Morgunblaðið - 14.06.2014, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2014
Bók með úrvali ljósmynda Ragnars
Axelssonar, RAX, ljósmyndara á
Morgunblaðinu, er komin út í
Frakklandi og á Íslandi í heims-
þekkri ritröð um helstu ljósmyndara
sögunnar.
Ragnar hefur á undanförnum ár-
um skipað æ hærri sess í hópi helstu
ljósmyndara samtímans. Metnaðar-
fullar bækur, sýningar og heimildar-
kvikmynd um verk hans sem sýnd
hefur verið víða um lönd hafa vakið
athygli á umfangsmiklu safni hans af
myndum af breytingum á lifnaðar-
háttum íbúa norðurslóða.
Í tengslum við sýningar og birt-
ingu ljósmynda Ragnars af norður-
slóðum í Frakklandi varð til ný bók
sem nú kemur út samtímis í Frakk-
landi og á Íslandi á frönsku og
ensku. Bókin er hluti af ritröðinni
Photo Poche, sem er fyrir löngu orð-
in að stofnun í sögu ljósmyndar-
innar, og miðar að því að birta í
ódýrum og handhægum útgáfum
verk þeirra ljósmyndara sem mest
áhrif hafa haft á þróun miðilsins frá
upphafi.
Ritstjóri Photo Poche er Robert
Delpire og hefur hann verið útgef-
andi ritraðarinnar frá upphafi, árið
1982. Delpire er víðkunnur í frönsku
menningarlífi. Hann hefur sem ljós-
myndari, útgefandi, safnstjóri og rit-
stjóri verið afar áhrifamikill í að
kynna heimildarljósmyndun fyrir
Frökkum og birti strax sem ungur
maður verk meistara á borð við
Henri Cartier-Bresson og Robert
Capa í tímaritinu Neuf sem hann
stofnaði um tvítugt. Hann var í mörg
ár forstöðumaður Centre national de
la photographie og undir hans rit-
stjórn hafa komið út um 170 bækur í
ritröðinni.
Mary Ellen Mark skrifar
Útgáfa á verkum Ragnars í þess-
ari ritröð er mikil viðurkenning fyrir
störf hans. Er hann aðeins fjórði
Norðurlandabúinn sem fær verk sín
birt í Photo Poche-bók, á eftir þekkt-
ustu ljósmyndurum Svía, Christer
Strömholm og Anders Petersen, og
Finnanum Pentti Sammallathi.
Texta bókarinnar rita vinur og
kennari Ragnars, hinn heimsþekki
bandaríski ljósmyndari Mary Ellen
Mark, og enski
ljósmyndafræðingurinn, rithöfund-
urinn og útgefandinn dr. Huw Lew-
is-Jones, höfundur bóka um ljós-
myndun heimskautasvæðanna og
metsölubókarinnar The Conquest of
Everest. Crymogea fékk leyfi frá
franska útgefanda Photo Poche, Ac-
tes Sud, og enskum útgéfanda henn-
ar, Thames & Hudson, til að gefa út
á Íslandi enska gerð bókarinnar í
sérstakri útgáfu og er það í fyrsta
sinn sem slíkt leyfi fæst. Delpire
valdi úr stórum hópi ljósmynda eftir
RAX, mynda sem einnig urðu til í
starfi hans sem fréttaljósmyndari,
og er því þar að finna breitt úrval
mynda sem spanna yfir þriggja ára-
tuga feril.
Ljósmynd/RAX
Tilkomumikið Ein ljósmyndanna sem finna má í bókinni um Ragnar Axelsson og er hluti af ritröð Photo Poche.
RAX í hópi þekktustu
ljósmyndaranna
Ljósmyndir RAX á bók í ritröðinni Photo Poche
Sleðahundar Bókin í Photo Poche ritröðinni vinstra megin og bókin sem
Crymogea fékk leyfi fyrir að gefa út í sérstakri útgáfu.
STOFNAÐ1987
einstakt
eitthvað alveg
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n Sk i pho l t 50a | S ím i 581 4020 | www.ga l l e r i l i s t . i s
M
ál
ve
rk
:
Æ
ja
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Nesstofa-Hús og saga: Sýning í Nesstofu opin daglega frá 13-17
Nýjar sýningar í Myndasal Þjóðminjasafnsins:
Svipmyndir eins augnabliks. Ljósmyndir Þorsteins Jósepssonar
Natríum Sól ljósmyndir Stuart Richardson
Silfur Íslands í Bogasal
Innblástur á Torgi
Silfursmiður í hjáverkum í Horni
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár - grunnsýning
Skemmtilegir ratleikir • Safnbúð og kaffihús
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið frá 10-17 alla daga.
Listasafn Reykjanesbæjar
DÆMISÖGUR ÚR DRAUMALANDINU
Karolína Lárusdóttir
29. maí – 17. ágúst
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Hönnunarklasinn Maris
Listasafn Erlings Jónssonar
Opið virka daga 12-17,
helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
Lusus naturae
Ólöf Nordal, Gunnar Karlsson
og Þuríður Jónsdóttir
Síðasta sýningarhelgi
14. júní - 24. ágúst 2014
Frumkvöðlarnir
í safneigninni
Opið 17. júni 12-17
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is, sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Verið
velkomin
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
NÝ SÝNING
Leiðsögn með Hjalta Karlssyni
sun. kl. 14
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 10-17, lokað mánudaga.
SPOR Í SANDI, Sigurjón Ólafsson - Yfirlitssýning 23.5. - 26.10. 2014
SUNNUDAGSLEIÐSÖGN kl. 14 í fylgd Halldórs Björns Runólfssonar safnstjóra
PÍANÓ 29.5.-29.6. 2014
SUROUNDED BY THE PUREST BLUE, I WELCOME YOU
Sýning á videóverki íslensku listakonunnar,
Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur á kaffistofu safnsins
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sýningarnar, HÚSAFELL ÁSGRÍMS og FORYNJUR. Opið sunnudaga kl. 14-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906
SPOR Í SANDI, Sigurjón Ólafsson Yfirlitssýning 24.5. - 29.11. 2014
Opið alla daga kl. 14-17, lokað mánudaga. www.lso.is
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is