Morgunblaðið - 14.06.2014, Side 11
Morgunblaðið/Malín Brand
Fjölhæfur Rithöfundurinn og grúskarinn Bjarni Harðarson rekur fornbókabúð og bókaútgáfu á Selfossi.
námsmennina sem settust að á Ein-
hyrningsstöðum, svonefnda Ein-
hyrninga. „Saga þessara manna,
eins og þeir birtast okkur í örfáum
orðum í Landnámu og aðeins í
Njálu, er mjög mögnuð og einkenn-
ist af átökum þessarar norrænu ætt-
ar Einhyrninganna, afkomenda Sig-
mundar rauða, við írskar ættir eins
og ætt Gunnars Baugssonar, afa
Gunnars á Hlíðarenda, og ég held að
Njála sé öðrum þræði að segja okk-
ur frá átökum þjóða. Það sé dulin
saga á bak við söguna,“ segir Bjarni,
sem heillaðist af ráðgátunni sem
hann sá þarna. Þess vegna fór hann
að skrifa um Mörð.
„Af hverju gerir maðurinn það
sem hann gerir? Af hverju etur
hann öllum saman? Hann er valdur
að því að Njáll er brenndur inni og
að vissu leyti að því að Gunnar á
Hlíðarenda er drepinn, en af
hverju? Er þetta svona einfalt eins
og Njála segir, að hann hafi bara
verið illmenni?“
Hvorki fantur né fúlmenni
Sjálfur hallast Bjarni að því að
Mörður hafi hreint ekki verið ill-
menni. „Við sjáum það að sá Mörður
sem Njála segir frá elskar konuna
sína eins og augun í sér og það er
ekki sjálfgefið í þessu samfélagi þar
sem margir af þessum höfðingjum
elskuðu konur sínar ekki meira en
svo að þeir héldu frillur á fjölda
bæja. Þegar maður fer að fletta ofan
af þessu öllu saman, það er að segja
samkvæmt minni túlkun, þá er
Mörður bara að verja ákveðna hags-
muni og ákveðna þjóð. Hann er að
verja yfirstéttina og er í raun varð-
maður þessa norræna aðals sem
hefur lagt undir sig landið og telur
sig eiga það. Við verðum svolítið að
sjá Mörð út frá því,“ segir rithöf-
undurinn og bókaútgefandinn
Bjarni Harðarson um nýjasta verk
sitt um hinn margræða Mörð Val-
garðsson, sem ef til vill hefur verið
hafður fyrir rangri sök í túlkun
manna gegnum tíðina. Hvernig sem
það nú er má sannarlega velta fyrir
sér hinum ýmsu hliðum sögunnar og
er bók Bjarna býsna gott og vandað
verk um þessa eftirminnilegu per-
sónu, Mörð.
„Margir af þessum höfðingjum elskuðu
konur sínar ekki meira en svo að þeir
héldu frillur á fjölda bæja.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2014
Njála er saga sem er afar mörg-
um Íslendingum kær sem og
áhugafólki um Íslendingasög-
urnar. Flestir sem hana hafa les-
ið hafa á henni skoðun og sitt
sýnist hverjum. Það skemmti-
legasta er þó að hana má lesa
með nýju hugarfari aftur og aft-
ur. Til dæmis er ekki annað
hægt eftir lestur bókar Bjarna
um Mörð en að lesa hana með
öðru hugarfari.
Lesin með
opnum huga
NJÁLA STÖÐUGT Í SKOÐUN
Í dag klukkan 16 stendur Fuglavernd
fyrir fuglaskoðun sem er sú fjórða í
röðinni í sumar. Gengið verður frá frið-
landinu í Vatnsmýri að Tjörninni og eru
allir velkomnir. Nöfnin á tjörnunum á
leiðinni eru mörg og gefst þátttak-
endum gott tækifæri til að auka við
þekkinguna, bæði á staðháttum og
fuglalífinu. Elma Rún Benediktsdóttir
leiðir gönguna en skoðað verður fugla-
lífið á Hústjörn, Vatnsmýrartjörn, Þor-
finnstjörn, Suðurtjörn og Norðurtjörn.
Þeir sem vilja skoða fuglalífið í mið-
borginni þurfa að klæða sig eftir veðri
og gott er að hafa með sér sjónauka og
jafnvel skrifblokk og penna til að
punkta niður hjá sér þær tegundir sem
sjást.
Síðastliðinn laugardag var sambæri-
leg ferð farin og sáust þá fjölmargar
tegundir: Grágæs, heiðagæs,
æðarfugl, stokkönd, skúfönd, dugg-
önd, hettumáfur, kría, spói, hrossa-
gaukur, tjaldur, stelkur, sandlóa, mar-
íuerla, skógarþröstur og stari.
Fuglavernd heldur fræðslufundi yfir
vetrarmánuðina og ýmislegt er gert til
að vekja athygli fólks á þessum fiðruðu
vinum okkar, fuglunum. Fuglaskoð-
unarferðirnar eru nokkrar yfir sumar-
tímann auk þess sem garðfuglaskoðun
og garðfuglakönnun njóta vaxandi vin-
sælda hjá landsmönnum. Þá eru lands-
menn hvattir til að gefa því gaum
hvaða fuglar eru í garðinum á einni
klukkustund. Garðfuglahelgin er yfir-
leitt í lok janúar eða byrjun febrúar.
Fuglaskoðun í dag
Fuglalífið í
Vatnsmýrinni
Fjölskrúðugt Stelkurinn er á meðal
þeirra tegunda sem eru í Vatnsmýrinni.
heitir pottar
Auðbrekku 6 · Kópavogi · Sími 565 8899 · www.normx.is
Við hjá NormX höfum framleitt heita potta í yfir 30 ár fyrir íslenskar aðstæður.
Við bjóðum fjölda gerða og lita ásamt öllu því sem tilheyrir til að koma sér
upp glæsilegum heitum potti á verði sem kemur skemmtilega á óvart.
GERÐUVERÐ-
SAMANBURÐ
Snorralaug Gvendarlaug Grettislaug Unnarlaug Geirslaug
ÍSLENSK FRAMLE
IÐSLA
Í MEIRA EN 30 ÁR