Morgunblaðið - 18.06.2014, Side 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2014
Mér finnst rigningin góð Blessuð börnin láta það ekki á sig fá þó aðeins rigni á þjóðhátíðardaginn, þeim finnst alltaf jafn gaman að fagna með mannfjöldanum og gæða sér á sleikjó.
Eggert
Í ræðu sem Bjarni
Benediktsson hélt á
landsfundi Sjálfstæð-
isflokksins á Þingvöll-
um 18. júní 1943 benti
hann á að engan skyldi
undra að erlendar
þjóðir hefðu yfirleitt
látið sig sjálfstæðis-
baráttu íslensku
þjóðarinnar litlu
skipta. Þekking þeirra
á málefnum Íslands væri eðlilega lít-
il og áhuginn enn minni:
„Þeim, sem lítið þekkja til lands
eða þjóðar, hlýtur að sýnast það
ganga kraftaverki næst, ef svo lítilli
þjóð sem Íslendingum tækist að
halda uppi sjálfstæðu ríki í jafn-
erfiðu landi sem Íslandi. Menn eru
tregir að trúa kraftaverkum nú á
dögum og hafa því löngum látið sér
fátt um finnast tilraunir okkar til að
öðlast fullt frelsi.“
Þótt Bjarni Benediktsson, sem
síðar varð forsætisráðherra, væri
fullur bjartsýni á framtíð fámennrar
þjóðar skal dregið í efa að hann hafi
látið sig dreyma um þann gríðarlega
árangur sem náðst hefur.
Fáum hefur tekist betur til
Þrátt fyrir ýmis áföll – síldar-
brest, óðaverðbólgu, atvinnuleysi og
hrun fjármálakerfisins – hefur okk-
ur Íslendingum vegnað vel frá því að
lýðveldið var stofnað 17. júní 1944.
Fáar þjóðir hafa notið meiri vel-
gengni eða bætt lífskjör meira en Ís-
lendingar á síðustu 70 árum.
Við rekum öflugt heilbrigðiskerfi
– sjúkrahús, heilsugæslu og hjúkr-
unarheimili um allt land. Við höfum
lagt vegi, byggt brýr
og borað jarðgöng. Við
rekum grunnskóla í öll-
um sveitarfélögum,
fjölmarga framhalds-
skóla og fjölbreytta há-
skóla.
Við höfum komið
upp viðamiklu velferð-
arkerfi. Sterkt lífeyr-
iskerfi er öfundarefni
annarra þjóða. Húsa-
kostur er óvíða betri.
Okkur hefur tekist
það sem fáum þjóðum
hefur tekist: Gert sjávarútveg að
arðbærri atvinnugrein.
Við höfum nýtt vatnsorkuna til
rafmagnsframleiðslu, byggt undir
fjölbreyttara atvinnulíf og tryggt
ódýrara rafmagn en í flestum ná-
grannalöndum. Við höfum hagnýtt
heita vatnið og flytjum tækniþekk-
ingu okkar til annarra landa.
Við höfum í flestu nýtt auðlindir
okkar af meiri skynsemi en flestar
aðrar þjóðir. Hreint vatn er ein
helsta auðlind okkar Íslendinga,
þótt við leiðum yfirleitt aldrei hug-
ann að því en göngum að því sem
sjálfsögðum og eðlilegum hlut. Þær
þjóðir sem hafa aðgang að nægu
hreinu vatni geta staðið öðrum þjóð-
um framar á komandi áratugum.
Við eigum listamenn sem hafa
vakið heimsathygli; tónlistarmenn,
rithöfunda, myndlistarmenn, leikara
og kvikmyndagerðarmenn. Íslenskir
íþróttamenn hafa náð ótrúlegum ár-
angri.
Fjölmörg verkefni
þarf að leysa
Allt þetta hefur okkur tekist og
meira til, þrátt fyrir að hafa verið
mislagðar hendur í mörgu. En við
eigum mörg verk að vinna á kom-
andi árum:
Við þurfum að ná tökum á skuld-
um ríkisins, skera upp ríkis-
reksturinn og koma aga á fjármál
sveitarfélaga og ríkisins.
Við komumst ekki hjá því að
stokka upp skattkerfið, draga úr
jaðarsköttum og lækka beinar álög-
ur á launafólk. Með samkeppnis-
hæfu skattaumhverfi er hægt að
flytja verslunina aftur til landsins og
skapa frjóan jarðveg fyrir allt
atvinnulífið.
Við verðum að innleiða samkeppni
á öllum sviðum til að tryggja hag-
kvæma nýtingu fjármagns og vinnu-
afls, góða þjónustu og hagstætt
verð.
Við þurfum að tryggja jafnræði
milli atvinnugreina. Það er rangt að
láta eina atvinnugrein greiða auð-
lindagjald en undanskilja aðrar sem
nýta náttúruauðlindir. Það getur
ekki gengið til lengdar að sumir
starfi í vernduðu umhverfi, njóti
skjóls hins opinbera í formi tolla og
innflutningshafta á meðan fyrirtæki
sem eru í harðri samkeppni [oft
ríkisstyrktri] á alþjóðlegum mörk-
uðum, eru skattlögð sérstaklega um-
fram samkeppnisaðila í öðrum lönd-
um.
Við þurfum að losa landbúnaðinn
úr viðjum ofstýringar og afskipta og
nýta þau ótrúlegu tækifæri sem eru
til lands og sjávar þannig að Ísland
verði fyrirmynd í matvæla-
framleiðslu.
Við verðum að endurnýja
utanríkisstefnuna, byggja á grunni
vestrænnar samvinnu og opnu hag-
kerfi. Þannig er efnahagslegt og
pólitískt sjálfstæði best tryggt.
Við eigum að gera það aftur eftir-
sóknarvert að stofna og eiga fyrir-
tæki – setja sjálfstæða atvinnu-
rekandann aftur á sinn stall. Þannig
á að hætta að refsa framtaks-
mönnum fyrir að ná árangri í
rekstri.
Við eigum að opna alla stjórnsýslu
hins opinbera þannig að almenn-
ingur geti fylgst með gerðum og
ákvörðunum stjórnmálamanna og
embættismanna.
Við þurfum að skera upp dóms-
kerfið, koma á fót millidómstigi og
nýjum hæstarétti.
Við skulum ráðast í umfangsmikla
fjárfestingu í heilbrigðiskerfinu –
fjárfestingu sem er ekki aðeins ein
sú arðbærasta sem við eigum kost á,
heldur mun hún auka lífsgæði allra
landsmanna ef rétt er að verki stað-
ið.
Við verðum að huga að grunn-
þáttum menntunar. Það er eitt að
setja sér háleit markmið um að eiga
háskóla sem er í hópi þeirra bestu
heiminum og annað að byggja upp
grunnstoðir menntakerfisins –
grunnskólann sem er undirstaða alls
í menntamálum þjóðarinnar.
Við getum leiðrétt eitt mesta
óréttlætið sem hefur fengið að grafa
um sig. Þjóðinni hefur verið skiptist
í tvo hópa. Annar hópurinn nýtur
ríkisábyrgðar á lífeyrisréttindum.
Hinn hópurinn þarf að sætta sig við
skert lífeyrisréttindi ef illa gengur.
Til að auka enn á óréttlætið þarf síð-
ari hópurinn að axla þyngri byrðar
til að tryggja lífeyrisréttindi þeirra
sem tilheyra fyrri hópnum.
Við skulum leggja grunn að því að
ungt fólk eigi a.m.k. ekki síðri tæki-
færi til að eignast eigið húsnæði en
foreldrar þess, afar og ömmur. Ef
reisa á skjaldborg á hún að vera um
séreignastefnuna þannig að fólk eigi
raunverulegt val um hvort það vill
eiga eða leigja þak yfir höfuðið.
Við getum sameinast um að fjölga
tækifærunum – valkostum okkar á
öllum sviðum, allt frá samgöngum til
skóla, frá læknisþjónustu til búsetu,
frá listum til fjölmiðlunar o.s.frv.
Þori að hugsa sjálfstætt
Þetta eru aðeins nokkur af þeim
sameiginlegu verkefnum sem við Ís-
lendingar ættum og þurfum að sinna
á komandi misserum og árum.
Stjórnmálamenn geta undirbúið
jarðveginn með skynsamlegum
ákvörðunum en þeir leysa ekki verk-
efnin fyrir okkur. Við verðum hvert
og eitt en einnig sameiginlega að
taka til hendinni – vera virkir borg-
arar líkt og Bjarni Benediktsson
brýndi fyrir landsmönnum þegar 25
ára afmæli lýðveldisins var fagnað:
„Menn koma engu góðu til vegar,
nema þeir séu sjálfir virkir
þjóðarfélagsþegnar, geri upp eigin
hug, þori að hugsa sjálfstætt, fylgja
hugsun sinni eftir og átti sig á því, að
fátt næst fyrirhafnarlaust. Menn
verða í senn að nenna að leggja á sig
hugsun og vinnu, ef þeir í raun og
veru vilja knýja fram þær umbætur,
er löngun þeirra stendur til.“
Eftir Óla Björn
Kárason » Við verðum hvert og
eitt en einnig sam-
eiginlega að taka til
hendinni – vera virkir
borgarar líkt og Bjarni
Benediktsson brýndi
fyrir landsmönnum.
Höfundur er varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
„… að nenna að leggja á sig hugsun og vinnu“
Óli Björn Kárason