Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.08.2014, Blaðsíða 33
* SIM-kortið er svokallað nano-SIM, sem er ekki nema 12,3x8,8 mm
að stærð sem er sama stærð og í iP-
hone 5-línunni (og verður í 6), sam-
anborið við micro-SIM eins og í
Samsung Galaxy S5 sem er 15x12
mm. Það er ekkert mál að koma
því í símann þegar hann er nýr -
sérstakt límband sér til þess, en
mjög snúið að skipta um kort.
Frá því Nokia lagði Symbian-stýrikerfinu ogákvað að Windows-væðast (og frá því Micro-soft keypti símahluta Nokia) hafa Nokia-
símar batnað ófluga. Vélbúnaðurinn hefur reynd-
ar alltaf verið í fremstu röð en nokkuð vantað
uppá í notendaskilum – í viðmóti og hugbúnaði.
Fyrir stuttu var fjallað um Windows 8.1 á þess-
um stað og því óþarft
að fjölyrða um það,
en Lumia 930 notar
einmitt þá útgáfu
með öllum sínum
kostum.
Síminn er áþekkur
eldri Lumia-símum
við fyrstu sýn, en
fljótlega sést þó að
hann er nokkuð
breyttur og þá á ég
ekki við litapalettuna
– bakhliðin á símanum sem ég fékk til prófunar
var neonappelsínugul – heldur að á símanum er
verklegur málmkantur, einshverskonar álblanda
sem gerir hann óneitanlega traustlegan en lík-
lega heldur þyngri en ella, 167 g.
Neðan á símanum er tengi fyrir MicroUSB til
að tengja hann við tölvu og/eða hlaða ofan á hon-
um rauf fyrir SIM-kort og tengi fyrir heyrnartól.
Á kantinum hægra megin er hnappur
til að hækka og lækka, straumrofi og
síðan hnappur fyrir myndavél sem
auðveldar óneitanlega að taka mynd-
ir.
Skjárinn er frábær, 5" AMOLED
með 1080 x 1920 díla upplausn og 441
ppi sem geirir hann einstaklega skýr-
an. Hann er líka vel bjartur, eins og
AMOLED skjáa er siður, og mjög
gott að nota hann utan dyra.
Annar mikill kostur við símann er
myndavélin, að vísu ekki eins góð og á
Lumia 1020, flaggskipi myndavéla-
símanna, en afbragð engu að síður.
Hún er 20 MP, 4992 x 3744 díla, með
Carl Zeiss linsu, hristivörn í linsu op-
tics, sjálfvirka skerpu, tvöfalt LED
flass og svo má telja og tekur 1080p
myndskeið við 30 ramma á sekúndu
(líka hristivörn í myndskeiðum). Hljóðupptaka á
vélinni er ævintýralega góð. Myndavélin að fram-
an er 1,2 MP.
Tæknilega stendur Lumia 930 flaggskipunum
frá Apple, Samsung og HTC lítið eða ekkert að
baki. Akkilesarhæll Nokia-símanna hefur verið
stýrikerfið sem hefur verið gott, en ekki nógu
gott, og aðgangur að smáforritum. Síðasta upp-
færsla á Windows, útgáfa 8.1, var aftur á móti
stórt skref í rétta átt, svo stórt reyndar að lítið
sem ekkert ber á milli og því má segja að Lumia
930 sé ekki bara besti Windows-síminn, heldur
langbesti Windows-síminn og einfaldega einn
besti farsíminn á markaði í dag – þennan síma
væri ég til í að eiga.
LANGBESTI WINDOWS-SÍMINN
* Neðan á símanum er tengi fyrir MicroUSB til aðtengja hann við tölvu og/eða hlaða ofan á honum rauf
fyrir SIM-kort og tengi fyrir heyrnartól. Á kantinum
hægra megin er hnappur til að hækka og lækka,
straumrofi og síðan hnappur fyrir myndavél sem auð-
veldar óneitanlega að taka myndir, en ef honum er ýtt
niður hálfa leið velur myndavélin fókuspunkt.
* Eins og getið er þá er gagna-pláss í símanum 32 GB, en ekki er
hægt að setja í hann viðbótar minn-
iskort, sem einhverjum finnst
kannski ókostur. Með fylgja 15 GB í
OneDrive gagnaskýi Microsoft sem
er mjög þægileg þjónusta i alla staði.
Græja
vikunnar
ÁRNI
MATTHÍASSON
* Allir sem þú hittir álífsleiðinni vita eitt-hvað sem þú veist ekki.
Bill Nye
SIÐMENNT
w w w . s i d m e n n t . i s
Siðmennt styður opið, víðsýnt og fjölbreytt samfélag
Til hamingju með daginn!
10.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Heimildarþættirnir Cosmos: A
SpaceTime Odyssey í umsjón
stjarneðlisfræðingsins Neil de-
Grasse Tyson voru að ljúka sinni
fyrstu þáttaröð í vikunni. Þessi ein-
staklega fræðandi þættir hafa fengið
góð viðbrögð um allan heim enda
opna þeir heim vísindanna fyrir alla
áhugasama. Vísindi eru ekki bara
fyrir þá hámenntuðu heldur alla sem
áhuga hafa og þættirnir gefa öllum
góða mynd af heimi vísindanna.
Vísindi eru fyrir alla