Morgunblaðið - 14.06.2014, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2014
MaríaSoffíaJúlíus-
dóttir spilar
knattspyrnu með
meistaraflokk Val
og er á náttúru-
fræðibraut í
Menntaskólanum
í Reykjavík, þar
sem hún var að
ljúka þriðja ári.
Hún vinnur á
fæðingardeild
Landspítalans í
sumar. „Mér líkar
vel hjá Landspít-
alanum. Þetta er
mjög spennandi
starf,“ segir
María.
Óskaafmælis-
gjöfin hennar
Maríu er að fara í
utanlandsferð og
njóta sólarinnar.
Hún ætlar að
njóta afmælis-
dagsins vel. „Ég
náði að redda
mér fríi í vinn-
unni þannig að ég
fæ að sofa út. Síðan ætla ég að gæða mér á sushi, sem er uppá-
haldsmaturinn minn. Annars ætla ég að skemmta mér með góðum
vinum um kvöldið.“
María hefur æft af hörku í vetur og ætlar að einbeita sér að fót-
boltanum í sumar. Hún er efnilegur knattspyrnumaður og spilar
bæði fyrir meistaraflokk og 2. flokk Vals. Jafnframt vill hún
ferðast innanlands. „Ég vil fara í útilegur í sumar, t.d. í Þórsmörk.
Einnig finnst mér skemmtilegt að fara í sumarbústaðinn og grilla
í góða veðrinu.“
María ætlar að fylgjast með heimsmeistaramótinu í knattspyrnu
í Brasilíu. „Ég vona að Spánn vinni HM. Þeir spila mjög skemmti-
legan fótbolta.“ Aðspurð um hvor henni finnist betri knatt-
spyrnumaður, Messi eða Ronaldo, svarar hún snöggt: „Messi“.
isb@mbl.is
María Soffía Júlíusdóttir er 19 ára í dag
Fótboltakempa María Soffía spilar fótbolta
fyrir Val og er í Menntaskólanum í Reykjavík.
Ætlar að einbeita
sér að boltanum
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Halldór Kristinn
Jónsson varð
fimmtugur þann 9.
júní sl. og útskrif-
ast með B.Sc. próf
í viðskiptafræði
frá Háskólanum í
Reykjavík í dag.
Hann heldur upp á þessa tvo áfanga í
faðmi fjölskyldu og vina á heimili sínu í
dag og í kvöld.
Árnað heilla
50 ára
Hella Aron Ingi fæddist 10. október
kl. 17.21. Hann vó 3.426 g og var 51 cm
langur. Foreldrar hans eru Rakel Ósk-
arsdóttir og Kristinn Ingi Austmar
Guðnason.
Nýir borgarar
Hafnarfjörður Emma Þórunn fæddist
23. apríl kl. 5.05. Hún vó 3.840 g og
var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru
Eva Dögg Hrundardóttir og Sean
McGinley.
G
uðmundur Þór Kárason
fæddist 14.6. 1974 í
Reykjavík. „Ég ólst upp
í miðbæ Reykjavíkur og
var mikið hjá ömmu
minni, Guðrúnu, á Sóleyjargötu
ásamt frændsystkinum mínum. Þar
fékk ég útrás fyrir sköpunarkraftinn
enda amma dugleg að hvetja mig
áfram og aðstoða við allskyns hugðar-
efni mín, allt frá módelsmíði, útskurði
og legókubbum til saumaskapar ým-
iss konar og leiklistar. Synir mínir
hafa síðan notið góðs af því að maður
kann að taka í saumavél enda höfum
við fjölskyldan lagt mikinn metnað í
öskudagsbúninga hvert ár. Kjallarinn
hjá ömmu var uppspretta ævintýra
því þar var nóg af dóti og fötum. Það
er líklega ömmu að þakka að ég fór að
smíða leikbrúður enda lagði ég undir
mig kjallarann hennar þegar áhuginn
kviknaði.
Á sumrin fór ég mikið með föður-
afa mínum og ömmu, Þór og Elsu, í
bústað þeirra við Þingvallavatn
ásamt frænkum mínum. Þar kynntist
maður náttúrunni og ég tók mín
fyrstu skref í veiðimennsku undir
handleiðslu afa míns sem var veiði-
málastjóri á þessum tíma. Fyrir
strákpjakk eins og mig gat lífið eigin-
lega ekki orðið betra.“
Eftir að hafa búið stuttlega í Finn-
landi og Svíþjóð meðan foreldrar
Guðmundar voru við nám hófst skóla-
ganga hans í Mýrarhúsaskóla á Sel-
tjarnarnesi, síðan í Vesturbæjarskóla
og þaðan í Austurbæjarskóla þar sem
hann lauk grunnskólaprófi. „Ég var
slakur námsmaður framan af enda
hafði ég meiri áhuga á skapandi vinnu
Guðmundur Þór Kárason kvikmyndagerðarmaður – 40 ára
Í rússíbana „Við erum samrýnd fjölskylda sem ferðast saman, erum í hestamennsku og lifum lífinu til fulls.“
Hefur gengið í nánast
öll störf í Latabæ
Siggi sæti Með vinum sínum.
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
stórafmælum, hjónavígslum, barns-
fæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinni mbl.is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Opið: 8
:00 - 1
8:00
mánud
. til fim
mtud.
8:00 -
17:00
föstud
aga
Er bílrúðan
brotinn eða
skemmd?
Við erum sérfræðingar í
bílrúðuskiptum og viðgerðum
á minni rúðutjónum.
Erum í samvinnu við öll
tryggingafélög landsins.
Stórhöfða 37 | 110 Reykjavík | Sími 586 1900 | framrudur@simnet.is | bilrudur.is
Áratuga reynsla og framúrskarandi þjónusta