Morgunblaðið - 18.06.2014, Side 21

Morgunblaðið - 18.06.2014, Side 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2014 slík gæði tengjast ekki sönnum gild- um varpa þau einungis ljósi á fátækt- ina og ánauðina í lífi okkar (In the spirit of happiness.) Lindi hafði öll þau sönnu gildi sem skapa ríkidæmi manns og í því ríkidæmi höfum við í Álfta- nesskóla fengið tækifæri til að lifa og starfa með Linda. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Sveinbjörn Markús Njálsson, skólastjóri Álftanesskóla. Þegar ég kveð hann Linda minn eftir meira en þriggja ára- tuga samfylgd er ég þakklát for- sjóninni að hafa fengið að kynn- ast þessum stóra og góða manni. Lindi var alltaf rósemin uppmál- uð og skipti aldrei skapi þótt mik- ið gengi á hjá ærslafengnum kór- krökkum eða stressuðum kórstjóra. Lindi var bílstjóri Skólakórs Kársness, hann fór með kórnum í tónleikaferðir og æfingabúðir um allt land og ók með okkur um borg og bý til að syngja við öll hugsanleg tæki- færi. Hann var nánasti ferða- félagi minn því næst allan minn starfsaldur. Lindi lenti líka í því hlutverki að vera fararstjóri kórsins og oftast sá eini í rútunni sem var kominn af grunnskóla- aldri fyrir utan kórstjórann. Hann var vinur minn og afi kór- félaganna sem öllum þótti vænt um, enda var hann útnefndur „besti barnakórabílstjóri í heimi“. Lindi var bóngóður og fór alltaf „strætóhring“ um Kársnes- ið þar sem hann hleypti pils- klæddum stelpum og úlpulausum strákum út úr rútunni sem næst heimilum þeirra. Þegar 56 börn voru í bílnum gat þessi auka- greiði tekið langan tíma sem þó var aldrei rukkað fyrir. Lindi sá líka um að bera kórpallana, hljómborðið og matarkassana og óbeðinn tók hann alla ruslapoka eftir kórferðalög og fór með í gáma. Oft mátti hann svo skjót- ast til mín daginn eftir með svefnpoka eða skó sem litlir far- þegar höfðu gleymt í rútunni. Aldrei fúll, aldrei reiður. Ekki Lindi. Oft stóðust tímasetningar kórstjórans illa, oft mátti hann bíða og oft voru börnin miklu fleiri en lagt var upp með, en ekk- ert haggaði Linda. Brosti bara kankvís og setti í gír. Einhverju sinni var ég beðin að gera grein fyrir því hvernig ætti að byggja upp gott og far- sælt kórstarf með börnum. Í grallaraskap nefndi ég þrennt sem hefði reynst barnakórastarf- inu í Kársnesskóla heilladrjúgt. Í fyrsta lagi hvatti ég væntanlega kórstjóra að eignast mörg börn sem gætu sungið, í öðru lagi að giftast píanóleikara sem tæki að sér undirleik án endurgjalds og síðast en ekki síst að vanda valið á rútubílstjóranum. Bílstjórinn þyrfti að ganga í öll tilfallandi verk, passa, snýta og hugga. Allra best væri að bílstjórinn héti Lindi og ætti konu sem héti Auð- ur sem vissi fátt skemmtilegra en að fara launalaus með kórnum í ferðalög. Sú varð nefnilega raun- in hjá okkur, Auður varð vinkona okkar og amma. Ógjörningur er að hafa tölu á öllum þeim sam- lokum sem Auður smurði ofan í svanga krakka eða hversu oft hún skúraði og þreif heilu sum- arbúðirnar meðan Lindi raðaði börnum í sætin og staflaði far- angri í lestina. Ég veit að það urðu oft fagnaðarfundir þegar kórbörnin urðu á vegi þeirra hjóna síðar, þá orðin fararstjórar í öðrum löndum, læknar á Land- spítalanum eða fullvaxta þátttak- endur í daglegu amstri. Ég er ólýsanlega þakklát fyrir vináttu og stuðning þeirra hjóna öll þessi ár og fyrir hönd fjöl- skyldu minnar og allra kórbarna úr Skólakór Kársness fyrr og nú kveð ég Linda bílastjórann okkar í virðingu og þökk. Guð blessi fjölskyldu hans og minningarnar góðu. Þórunn Björnsdóttir (Tóta). ✝ Helgi IngiIngimundarson fæddist í Borgar- nesi 6. maí 1936. Hann lést á Sjúkra- húsi Akraness 10. júní 2014. Foreldrar hans voru Ingimundur Einarsson, verka- maður og verk- stjóri í Borgarnesi, f. 21.3. 1898, d. 4.2. 1992, og Margrét Helga Guð- mundsdóttur húsfreyja f. 21.7. 1893, d. 7.2. 1977. Ingi var næst- yngstur sex bræðra, sem eru: Guðmundur, f. 1927, Einar, f. 1929, d. 1997, Steinar, f. 1930, Grétar, f. 1934, d. 1995, og Jó- hann, f. 1938, d. 2009. Ingi kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Jónínu Björg Ingólfsdóttur, f. 26.12. 1938, þann 15.11. 1958. Foreldrar hennar voru þau Ingólfur Nikó- demusson húsasmíðameistari f. 5.7. 1907, d. 31.7. 1991, og Unn- ur Hallgrímsdóttir húsfreyja f. 8.1. 1918, d. 20.10. 1976. Börn Inga og Nínu eru: 1) Unnur, f. 29.9. 1957, gift Grími Lúðvíkssyni. Börn þeirra eru: a) Kristín, sambýlismaður Micael Bratt og eiga þau dótturina Danmerkur og Englands að námi loknu hér heima og sam- hliða starfi hjá Kaupfélagi Borgfirðinga í Borgarnesi. Þar var hann fyrst verslunarstjóri en síðan lengst af aðalgjaldkeri. Frá árinu 1978 og það sem eftir lifði starfsævinnar var Ingi skrifstofustjóri hjá Sýslumann- inum í Mýra- og Borgarfjarð- arsýslu. Ingi tók þátt í félagsmálum og gegndi fjölda trún- aðarstarfa. Hann átti sæti í hreppsnefnd Borgarneshrepps kjörtímabilið 1970-1974 og var formaður skólanefndar í Borg- arnesi 1962-1974. Ingi var um tíma í fulltrúaráði Brunabóta- félags Íslands og sat í stjórn Sementsverksmiðju ríkisins og Prjónastofu Borgarness. Endur- skoðandi Sparisjóðs Mýrasýslu var hann í nokkur ár. Á yngri árum tók Ingi þátt í skáta- og ungmennafélagsstarfi. Meðan heilsan leyfði var hann þátttak- andi í pólitísku starfi jafn- aðarmanna. Um áratuga skeið var Ingi félagi í Lionsklúbbi Borgarness og lét þá til sín taka í Lionshreyfingunni á landsvísu. Um tíma var hann umdæmis- stjóri og fjölumdæmisstjóri Lions á Íslandi. Fyrir störf sín í þágu Lionshreyfingarinnar hlaut Ingi margar viðurkenn- ingar, þar á meðal var hann út- nefndur Melvin Jones-félagi. Útför Inga fer fram frá Borgarneskirkju í dag, 18. júní 2014, og hefst athöfnin kl. 14. Perlu, b) Jón Ingi. Stjúpdóttir Unnar, dóttir Gríms, er c) Guðbjörg Esther, sambýlismaður Tómas Arason, börn: Helga Lilja, Karen Margrét og Viktoria 2) Brynja, f. 5.10. 1962, gift Magnúsi Sigurðs- syni. Börn þeirra eru: a) Hrafnhild- ur, sambýlismaður Jóhann Ólafur Sigurðsson, og eiga þau soninn Ingimar Bjart, b) Sig- urður Ingi, c) Unnar. 3) Ingi- mar, f. 23.8. 1964, giftur Guð- rúnu Margréti Hannesdóttur. Börn þeirra eru: a) Nína Mar- grét, b) Helena Ásta. Stjúpdótt- ir Ingimars, dóttir Guðrúnar, er c) Stefanía Hanna Pálsdóttir. 4) Anna, f. 10.7. 1973, sambýlis- maður Sigurþór Leifsson. Börn þeirra eru: a) Margrét, b) Brynja. Stjúpsynir Önnu, synir Sigurþórs, eru: c) Hlynur Þór, d) Ragnar Smári. Að loknu miðskólanámi í Borgarnesi stundaði Ingi nám í tvo vetur við Samvinnuskólann í Reykjavík og útskrifaðist það- an vorið 1955. Starfstengda við- bótarmenntun sótti Ingi til Hann fæddist á „Holtinu“ í Borgarnesi vorið 1936, fimmti í röð sex sona Margrétar Helgu Guðmundsdóttur og Ingimundar Einarssonar. Helgi Ingi í höfuð foreldranna. Tók út vöxtinn við óblíð kjör kreppu og umróts her- setu. Sjálfsþurftin, seiglan og baráttan skilaði alþýðufólki smá- bæjarins til lands. Kalt stríð, skömmtunarpólitík og höft réðu ríkjum á árum mótunar og þroska. Tími uppbyggingar og athafna fylgdi árum Viðreisnar. Ingi var í eðli sínu glaðvær og ljúfur, uppörvandi, gerði gott úr, ef í odda skarst. Sáttin og sam- vinnan. Hlýjan, spjall og græsku- laust gaman var hans leið. Prúð- ur, skeytti ekki skapi – lét sér ekki ljótt um munn fara. Átök og illsakir voru lund hans svo fjarri, því mikilsvirtur af samferðafólki. Ábyrgðarkennd var Inga í blóð borin. Vandvirkni, vinnu- semi og metnaður til góðra verka skópu honum traust og tækifæri. Vettvangur átaka, auðs og valda féllu ekki að gildum friðsams manns. Hann fann sig ekki lengi í eldi stjórnmála, þótt oft og fast væri að honum lagt. Í oddastöðu innan hreppsnefndar eitt kjör- tímabil vildi hann hvoruga gömlu valdablokkina styðja. Lagði þess í stað til samvinnu allra og sátt. Þannig var hann. Kröftunum beindi hann til mannúðarmála og Lionshreyf- ingar og fjölskyldan átti hug hans allan. Lífsins gæði sá hann í samheldni, hamingju og ást, það var í huga Inga öllum öðrum verðmætum æðra. Þau gæði voru að finna hjá Nínu og börn- unum. Metnaðurinn varð fjöl- skyldan. Lífið, ráðdeild og hóf- semi – uppskeran ríkuleg. Allt eins og í fallegu ævintýri, snoturt og traust. Búið vel, en ekki stórt eða dýrt á veraldarvísu – öryggið skyldi öðru framar. Varfærinn – skynsemin hans förunautur, lífsgangan fetuð smáum, hugsuðum skrefum. Umbætur frekar en byltingu. Jafnaðarmaður af lífi og sál, maður sátta og samvinnumaður í allri hugsun. Trúr hugsjónum sínum og verkum, einlægur vilji til að láta gott af sér leiða. Ráðin jarðbundin og holl – ungæðisleg- um oft torskilin og erfið fram- kvæmdar. Ingi var mörgum dyggðum prýddur og viljinn allur á þann veg að vera sannur og gera vel. Gæfumaður eins og til var stofn- að. En um ævikvöld sitt fékk hann litlu ráðið. Heill á sinni og skýr varð hann síðustu ár sín að lúta fjötrum erfiðrar líkamsfötl- unar. Þótt lífsgæðin væru honum naumt skorin undir lokin hvarf honum aldrei ljúfmennskan, stutt í brosið og handtakið jafn þétt og hlýtt og áður. Ég mun sakna þess, og þín! Með þessum orðum vil ég þakka langa og trausta samferð. Mikilsverður varst þú mér og mínum, frændi. Nínu, börnunum og fjölskyldum þeirra sem og öðrum aðstandendum vil ég votta mína dýpstu samúð. Tilgangur jarðvistar er að vinna þörf og eft- irbreytniverð verk. Meðal annars þess vegna mun minningin um Inga Ingimundarson lifa. Ingimundur Einar Grétarsson. Nú er fallinn frá kær vinur, Ingi Ingimundarson. Við Vigdís kynntumst þeim hjónum Nínu og Inga við Lionsstörf. Við fyrstu kynni kom það eins og af sjálfu sér að þarna voru bundin bönd ævilangrar vináttu. Þau voru ætíð með opinn faðminn en kröfðust aldrei neins til baka, slíkir samferðamenn verða sam- ferðamenn alla leið. Ingi gegndi æðstu metorðum í Lionshreyf- ingunni og leiddi hreyfinguna á þann hátt að hann var okkur hin- um fyrirmynd. Ég minnist þess ekki að nokkru sinni hafi hann markað stefnu eða tekið ákvarð- anir sem ollu ágreiningi eða deil- um. Allt sem hann sagði var vel hugsað og sett fram með þeim hætti að aðrir gátu gert skoðanir hans að sínum. Eins og ávallt í veigamiklu sjálfboðastarfi er samvinnan sterk og þá er stutt í gleðistund- irnar. Sem fulltrúar íslenskra Lionsmanna sóttum við fundi, þing og aðrar uppákomur víðs- vegar um land og líka á erlendri grundu. Á slíkum ferðalögum voru eiginkonur okkar ávallt með og vinskapur eiginkvennanna var ekki síður mikilvægur en sam- vinna okkar Inga. Hér heima sóttum við Lionsþing í öllum landsfjórðungum og mörg í sum- um þeirra. Á milli þessara þinga var starfið oft nánara, þá var unnið í smærri hópum og ákvarð- anir voru teknar um dagleg stjórnunarstörf. Á erlendum vettvangi var allt framandlegra, þar var komið saman fólk frá mörgum löndum sem hvert og eitt var fulltrúi sinnar þjóðar. Þar báru menn sig saman um hvernig helst væri hægt að verða þeim að liði sem bjuggu við sára fátækt eða áttu við aðrar hörmungar að glíma. Þegar þarna var komið, var Ingi á heimavelli, hann skildi og skynjaði erfiðleika sem fólk í fjarlægum löndum átti við að eiga. Hann gat alltaf gefið af sér og fært mál til betri vegar. Að hafa kynnst fólki eins Nínu og Inga gerir mann að betri per- sónu. Samskipti okkar hafa verið mjög góð í gegnum árin en eins og vill verða, þá fækkar heim- sóknum þó ekki sé langt á milli. Öll erum við upptekin af börnum og barnabörnum og aldrei meira en eftir að við hættum að vinna. Þó höfum við alltaf haldið góðu sambandi, við sjáumst að vísu sjaldnar en vináttan er alltaf til staðar eins og áður. Við Vigdís söknum Inga en færum þér Nína mín og allri fjölskyldunni okkar dýpstu samúð. Halldór S. Svavarsson. Mig langar að minnast gamals vinar og starfsfélaga á sýslu- skrifstofunni í Borgarnesi. Ingi gegndi starfi aðalbókara við embættið allan minn starfstíma þar. Áður hafði hann gegnt ábyrgðarmiklu starfi hjá Kaup- félagi Borgfirðinga í Borgarnesi. Ingi var mikill Borgnesingur enda hafði hann alið þar allan sinn aldur. Ingi var afskaplega vandaður starfsmaður sem leysti störf sín af hendi af samviskusemi og heiðarleika. Hann mátti þar hvergi vamm sitt vita. Vel kom sér í starfi bókara að hafa svo fagra rithönd sem Ingi hafði og eru fundargerðabækur sýslu- nefnda Mýra- og Borgarfjarðar- sýslna gott vitni um það, en Ingi var ritari sýslunefndanna allan sinn starfsferil hjá embættinu og allt þar til sýslunefndir voru lagðar niður með lögum á árinu 1988. Utan vinnu var Ingi mikill fjöl- skyldumaður og setti hag og heill fjölskyldunnar ævinlega í fyrsta sæti. Hann var afar stoltur af eiginkonu og börnum og fjöl- skyldunni allri, enda mátti hann vera það, þar sem þau eru öll af- bragðsgott fólk. Ingi var mikill félagsmálamaður og tók virkan þátt í starfi ýmissa félaga, m.a. gegndi hann æðstu trúnaðar- störfum fyrir Lionshreyfinguna. Hjónin Ingi og Nína voru oft nefnd í sama orðinu, enda voru þau afar samrýnd og gengu göt- una saman í starfi og leik, en Jónína vann með okkur á sýslu- skrifstofunni. Þau ferðuðust mikið saman bæði innanlands og utan, ýmist tvö ein eða með fjöl- skyldu og vinum og einnig oft í hópferðum, ekki síst til útlanda. Við hjónin urðum stundum þeirrar ánægju aðnjótandi að ferðast með þeim og voru það einstakar ánægjustundir, sem við geymum í sjóði minninganna. Með okkur Auði og þeim hjón- um myndaðist vinskapur og auðgaði það líf okkar hjóna í Borgarnesi, en þangað fluttum við með börnin okkar, sem öll voru á grunnskólaaldri og höfðu þurft að sæta því að skipta um skóla vegna búferlaflutninga okkar foreldranna úr einum landshluta í annan til að taka við störfum á nýjum stað. Þau hjón- in voru sannarlega betri en eng- in þegar koma þurfti sér fyrir og kynnast nýjum stað. Gestrisni þeirra og væntumþykja átti sér lítil takmörk. Ingi hefur átt við veikindi að stríða um nokkurra ára skeið. Þau ágerðust eftir því sem tíminn leið og síðustu árin hefur hann dvalið í Brákarhlíð, dvalarheimili aldraðra í Borgar- nesi. Þótt honum væri orðið stirt um mál fylgdist hann með öllu sem fram fór, bæði fréttum og í nærumhverfinu, og gladdist þeg- ar hann fékk fjölskyldu og vini í heimsókn, en Nína vitjaði hans nánast daglega. Þannig hélt hann ávallt í meðfædda gleði sína og glaðværð og gat hlegið og kímt af litlu tilefni. Nú skilur leiðir um stund. Við hjón og börnin okkar söknum vinar í stað. Við sendum Nínu, börnunum og fjölskyldum þeirra hugheilar samúðarkveðjur og vitum að þau geta yljað sér við góðar minningar um látinn ást- vin. Guð blessi minningu okkar kæra vinar Inga Ingimundar- sonar. Rúnar Guðjónsson. Látinn er í Borgarnesi góð- vinur minn og Lionsfélagi Ingi Ingimundarson. Ingi hafði um langt skeið dvalið á heimili fyrir aldraða í Borgarnesi og átt við erfið veikindi að stríða um ára- bil. Hugur minn leitar langt aftur í tímann, þegar samskipti okkar voru samofin störfum okkar fyr- ir Lionshreyfinguna, þegar við vorum kosnir umdæmisstjórar fyrir starfsárið 1986-1987. Ég í umdæmi 109 A og hann umdæmi l09 B. Á þessum árum var starf Lions hér á landi afar öflugt og þróttmikið. Klúbbarnir víðsveg- ar um landið voru margir og fjöl- mennir og unnið var af krafti að hjálpar- og líknarstörfum í anda Lionshreyfingarinnar. Vorið 1986 fórum við ásamt eiginkonum okkar til að sitja Al- þjóðaþing Lionshreyfingarinnar sem haldið var í borginni New Orleans í Bandaríkjunum. ásamt því að sækja skóla þar sem við fengum fræðslu ásamt hundruð- um verðandi umdæmisstjórum víðsvegar að úr heiminum um væntanlegt starf okkar. Þetta var lærdómsrík ferð og skemmtileg og við Katrín, eig- inkona mín, kynntumst vel Inga og konu han Nínu og nutum fé- lagsskapar þeirra indælu hjóna. Að loknu þingi fórum við í ferða- lag með dönsku umdæmisstjór- unum, sem var bæði vel heppnað og skemmtilegt. Farið var til New Orleans, Las Vegas, Los Angeles, þar sem kvikmynda- verin voru skoðuð, og að lokum til Chicago. Ingi Ingimundarson reyndist dugmikill og farsæll umdæmis- stjóri. Umdæmi hans skilaði Lionshreyfingunni 6 Lionessu- klúbbum á starfsárinu. Samstarf okkar var ánægjulegt og gott. Á þessum árum voru Samfundir haldnir fyrsta mánudag hvers mánaðar. Þetta voru skemmti- legir fundir með samansafni Lionsfélaga úr Reykjavík og ná- grenni og oft félaga af lands- byggðinni. Stjórnaði fjölumdæm- isstjóri fundunum og oft voru fjörlegar umræður. Við umdæm- isstjórarnir fluttum munnlega skýrslu þar sem við gerðum grein fyrir heimsóknum okkar í klúbbana og starfi þeirra. Fund- irnir voru afar fjölsóttir og salur Lionsheimilisins fullsetinn svo að oft þurfti að bæta við sætum. Ingi Ingimundarson var ein- lægur Lionsmaður, hreinskipt- inn, fullur starfsorku og skilaði starfi sínu fyrir Lionshreyf- inguna með miklum sóma. Ingi gegndi starfi fjölumdæmisstjóra starfsárið 1987-l988 og var far- sæll í starfi eins og vænta mátti. Mikill öðlingur og góður drengur er genginn. Ég þakka allar góðar stundir á liðinni tíð og sendi Nínu og fjölskyldunni mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Þórhallur Arason. Ingi Ingimundarson, félagi okkar og vinur er fallinn frá, 78 ára að aldri, en hann lést 10. júní sl. Ingi gekk til liðs við Lions- klúbb Borgarness árið 1966 og hefur hann verið félagi alla tíð síðan. Hann hafði því starfað í klúbbnum í 48 ár er hann lést. Hann var alla tíð mjög virkur og góður félagi og ávallt tilbúinn að taka að sér smá sem stór verk- efni fyrir Lionshreyfinguna. Hann sat nokkrum sinnum í stjórn klúbbsins sem siðameist- ari, ritari og var formaður starfs- árið 1971-1972. Það var varla haldinn nokkur viðburður á veg- um klúbbsins okkar að Ingi kæmi þar ekki við sögu. Ingi var gerður að heiðursfélaga Lions- klúbbs Borgarness fyrir nokkr- um árum. Síðan tók hann að sér starf umdæmisstjóra í okkar umdæmi og það sama ár var stofnaður hér í Borgarnesi Lionessuklúbburinn Agla, sem síðar varð Lionsklúbb- urinn Agla. Ingi lét ekki þar við sitja heldur bauð Lionshreyfing- unni áfram krafta sína og var kjörinn fjölumdæmisstjóri sem er æðsta embætti Lionshreyfing- arinnar á landinu. Því starfi og öðrum sinnti hann af alúð og lagði sig fram um að sinna þeim vel. Ingi var sá fyrsti í okkar klúbbi sem fékk þá viðurkenn- ingu af sínum klúbbfélögum að vera gerður að Melvin Jones-fé- laga. Síðar fékk hann sömu við- urkenningu frá umdæminu. Hann hafði átt við langvarandi veikindi að stríða og naut hann umönnunar nú síðustu ár í dval- ar- og hjúkrunarheimilinu Brák- arhlíð auk þess sem Jónína Ing- ólfsdóttir, eiginkona hans, heimsótti hann þar daglega og fór með hann út í hjólastólnum þegar veður var þannig að það var hægt. Við Lionsfélagarnir kveðjum nú einn okkar besta félaga og vin, sem við þökkum vel unnin störf í þágu Lions og samfélags- ins okkar. Fyrir hönd félaganna í Lionsklúbbi Borgarness sendi ég Nínu eiginkonu hans, börnum og fjölskyldunni allri innilegar sam- úðarkveðjur. Skúli Guðmundur Ingvarsson, formaður Lionsklúbbs Borgarness. Ingi Ingimundarson Lokað Lokað í dag, 18. júní, frá kl. 12.00 vegna jarðarfarar ERLENDS BJÖRNSSONAR. Iðnmark ehf., Gjótuhrauni 5.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.