Morgunblaðið - 18.06.2014, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.06.2014, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2014 Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is Reykvíkingar létu ekki rigninguna í gær aftra sér frá því að halda upp á að 70 ár voru frá stofnun lýðveldisins. Fólk á öllum aldri fjölmennti í miðbæ- inn og fylgdist með dagskránni og mannlífinu og lét gráu skýin ekki hafa teljandi áhrif á sig. Þegar blaðamaður kom í miðbæinn stóðu Gunni og Felix á stóra sviðinu við Arnarhól fyrir framan troðfullt tún af áhorfendum og skemmtu sjálf- um sér og öðrum eins og þeim einum er lagið. Með þeim á sviðinu voru ung- ir nemendur úr Dansskóla Birnu Björns sem dönsuðu af eldmóð og komu gestum í mikið stuð. Síðar steig Bjartmar Guðlaugsson á svið, en einn- ig komu fram Sirkus Íslands, Dans- flokkurinn Rebel, Gói og Gloría úr Stundinni okkar og Pollapönk ásamt fleirum. Brúðubíllinn renndi í hlað í Hljómskálagarðinum og á Ingólfs- torgi var Sirkus Íslands með sirkus- sýningar og sirkusskóla þar sem gest- um og gangandi bauðst að reyna við hinar ýmsu kúnstir. Þá var mikið um lifandi tónlist á dagskránni og tónleikar voru víða. Á Austurvell söng sænskur kór fyrir gesti og White Signal steig á svið áður en orðið var gefið laust svo að gestir gátu gripið í míkrófón og sungið við undirspil Pálma Sigurhjartarsonar. Nýtt Akratorg á Akranesi Þjóðhátíðardagurinn var haldinn hátíðlegur með pomp og prakt víðs- vegar um land í gær. Á Akranesi var nýtt og endurbætt Akratorg tekið í notkun í tilefni dagsins. Regína Ást- valdsdóttir bæjarstjóri opnaði torgið formlega með því að setja þar af stað nýjan gosbrunn ásamt Einari Bene- diktssyni, formanni framkvæmdaráðs bæjarins. Einar er ættaður frá bæn- um Skuld sem stóð áður þar sem gos- brunnurinn er í dag. Þá var einnig opnuð róbótasýning á Akranesi í dag en þar gefur að líta á sjötta hundruð róbóta og geimtengdra leikfanga allt frá árinu 1950 til dagsins í dag. Á Akureyri hófst hátíðardagskráin um hádegisbil þegar Lúðrasveit Ak- ureyrar lék í Lystigarðinum og Eirík- ur Björn Björgvinsson bæjarstjóri flutti hátíðarávarp. Ungskáldið Agnes Ársælsdóttir flutti eigið ljóð en einnig las ljóð Hafsteinn Davíðsson, sigur- vegari í Stóru upplestrarkeppninni. Votviðrið ekki til vandræða  Reykvíkingar héldu upp á þjóðhátíðardaginn í rigningu  Margmenni í mið- bænum og mikið að sjá  Hátíðarhöldin gengu vel fyrir sig víðast hvar um landið Morgunblaðið/Eggert Einbeiting Á stóra sviðinu við Arnarhól var bæði dansað og sungið. Nemendur úr Dansskóla Birtu Björns stóðu sig með eindæmum vel og einbeitingin skein úr augunum. Skrúðganga Lúðrasveitin Svanur og Lúðrasveit Reykjavíkur blésu. Þær Christel, Kristín Karólína, María Perla, Saga Lísa, Sara, Camilla og Aníta létu regnið ekki á sig fá. „Við reynum að vera undir regnhlíf svo að okkur rigni ekki niður,“ segir Christel. Þeim eldri fannst hátíðarhöldin árið 1989 vera mjög eftirminnileg þegar snjór féll í Reykjavík. Snjórinn 1989 var eftirminnilegur Þær Tinna, Katla, Hekla, Karen, Telse og Íris voru mættar alla leið frá Garðabæ til þess að taka þátt í hátíðarhöldunum í miðbænum í gær. „Það er svo gaman að prófa eitthvað nýtt. Meira að gera hér og meira nammi,“ segir Karen, en stelp- urnar höfðu að eigin sögn prófað allar gerðir sætinda í gær. Markmiðið að borða mikið nammi Edda Margrét Jensdóttir hefur vanið komur sínar í miðbæinn 17. júní alveg frá barnæsku. „Eftirminnilegastir eru dagarnir þegar það er sumar og sól,“ segir Margrét og bætir við: „Þetta er sennilega fyrsti dagurinn þar sem hægt er að labba með regnhlíf vegna þess að það er alltaf rigning og rok.“ „Tilefni til þess að klæða sig vel“ Morgunblaðið/Eggert Sigmundur Davíð Gunn- laugsson forsætisráð- herra flutti hátíðarræðu á Austurvelli í gær. Í ræð- unni sagði Sigmundur meðal ann- ars að mikilvægt væri að byggja upp sterka innviði á lands- byggðinni og tryggja öruggar og greiðar samgöngur og aðra þjónustu hins opinbera. Þá lagði hann áherslu á að æskilegt og eðlilegt væri að dreifa opinber- um störfum jafnar um landið. Sigmundur gerði sjávarútveg- inn einnig að umtalsefni: „Tekjur af sjávarútvegi þurfa til dæmis að nýtast þeim stöðum þar sem þær verða til og stuðla að auknum stöðugleika og fjöl- breytileika atvinnulífs,“ sagði Sigmundur í ræðu sinni. Tækifærin eru til staðar ÍSLANDI GENGUR VEL Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.