Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.08.2014, Blaðsíða 22
Morgunblaðið/Þórður
Lilja Björk Haraldsdóttir og Helga Ólafsdóttir eru saman með tímana. „Maður þarf ekki að kaupa rándýra dýnu eða
vera í ákveðnum fötum heldur er hægt að gera jóga þar sem maður vill gera jóga,“ segir Lilja.
Jóga skýtur upp kollinum á óvænt-um stöðum víða í höfuðborginnium þessar mundir. Lilja Björk
Haraldsdóttir og Helga Ólafs-
dóttir færa jógað til fólksins í nýj-
um jógatímum sem þær auglýsa á
Facebook undir nafninu „Pop-Up
Yoga Reykjavík“.
„Þetta er hugmynd sem ég er bú-
in að ganga með í maganum í eitt
og hálft ár. Mig langaði að gera
þetta í fyrra en hafði ekki tækifæri
til þess þá. Nú fékk ég í lið með
mér Helgu Ólafsdóttur vinkonu
mína og við stofnuðum þetta í maí í
ár,“ segir Lilja, sem fékk hugmynd-
ina meðal annars frá samskonar
jóga annars staðar í heiminum.
Jóga er oftar en ekki kennt í
hvítmáluðum og hreinum sölum en
Lilju langaði að prófa eitthvað
annað.
„Mig langaði til að færa jógað úr
venjulega rýminu sem það er stund-
að í og gera það opnara og aðgengi-
legra fyrir alla,“ segir hún en hing-
að til hafa þær verið með tíma í
Grasagarðinum, styttugarðinum hjá
Listasafni Einars Jónssonar, Kex
Hosteli, Loft Hosteli og Hljóm-
skálagarðinum.
Upplifir iðkandinn jóga á annan
hátt á nýjum stöðum?
„Upplifunin er klárlega öðruvísi.
Sérstaklega er munur á því að vera
úti og inni. Inni erum við með tón-
list og í lokuðu rými. Úti nær mað-
ur að tengjast betur og upplifa sig
sterkar í takt við náttúruna og
umhverfið.“
Þarf ekki dýran búnað
Hún segir hugmyndina vera að
leggja áherslu á að hægt sé að gera
jóga alls staðar. „Maður þarf ekki
að kaupa rándýra dýnu eða vera í
ákveðnum fötum heldur er hægt að
gera jóga þar sem maður vill gera
jóga. Það er mín pæling á bak við
þetta. Þú getur gert jóga þegar þig
langar, þar sem þig langar og eftir
þinni getu. Við erum að reyna að
færa jógað til fólksins.“
Margir koma með dýnur í tímana
en einnig eru þær með nokkrar
dýnur sem þær lána út. „Eða fólk
gerir jóga bara á grasinu. Það er
allt í lagi,“ segir Lilja en þær Helga
deila kennslunni í tímunum. „Önnur
byrjar en hin tekur við lokastöð-
unum og slökuninni og það hefur
gengið mjög vel.
„Tímarnir eru opnir öllum og í
raun gjaldfrjálsir en við tökum á
móti frjálsum framlögum og pening-
arnir renna þá til frekari styrkingar
Pop-Up Yoga Reykjavík en eins og
er erum við ekki að þiggja nein laun
fyrir það sem við erum að gera.
Þetta er mjög mikið hugsjónastarf.“
Lilja og Helga stunduðu saman
jógakennaranám hjá Yoga Shala og
útskrifaðist Lilja í desember 2013.
„Ég hef verið að kenna hér og þar
og líka fyrir vini og vandamenn en
hef ekki verið með fastan stað neins
staðar,“ segir hún.
Tími á sunnudaginn
Næsti jógatími hjá Pop-Up Yoga
Reykjavík er um helgina í Grasa-
garðinum í Reykjavík á sunnudag-
inn klukkan 15.
„Við setjum aldrei auglýsingar
fyrr en tveimur til þremur dögum
fyrr á Facebook og Instagram,“
segir Lilja þannig að það borgar sig
að fylgjast með þeim þar.
Tímarnir eru 75 mínútur að
lengd. „Það er alltaf hægt að gera
eitthvað smávegis en til að fá upp-
bygginguna í tímanum, hita upp,
komast inn í öndunina, gera jóga-
stöður og ná góðri slökun í lokin er
mikilvægt að gefa sér tíma í þetta,“
segir hún um tímalengdina.
Aðspurð hvaða tegund jóga þær
kenni segir hún að það kallist
„vinyasha-flæði“. „Við gerum
skemmtilega rútínu sem byggist á
öndun, upphitun, góðu flæði og
góðri slökun í lokin,“ útskýrir Lilja.
Jóga gegn ofbeldi
Það er fleira á dagskrá hjá þeim því
framundan er samstarfsverkefni
með ungmennaráði UN Women á
Íslandi. „Við stöndum fyrir jógaþoni
að kanadískri fyrirmynd. Þetta er
maraþon í formi jóga. Það þýðir að
það verða gerðar 108 sólarhyllingar
undir handleiðslu þriggja kennara.
Þetta tekur rúmlega tvo tíma. Til-
gangurinn er að gera jóga til ákalls
um afnám ofbeldis,“ útskýrir Lilja
en jógaþonið fer fram í Hljóm-
skálagarðinum klukkan 12 laug-
ardaginn 16. ágúst.
Skráning er á unwomen.is og er
þátttökugjaldið 2.900 krónur og
rennur til verkefna UN Women víðs
vegar um heiminn.
Það er ástæða fyrir því að sólar-
hyllingarnar eru 108 talsins. „Talan
108 er heilög innan jóga. Margir
jógar gera 108 sólarhyllingar til
dæmis á sólstöðum og líka eru
möntrur kyrjaðar 108 sinnum af
sérstöku tilefni,“ segir Lilja en þátt-
takendur stunda jóga eftir eigin
getu og hvíla sig eftir þörfum.
Pop-Up Yoga Reykjavík heldur
áfram fram í september fyrir þá
sem hafa ekki enn mætt í tíma og
verður síðan aftur starfrækt næsta
sumar.
* Úti nær maðurað tengjast betur og upplifa sig
sterkar í takt við
náttúruna og
umhverfið.
Það er öðruvísi upplifun að stunda jóga í Hljómskálagarðinum en inni í sal.
Á meðal þeirra staða sem Pop-Up Yoga Reykjavík hefur verið með tíma eru Loft Hostel og Kex Hostel.
LILJU BJÖRK HARALDS-
DÓTTUR LANGAÐI TIL
AÐ FÆRA JÓGAÐ ÚR
HINUM HEFÐBUNDNA
JÓGASAL OG GERA ÞAÐ
OPNARA OG AÐGENGI-
LEGRA FYRIR ALLA.
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Færa jógað til fólksins
JÓGATÍMAR ÚTI OG INNI UM ALLA BORG
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.8. 2014
Heilsa og hreyfing
Lágkolvetnamataræði þarf alls ekki að vera snautt allri gleði. Á authoritynutrition.com er til
dæmis bent á að á slíku mataræði sé hægt að njóta þess að borða smjör, avókadó, beikon,
dökkt súkkulaði og ýmiss konar hnetusmjör. Þessi matur er hitaeiningaríkur en þegar kol-
vetnunum er haldið í lágmarki er hægt að njóta þessa góðgætis án þess að bæta á sig.
Hollusta í hófi