJÖF RUSLAFATAN HEFUR STAÐIÐ HÉR DÖGUM SAMAN OG ER FARIN AÐ LYKTA HRÆÐILEGA! HVERNIG GETURÐU BARA SETIÐ HÉRNA?! ÉG GÆTI SVO SEM FÆRT STÓLINN INN Í ELDHÚS ... VOFF! VOFF! VOFF! HA? VÆRI ÞÉR SAMA ÞÓ AÐ ÞÚ HLUSTAÐIR EKKI Á TÓNLIST Á MEÐAN ÉG GELTI Á ÞIG? Víkverji bíður spenntur eftir næstuniðurstöðu verðlagseftirlits ASÍ því hann fer ekki ofan af því að verð- lag hafi verið að hækka, þó að engin vísindaleg könnun hafi verið gerð á því heima fyrir. Þetta er meira svona tilfinning þar sem ekki er farið út í matvörubúð öðruvísi en að það kosti nokkra þúsundkalla. Það fer heldur ekki mikið fyrir verðsamkeppni mat- vörukeðjanna, friður virðist ríkja á markaðnum. Þó að Víkverji sé frið- arsinni að upplagi hefur hann ekkert á móti smá verðstríði, neytandanum í hag. x x x Talandi um verðstríð þá virðistvera í gangi hörð samkeppni á milli olíufélaganna. Hún birtist hins vegar ekki í einhverjum verðmun heldur því hvaða félag er fyrst til að bjóða afslætti fyrir lykil- og korthafa sína. Efast Víkverji um að það félag sem fyrst ríður á vaðið með afslætti nái að njóta þess eitthvað sér- staklega, því varla er liðin mínúta þar til hin félögin koma á eftir með sama afslátt. Einhverjir aurar til eða frá skipta litlu í þessu samhengi, þegar fullur tankur kostar tugi þúsunda króna. x x x Víkverji viðurkennir að vera meðlykla og kort hjá öllum félögun- um og reynir að fylgjast með verð- laginu hverju sinni. Þetta hefur það í för með sér að annað hvert sms sem berst er frá olíufélagi að minna á nýj- asta tilboð. Tilboðsstraumurinn hef- ur verið nokkuð reglulegur í sumar, nánast í hverri viku þegar fer að líða að ferðahelgi. Á fimmtudögum liggur við að Víkverji sé farinn að setja sím- ann á silent til að fá vinnufrið. x x x Símskeyti olíufélaganna koma þó ákristilegum tíma en það er annað en þegar tannlækna- eða læknastof- ur senda sms til að minna á næsta tíma. Dæmi eru um slíkar áminn- ingar um miðja nótt um helgi og þar með hefur svefnfriður heimilisins verið rofinn. Lítið hefur þýtt að kvarta, skuldinni er skellt á eitthvert vanstillt tölvukerfi. Það er eins og þessar tölvur lifi sjálfstæðu lífi. víkverji@mbl.is Víkverji Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er hreint, skjöldur er hann öllum sem leita hælis hjá honum. (Sálmarnir 18:31) Umboðsmenn um land allt. Kaupfélag Borgfirðinga, Veiðiflugan á Reyðarfirði, SR Byggingavörur á Siglufirði. RÉTTU TÓLINN Í LAXVEIÐINA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.