Morgunblaðið - 18.06.2014, Page 19

Morgunblaðið - 18.06.2014, Page 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2014 ✝ Agnar Her-mannsson fæddist að Fjalli í Kolbeinsdal í Skagafirði 3.9. 1933. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 9.6. 2014. Foreldrar hans voru Hermann Sig- urvin Sigurjónsson, síðast bóndi á Lóni í Viðvíkursveit, f. 8.1. 1901 á Lækjarbakka á Upsa- strönd hjá Dalvík, d. 5.6 1981 á Sauðárkróki, og kona hans Rósa Júlíusdóttir, f. 15.5. 1897 í Öldu- hrygg í Svarfaðardal, d. 8.4. 1988 á Sauðárkróki. Systkini Agnars voru 1) Kári, múrara- rmeistari og verslunarmaður á Sauðárkróki, f. 24.1. 1923, d. 24.12. 2007, kvæntur Sigurlínu Árnadóttur, 2) Njáll, skrifstofu- og verslunarmaður í Reykjavík, f. 30.9. 1927, d. 18.6. 1975, kvæntur Kolbrúnu Matthías- dóttur. Skildu. 3) Guðfinna Kon- kordía, f. 10.3. 1930, d. 11.8. sama ár. 4) María, húsfreyja á Sauðárkróki, f. 1.6. 1936, d. 31.5. 1985. Gift Kjartani Haraldssyni með Rúnari. Dóttir þeirra Ása Dóra. b) Sigurjón Leó. Sonur hans Alexander Leó. Agnar ólst upp hjá foreldrum sínum á nokkrum bæjum í Hóla- hreppi til 1938, að hann fluttist með þeim að Lóni í Viðvíkursveit þar sem hann átti heima í 25 ár. Þar stofnaði hann sitt heimili en fluttist með fjölskyldu sína til Sauðárkróks árið 1963 þar sem þau hjón reistu sér íbúð að Hóla- vegi 28 og þar átti Agnar heimili sitt til æviloka. Sumarið 1963 hóf Agnar störf sem ýtumaður hjá Búnaðarsambandi Skagfirðinga og var þar óslitið til 1974 en það sumar stofnaði hann ýtufyrir- tæki með starfsfélaga sínum Hjalta Pálssyni, og keyptu þeir litla ýtu, Caterpillar D-3, hina fyrstu sinnar tegundar á Íslandi. Árið 1980 keypti hann vélina alla og rak síðan fyrirtæki sitt, Agn- ar og Hjalta, í mörg ár, seinna í félagi við Hermann son sinn. Agnar vann á jarðýtum samtals fjóra áratugi, einstaklega lag- virkur vélamaður og eftirsóttur til þeirra verkefna þar sem vand- virkni þurfti að beita. Í fjölmörg ár stundaði hann einnig sauðfjársæðingar á veg- um Búnaðarsambands Skagfirð- inga. Útför Agnars fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag, 18. júní 2014, og hefst athöfnin kl. 14. bifreiðarstjóra. 5) Friðrika, verslunar- maður á Sauðár- króki, síðar búsett í Reykjavík. Gift Gunnlaugi Ólsen tónlistarkennara. Agnar kvæntist, þann 26.12. 1959, Önnu Lilju Leós- dóttur frá Hvalnesi á Skaga, f. 16.1. 1941. Börn þeirra eru: 1) Ásta Rósa Agnarsdóttir, matráður á Sauðárkróki, f. 21.11. 1959, ógift. Dóttir hennar er Anna Rún Austmar, hennar sonur Gabriel Ernir. 2) Hermann Agnarsson, vinnuvélastjóri og sjómaður á Sauðárkróki, f. 19.6. 1961. Kvæntur Geirlaugu Ingi- björgu Jónsdóttur, sjúkraliða, f. 17.4. 1964. Þeirra börn eru: a) Agnar, kvæntur Guðrúnu Jó- hönnu. Börn þeirra: Dagný Lind, Elmar Bjarki og Katla Björk. b) Adam Smári. 3) Vilhjálmur Leó Agnarsson, smiður og f.v. sjó- maður í Hafnarfirði, f. 30.7. 1962. Kvæntur Höllu Sigurjóns- dóttur, sölumanni, f. 1.2. 1963. Þeirra börn: a) Rut, í sambúð Þú átt skilið þökk og hrós, þú átt framtíð bjarta. Ef þú verður eilíft ljós, inn í mínu hjarta. Nú af sætum svefni vakna, Þú í svefni birtist mér. Ég finn hve sárt ég sakna, að sjá þig ekki hér. Ástarkveðja. Þín eiginkona, Anna Lilja Í dag kveðjum við elskulegan tengdaföður minn, hann Agnar Hermannsson eða Agnar frá Lóni eins og hann var oftast kall- aður. Það eru þrjátíu og fjögur ár síðan ég kynntist Hermanni (Hemma) syni hans og kom inn í fjölskylduna. Agnar og Anna kona hans tóku vel á móti mér, 16 ára krakkanum og hafa þau reynst mér einstaklega vel alla tíð. Aggi var ljúfur maður en gat verið einþykkur, fannst gaman að sitja og spjalla, stundum var hann stríðinn en hann var lítið fyrir það að láta stríða sér. Hann var ýtu- karl sem hafði unun af öllu því sem sneri að ýtunni hans, enda vann hann í ein 40 ár á ýtu og síð- ustu árin var Hemmi í samstarfi með honum, allt þar til í mars 2006 þegar fyrirtækið var selt. Árið 1982 eignuðumst við Hemmi okkar fyrri son og fyrsta barnabarn Agnars og Önnu, lít- inn snáða sem var skírður í höf- uðið á afa sínum. Stoltið skein af Agnari yfir þessum litla nafna sínum og sá hann ekki sólina fyrir honum og var sá stutti fljótur að finna það út að hann gat látið þau snúast í kring um sig. Síðan komu barnabörnin eitt af öðru og alltaf var Agnar stoltari og stoltari, ekki varð hann minna stoltur yfir langafabörnunum sem eru flest búsett fyrir sunnan þannig að hann hitti þau ekki eins oft og hann hefði viljað, en eitt lítið ljós var hér á Krók, hann Gabríel Ernir sem var oft hjá afa sínum og ömmu og veitti þeim mikla gleði og hafði Agnar gaman af að hafa hann hjá sér. Síðustu ár var Agnar mikið heima og fór ekki mikið út á með- al fólks en hann hafði gaman af því ef einhver kíkti í kaffi og „viltu kaffi“ var yfirleitt það fyrsta sem hann sagði og síðan var sest niður og spjallað. Eitt af því sem hann mátti bara ekki missa af voru allir fréttatímar og hafði hann allt á hreinu í sam- bandi við hvað var að gerast. Það er ótalmargt sem fer í gegnum hugann á þessum tíma- mótum en það geymi ég í hjarta mínu. Með þessu fallega lagi vil ég kveðja tengdaföður minn: Þér leiðist hér, ég veit það, kæri vinur. Þú vilt á brott að kanna nýjan stig en þig skortir kjark, þú hikar og hugsar dag og nótt og hræðist að þú munir særa mig. Við áttum saman yndislega stund, við áttum sól og blóm og hvítan sand og skjól á köldum vetri er vindur napurt söng og von um gullin ský og fagurt lag. Þó farir þú í fjarlægð, kæri vinur, og fætur þínir stígi ókunn skref. hve draumar ræst hafa’ aftur þú áður sagðir mér, þín ást var mín og brosin geymt ég hef Góða ferð, góða ferð, góða ferð, góða ferð, já, það er allt og síðan bros, því ég geymi alltaf, vinur, það allt er gafstu mér, góða ferð, vertu sæll, já, góða ferð Góða ferð, góða ferð, góða ferð (Jónas Friðrik) Elsku Anna Lilja, Ásta Rósa, Hemmi,Villi og aðrir fjölskyldu- meðlimir, megi guð styðja okkur öll og styrkja. Guð veri með þér, elsku tengdapabbi. Þín tengdadóttir Geirlaug (Gilla) Um hádegi á mánudaginn 9. júní var ég á leiðinni í mat til ömmu og afa á Hólaveginum, eins og svo oft áður. Eftir stutt símtal við ömmu mína snerist dagurinn við. Afi var kominn upp á spítala og átti ekki afturkvæmt þaðan heim á Hólaveg heldur endaði lífsganga hans á Borgarspítalan- um seinna þennan sama dag. Þegar ég hugsa til afa míns hugsa ég til besta manns sem ég hef nokkurn tímann kynnst. Ég hef alltaf haldið mikið uppá afa minn og á vissum tímapunktum vildi ég engan tala við nema hann. Þegar ég var lítil og það þurfti að greiða á mér strýið fékk helst enginn að gera það nema afi, hann var svo blíður og þolinmóð- ur gagnvart hársárri dótturdótt- ur sinni. Ég var ekkert smá montin þegar afi kom og sótti mig í skól- ann á grænu bjöllunni, ég þurfti helst að kalla á allar vinkonur mínar og sýna þeim flottasta kaggann í bænum. Svo þegar líf- dagar grænu bjöllunnar voru liðnir fengum við barnabörnin að sitja í honum á planinu og „keyra“ hann um allt en ansi oft þurftum við að biðja afa að losa stýrið því beygjurnar voru oft mjög krappar og þá fór stýrið í þennan óþolandi lás. Afi var ýtukarl fram í fingur- góma og var alltaf á þristinum upp um allar trissur. En honum fannst þó ýtustarfið ekkert fyrir stelpur og fékk ég því ekki að fara eins oft með honum á ýtuna eins og strákarnir, og það fannst mér ósanngjarnt. Þegar ég varð tví- tug ákvað ég að sýna honum afa mínum að stelpur gætu sko alveg unnið á ýtum og gröfum og skráði mig á vinnuvélanámskeið. Eftir langt og strangt námskeið með 30 karlmönnum afhenti ég afa mín- um skjalið sem vottaði að nú væri stelpan komin með bókleg rétt- indi á þungavinnuvélar. Það örl- aði nú á stolti í kallinum þó hann gerði nú ekki mikið mál úr þessu við mig. Afi hafði alltaf áhuga á öllu sem við barnabörnin vorum að bardúsa og vildi alltaf fá fréttir af öllum. Hann var stoltur af okkur og talaði mikið um alla dugnaðar- forkana sína. Ansi oft heyrði mað- ur hann t.a.m tala um að nöfn þeirra bræðra, Agnars og Adams, hefðu komið á skjáinn ef þeir höfðu verið að vinna við einhvern viðburðinn sem sýndur var í sjón- varpinu. Ekki var stoltið minna þegar langafabörnin bárust í tal. Afi var nefnilega barnakall og ósjaldan lét hann sig hverfa úr eldhúsinu frá fullorðna fólkinu til að finna eitthvað fyrir börnin, hvort sem það voru teiknimyndir í sjónvarpið eða leikföng. Sonur minn hann Gabríel Ern- ir átti sérstakan vin í afa sínum og var samband þeirra ofar mínum skilningi. Þó að þeir væru ekki alltaf sammála var aldrei að sjá að litla manninum sárnaði. Gabrí- el vissi ekkert betra en að koma til Agga afa og fá að borða bjúgu, og geta svo setið hjá honum inná holi og horft með honum á teikni- myndir. Raunveruleikinn hefur heldur betur gert vart við sig síðustu daga og það er með miklum trega í hjarta sem ég kveð elsku besta afa minn, hans verður sárt sakn- að og ég geymi í hjarta mínu allar þær yndislegu stundir sem við áttum saman. Elsku afi minn, nú segjum við grand og ég lofa að athuga olíuna reglulega. Anna Rún. Þegar skrifa skal minningar- orð um gamlan vinnufélaga og vin til margra ára verður margt sem leitar á hugann. Fyrsta myndin er af tvítugum dreng sem búinn var að vinna á jarðýtu eina viku og hélt e.t.v. að hann kynni eitt- hvað. Síðkvöld eitt í júníbyrjun fyrir sléttum 47 árum var honum sagt að fara upp í Dalsmynni til Agnars sem þar væri með ýtu og ætti að vera með honum í sumar. Drengurinn þekkti leiðina og var vísað til svefnherbergis þar sem Agnar var genginn til náða. Stráksi var ekki mikill bógur en reyndi þó að bera sig mannalega, sagðist vera kominn og ætti að fara að vinna með honum. Agnar tók þessum staula hvorki vel né illa, umlaði eitthvað og reis upp við dogg, snaraði af sér sænginni og gekk út með honum og sagði til verka. Þetta var fyrsta nætur- vaktin af óteljandi mörgum næstu fjögur sumrin. Verkefnið var að herfa flag. Strákur kunni að setja í gang og snúa ýtunni svo að þetta gekk sæmilega. Drengurinn var sá er þetta rit- ar. Agnar reyndist lærisveini sín- um vel, kenndi honum vandvirkni og verkhyggni, sýndi hvernig átti að beita vélinni án þess að vera með aðfinnslur. Ef það kom ein- hvern tímann fyrir var það með hófsemd gert. Um þriggja sumra skeið vann ég með öðrum en síð- an tókum við aftur upp samstarf, keyptum litla jarðýtu sumarið 1974 og unnum á henni til ársins 1980, þegar Agnar keypti minn hlut en mörg sumur síðan greip ég í verk með honum. Þótt Agnar væri að jafnaði léttur í bragði átti hann til fálæti og líkaði ekki jafnt við alla en hann hafði ekki mörg orð um slíkt. Ég minnist þess ekki að Agnar hafi nokkurn tímann sýnt mér ósanngirni eða okkur orðið sundurorða. Samstarfið gekk af fullum trúnaði og vinátta bast við fjölskylduna. Þótt heimsóknir hafi strjálast með tímanum hafa hin gömlu og góðu kynni aldrei gleymst og verða alltaf mikilvæg- ur hluti af mínu lífi. Heimsókn á áttræðisafmælinu var notaleg stund. Síðustu árin voru Agnari að nokkru leyti erfið því að heils- an bilaði en ég held að hann hafi kvatt sáttur. Ég votta Önnu Lilju, börnum þeirra og afkomendum samúð mína og þakka áratuga vináttu og samstarf. Hjalti Pálsson frá Hofi. Agnar Hermannsson HINSTA KVEÐJA Með þessu ljóði kveð ég þig, elsku afi. Söknuður mikill sækir mér að og sársauki bærist í hjarta. Bænina okkar þá ég bað um betri veröld og bjarta. Afahöndin frábær var hún fingurna mína huldi. Þögul ástin leyndist þar þó allstaðar væri kuldinn. Fátt er betra en afa ást ég fæ þig stundum að dreyma. Samferða ert án þess að sjást þú sársauka lætur mig gleyma. (Heiða Jóns) Guð veri með þér. Þinn sonarsonur, Adam Smári Hermannsson Í bænum okkar, besti afi biðjum fyrir þér að Guð sem yfir öllu ræður, allt sem veit og sér leiði þig að ljóssins vegi lát’ þig finna að, engin sorg og enginn kvilli á þar samastað. Við biðjum þess í bænum okkar bakvið lítil tár, að Guð sem lífið gaf og slökkti græði sorgarsár. Við þökkum Guði gjafir allar gleði og vinarfund og hve mörg var ávallt með þér ánægjunnar stund. (Sigurður Hansen) Þinn langafastrákur og vinur, Gabríel Ernir ✝ Kristján Breið-fjörð Finnboga- son var fæddur í Reykjavík 17. mars 1925. Hann lést á Landspítalanum 8. júní 2014. Foreldarar hans voru Finnbogi Rút- ur Ólafsson, fæddur í Múla í Gufudals- hreppi í Austur- Barðastrandasýslu 11. ágúst 1890, d. 3. júní 1947, og Jóhanna Kristjánsdóttir, fædd á Árgilsstöðum í Hvolhreppi í Rangárvallasýslu 14. janúar 1882, d. 23. júní 1973. Systkini Kristjáns eru 1. Guðrún Breið- fjörð Finnbogadóttir Beaubien, f. 1915, d. 2003. 2. Sigurður Breið- fjörð Finnbogason, f. 1916, d. 1995. 3. Kristrún Breiðfjörð Finn- bogadóttir, f. 1917, d. 1986. 4. Ólafur Breiðfjörð Finnbogason, f. 1918, d. 2010. 5. Valdimar Breið- fjörð Finnbogason, f. 1920, d. 1942. 6. Steingrímur Breiðfjörð Finnbogason, f. 1921, d. 1921, og Geirþrúður Hjörvar, f. 1923. Kristján kvæntist árið 1949 Krist- rúnu Magnúsdóttur, f. 14. des. 1926 í Reykjavík. Foreldrar Kristrúnar voru Magnús Brynj- ólfsson frá Miðhúsum í Biskups- tungum og Margrét Ólafsdóttir frá Söð- ulsholti í Hnappa- dal. Kristján og Kristrún eignuðust þrjá syni. Þeir eru 1. Magnús Breiðfjörð Kristjánsson, f. 21. janúar 1951. Sam- býliskona hans er Björg Hansdóttir. 2. Jóhann Kristjáns- son, f. 9. nóvember 1954. Sambýliskona hans er Kristín Andersen. 3. Gunnar Kristjánsson, f. 5. febrúar 1959. Sambýliskona hans er Guðrún Þórisdóttir. Kristján hóf störf hjá danska verktakafélaginu Höjgaard og Schultz 1942 við framkvæmdir og undirbúning hitaveitu í Reykjavík. Voru þessi störf í Reykjavík og Mosfellssveit ásamt vinnu við eldri hitaveituæðar milli sveitarfélaganna. Við stofn- un Hitaveitu Reykjavíkur 1946 réðst Kristján til starfa þar og starfaði þar óslitið til ársins 1995 er hann lét af störfum fyrir ald- urs sakir. Útför Kristjáns fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 18. júní 2014, og hefst athöfnin klukkan 13. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Kveðjur, Guðrún (Rúna). Elsku besti afi minn, núna ertu farinn frá okkur og ég verð örugg- lega mjög lengi að átta mig á því. Ég á þér mikið að þakka fyrir margar góðar samverustundir, betri afa er ekki hægt að hugsa sér. Þú gafst þér alltaf tíma í gott spjall, hafðir mikinn áhuga á frétt- um og gangi mála hjá barna- barnabörnunum þínum eins og skákfréttum og fótboltafréttum af Aroni Daníel okkar. Hann Aron Daníel nefndi það einmitt þegar hann fékk þær fréttir að afi sinn væri dáinn að hann ætti eftir að sakna þess að tala við þig um bolt- ann og fleira, því þú hafðir svo mikinn áhuga á gangi mála hjá honum og okkur öllum. En núna ertu kominn á góðan stað og örugglega kominn með sjónina aftur, en mikið sem það var erfitt fyrir þig og ömmu og okkur hin að þurfa að kyngja því. Ég á svo margar góðar minningar um þig og ömmu á húsbílnum ykkar. Mik- ið sem að þið voruð dugleg að ferðast, það voru yndislegar stundir þegar þið amma birtust í sveitinni og alltaf eitthvað gott bakkelsi með til að bjóða og njóta. Ég man einnig mikið eftir öll- um gistinóttunum þegar við Elvar frændi gistum hjá ykkur ömmu, þá var alltaf farið í Frúna í Ham- borg áður en ljósin voru slökkt á kvöldin og það var alltaf líf og fjör hjá henni og mikið hlegið í kring- um hana. Takk fyrir allar pizzu- veislurnar, það var alltaf gleði og hlátur á þeim stundum hjá ykkur ömmu, mikið sem ég á eftir að sakna þess. Þar varst þú, elsku afi, alltaf hlæjandi og talandi á staðn- um þínum við borðstofuborðið og naust þín í botn að fá fréttir og segja fréttir. Ég er óendanlega þakklát fyrir nærveru þína á stóra deginum okkar Kjartans í haust, þá varstu ennþá með sjónina og gast séð og notið þín vel. Þegar hjónaleikurinn var um kvöldið í veislunni stóðuð þið amma stolt og flott síðust eftir, enda búin að vera gift í fjöldamörg ár. Ég kveð þig núna, elsku besti afi minn, ég mun hugsa um ömmu og segja henni fréttir af gangi mála í boltanum hjá Aroni okkar. Guð geymi þig og varðveiti, elsku afi minn. Þín, Sigrún. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Í dag kveðjum við elskulegan afa okkar. Hans verður sárt sakn- að en eftir standa margar góðar minningar sem við gleymum aldr- ei. Díana, Elvar Gauti og Kristján Ingi. Elsku afi hefur kvatt okkur. Við eigum eftir að sakna hans mikið og erum svo þakklátar fyrir allar stundirnar sem við áttum með honum. Allir bíltúrarnir sem við fórum í, allar sögurnar sem hann sagði okkur og allt spjallið sem við áttum í eldhúsinu í Máva- hlíðinni eru núna minningar sem við eigum eftir að halda fast í og gleymum aldrei. Síðustu mánuðir í lífi hans voru honum erfiðir en alltaf tók hann vel á móti okkur og var svo glaður að fá okkur í heimsókn til að stytta sér stundirnar. Elsku afi, nú ertu haldinn á vit nýrra ævintýra og segir okkur sögur af þeim þegar við hittumst næst. Hvíldu í friði. Helena og Birna. Kristján Finnbogason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.