Morgunblaðið - 14.06.2014, Side 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2014
✝ Karl Sæmund-ur Sigurðsson
fæddist í Hvammi
í Fljótum 29.
ágúst 1917. Hann
lést á Öldrunar-
heimilinu Lög-
mannshlíð 31. maí
2014.
Foreldrar hans
voru Sigurður
Gunnlaugsson, sjó-
maður og bóndi, f.
18. desember 1885 á Upsum á
Upsaströnd, og Sigurbjörg
Guðnadóttir húsfreyja, f. 21.
mars 1885 á Þrastarstöðum í
Hofshreppi. Karl átti þrjá
bræður, þeir voru; 1) Guð-
laugur Marteinsson, f. 1911, d.
1992. 2) Guðni Bergmann Sig-
urðsson, f. 1919, d. 1996. 3)
Marteinn Bergmann Sigurðs-
son, f. 1924, d. 2004. Hinn 4.
nóvember 1942 giftist Karl
Laufeyju Guðríði Stefáns-
dóttur, f. 11. júlí 1922, sem
lést 5. nóvember 2006. Börn
Laufeyjar og Karls eru: 1)
Stefán, f. 1943, kv. Nínu G.
Ingvarsdóttur, f. 1947. Börn
þeirra eru: a) Ingvar, f. 1967,
kv. Ásdísi Skarphéðinsdóttur,
f. 1973. Börn: Elvar, Alma og
Stefán Karl. b) Laufey Ingi-
björg, f. 1968, sambýlismaður
Hjörleifur Hjörleifsson, f.
1970. Dóttir Laufeyjar úr fyrri
sambúð er Ingibjörg Íris, og
barn Laufeyjar og Hjörleifs er
Stefán Atli. c) Lára Guðríður
Stefánsdóttir, f. 1972. Dætur
hennar eru Nína Zohra Tennci
og Yasmina Tennci. 2) Sig-
urbjörn, f. 1947. Börn Sigur-
björns eru: a) Jón Geir, f.
1972, k. Svandís H. Karls-
átti Karl dótturina Ester Guð-
laugu, f. 1939. Móðir hennar
var Þórhalla Björnsdóttir, f.
1917, látin 1999. Sambýlis-
maður Esterar er Kristinn
Georgsson, f. 1933. Börn Est-
erar eru: 1) Þórhallur Ólafs-
son, f. 1961, d. 1965. 2) Rol-
and Buchholz, f. 1963, kv.
Hörpu Hrönn Magnúsdóttur,
f. 1966. Börn: Andri og Tanja
Buchholz. 3) Christine Buch-
holz, f. 1966, g. Pálma Haf-
þóri Ingólfssyni, f. 1962.
Börn: Daníel Pálmason Buch-
holz, Skúli Pálmason og
Herta Pálmadóttir. 4) Þór-
hallur Tómas Buchholz, f.
1970, kv. Hörpu Snædal, f.
1975. Börn: Benjamín, Fríða
Björg og Snæbjörn. 5) Björn
Skúlason, f. 1973, kv. Höllu
Tómasdóttur, f. 1968. Börn:
Tómas Bjartur og Auður Ína.
6) Hafþór Skúlason, f. 1973.
Langömmubörn Esterar eru
þrjú talsins.
Karl Sæmundur Sigurðsson
fæddist í Fljótum, ólst þar
upp og bjó á Siglufirði um
tíma með fjölskyldunni. Á
unglingsárunum flutti fjöl-
skyldan til Hjalteyrar, þar
sem faðir hans gerðist sjó-
maður og móðir hans hús-
freyja. Karl vann á Hjalteyri
bróðurpart ævinnar, bæði við
byggingu verksmiðjunnar og
í verksmiðjunni þar til starf-
semi hennar lauk. Þegar síld-
in fór og verksmiðjan stóð
eftir ónotuð vann hann sem
umsjónarmaður fasteigna fyr-
ir Landsbankann. Karl og
Laufey bjuggu saman á Hjalt-
eyri og ólu þar upp fjöl-
skyldu. Karl var menntaður
vélvirki og fór að starfa á
Vélsmiðjunni Atla í kringum
1974. Þar starfaði Karl þar til
hann fór á eftirlaun.
Útför Karls fer fram í
Möðruvallakirkju, Hörgárdal,
í dag, 14. júní 2014, kl. 13.
dóttir, f. 1982.
Börn: María
Lovísa og Kolbrún
Sara. Börn hans
og Svandísar eru
Sólveig Lív, Dagur
Karl og Magni. b)
Jóhann Már, f.
1974, maki Auður
M. Agnarsdóttir, f.
1985. Dætur Jó-
hanns eru Sunna
María og Jóhanna
Birta. Dóttir hans og Auðar er
Dagbjört Lilja. c) Sveinbjörn,
f. 1981, maki Rósalind Hansen,
f. 1978. Dóttir: Natalía Mist. d)
Laufey Þorgerður, f. 1982,
dóttir Thelma Þöll. e) Daggrós
Þyrí, f. 1985. Synir: Hjalti
Mikael og Ronald Bjarki. 3)
Sigurður Þorgeir, f. 1954, kv.
Sigurlaugu J. Jóhannesdóttur,
f. 1955. Börn: a) Karl Sæ-
mundur, f. 1974, maki Gunn-
hildur H. Snorradóttir, f. 1984.
Synir: Hlynur Freyr og Birkir
Þór. b) Jóhannes Bjarki, f.
1975, kv. Guðrúnu M. Jóns-
dóttur, f. 1979. Börn: Davíð
Máni, Berglind Líf og Ragn-
heiður Kristín. c) Hallfríður
Kristín, f. 1979, g. Steinþóri G.
Sigurðssyni, f. 1971. Synir:
Sigurður Már, Ágúst Már, Ing-
ólfur Bjarki og Eyjólfur
Bjarki. 4) Anna Jóna, f. 1957,
m. Aðalbjörn Jón Sverrisson,
f. 1958. Börn: a) Sæmundur
Karl, f. 1978, m. Svana Björg
Ólafsdóttir, f. 1983. Dóttir:
Ísabella Íris. b) Íris Anna, f.
1983, m. Brynjar Einarsson, f.
1982. Börn: Anna Rakel og
Einar Dagur. c) Sverrir Borg-
þór, f. 1993. M. Aníta Da Silva
Bjarnadóttir, f. 1994. Fyrir
Elsku pabbi minn.
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og besta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, – Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Já pabbi minn, nú ert þú
kominn til hans sem elskar okk-
ur öll og vakir yfir okkur. Þér
fannst örugglega nóg komið
hérna megin, hefðir orðið 97 ára
í ágúst, líkaminn farin að gefa
sig en andlega varst þú ótrúlega
hress. En svo lærbrotnaðir þú,
fékkst lungnabólgu og svo varst
þú bara farinn. Þetta gekk allt
mjög hratt fyrir sig. Ég hefði
viljað vera hjá þér þegar þú
kvaddir en því miður varð það
ekki. Ég gat ekki sofið þennan
morgun. Var með hugann hjá
þér þegar Stebbi bróðir hringdi
og sagði að þú værir farinn. Ég
var að sjóða egg sem áttu að
vera linsoðin en mér brá svo að
eggin suðu í 20 mín. Ég var ekki
alin upp hjá þér, hitti þig fyrst
svo ég muni þegar ég var 20 ára,
þá komuð þið Stebbi bróðir að
heimsækja mig á Laugaskóla.
Ég varð mjög glöð en líka feimin
að hitta pabba minn í fyrsta
skipti. Nú eru að verða 55 ár síð-
an og okkar samband hefur ver-
ið mjög gott. Pabbi minn, mér
þótti mjög vænt um þig og við
sjáumst í blómabrekkunni þeg-
ar minn tími kemur. Ég kveð
þig pabbi minn með öðru versi
úr þessum fallega sálmi eftir
Sigurð Kristófer Pétursson.
Þegar æviröðull rennur,
rökkvar fyrir sjónum þér,
hræðstu eigi, hel er fortjald,
hinum megin birtan er.
Höndin, sem þig hingað leiddi,
himins til þig aftur ber.
Drottinn elskar, – Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(Sigurður Kristófer Pétursson)
Þín,
Ester Guðlaug.
Ég sit við fjöruborðið á Hjalt-
eyri og hugsa til þín. Ég hugsa
um liðna tíma og minnist þeirra
með söknuði.
Þegar ég var lítil stelpa var
ég svo lánsöm að fá að eyða
miklum tíma heima hjá ykkur
ömmu á meðan mamma og
pabbi unnu sinn vinnudag. Þær
minningar sem ég fæ í hugann
tengjast fyrst og fremst þér og
eyrinni okkar, Hjalteyri. Sjór-
inn, verksmiðjan, gamlárskvöld
og jól. Hláturinn þinn og góð-
semi þín. Allar þessar minning-
ar mun ég alltaf eiga þó að þú
sért farinn. Sú stund sem ég
minnist einna helst er frá jól-
unum þegar amma sullaði feiti
af svínahamborgarhrygg á gólf-
ið. Þú stökkst upp henni til
hjálpar en það vildi ekki betur
til en svo að þú rannst kylliflat-
ur á gólfið. Þú skellihlóst og
hafðir sko alveg húmor fyrir
þessu atviki. Það fyndnasta var
þó að þegar þú ætlaðir að koma
þér aftur á fætur reyndirðu að
styðja þig við pilsið hennar
ömmu en hún bara sló þig frá
sér því pilsið togaðist næstum
niður um hana. Þá hélt hún bara
að þú værir eitthvað að fíflast í
henni og það hafði farið framhjá
henni að þú lægir á gólfinu.
Þetta leiddist þér ekki og þú
hlóst ennþá meira. Fyrr en
varði hlógum við öll svo mikið að
ekkert okkar gat hjálpað þér,
ekki einu sinni amma.
Þú varst ótrúlega góður mað-
ur. Ég man að þú dróst oft fram
sáravatn og plástur til að þvo
sárin mín og þú varst natinn við
það verk. Þegar ég horfi til baka
voruð þið amma virkilega ást-
fangin og samband ykkar gott.
Það var sárt að sjá þegar þú
kvaddir ömmu, þar stóð algjör-
lega bugaður maður og það
sagði mér að ást ykkar hefði
verið gríðarlega sterk þó að þið
hafið kannski ekkert verið að
flagga því við hvert tækifæri.
Samband ykkar var traust enda
sagðirðu mér einu sinni að
amma hefði verið sú allra flott-
asta kona sem þú hefðir séð. Þið
amma voruð mér yndislega góð
og voruð stór hluti af því að ég
eignaðist frábæra barnæsku. Þú
varst meinstríðinn og ég man
alltaf þegar áramótin nálguðust
og þú fórst að planta hurða-
sprengjunum til að láta ömmu
bregða. Þú varst frásagnar-
glaður maður og bjóst yfir ótrú-
legri frásagnargáfu og húmor.
Það var yndislegt að sjá þig
ljóma þegar þú minntist gam-
alla tíma með góðum vinum og
þú áttir fullt af sögum. Þú varst
með algjöra tækjadellu og
keyptir þér bæði plastbát og bíl
þegar þú varst að renna í ní-
rætt. Það er líka svo skrítið að
ég minnist þess svo vel hvað
hendurnar þínar voru stórar og
puttarnir kubbaðir og ég man að
þegar þú brostir þá brostirðu
með augunum líka. Þannig
varstu þegar við sáumst síðast.
Þú brostir og ég var svo glöð að
hitta þig. Þó að sú stund hafi
verið stutt trúi ég því að örlögin
hafi verið að verki því þú varst
farinn frá okkur skömmu síðar.
Við munum minnast þín og
ávallt halda minningu þinni á
lofti. Í hvert sinn sem ég kem á
eyrina okkar mun ég hugsa til
þín. Ég vona að þú getir prakk-
arast á himnum, mundu bara að
hrekkja ömmu ekki of mikið.
Takk fyrir allt og allt elsku afi
minn.
Kristín Sigurðardóttir.
Karl Sigurðsson vélstjóri á
Hjalteyri er látinn. Fáa heim-
sóttum við Gréta oftar á Akur-
eyrarárum okkar en þau Lullu
og Kalla á Hjalteyri og iðulega
lá leið þeirra á heimili okkar á
Akureyri með nýskotinn svart-
fugl eða glænýjan fisk úr Eyja-
firði, enda fékk enginn að
reykja í eldhúsinu hjá okkur
nema Lulla frænka.
Lulla, Laufey Stefánsdóttir,
og faðir Grétu, Eggert Egg-
ertsson, voru systkinabörn.
Stefán Pétur Jakobsson, kaup-
maður og útgerðarmaður á Fá-
skrúðsfirði, faðir Lullu, og Mar-
grét Jakobsdóttir, prestsfrú í
Haga í Mjóafirði, móðir Egg-
erts, voru systkin. Eggert Egg-
ertsson ólst upp hjá móður-
bróður sínum á Fáskrúðsfirði
og þau Lulla voru því eins og
systkini alla tíð, enda skírði
Eggert einkason sinn Stefán
Pétur.
Skyldleiki og tengsl voru því
með heimili okkar Grétu og
heimili Lullu og Kalla. En það
voru ekki aðeins þessi tengsl og
skyldleiki sem tengdu okkur
Kalla saman heldur sameigin-
leg áhugamál, skilningur og
vinátta sem verður milli manna
„når kjemien stemmer“, eins og
vinir okkar Kalla, Norðmenn,
segja. Sjórinn, sjósókn, vélar,
bílar, skip – og ekki síst kveð-
skapur voru umræðuefni okkar
Kalla sem sjálfur var góður
hagyrðingur. Ávallt var gefandi
að ræða við Kalla, þennan hóg-
væra heiðursmann sem bjó yfir
þekkingu og virðingu fyrir líf-
inu.
Þegar Lulla var jörðuð á hinu
forna meningarsetri Möðruvöll-
um í Hörgárdal á friðardaginn
11. nóvember 2006 brutumst við
Gréta norður yfir heiðar, en
Öxnadalsheiði var þá sögð ófær.
Sagði ég við Grétu síðar, að
þetta gerði ég aðeins fyrir hana
og Lullu, frænku hennar. Nú
haga atvikin því svo til að við
Gréta komumst ekki í jarðarför
Kalla. En hugur okkar er fyrir
norðan og við þökkum vináttu
og langa samfylgd og vottum
aðstandendum, frændum og
vinum samúð við fráfalls góðs
drengs, Karls Sigurðssonar.
Tryggvi Gíslason.
Karl Sæmundur
Sigurðsson
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, systur, ömmu og
langömmu,
JÓRUNNAR ÓLÍNU HINRIKSDÓTTUR,
Stigahlíð 34.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Grundar,
dvalar- og hjúkrunarheimilis.
Sigurlína J. Gunnarsdóttir, Guðbrandur Einarsson,
Lára G. Gunnarsdóttir,
Vigdís Gunnarsdóttir, Ágúst Karlsson,
Markús Gunnarsson, Ragnhildur Rögnvaldsdóttir,
Sigurlín Matcke,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Kærar þakkir til ættingja og vina fyrir
auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför yndislegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR ÁRNADÓTTUR,
Sporðagrunni 14.
Árni B. Stefánsson, Gunnhildur Stefánsdóttir,
Ólafur M. Stefánsson, Kristín Pétursdóttir,
Björg Stefánsdóttir, Sveinbjörn Garðarsson,
Auður Stefánsdóttir, Ágúst Guðmundsson,
Einar K. Stefánsson, Sigurlaug Guðrún Þórðardóttir
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
HAFSTEINS INGVARSSONAR
tannlæknis,
sem andaðist miðvikudaginn 29. janúar 2014.
Sérstakar þakkir til lækna og alls starfsfólks
krabbameinsdeildar 11E, Landspítala.
Ragnheiður Jónsdóttir,
Jón Óskar, Þorvar, Hafsteinn, Hringur
og Tindur Hafsteinssynir
og fjölskyldur.
✝
Hjartans þakkir til allra ættingja og vina
sem sýndu okkur hlýhug og samúð við
andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
ELLERTS BJÖRNS SKÚLASONAR
verktaka,
Bergási 11,
Reykjanesbæ,
sem lést mánudaginn 26. maí á Landspítalanum í Fossvogi.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 4. júní
kl. 14.00.
Elín Guðnadóttir,
Elínborg Ellertsdóttir, Bjarne P. Svendsen,
Vigdís Ellertsdóttir,
Björn Viðar Ellertsson, Helena Guðjónsdóttir,
Ómar Ellertsson, Árni Kr. Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
MARGRÉTAR RÖGNU
JÓHANNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar-
heimilisins Markar fyrir góða umönnun.
Reynir Óskarsson, Berglind Guðmundsdóttir,
Hróbjartur Æ. Óskarsson, Lilja Arnardóttir,
Kristín Óskarsdóttir, Agnar Ívar Agnarsson,
Gunnar Óskarsson, Sigurbjörg B. Ólafsdóttir,
Margrét Óskarsdóttir, Ragnar B. Bjarnarson,
Hallgrímur Óskarsson, Gyða Árný Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför
GÍSLA JÓNS HELGASONAR,
Hátúni 4,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við stjórnendum og
starfsfólki Ísleifs Jónssonar ehf. fyrir alla
aðstoð og vinsemd.
Fjölskyldan.