Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.08.2014, Síða 26
Þ
egar ég innrétta heimilið mitt
huga ég að því að heimilið
mitt er samverustaður fjöl-
skyldunnar minnar og inni á
heimilinu má leika sér, dansa, hafa
gaman og fíflast og jafnframt má
hafa það huggulegt og hrikalega nota-
legt,“ segir Hrefna og bætir við að
henni þyki vænt um flesta hluti heim-
ilisins.
Hrefna segir heimilisstílinn ein-
kennast af gömlum munum í bland
við nýja með örlítið rómantískum
áhrifum og klassískri hönnun hér og
þar. „Ég hef með árunum lært að
meta fallega hönnun og finnst gaman
að skreyta heimilið mitt með henni.“
Hrefna sækir innblástur aðallega í
sitt nánasta umhverfi, inni á heimilum
hjá öðrum, á bloggsíðum, í tímaritum
og á Instagram.
„Húsgögnin okkar eru flest frá
Ikea, eitthvað hef ég svo fundið á
nytjamörkuðum og einnig hafa okkur
áskotnast antíkmunir frá vinum og
fjölskyldu. En þegar kemur að því að
skreyta heimilið með fallegum hlutum
versla ég í Hrími, Epal og @home á
Akranesi. Mér finnst líka mjög gaman
að vafra á netinu og versla og er því
mjög þakklát fyrir aukninguna í ís-
lenskri vefverslun. Má þar nefna
mjolkurbuid.is, petit.is og snuran.is.“
Uppáhaldsstaður Hrefnu á heim-
ilinu er hornið hennar í stofunni. „Þar
er drottningarstóllinn minn, antíkstóll
sem frændi minn gaf mér fyrir
nokkrum árum, og tímaritin mín. Mér
leiðist ekki að sitja þar á kvöldin við
kertaljós með tímarit í hönd og ef til
vill smá gotterí til að læða upp í mig
á milli þess sem ég fletti blaðinu.“
Fallegir smáhlutir í eldhúsi. Iittala-
vasinn hentar vel undir eldhúsáhöld.
Rómantík og
klassísk hönnun
HJÓNIN HREFNA DANÍELSDÓTTIR OG PÁLL GÍSLI JÓNSSON BÚA
ÁSAMT BÖRNUM SÍNUM VIKTORÍU, SÖRU OG TINNA, Í BJARTRI
OG SKEMMTILEGA INNRÉTTAÐRI ÍBÚÐ Á AKRANESI.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Fjölskyldunni finnst notalegt að liggja saman í þægilega sófanum og eiga saman kósíkvöld. „Þá er horft á mynd saman, poppað eða borðað nammi og haft mjög kósí.“
SAMVERUSTAÐUR FJÖLSKYLDUNNAR
Litríkt
múmín-
bollasafn
heimilisins.
Efst á óskalistanum er Copper
Shade-ljósið frá Tom Dixon sem
Hrefnu dreymir um að hengja
upp fyrir ofan eldhúsborðið.
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.8. 2014
Heimili og hönnun