Morgunblaðið - 18.06.2014, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.06.2014, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Þeir voru kátir og hressir krakkarnir sem sátu aftast í þessum strætisvagni um daginn og sendu friðarmerki og breitt bros til þeirra sem óku á eftir vagninum. Að ferðast með almennings- samgöngutækjum hefur marga kosti, margir geta ferðast saman í einu, til dæmis hópur af krökkum sem þurfa að komast á milli staða. Og oft er glatt á hjalla þegar bernskunnar börn koma saman og dettur þeim ýmislegt í hug. Æskan leikur við hvurn sinn fingur Morgunblaðið/RAX Ungviðið ferðast með strætó og bregður á leik Leitað verður áfram í Fljótshlíð og nágrenni að Ástu Stefáns- dóttur en leit að henni hefur stað- ið yfir frá því síð- degis á þriðju- dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er leitin minni í sniðum heldur en um og fyrir helgi. Helst verður leitað á vatnasvæðum Markarfljóts og í innanverðri Fljótshlíð. Leitin mun halda áfram í Fljótshlíð Frá Fljótshlíð. Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is „Ég var að mótmæla þeirri kenningu að það geti ekki farið fram upplýst umræða um ESB nema það liggi fyr- ir samningur. Ég tel að það sé verið að nálgast þetta mál með röngum hætti,“ segir Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra um það sem fram kom í hátíðarræðu sem hann hélt á Hrafnseyri við Arnarfjörð í gær. Illugi gerði aðildarferli Íslendinga að Evrópusambandinu að umtalsefni í ræðu sinni. Hann sagði að umræðan hér á landi hefði verið gagnleg og uppbyggileg þótt veruleg snurða hefði hlaupið á þann þráð öðru hverju. Hann telur auðséð að sú nálg- un og kenning að upplýst umræða um aðild okkar Íslendinga að ESB geti ekki farið fram nema við höfum samning í höndunum eða getum „kíkt í pakkann“ sé í besta falli villandi, en í versta falli röng og jafnvel hættuleg. „Sá pakki sem hér er talað um að kíkja í liggur fyrir er núgildandi regluverk ESB, en hann er pakki dagsins í dag,“ sagði Illugi í ræðu sinni. „Fyrst þarf að taka afstöðu til þess hvort við viljum vera hluti af því samrunaferli sem Evrópuþjóðirnar eru í og stefna í á næstu árum. Sú spurning hefur ekkert að gera með aðildarsamning. Ef þjóðin segir já við því og er þeirrar skoðunar að það samrýmist hagsmunum Íslands að taka þátt í því samrunaferli þá kemur til umræðu um aðildarviðræður,“ segir Illugi í samtali við Morgunblað- ið. Röng aðferðafræði í viðræðum Illugi segir að gjalda þurfi varhug við því að líta á aðildarviðræður við ESB eins og hvern annan viðskipta- samning. „Við megum ekki horfa framhjá þeim grundvallarspurning- um sem vakna í tengslum við Evr- ópusambandið. Þetta er miklu stærri spurning og vandinn er sá að við höf- um ekki nægjanlega rætt það í okkar samfélagi hvort við viljum fara í þessa vegferð sem evrusvæðið er á,“ segir Illugi. „Við Íslendingar verðum að horfa til þessa alls af mikilli alvöru. Við hóf- um aðildarviðræður við ESB á mjög veikum pólitískum grunni, með klofið þing og klofna ríkisstjórn. Viðræð- urnar sigldu í strand á síðasta kjör- tímabili og á síðasta þingi var lögð fram tillaga um formleg slit viðræðn- anna, sem ekki tókst að afgreiða. Því miður hefur umræðan um þessi mál setið föst, hún er í fjötrum þeirrar hugsunar að upplýst umræða geti ekki farið fram án þess að samningur liggi fyrir,“ sagði Illugi í ræðunni og bætir við að hann telji mikilvægt að „við leysum þessa fjötra og ræðum um og gerum upp við okkur hvort við viljum taka þátt í samstarfi evruríkj- anna sem óumflýjanlega mun leiða í átt til sambandsríkis.“ Illugi telur ESB-umræðu villandi  Áður en „kíkt er í pakkann“ þarf að taka afstöðu til þess hvort Ísland vill vera hluti af samrunaferli evruþjóðanna  Illugi segir aðildarviðræður við ESB ekki eins og hvern annan viðskiptasamning Morgunblaðið/Kristinn Menntamálaráðherra „Mér fannst mjög við hæfi að ræða á þessum stað og degi um mál sem svo augljóslega snýr að fullveldi okkar,“ sagði Illugi. Í ræðu sinni líkti Illugi þeirri stöðu sem upp er komin meðal evruríkjanna við þau vandamál sem blöstu við Alexander Hamil- ton, fyrsta fjármálaráðherra Bandaríkjanna. Hamilton lagði til að hin nýstofnuðu Bandaríki tækju yfir skuldir allra ríkja inn- an bandalagsins og leystu þann- ig skuldavanda einstakra ríkja sem voru orðin mikið skuldsett. Þrátt fyrir mikla andstöðu varð þessi leið Hamiltons ofan á og þessi sameiginlega skuld og hinn sameiginlegi skattur varð grunnurinn að sameiginlegum ríkisfjármálum Bandaríkjanna. „Það er gagnlegt að rifja upp þessa sögu nú þegar við ræðum um framtíð Evrópu og einkum evrusvæðisins,“ sagði Illugi í ræðunni. Skuldirnar gerðar allra Í SÖGULEGU LJÓSI Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samningaviðræðum Flugvirkja- félags Íslands og Samtaka atvinnu- lífsins, fyrir hönd Icelandair, var slitið hjá ríkissáttasemjara um tíu- leytið í gærkvöldi. Enginn samn- ingafundur verður í dag. Að óbreyttu verða því sett lög í dag á fyrirhugað ótímabundið verkfall flugvirkja sem hefjast átti kl. sex í fyrramálið, 19. júní. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkis- ráðherra sagði í samtali við mbl.is í gær að sam- þykkt hefði verið á ríkisstjórnar- fundi, sem þá var nýlokið, að kalla þing saman í dag kl. 15 vegna kjaradeilu flug- virkja við Ice- landair. „Að ganga til slíkrar laga- setningar er, líkt og ég hef áður sagt, algjört neyðarúrræði og að- eins réttlætanlegt þegar í húfi eru miklir almannahagsmunir. Þannig er staðan klárlega núna en það breytir engu um það að það er að mínu mati einnig algjörlega óvið- unandi að svona staða sé ítrekað að koma upp að löggjafinn þurfi að hafa afskipti af kjaraviðræðum einnar starfsstéttar við eitt fyrir- tæki. Sú þróun gefur klárlega til- efni til að skoða þessa lagaumgjörð sem við búum við og heimildir rík- issáttasemjara,“ sagði innanríkis- ráðherra síðdegis í gær. Maríus Sigurjónsson, formaður Flugvirkja- félags Íslands, sagði hljóðið þungt í sínum félagsmönnum vegna fyrir- hugaðrar lagasetningar. Menn væru mjög ósáttir. Spurður út í þau ummæli Guð- jóns Arngrímssonar, upplýsinga- fulltrúa Icelandair, að flugvirkjar geri kröfur langt umfram aðra starfsmenn Icelandair, bendir Mar- íus á að tillögur Icelandair um hag- ræðingu feli í sér verulega aukið álag á flugvirkja. Undirbúa lög á verkfall flugvirkja  Innanríkisráðherra segir lögin neyðarúrræði  Flugvirkjar eru mjög óánægðir Maríus Sigurjónsson Níu Íslendingar hlutu heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíð- lega athöfn á Bessastöðum í gær. Dagfinnur Stefánsson flugstjóri hlaut riddarakross fyrir brautryðj- endastörf á vettvangi flug- og sam- göngumála, einnig þau Friðjón Björn Friðjónsson, fyrrverandi fjár- málastjóri, fyrir forystustörf á vett- vangi íþrótta og Guðný Sverris- dóttir, fyrrverandi sveitarstjóri, fyrir störf í þágu heimabyggðar. Ennfremur hlaut Hallfríður Ólafs- dóttir tónlistarmaður riddarakross fyrir frumkvæði að tónlistaruppeldi æskufólks, Helgi Hallgrímsson nátt- úrufræðingur fyrir ritstörf og rann- sóknir á íslenskri náttúru og Hjör- leifur Stefánsson arkitekt fyrir framlag til húsaverndar og sögu ís- lenskrar byggingarlistar. Þá hlaut Lilja Árnadóttir þjóð- háttafræðingur riddarakross fyrir frumkvöðlastörf að varðveislu list- muna fyrri alda, Sigrún Guðjóns- dóttir myndlistarmaður fyrir fram- lag sitt til íslenskrar myndlistar og Tómas Ragnar Einarsson tónlist- armaður fyrir framlag til íslenskrar djasstónlistar og menningarlífs. pfe@mbl.is Voru heiðr- uð á Bessa- stöðum  Níu Íslendingar fengu fálkaorðuna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.