Morgunblaðið - 14.06.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2014
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
„Vegna stöðugt minnkandi fram-
lags ríkisins til kirkjugarða frá
árinu 2009 þá hefur orðið umtals-
verð fækkun á sumarstarfsfólki á
hverju ári hjá Kirkjugörðum
Reykjavíkur og fækkun starfsfólks
frá því í fyrra er 16%. Minnkandi
tekjur valda því einnig að ekki hef-
ur verið hægt að endurnýja vélar
og tæki eins og þörf hefur verið
fyrir. Bilanir hafa verið tíðari sök-
um aldurs véla og tækja og veldur
það töfum í umhirðunni. Almennt
séð er umhirða minni í görðunum
vegna of lágs framlags til starfsem-
innar,“ segir Þorgeir Adamsson,
garðyrkjustjóri Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma.
Grassprettan hefur verið mikil
og hefur það hefur haft áhrif.
„Óneitanlega finnum við sem
vinnum hjá kirkjugörðunum fyrir
þessu og það er óhjákvæmilegt að
ástandið sjáist og aðstandendur
verði þess varir. Það má geta þess
að grasspretta hefur verið mjög
góð á liðnu vori sem hefur verið
bæði rakt og hlýtt. Góð grasspretta
hefur líka tefjandi áhrif á vinnu
okkar,“ segir Þorgeir að lokum.
Grasið óx hraðar og fyrr
„Slátturinn hófst um leið og við
fengum sumarstarfsmenn í vinnu,
en þeir eru í skóla og því gat slátt-
urinn ekki hafist fyrr,“ segir Guð-
jóna Björk Sigurðardóttir, skrif-
stofustjóri hjá skrifstofu reksturs
og umhirðu hjá Reykjavíkurborg.
Aðspurð hvort vissum svæðum í
Reykjavík sé forgangsraðað fram
yfir önnur svarar Guðjóna neitandi.
„Alls ekki. Markmiðið er að reyna
að komast inn í öll hverfi sem fyrst
og ekkert frekar í einn hluta en
annan. Eins og staðan er í dag þá
erum við að vinna í öllum hverfum
borgarinnar. Markmiðið er að
reyna að klára fyrstu umferð af
slætti fyrir 17. júní, sem hefur
aldrei verið gert áður,“ segir Guð-
jóna.
Spretta og fjárskortur hafa áhrif
Kirkjugörðum er ekki nógu vel við haldið Minni framlög til kirkjugarða en áður frá ríkinu
Vélar ekki endurnýjaðar og færra starfsfólk Reynt að slá borgarlandið fyrir 17. júní
Morgunblaðið/Þórður
Illa hirt Ekki hefur verið nægilega vel hirt um leiðin í kirkjugörðum Reykja-
víkurprófastsdæmis. Framlög frá ríkinu hafa verið minnkuð síðastliðin ár.
Morgunblaðið/Þórður
Umhirða Sumarstarfsmenn Gufuneskirkjugarðs leggja sig fram við að hirða um svæðið. Vegna hlýinda hefur grasvöxtur verið mikill miðað við fyrri ár.
Morgunblaðið/Eggert
Sláttur Markmið borgaryfirvalda er að ljúka fyrsta slætti fyrir 17. júní, en
það hefur aldrei tekist áður. Sláttur hófst viku fyrr en venjulega.
„Almennt séð hefur orðið veruleg
aukning á frjókornaofnæmi í Vest-
urlöndum. Búast má við því að hið
sama eigi við um Ísland. Á Íslandi
hefur verið hlýindaskeið frá alda-
mótum, þannig við fáum meiri gróð-
ur og í lengri tíma, sem þýðir að við
fáum lengra frjókornatímabil,“ segir
Michael Valur Clausen, barna- og of-
næmislæknir.
Aðspurður hvort fjöldi frjókorna
aukist ef sjaldan er slegið í borginni
svarar Michael játandi. „Grasið
blómstrar ekki jafnmikið ef það er
slegið reglulega,“ en Michael telur
að leiða megi líkur að því að verra sé
fyrir frjókornaofnæmissjúklinga ef
grasið fær að vaxa lengi því frjó-
kornamagn eykst.
Mörg úrræði til fyrir sjúklinga
Michael segir erfitt að forðast
frjókorn en úrræði eru til staðar.
„Frjókorn eru alls staðar. Frjóin eru
í loftinu og því er afar erfitt að forð-
ast þau. Mjög margir sem hafa væg
og meðalslæm einkenni notast ein-
ungis við ofnæmistöflur. Hægt er að
fá ýmis slík lyf án lyfseðils. Ef slæm
frjókornaofnæmiseinkenni eru til
staðar þá er t.a.m. hægt að fá augn-
dropa og nefsteraúða,“ segir Mich-
ael. Mælingar Náttúrufræðistofnun-
ar Íslands á frjókornamagni í maí
voru mun hærri en síðustu ár. Á Ak-
ureyri mældust 1252 frjó á rúm-
metra en meðaltalið á árunum 1998-
2014 var aðeins 386 frjó á rúmmetra.
Er því um að ræða stórfellda aukn-
ingu á frjókornum á Akureyri í maí-
mánuði í ár miðað við fyrri ár. Frjó-
korn hafa einnig aukist síðastliðinn
áratug í Reykjavík, frjókornaof-
næmissjúklingum til mikilla óþæg-
inda. isb@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Frjókorn á flugi Margir Íslendingar
þjást af ofnæmi fyrir frjókornum.
Fjöldi frjókorna
í lofti mælist hár
Fjöldinn eykst ef sjaldan er slegið
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR VW
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem
uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk
starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -