Morgunblaðið - 18.06.2014, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 18.06.2014, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2014 Andríki minnir á hvernig reyntvar að notfæra sér stjórnmála- lega angist þjóðarinnar til að koma henni inn í ESB:    En jafnskjótt og viðhorfskann- anir sýndu meirihluta Ís- lendinga á ný andsnúinn að- ild var hægt á aðildarvélinni og á rúmum fjórum árum tókst vinstri stjórninni jafnvel ekki að „kíkja í pakkann“ þannig að sæist í helstu mál á borð við sjávarútvegsmál.    Vinstri stjórnin sem vildi ljúkaaðlögun Íslands að ESB var ekki nálægt því að takast það á fjór- um árum. Þá heimta menn að ríkis- stjórn sem er andvíg aðildinni ljúki henni hið snarasta!    Það gleymist nefnilega oft að tilþess að ljúka „viðræðum“ við ESB þurfa umsóknarríki að laga sig svo að sambandinu að þau falli eins og flís við rass. Það er fjar- stæðukennd krafa að íslensk stjórn- völd, þing og ríkisstjórn, sem eru andvíg aðild að ESB haldi áfram að laga landið að þessu sama ESB. Ís- land verður ekki aðili að ESB á þessu kjörtímabili. Ríkisstjórn og meiri hluti Alþingis eru andvíg að- ild, rétt eins og meirihluti að- spurðra í viðhorfskönnunum. Jafn- vel þótt svo ólíklega færi að ríkisstjórn með aðra stefnu tæki við að loknum þingkosningum árið 2017 og gengi betur að ljúka aðlöguninni en þeirri síðustu sem það reyndi ættu menn eftir að gera breytingar á stjórnarskrá sem heimila slíkt valdaframsal sem ESB aðild væri.    Á sjötugsafmæli lýðveldisinshorfir því betur fyrir sjálf- stæðu Íslandi en nokkur undan- farin ár. Það má fagna af minna til- efni.“ Fagnaðarefni STAKSTEINAR Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Kamasa verkfæri – þessi sterku Veður víða um heim 17.6., kl. 18.00 Reykjavík 12 rigning Bolungarvík 12 alskýjað Akureyri 17 skýjað Nuuk 11 léttskýjað Þórshöfn 15 léttskýjað Ósló 20 heiðskírt Kaupmannahöfn 18 heiðskírt Stokkhólmur 12 heiðskírt Helsinki 10 skýjað Lúxemborg 18 léttskýjað Brussel 18 léttskýjað Dublin 21 léttskýjað Glasgow 25 léttskýjað London 20 heiðskírt París 17 skýjað Amsterdam 17 skýjað Hamborg 22 heiðskírt Berlín 22 heiðskírt Vín 23 léttskýjað Moskva 12 skúrir Algarve 23 skýjað Madríd 27 léttskýjað Barcelona 22 léttskýjað Mallorca 23 léttskýjað Róm 18 léttskýjað Aþena 28 skýjað Winnipeg 15 skýjað Montreal 23 skýjað New York 27 heiðskírt Chicago 29 alskýjað Orlando 30 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 18. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:55 24:03 ÍSAFJÖRÐUR 1:34 25:34 SIGLUFJÖRÐUR 1:17 25:17 DJÚPIVOGUR 2:10 23:48 Áætlað er að rúmlega tvö þúsund nemendur muni brautskrást úr grunn- og framhaldsnámi við Há- skóla Íslands á laugardaginn og er það, samkvæmt upplýsingum frá HÍ, metfjöldi nemenda við vor- brautskráningu. Nærri 780 kandí- datar munu útskrifast úr fram- haldsnámi og tæplega 1.300 úr grunnnámi. Flestir brautskrást frá félags- vísindasviði, tæplega 700, og næst- flestir frá heilbrigðisvísindasviði, í kringum 460. Tæplega 340 munu brautskrást frá menntavísinda- sviði, um 320 frá verkfræði- og náttúruvísindasviði og í kringum 260 manns munu útskrifast frá hugvísindasviði. Endanlegur fjöldi brautskráðra kandídata mun liggja fyrir á morgun, fimmtudag. sh@mbl.is Morgunblaðið/Ómar HÍ Brautskráning á laugardaginn. Metfjöldi útskrifast frá HÍ Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Hamborgarabúlla Tómasar opnaði í gær nýtt útibú í Kaupmannahöfn, við götuna Høkerboderne í Kød- byen. Aðstandendur staðarins gáfu hamborgara í gær og að sögn Valdi- mars Geirs Halldórssonar rekstr- arstjóra tóku gestir staðarins vel í uppátækið. „Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur í dag og það er stöðugt flæði af fólki. Við erum núna með röð sem samanstendur af 450 manns og við erum búin að afgreiða um 900 hamborgara. Það er bara rosa góð stemning og fólk er mjög ánægt með hamborgarana. Tommi er síðan búinn að rölta hérna um svæðið og gleðja fólk,“ sagði Valdi- mar í gær, en þrautþjálfað lið frá Íslandi var flutt inn til Danmerkur til að hjálpa til við undirbúninginn. „Við tókum eiginlega bara besta lið- ið frá Íslandi með okkur út og það mun sjá um að þjálfa Danina og sjá til þess að ekkert fari úrskeiðis næstu daga. Við erum mjög bjart- sýn á framhaldið og Búllan er kom- in til að vera í Kaupmannahöfn,“ segir Valdimar en utan Kaup- mannahafnar er Hamborgarabúllan einnig með starfsemi í Berlín og London, auk nokkurra staða hér á landi. Segir Búlluna komna til að vera Ljósmynd/Valdimar Geir Halldórsson Hamborgarar Mikil röð myndaðist fyrir utan Hamborgarabúlluna.  Nýr staður í Kaupmannahöfn  Gestir fengu borgara frítt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.