Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.08.2014, Blaðsíða 32
ÓDÝRT MIÐ DÝRT
Logik blandari
L300GR13E
2x 300 ml könnur. Stiglaus
hraðastillir. Getur tekið ís.
Verð 4.995 kr.
Blender 1,5l
obh-nordica
500w. Hraðastillir. Get-
ur tekið ís. Tekur 1.5 l
Verð: 14.990 kr.
Kitchenaid blandari
Traustur og sterkur blandari og Kitchenaid
þekkja allir. Allur neðri hluti úr málmi. 1250 ml
glerkanna. Kraftmikill 500W mótor með þríátta
stórum stálhníf. Snertitakkar með sléttu yf-
irborði. 5 hraðastillingar. Auðveldur í notkun.
Mylur ís auðveldlega. Fáanlegur í fleiri litum.
Verð 44.990 kr.
Hvernig blandara
viltu í þitt eldhús?
*NASA ætlar að senda enn einn rannsóknar-flakkarann til Mars og er áætlað að nýjastimeðlimurinn í hópi rannsóknarflakkaraNASA muni lenda á plánetunni rauðu árið2021. Meðal þess búnaðar sem flakkarinnverður með er veðurathugunartæki og sér-stök tækni til að breyta koltvísýringi í súr-
efni. Það eru því spennandi tímar fram und-
an hjá Geimferðastofnun Bandaríkjanna.
NASA sendir enn einn flakkarann
Græjur
og tækni
S
veigjanlegur skjár býður upp
á gífurlega möguleika í bæði
sjónvarps- og snjall-
símatækni. Spjaldtölvan sem
hægt verður að brjóta saman,
snjallsíminn sem passar utan um
úlnliðinn og sveigjanlegur sjón-
varpsskjár sem býður upp á svipaða
upplifun og bíótjald. Í framtíð-
armyndum Hollywood sjáum við
reglulega tækni sem þessa en
hversu langt líður þar til við getum
sjálf nýtt okkur þessa tækni og
hvernig mun hún breyta daglegu lífi
fólks og fyrirtækja? Hjá tækniris-
anum LG hafa menn ekki setið auð-
um höndum í þróun og framleiðslu
sveigjanlegra skjáa. Fyrir tveimur
árum kynnti tæknirisinn fyrir okkur
e-ink skjáinn og í fyrra hálfsveigj-
anlegan OLED-skjá fyrir G Flex-
snjallsímann. Núna býður hann
markaðnum upp á 18 tommu
OLED-skjá sem hægt er að rúlla
upp eins og dagblaði, eða svo gott
sem. Fastlega má búast við því að
þessi tækni muni opna á fjöldann
allan af möguleikum fyrir tölvu-
framleiðendur og snjallsíma-
fyrirtæki. Ómögulegt er að segja
hvernig tæknin mun nýtast en það
er alveg öruggt að verkfræðingar
og tæknimenn um allan heim munu
hugsa upp nytsamlegar hugmyndir
út frá hinum sveigjanlega OLED-
skjá LG-tæknirisans. Jafnvel erum
við á þröskuldi e-pappírsins sem
gerði dagblaðsprentun úrelda. Þar
með yrði draumur hvers útgefanda
að veruleika enda óþarfi að bæði
prenta og bera út dagblöð til fólk.
Lesendur Morgunblaðsins gætu því
fengið blaðið sent í sveigjanlega e-
pappírinn sinn og lesið blaðið í mak-
indum uppi í sófa eða við morg-
unverðarborðið.
Gegnsæi skjárinn kominn
Sveigjanlegi skjárinn hefur vakið
mikla athyggli en hugvitsmenn LG
létu ekki þar við sitja og kynntu
einnig fyrir markaðnum gegnsæa
skjáinn. Gegnsæið er reyndar ekki
meira en 30 prósent en engu að síð-
ur er um merkan áfanga að ræða
sem líkt og sveigjanlegi skjárinn á
eftir að opna á ótal nýja möguleika
fyrir framleiðendur annara tækja.
Munu bílstjórar framtíðarinnar nýta
sér þessa tækni? Ekki er ólíklegt að
bílaframleiðendur hylji innanverða
bílrúðuna með gegnsæjum skjá þar
sem bílstjórinn getur fengið upplýs-
ingar um allt sem er að gerast í
kringum hann, t.d. hraða bílsins á
undan, lengd í næsta bíl, hraðatak-
mörkun á götu, hættur á veginum
o.fl. sem ökumönnum kann að vera
nauðsynlegt og þægilegt að fá upp-
lýsingar um. Hvernig sem þessi
tækni mun nýtast öðrum fyr-
irtækjum og framleiðendum er
öruggt að hún verður orðin hluti af
lífi okkar innan fárra ára. Forsvars-
menn LG segja að þeir ætli sjálfir
að nýta tæknina í sjónvarpsskjái
fyrirtækisins og blanda henni saman
við sveigjanlega skjáinn. Stefnan er
sett á gegnsæjan og sveigjanlegan
60 tommu sjónvarpsskjá fyrir árið
2017. Helsta hindrun LG í dag er
upplausnin sem skjárinn býður upp
á, en hún er ekki nema 1.280x810.
Markmið LG er að árið 2017 verði
upplausnin á sveigjanlega og gegn-
sæja sjónvarpsskjánum komin upp í
UHD, 4K, 3.840x2.160.
Sveigjanlegur
og gegnsær
VERKFRÆÐINGAR OG TÆKNIMENN TÆKNIRISANS LG
HAFA EKKI SETIÐ AUÐUM HÖNDUM VIÐ ÞRÓUN Á NÝRRI
SKJÁTÆKNI, EN FYRIRTÆKIÐ HEFUR KYNNT TIL SÖGUNAR
HVORT Í SENN SVEIGJANLEGAN SKJÁ OG GEGNSÆJAN.
Vilhjálmur A. Kjartansson Vilhjalmur@mbl.is
Gegnsæi skjárinn frá LG er væntanlegur á markað en forsvarsmenn hjá LG stefna á að koma honum í sölu 2017.
Sveigjanlegur tölvu- eða sjónvarpsskjár getur gjörbylt tækniþróun næstu ára.
Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin í Faxafeni) - Sími 553 3450 - Vefverslun: www.spilavinir.is - sendumumallt land!
kl. 13:00Upplestur
20%
afsláttur
Við aðstoðum þig við að velja spilið
og pökkum því inn fyrir þig.
Gefðu spil
í afmælisgjöf
Sendum
um allt land
spilavinir.is