Morgunblaðið - 18.06.2014, Síða 15

Morgunblaðið - 18.06.2014, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2014 8" 8" Haier Pad D85·8"·3GHaier Pad 781·8"·WiFi Kr. 39.900,- Kr. 39.900,- Stýrikerfi: Android 4.2 · Örgjörvi: 1.6 GHz, RK3188 Quad Core ARM Cortex A9 · Minni: 8GB, stækkanlegt með Micro SD korti · Upplausn: 1024 x 768 · Þyngd: 290 gr · Stærð: 198.7x134x6.6 · Myndavél: 5 MP að aftan, 2 MP að framan Stýrikerfi: Android 4.2 · Örgjörvi: 1.2 GHz, MTK8389 A7 Quad Core · Minni: 8GB, stækkanlegt með Micro SD korti · Upplausn: 1024x768 · Þyngd: 395 gr · Stærð: 200.5x135x8.4 · Myndavél: 5 MP LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2800 · ORMSSON.IS · Verslanir um land allt Opið virka daga kl.10-18 / Lokað laugardaga í sumar Haier er risafyrisrtæki í framleiðslu á heimilistækjum, sjónvörpum, spjaldtölvum og snjallsímum. Veltan er 30 milljarðar US$. Allt eigin framleiðsla með dreifingu og sölu um allan heim. Eitt af fremstu fyrirtækjum heims í vöruþróun og hönnun og talið með átta framsæknustu fyrirtækja heims á því sviði. „Haier – The #1 Global Major Appliances Brand For 5th Consecutive Year.“ Euromonitor International Þynnsta 7"/8" spjaldtölva í heimi – 6.6mm Sími og spjaldtölva með 3G Skúli Halldórsson sh@mbl.is Liðsmenn ISIS-samtakanna færast sífellt nær Bagdad, höfuðborg Íraks. Nýjasta skotmark samtakanna er borgin Baquba, sem er aðeins 60 kílómetrum norðan við Bagdad. Hafa uppreisnarmennirnir náð yfir- ráðum í nokkrum hverfum borgar- innar. Þeir sem kunnugir eru lands- háttum fullyrða að ef samtökin nái borginni á sitt vald, sé leiðin greið til Bagdad. Blikur eru þó á lofti, sam- tökin hafa mætt sterkri andstöðu í Baquba. Fjölmargir sjálfboðaliðar úr röðum shía-múslima hafa komið herliði ríkisstjórnarinnar til aðstoð- ar. Virðist leiftursókn ISIS samtak- anna því loks vera að hægja á sér. Yfirvöld í Bagdad óttast þó áhlaup uppreisnarmannanna á borgina og þar hafa menn vígbúist undanfarna daga. Þá streyma að sjálfboðaliðar hvaðanæva af landinu sem orsakast af því að aukin yfirráð súnníta vekja ugg í samfélagi shía-múslima. Þá hafa Bandaríkin mikla hags- muni að verja í landinu. Ef uppreisn- armenn ná höfuðborginni á sitt vald er landið að mestu leyti fallið. Mun þá meirihluti þeirrar vinnu sem Bandaríkin hafa lagt í innviði lands- ins, vera unninn fyrir gýg. Banda- rísk yfirvöld hafa gefið út yfirlýs- ingu um að 275 manna herlið verði sent til landsins til að verja sendiráð þeirra í Bagdad. Þá vilja þau ekki útiloka frekari íhlutun. Írak að skiptast í þrennt Útlit er fyrir að landið, eins og við þekkjum það á landakortum, muni mögulega líða undir lok. Kúrdar hafa lengi ráðið lögum og lofum í norðausturhluta landsins í eins kon- ar sjálfstjórnarhéraði. Þá hafa súnn- ítar lengi verið ósáttir við ríkisstjórn shía-múslima, en samt sem áður hef- ur ríkt ákveðið jafnvægi í landinu. Allt þetta hefur breyst með til- komu ISIS-samtakanna. Nú virðast samtökin hafa náð undirtökum í nyrðri helming landsins og ekkert bendir til þess að þau losi um tak sitt. Þá hafa Kúrdar, í skjóli átakanna undanfarin misseri, styrkt stöðu sína verulega og náð mikilvægum svæðum í norðurhluta landsins á sitt vald. Ef fram heldur sem horfir mun fátt geta komið í veg fyrir að landið liðist í sundur. Því þarf að koma í veg fyrir að átökin stigmagnist. Vesturlönd treysta á Íran Leiðtogar Vesturlanda hafa gefið til kynna aukið traust til yfirvalda í Íran. Talið er að í þessu felist við- urkenning á því að Íran sé í raun eina landið sem aðstoðað getur Írak, því Vesturlönd hafi lítinn grundvöll til innrásar í landið. Stjórnvöld í Íran hafa vissulega töluverðra hagsmuna að gæta, landið er höfuðvígi shía- múslima og vilja þau halda trú- bræðrum sínum við völd í nágranna- landinu, Írak. Hafa þau sent hátt- settan hershöfðingja til Íraks sem ráðleggur nú yfirvöldum í Bagdad hvernig verjast skuli komandi árás. Átökin í Írak færast sífellt nær höfuðborg landsins  Landið gæti mögulega liðast í sundur  Stjórnvöld í Íran koma til aðstoðar AFP Yfirsýn Liðsmaður hersveita Kúrda tekur sér stöðu og fylgist með hermönnum ISIS-samtakanna þar sem þeir fara yfir landið. Írak virðist nú vera skipt í þrjú yfirráðasvæði á milli Kúrda, súnníta og shía. Búist er við meiri átökum. ISIS-samtökin » Stofnuð í apríl 2013 eftir klofning frá al-qaeda. » Hafa yfir að ráða þúsundum bardagamanna. » Leiðtogi þeirra er Abu Bakr al-Baghdadi, fæddur 1971. » Talin eiga í kringum tvo milljarða bandaríkjadala. » Markmið þeirra er nýtt ísl- amskt ríki í Mið-Austurlöndum. „Gasflutningum til landsins hefur nú verið al- gjörlega hætt,“ segir orku- málaráðherra Úkraínu, Yuri Prodan. Alexei Miller, stjórnar- formaður hins ríkisrekna gas- fyrirtækis í Rússlandi, Gazprom, segir að nú þurfi Úkraína að borga fyrirfram fyrir gas frá Rússlandi. Úkraína skuldar Rússlandi nú þeg- ar fyrir gasinnflutninginn síðustu ár og nemur skuldin rúmum fjórum milljörðum bandaríkjadala. Útlit er fyrir að gasbirgðir Úkraínu dugi fyrir þarfir landsins fram í desem- ber. ÚKRAÍNA Rússar skrúfa fyrir gas til Úkraínu Alexei Miller Leiðtogi árás- armanna sem réðust á aðsetur ræðismanns Bandaríkjanna í Benghazi árið 2012 var tekinn höndum á sunnu- daginn. Banda- rískir hermenn réðust þá til at- lögu að híbýlum mannsins. „Þegar ráðist er á landsmenn okkar finnum við þá sem eru ábyrgir og sækjum þá til saka,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti í yfirlýsingu. 11. september 2012 réðust menn vopn- aðir byssum á aðsetur ræðismanns- ins, myrtu fjóra og kveiktu í bygg- ingunni. LÍBÝA Handtekinn fyrir árásina á Benghazi Barack Obama Brasilísk toll- gæsluyfirvöld gerðu upptækt mikið magn af karamellusmjöri þegar úrúgv- æska knatt- spyrnulandsliðið kom til landsins. Í yfirlýsingu frá tollgæslunni segir að þar sem smjörið sé mjólk- urvara þurfi gögn um heilbrigð- isvottun, en þau skorti. Smjörið er mjög vinsælt í Úrúgvæ og vilja margir stuðningsmenn meina að tap liðsins gegn Kosta Ríka megi rekja til skorts á smjörinu. Lið Úrú- gvæ etur kappi við lið Englands annað kvöld. HM Í BRASILÍU Úrúgvæ skortir karamellusmjör Luis Suarez Áform eru uppi um að opna á ný sendiráð Bretlands í Teheran, höfuðborg Írans, en því var lokað ár- ið 2011 eftir að það varð fyrir árás ír- anskra mótmælenda. William Hague, utanríkisráðherra Bret- lands, segir að nú sé gott tækifæri til að opna sendiráðið á ný, þar sem samskipti ríkjanna hafi batnað veru- lega síðustu mánuði. Þá hafa samn- ingar tekist um kjarnorkuáætlun Ír- ans, sem hefur lengi verið umdeild. Að hluta til skýrist þetta af tilkomu Hassans Rouhani, sem á síðasta ári var kosinn forseti Írans. Tók hann við af Mahmoud Ahmadinejad, sem þótti herskárri í garð Vesturlanda. Telja sérfræðingar að þessi öra þróun í samstarfi ríkjanna beri þess vitni að Vesturlönd þurfi sterka bandamenn í Mið-Austurlöndum í komandi átökum við ISIS-samtökin. Hyggjast enduropna breska sendiráðið í Íran AFP Blóðugt Handarför íranskra mótmælenda á skilti breska sendiráðsins í Ír- an. Nú eru áform uppi um að opna sendiráðið á ný. Því var lokað árið 2011.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.