Morgunblaðið - 05.08.2014, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 05.08.2014, Qupperneq 40
ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 217. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Lægsta fargjald lækkað um … 2. Tjöldin fuku í Eyjum 3. Segir dólgafemínisma ekki … 4. „Mun aldrei yfirgefa Gammy“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hljómsveitin Ojba Rasta heldur tónleika á veitingastaðnum Húrra í Reykjavík frá klukkan 21 til mið- nættis annað kvöld. Í sveitinni eru Arnljótur Sigurðsson bassaleikari, Gylfi Sigurðsson trommuleikari, Val- gerður Sigurðardóttir klarínettuleik- ari, Teitur Magnússon gítarleikari, Unnur Malín Sigurðardóttir, sem leik- ur á barítonhorn, Daníel Þröstur Sig- urðarson trompetleikari, Snorri Har- aldsson saxófónleikari, Steingrímur Karl orgelleikari, Hrafnkell Gauti Sig- urðsson gítarleikari og Erling Bang trommuleikari. Morgunblaðið/Eggert Ojba Rasta með tónleika á Húrra  Fjórir fjórðungar, hljómsveit gítar- leikarans Oddrúnar Lilju Jónsdóttur, kemur fram á jazzkvöldi Kex Hostel í kvöld. Auk hennar skipa hljómsveit- ina þau Sigrún Jónsdóttir á básúnu, Leifur Gunnarsson á bassa og Matt- hías Hemstock á trommur. Oddrún Lilja er ungur gítarleikari úr norska jazzheiminum og hefur lagt stund á gítarnám við Tónlistar- háskólann í Ósló. Hún hefur haldið tónleika víða um heim. Síðustu árin hefur hún farið í fjölda tónleikaferða um Afríku, Evrópu og til New York. Tónleikarnir hefj- ast kl. 20.30 og standa í u.þ.b. tvær klukku- stundir með hléi. Aðgangur er ókeypis. Fjórir fjórðungar á jazzkvöldi Kex Hostel Á miðvikudag Austlæg átt, 8-13 m/s og rigning sunnanlands og súld við austurströndina en annars úrkomulítið. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast vestanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg norðaustlæg átt og allvíða dá- lítil rigning með köflum en þurrt að kalla vestanlands. Hiti 8 til 17 stig að deginum, hlýjast vestantil. VEÐUR Viðar Örn Kjartansson held- ur áfram að fara á kostum í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og skoraði þrennu um helgina. Hann hefur þar með gert 18 mörk í 18 leikjum á fyrsta tímabili sínu sem atvinnumaður. Framgangan hefur að sjálf- sögðu vakið athygli knatt- spyrnufélaga víða um Evr- ópu en Vålerenga hefur sett háan verðmiða á Selfyssinginn. »1 Vålerenga vill háa summu fyrir Viðar „Þetta er mót sem allir Íslendingar geta verið stoltir af, ekki bara ung- mennafélagshreyfingin,“ sagði Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, eftir 17. Unglingalandsmótið sem fram fór á Sauðárkróki um helgina þar sem æska landsins spreytti sig í ýmsum grein- um. »4 Mót sem Íslendingar geta allir verið stoltir af Kylfingurinn Kristján Þór Einarsson úr GKJ vann sigur í Einvíginu á Nes- inu í gær, árlegu góðgerðamóti Nes- klúbbsins. Kristján Þór hafði betur gegn Hlyni Geir Hjartarsyni á loka- holunni, en mótið var hnífjafnt og spennandi. „Þetta er skemmtilegasta mótið sem maður spilar á,“ sagði Kristján við Morgunblaðið skömmu eftir sigurinn. »1 Kristján Þór vann sigur í Einvíginu á Nesinu ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ingileif Friðriksdóttir if@mbl.is Ólympíuleikarnir í efnafræði fóru fram í Hanoi í Víetnam á dögunum. Landslið Íslands í greininni hélt ut- an 19. júlí síðastliðinn, en mótið hófst daginn eftir og stóð yfir til 29. júlí. Efnafræðiliðið er skipað þeim Atla Frey Magnússyni, Jóhanni Ragnarssyni, Jóni Hlöðver Frið- rikssyni og Árnýju Jóhannesdóttur, en öll eru þau 19 ára gömul. Árný, sem er eina stelpan í liðinu, segir hugmyndina ekki alltaf hafa verið að komast í liðið. „Ég var að fara í inntökuprófið í læknisfræði og mig langaði að vita hvar ég stæði í efnafræði,“ segir hún. „Ég ætlaði nú ekki að komast svona langt.“ Eftir forkeppni sem kom Árnýju í efstu 14 sætin á landinu tók hún þátt í úrslitakeppni þar sem hún endaði í 3. sæti og komst því beint inn í liðið. „Þar sem ég vissi að leik- arnir yrðu í Víetnam var ég rosa- lega spennt fyrir þessu,“ segir hún. Stífar æfingar fyrir leikana Árný segir undirbúning hafa ver- ið mikinn og að seinustu vikurnar fyrir mót hafi verið strembnar. „Það var tveggja vikna skipulögð þjálfun rétt fyrir mótið og hún var frekar ströng,“ segir hún. „Þá vorum við í þjálfun frá klukkan hálfníu á morgnana til 6 á daginn. Við mátt- um ekki vera í vinnu á meðan og þurftum að einbeita okkur algjör- lega að þessu.“ Þjálfarar og liðsstjórar liðsins voru þau Katrín Lilja Sigurðar- dóttir, Már Björgvinsson og Finn- bogi Óskarsson. Héldu þau utan um þjálfun og aðstoðuðu hópinn fyrir keppnina. Katrín Lilja og Finnbogi fóru auk þess með hópnum út og þýddu prófið svo liðið fengi það allt á íslensku. „Sumt efnið var úr meistaranámi í Háskólanum svo þetta var mjög mikið nýtt að læra á rosalega stuttum tíma,“ segir Árný. Árný segir vel hafa verið staðið að keppninni. „Þetta var ótrúlega flott og rosalega vel skipulagt,“ segir hún. Þrátt fyrir að hafa farið sem lið kepptu þau Atli Freyr, Jóhann, Jón Hlöðver og Árný öll sem einstak- lingar. Árangurinn segir hún hafa verið fínan, þrátt fyrir að ekki hafi fylgt mörg verðlaun heim. „Við vor- um oft með í kringum 20-30 stig af 100. Það er alveg allt í lagi,“ segir hún. Verklegu prófin segir hún þó hafa verið þeirra sterku hlið. „Ég fékk 25 stig af 40 í verklegu sem þykir mjög gott.“ Ástæðuna fyrir þessu segir hún þá að Ísland standi vel að vígi í verklegri kennslu. „Við erum svo fámenn að við fáum okkar athygli í verklegum tímum. Erlendis eru oft 200 manns í tíma og þá er ekki möguleiki á sömu tækifærunum í tímum,“ segir hún. Lærðu margt á stuttum tíma  Ungt lið á Ól- ympíuleikunum í efnafræði Ljósmynd/Katrín Lilja Sigurðardóttir Flottur hópur Frá vinstri má sjá Finnboga Óskarsson, annan þjálfara liðsins, Atla Frey Magnússon, Jóhann Ragn- arsson, Jón Hlöðver Friðriksson og Árnýju Jóhannesdóttur liðsmenn ásamt Katrínu Lilju Sigurðardóttur liðsstjóra. Stíf dagskrá var á Ólympíuleikunum í efnafræði í Hanoi í Víetnam og segir Árný lítinn tíma hafa gefist í lærdóm. „Það var séð til þess að maður væri ekki að læra neitt á meðan maður var þarna úti,“ segir hún. „Við vöknuðum klukkan hálf- sex og fórum í morgunmat og svo tók við ýmiss konar dagskrá,“ segir hún. Árný segir hópinn hafa skoðað margt og hitt margt fólk. „Þeir vildu bara að við skemmtum okkur,“ seg- ir hún. „Þau lið sem voru mjög framarlega í keppninni eins og Bandaríkin og Kína tóku samt ekki þátt í þessu, en við Íslendingarnir ákváðum bara að hafa gaman af þessu.“ Árný segir íslenska hópinn hafa verið með þeim elstu í keppn- inni, en skilyrði til þátttöku eru að vera undir tvítugu og ekki byrjaður í háskóla. „Við Norðurlandabúar er- um yfirleitt elst þarna því við byrj- um tvítug í háskóla, en í Kína byrjar maður 16 ára í háskóla.“ Árný mun hefja nám í læknis- fræði í Háskóla Íslands í haust, Atli Freyr mun hefja nám í efnaverk- fræði í haust, en liðsfélagar þeirra þeir Jón Hlöðver og Jóhann munu klára lokaárið sitt í Mennta- skólanum í Reykjavík. Vildu bara skemmta sér STÍF DAGSKRÁ Á ÓLYMPÍULEIKUNUM Í EFNAFRÆÐI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.