Morgunblaðið - 14.06.2014, Page 24
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
„Engin leið við losun hafta verður
sársaukalaus,“ segir Svanbjörn
Thoroddsen, meðeigandi á ráðgjaf-
arsviði KPMG. Auk þess sé ekki nóg
að horfa á aðstæður hér á landi, held-
ur hafi það mikið að segja með hvaða
hætti afnám hafta geti átt sér stað,
hvernig ári hjá helstu viðskiptalönd-
um.
KPMG hefur teiknað upp fjórar
sviðsmyndir fyrir efnahag Íslands
miðað við hve hratt losað verði um
fjármagnshöft og hvernig ári í helstu
viðskiptalöndum. Svanbjörn áréttar
að rætt sé um losun hafta en ekki af-
nám hafta. Svo bjartsýnir séu menn
ekki. Sviðmyndirnar voru kynntar á
fundi hjá KPMG í gær.
Sævar Kristinsson, verkefnastjóri
hjá KPMG, sagði að sviðsmyndir
væru 60 ára gömul aðferðafræði sem
starfsmönnum Royal Dutch olíufyr-
irtækisins hugkvæmdist þegar olíu-
verð var í hæstu hæðum og þeir
veltu vöngum yfir hvað myndi gerast
ef það myndi falla. Sviðsmyndir
væru ekki framtíðarsýn eða spá
heldur aðferð til að skilja umhverfið.
Þær aðstoðuðu því við að átta sig á
hvað þyrfti að gera til að mæta
óvissri framtíð.
Hætta á brotthvarfi fyrirtækja
Samkvæmt sviðsmyndagreiningu
KPMG sem kynnt var í gær, myndi
með hægu losunarferli ríkja stöðug-
leiki til skemmri tíma en hætta væri
á brotthvarfi fyrirtækja og minni ný-
liðun fyrirtækja myndi aukast til
lengri tíma. Hröð losun hafta myndi
hins vegar losa um þrýsting snjó-
hengjunnar með tilheyrandi gengis-
falli krónunnar í fyrstu og óstöðug-
leika í efnahagslífinu. Við hraða
losun yrði umhverfið mjög krefjandi
fyrir innflutningsgreinar, að
minnsta kosti tímabundið og afkoma
mundi versna verulega. Útflutnings-
greinar myndu hins vegar sjá fram á
mikil tækifæri á tímabilinu.
Hagstætt efnahagsumhverfi
helstu viðskiptalanda með tilheyr-
andi viðskiptaafgangi, sterkari
krónu og aukinni áhættusækni fjár-
festa myndi létta undir, hvort sem
losun haftanna væri hröð eða hæg.
Efnahagsumhverfið væri þó mun
næmara fyrir hraða við losun haft-
anna. Þá gæti skapast aukin hætta á
brotthvarfi og minnkandi nýliðun
þegar hagvöxtur er erlendis og hæg
losun hafta, þar sem fyrirtækin sæju
meiri tækifæri erlendis.
„Hæg losun hefur í för með sér
stöðugleika til skemmri tíma sem er
á kostnað framtíðarmöguleika við-
skiptalífsins vegna brotthvarfs fyr-
irtækja og minnkandi nýliðunar.
Hröð losun fjármagnshafta mun
hafa í för með sér krefjandi umhverfi
innflutningsaðila, á meðan staða út-
flutningsgreina verður sterk. Til
lengri tíma litið styður hröð losun
hins vegar við umhverfi viðskipta-
lífsins með minna brotthvarfi fyrir-
tækja, aukinni nýliðun og auknu
trausti á viðskiptaumhverfinu,“ seg-
ir í skýrslu KPMG.
Hér fyrir ofan fylgir mynd af
sviðsmyndunum fjórum. Svanbjörn
segir að um þessar mundir sé Ísland
í sviðsmyndinni „fallbaráttan“, þar
sem losað sé hægt um fjármagnshöft
en hagvöxtur sé í helstu viðskipta-
löndum okkar, þótt hann sé ekki
mikill.
Losun hafta aldrei sársaukalaus
Efnahagslíf viðskiptalanda mun hafa áhrif á hvernig gengur að losa fjármagnshöft hér á landi
„Engin leið við losun hafta er sársaukalaus,“ segir Svanbjörn Thoroddsen, meðeigandi í KPMG
Sviðsmyndagreining KPMG til fimm ára á losun fjármagnshafta
Fallbaráttan
Hæglosun hafta
Hagvöxtur í helstu
viðskiptalöndum
Ísland hefur þróast út í að
verða vettvangur starfsstöðva
erlendra fyrirtækja þar sem þau
sækja ódýrt vinnuafl.
Plásturinn rifinn af
Hröð losun hafta
Hagvöxtur í helstu
viðskiptalöndum
Erlendar fjárfestingar jukust
umtalsvert sökum hás
vaxtamunar og veikrar krónu.
Fjárfestingar voru knúnar af
aukinni tiltrú erlendra fjárfesta
á íslensku viðskiptaumhverfi og
aukinni áhættusækni þeirra.
Djúpa laugin
Hröð losun hafta
Samdráttur í helstu
viðskiptalöndum
Kaupmáttur veikist umtalsvert
samhliða verðbólguskoti og
vaxtahækkunum. Þrennt hefur
að heimilunum, sem komið
hefur niður á einkaneyslu.
Pytturinn
Hæg losun hafta
Samdráttur í helstu
viðskiptalöndum
Brotthvarf fyrirtækja frá landinu
hefur verið verulegt vegna
óbreytts ástands varðandi
fjármagnhöft og hagstæðs
viðskiptaumhverfis erlendis.
Þróun krónu
Verðbólga
Vaxtastig
Kaupmáttur
60 ára gömul aðferð
» Sviðsmyndir eru 60 ára
gömul aðferðafræði sem
starfsmönnum olíufyrirtækis-
ins Royal Dutch hugkvæmdist.
» Þær eru ekki spá heldur að-
ferð til að skilja umhverfið.
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2014
Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I www.linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 11 - 18 I laugardaga 11 - 16
UNFURL kr. 109.000
Svefnbreidd 120x200
UNFURL deluxe kr. 129.900
Svefnbreidd 120x200
RECAST kr. 129.900
Svefnbreidd 140x200
TRYM Svefnsófi kr. 198.900 I Svefnbreidd 140x200
SVEFNSÓFAR
Göngugreining
Pantaðu
tíma
í síma
5173900
Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900
Vandamál sem göngugreining Flexor getur
hjálpað til við að leysa eru til dæmis:
• þreytuverkir og pirringur í fótum
• verkir í hnjám
• sársauki eða eymsli í hælum
(hælspori, „plantar fasciitis“ o.fl.)
• beinhimnubólga
• óþægindi eða verkir í baki
og/eða mjöðmum
• verkir í tábergi og/eða iljum
• hásinavandamál
• óþægindi í ökklum
• þreytu- og álagsverkir
hjá börnum og unglingum