Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.08.2014, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.8. 2014
BÓK VIKUNNAR Ekki eru margar þýddar glæpasögur á
markaði nú um stundir en ein þeirra er Piparkökuhúsið eftir
Carin Gerhardsen sem er fremur góð afþreying.
Bækur
KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR
kolbrun@mbl.is
M
amma segir er fyrsta
skáldsaga dönsku skáld-
konunnar Stine Pilgaard.
Aðalpersóna bókarinnar er
ung kona sem flytur heim
á prestsetrið þegar kærastan segir henni
upp. Hún reynir af fremsta megni að
hlusta á fólkið sitt og átta sig á eðli ást-
arinnar.
„Ég er hugfangin af alls kyns sam-
skiptum og því hvernig fólk talar saman,“
segir Pilgaard. „Aðaláherslan í bókinni er á
samtölin, sem ég samdi reyndar flest áður
en hinn eiginlegi söguþráður varð til.
Skáldsagan mín er því eins konar rannsókn
á tungumálinu. Tungumálið er mjög áhuga-
vert og við teljum að með því að nota það
séum við að nálgast aðra, en mín reynsla
er að stundum vinni tungumálið gegn þess-
ari nánd, sérstaklega þegar um er að ræða
fjölskyldumeðlimi eða manneskjur sem
þekkja mann mjög vel. Þetta fólk heldur
að það þekki mann svo vel að það er alveg
sama hvað maður segir, þau þykjast vita
hvað þér finnst og um leið skiptir tungu-
málið engu. Ég trúi á tungumálið en um
leið er ég tortryggin á það.“
Í bókinni er fjallað um ástarsamband
milli kvenna. Af hverju kaustu að skrifa
um konur og ást?
„Það má segja að bókin byggi á eigin
reynslu. Ástkona mín fór frá mér og ég
varð mjög döpur. Mig langaði til að finna
merkingu í því sem gerðist og skrifa um
brostið hjarta. Maður heldur að maður geti
talað um vandamálin en stundum þegar
maður gerir það fer maður bara í enda-
lausa hringi.
Þegar ég var ung lesbísk stúlka langaði
mig til að lesa bækur um lesbíur en þegar
ég fann slíkar bækur snerust þær nær ein-
göngu um endalaus vandamál og flækjur.
Mig langaði til að skrifa bók um ást og
lesbíur þar sem ást og minningar væru í
forgrunni. Um leið vildi ég skrifa bók þar
sem það væri ekkert aðalatriði að ástin
væri á milli stúlkna.“
Mamma segir er skemmtileg bók og
þægileg aflestrar og verður síst lýst sem
þunglamalegri. Það vinnur einnig með bók-
inni að Pilgaard hefur skemmtilegan húm-
or. „Mín persónulega sýn á heiminn er
þannig að ég sé oft skoplegu hliðarnar. Ég
vildi ekki að bók mín væri þunglamaleg en
vildi líka að hún væri ekki án alvöru,“ seg-
ir Pilgaard. „Stundum er húmor aðferð til
að segja mikilvæga og alvarlega hluti án
þess að vera leiðinlegur. Sáraukafyllstu
kaflarnir í bókinni snúast um fólk sem þrá-
ir góð samskitpi, foreldrarnir vilja tala við
dóttur sína og hún vill segja þeim ýmislegt
en þau finna ekki sameiginlegan flöt. Það
getur verið fyndið hversu mjög þau reyna
án árangurs en um leið er það sársauka-
fullt.“
Ný skáldsaga eftir Pilgaard kemur út í
Danmörku á næsta ári og fjallar um fólk
sem býr í sama húsi og þar vill svo til að
Íslendingasögur koma nokkuð við sögu.
„Ég er mjög hrifin af Íslendingasögunum,“
segir Pilgaard, „og ein persóna bókarinnar
er háskólakennari sem rannsakar Íslend-
ingasögur og í hvert sinn sem þessi per-
sóna birtist talar hún um Íslendingasögur.“
– Hljómar eins og hér sé á ferð forvitnileg
skáldsaga fyrir Íslendinga sem þyrfti að
þýða.
NÝ BÓK FRÁ PILGAARD ER Á LEIÐINNI OG ÞAR KOMA ÍSLENDINGASÖGUR NOKKUÐ VIÐ SÖGU
Í leit að merkingu
„Stundum er húmor aðferð til að segja mikilvæga og alvarlega hluti án þess að vera leiðinlegur,“
segir danska skáldkonan Stine Pilgaard, höfundur skáldsögunnar Mamma segir.
DANSKA SKÁLDKONAN STINE
PILGAARD SKRIFAÐI FYRSTU SKÁLD-
SÖGU SÍNA EFTIR AÐ ÁSTKONA
HENNAR YFIRGAF HANA. Í BÓKINNI
FJALLAR HÚN UM ÁSTINA,
SAMSKIPTI OG TUNGUMÁLIÐ.
Sumar bækur fylgja manni alla tíð, dýpka mann þegar best lætur á með-
an aðrar eru einfaldlega bara góð afþreying eða þá ekki. Ég held mest
upp á góðar íslenskar skáldsögur. Kornungur las ég fyrstu bók Hall-
dórs Laxness, Barn náttúrunnar, sem hafði mikil
áhrif á mig, ekki síst vegna þess hve ungur Halldór var
þegar hann skrifaði hana. Nóbelskáldið á alltaf vissan
sess hjá mér eins og svo mörgum öðrum.
Verk sem fjalla um liðinn tíma heilla mig gjarnan og
ég hef alltaf haft mikinn áhuga á sagnfræði, sem ég sæki
eflaust til föðurættarinnar (Bergsættin). Ritröð Jóns
Kalmans Stefánssonar, Himnaríki og Helvíti,
Harmur englanna og Hjarta mannsins, fannst
mér hreint frábær lesning og magnþrunginn skáld-
skapur með vísan í líf fólks einungis tveimur eða þremur ættliðum aftur
í tíma. Einnig hreif mig djúpt Svar við bréfi Helgu, eftir Bergsvein
Birgisson sem er með betri skáldsögum síðari ára. Bækur Einars
Kárasonar Ofsi, Óvinafagnaður og Skáld um Sturlungaöldina
ættu að vera skyldulesning. Fyrir skömmu lauk ég við einstaka bók eftir
Einar Má Guðmundsson, Fótspor á himnum, sem ég einhvern
veginn missti af á sínum tíma þar sem ég bjó þá erlendis.
Ævisögur eru í miklum metum hjá mér og hjálpa til að tengja við og
skilja bæði liðna tíma sem og nútímann fyrir utan að kynnast viðkom-
andi persónu. Ein bók stendur þar upp úr fyrir mér, en það er bók
Guðjóns Friðrikssonar um Einar Benediktsson. Lífshlaup hans er
auðvitað heillandi viðfangsefni, en Guðjón fer með mann þar í stór-
brotið lífshlaup skáldsins. Fyrir utan þetta má líka nefna góða afþreyingu
með Jo Nesbø sem er meistari á sínu sviði með lögreglumanninn og
sögupersónuna Harry Hole og síðan Lee Child þegar maður vill
ekki hugsa of mikið og láta ofurhetjuna Jack Reacher leysa málin
örugglega.
Í UPPÁHALDI
GUÐNI BERGSSON
LÖGFRÆÐINGUR
Verk sem fjalla um liðinn tíma heilla Guðna Bergsson mjög og hann hefur
einnig alltaf haft gríðarlega mikinn áhuga á sagnfræði.
Morgunblaðið/Kristinn
Einar Kárason
BÓKSALA 1.-31. JÚLI.
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Bragð af ástDorothy Koomson
2 Grillréttir HagkaupsHrefna Rósa Sætran
3 PiparkökuhúsiðCarin Gerhardsen
4 Amma biður að heilsaFredrik Backman
5 Anna og Elsa eignast nýjan vinWalt Disney
6 Umhverfis Ísland í 30 tilraunumÆvar Þór Benediktsson
7 Frosinn - ÞrautabókWalt Disney
8 Fyrstu 100 tölurnar, litirnir ogformin
9 Eða deyja ellaLee Child
10 Vegahandbókin: ferðahandbókinþín
Ýmsir
Kiljur
1 Bragð af ástDorothy Koomson
2 PiparkökuhúsiðCarin Gerhardsen
3 Amma biður að heilsaFredrik Backman
4 Eða deyja ellaLee Child
5 Marco-áhrifinJussi Adler-Olsen
6 Síðasta orðsending elskhugansJojo Moyes
7 ParadísarfórnKristina Olsson
8 SandmaðurinnLars Kepler
9 20 tilefni til dagdrykkjuÞorbjörg Alda Marinósdóttir
10 Þessi týpaBjörg Magnúsdóttir