Morgunblaðið - 05.08.2014, Side 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014
þar með er það upptalið. Eistar
misstu nýfengið sjálfstæði sitt
1941 og við tóku fimmtíu ár undir
Sovétríkjunum þar sem þjóðin
hætti að þroskast eðlilega og gat
ekki lengur tekið eigin ákvarðanir
og ekki gert eigin mistök. Eistar
eru ennþá að vinna sig út úr þessu
og það hefur verið erfitt fyrir þá
að venjast nýju lífi sem frjáls þjóð.
Þetta sést bæði í stóru og smáu.
En maður sér líka að nútíminn er
mættur á sviðið. Þarna eru því
tveir mjög ólíkir heimar. Ekki er
svo hægt að gleyma að nefna að
þarna er djúpstæð fegurð og það
er yndislegt að ganga um ólík
hverfi í Tallinn, svo ég tali ekki
um sveitina þar sem nútíminn er
víða hvergi nærri og algjört tíma-
leysi ríkir. Að lifa í svona um-
hverfi bætir nýrri vídd inn í líf
manns, maður er ekki samur eftir
það.“
Hvernig myndirðu lýsa tónlist
þinni?
„Ég hef verið á kafi í tónlist alla
ævi en það varð vakning hjá mér
undir handleiðslu Helenu, í gegn-
um hana fann ég það sem ég hafði
verið að leita að. Ég sökkti mér í
tónlist frá þessum heimshluta, las
bækur, ferðaðist innan Eistlands
og til nágrannalandanna, allt með
það að markmiði að auðga
reynsluheim minn og leyfa þeim
áhrifum að smjúga inn í tónlist
mína.
Í tónlist minni er ég að velta
fyrir mér andlegum og nátt-
úrulegum hlutum og tengja þá
saman. Þessum hugleiðingum finn
ég síðan farveg í tónlist minni sem
er mjög persónuleg. Ég er ekki
svo mikið að rannsaka tónlist til
að semja tónlist, ég er miklu
fremur að rannsaka lífið til að
semja tónlist.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Bílaverkstæði Jóa býður upp á alla almenna
þjónustu fyrir flestar gerðir bifreiða.
með allt fyrir bílinn
Dalvegi 16a - 201 Kópavogi | Sími: 564 5520 | bilajoa@bilajoa.is | www.bilajoa.is
Opið
mánudaga til
fimmtudaga
8-17
föstudögum
8-15
Þarf bíllinn þinn á þjónustu að halda?564 5520
bilajoa.isVerk Páls hafa verið flutt á hinum ýmsu tónlistarhátíðum og verkhans Nostalgia var valið tónverk ársins á Íslensku tónlistar-
verðlaununum árið 2013. Vorið 2013 vann Páll tvisvar sinnum með
Kammersveit Tallinn sem frumflutti verk eftir hann. Sama ár flutti
strengjasveitin SKARK verk hans, Yfirráðandi kyrrð, á viðburðum og
tónlistarhátíðum í Berlín, Reykjavík og Noregi. Á Myrkum mús-
íkdögum 2014 voru tónleikar í Fríkirkjunni þar sem Caput og söng-
konan Tui Hirv fluttu dagskrá með verkum Páls. Tui er eiginkona Páls
og hefur frumflutt mörg verka hans. Undir merkinu Konveier hafa
þau svo skipulagt tónleika fyrir tónlistarhátíðir með verkum Páls og
annarra tónskálda.
Verðlaunatónskáld
TÓNVERKIN
Bandaríski tónlistarmaðurinn Neil
Young, sem nýlega efndi til tón-
leikahalds hér á landi, hefur lengi
verið þekktur sem mikill aðgerða-
sinni og nú hefur hann lagst í her-
ferð gegn ólífrænum bómull. Tón-
listarmaðurinn, sem meðal annars
hefur verið talsmaður Farm Aid og
rafmagnsbíla, mun héðan í frá ein-
göngu selja og ganga í varningi úr
lífrænni bómull en á tónleikum sín-
um í Laugardalshöll vakti hann ein-
mitt athygli á slíkum bol sem hann
klæddist á sviðinu.
Í bréfi sem hann birti á heima-
síðu sinni fyrir helgi taldi hann upp
ástæður þess að sniðganga eigi ólíf-
rænan bómull og má þar nefna að
bómull er sú nytjaplanta sem krefst
næstmestrar notkunar skordýra-
eiturs en slíkt sest að í jarðvegi og
getur haft slæmar afleiðingar fyrir
náttúruna í kringum bómullar-
akranna. Auk þess bendir hann á að
nota þurfi einn þriðja úr pundi af
skordýraeitri til að framleiða bóm-
ull í einn bol auk þess sem 2.700
lítra af vatni þurfi til að rækta næg-
an bómull fyrir einn slíkan.
davidmar@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Aðgerðasinni Neil Young og Crazy Horse í Laugardalshöll fyrr í sumar.
Neil Young gegn
ólífrænni bómull
Skordýraeitrið sest að í náttúrunni