Morgunblaðið - 18.06.2014, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 18.06.2014, Qupperneq 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2014 Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is Beltone First gengurmeð iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPadminimeð Retina, iPadmini og iPod touch (5. kynslóð)með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum. HEYRNARSTÖ‹IN Beltone First™ Snjallara heyrnartæki Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu og prófaðu, það er engu líkt! manna á hverjum degi. Álagið á göngustígana er því mikið og nú stendur til að styrkja þá. Settar verða upp tröppur í gilinu við fossinn, sem eykur mjög öryggi, enda er stígurinn þangað niður brattur og oft ófær á veturna þegar svellbunkar liggja yfir. Þá verður komið upp nýju handriði á brúnni neðan við fossinn, til að draga úr sjónrænum áhrifum,“ segir Guðmundur. Auk þessa stendur til að stækka bílastæði við þjónustumiðstöðina í Skaftafelli. Þau eru oft fullskipuð og á síðasta ári var hluta tjaldsvæðis verið breytt í bílastæði. Sú lausn var þó aðeins til bráðabirgða. Nú hefur svæði á malarkambi við innkeyrsluna að þjónustuhúsum í Skaftafelli verið markað af. Þar verða væntanlega komin ágæt stæði fyrir bíla innan nokkurra vikna. Hálft landið er undir Skaftafell er hluti af Vatnajök- ulsþjóðgarði, sem nær frá Skeiðarár- sandi og norður í Öxarfjörð. Segja má að hér sé hálft landið undir og verkefnin eru fjölbreytt. Þjóðgarð- inum er skipt upp í fjögur rekstrar- Morgunblaðið/Sigurður Bogi Göngugarpar Á göngu í hæðunum ofan við tjaldsvæðið í Skaftafelli. Ægifagrir Kristínartindar í baksýn. svæði og hafa þjóðgarðsverðir og starfslið þeirra aðsetur á Kirkjubæjarklaustri, á Skriðu- klaustri á Héraði, í Ásbyrgi í Jökuls- árgljúfrum, Mývatni, Höfn í Horna- firði og loks Skaftafelli. Á síðastnefnda staðnum standa Regína Hreinsdóttir þjóðgarðsvörð- ur og Guðmundur Ögmundsson vakt- ina árið um kring og yfir sumarið bætast starfsmenn, til að mynda landverðir, við. Hafa þeir með hönd- um vörslu á tjaldsvæðum og víðar, fara fyrir skipulögðum fræðslu- og gönguferðum um svæðið og sinna minniháttar framkvæmdum og um- hverfisbætum meðal annars. Í Skaftafelli hafa sumarstarfsmenn þeirri aðstöðu í gömlu húsunum í Bölta. Þar var lengi stundaður bú- skapur og síðar gistiþjónusta. Nú hefur sú starfsemi verið lögð af og nú er Böltahúsið – eins og aðrar bygg- ingar á svæðinu – nýtt í þágu þjóð- garðsins. Hjallanes, Heinaberg og Hoffell „Verkefnin hér eru í raun enda- laus,“ segir Guðmundur, sem nam ferðamálafræði við Hólaskóla í Hjaltadal. Til starfa í Skaftafelli kom hann fyrir fimm árum. Segir hann margt hafa breyst á þeim tíma en stóra breytingin sé líklega sú að nú sé varla lengur til það sem heiti ferðamannavertíð. Ætlað sé að 90% þeirra ferðamanna sem í Skaftafell kom séu útlendingar, sem séu á ferð- inni árið um kring. „Breytingin er al- veg ótrúleg hvað vetrargesti varðar. Í janúar og febrúar 2010 komu 242 í gestastofuna en 4.050 í þessum sömu mánuðum á þessu ári. Þetta sýnir best hver breytingin er. Við höfum raunar lagt okkur eftir því að fjölga vetrargestum hér með því að vera á skrefi á undan með að bæta þjónustu. Skrefin þurfa samt að vera fleiri og stærri – það er í í Skaftafelli, en sömuleiðis þarf að gera fleiri staði hér á Vatnajökulssvæðinu ferðafólki aðgengilegri,“ segir Guðmundur. Segir þarna horft til Hjallaness í Suð- ursveit, Heinabergssvæðisins á Mýr- um og Hoffells í Suðursveit, en þar er þjóðgarðurinn í samstarfi við heima- menn um uppbyggingu áfangastaða. Allt séu þetta áhugaverðir staðir sem vert sé að gefa gaum. Áning Í undirbúningi er að stækka matstofuna við þjónustumiðstöðina í Skaftafelli, sem er sennilega meðal vinsælustu veitingastaða landsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.