Morgunblaðið - 18.06.2014, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2014
Um leið og ég finn lykt af nýslegnu grasi fer mig að langa ágolfvöllinn. Ég á von á dætrum mínum þremur og mínufólki hingað heim í kaffi í tilefni dagsins en vonandi kemst
ég á æfingasvæðið á Hvaleyrarholtinu síðdegis,“ segir Guðmundur
Blöndal gullsmiður sem er sextugur í dag.
Guðmundur er Reykjavíkurbarn. Á menntaskólaárunum hóf hann
störf í Herradeild P&Ó. Hann keypti verslunina 1987, gerðist kaup-
maður og vann þar til verslunin lagðist af árið 1991. „Þetta var
skemmtilegur tími. Í búðinni kynntist maður fjölda fólks sem maður
er að rekast á enn í dag,“ segir Guðmundur sem réð sig til starfa hjá
flugfélaginu Atlanta þegar verslunarrekstrinum sleppti. Fór um
veröld víða og var staddur í Epyptalandi árið 1993 þegar hann varð
fyrir líkamsárás. Hann lamaðist á báðum fótum, fór í gegnum að-
gerðir og langa spítalalegu. Með mikilli elju hefur honum tekist að
berjast í gegnum lífið og unnið mikla sigra.
„Golfið gerði mér gott. Ég á kennurunum mínum, þeim Arnari Má
Ólafssyni og Magnúsi Birgissyni, mikið að þakka,“ segir Guð-
mundur sem hóf gullsmíðanám 2005 og hefur nú lokið meistaraprófi
í sínum fagi. Hann segist þannig í raun hafa skapað sér nýja framtíð
og möguleika, enda sé lífið stútfullt af tækifærum.
sbs@mbl.is
Guðmundur Blöndal er 60 ára í dag
Morgunblaðið/Golli
List Hefur skapað nýja framtíð og möguleika, enda er lífið stútfullt
af tækifærum, segir Guðmundur Blöndal sem á merkisafmæli í dag.
Meistaragullið og
Herradeild P&Ó
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Ása Lind Aradóttir, 9
ára, og Alexandra
Kolbrún Gísladóttir,
10 ára, voru með tom-
bólu á Svalbarðseyri.
Þær söfnuðu 5.350
kr. og færðu Rauða
krossinum ágóðann.
Hlutavelta
Ólafsvík Daníel Berg fæddist 29.
september kl. 9.26. Hann vó 3.335 g
og var 50,5 cm langur. Foreldrar hans
eru Berglind Long og Gunnar Berg-
mann Traustason.
Nýir borgarar
Reykjavík Emil Nói fæddist 9. sept-
ember. Hann vó 1.415 g og var 41 cm
langur. Foreldrar hans eru Anna Sig-
ríður Pétursdóttir og Hjalti Þór Hall-
dórsson.
T
inna Þórdís Gunnlaugs-
dóttir er fædd í
Reykjavík 18.6. 1954,
yngst fjögurra systkina.
Þau voru fædd á sex
árum svo það var oft líflegt á
bernskuheimilinu. Systurnar Snæ-
dís og Tinna voru nánar í uppvext-
inum og léku sér mikið saman allt
þar til Snædís byrjaði í gagnfræða-
skóla, þá skildu leiðir að nokkru.
„Við áttum forláta safn af dúkku-
lísum sem við höfðum teiknað og
litað sjálfar, allt miklir karakterar
með sterk persónueinkenni. Þetta
var fjársjóður sem við skemmtum
okkur mikið yfir og deildum með
fleiri vinkonum. En einn daginn til-
kynnti Snædís mér að nú væri
þessum leik lokið. Hún væri að
byrja í gagnfræðaskóla og gæti
ekki lengur leikið sér við smábörn
og hún lét ekki sitja við orðin tóm,
heldur afhenti mér formlega allt
dúkkulísusafnið.“
Lagði upp í ævintýraför
Tinna ólst upp í Vesturbænum
og gekk í Melaskóla og Hagaskóla
og fór síðan í MR. Hún var stúdent
aðeins 18 ára og ákvað að taka
þetta aukaár sem hún átti inni í að
skoða heiminn áður en nokkrar
ákvarðanir yrðu teknar um frekara
nám eða framtíðarplön.
Hún vann sér inn farareyri í
fiskverkun og sem kokkur á báti og
lagði svo upp í mikla ævintýraför
ein síns liðs með bakpoka á bakinu
og tók stefnuna á Suður-Evrópu.
„Þetta var frábær tími, ég þvældist
aðallega um grísku eyjarnar,
stundum ein en oftast með
skemmtilegum ferðafélögum sem
ég hitti á leiðinni. Á tímabili var ég
komin hálfa leiðina til Indlands í
hipparútu en ákvað þegar ég var
komin til Afganistans að þetta væri
orðið gott og sneri heim á leið.“
Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri – 60 ára
Fjölskyldan Efri röð f.v.: Esther Talía Casey, Ólafur Egill, Gunnlaugur, Gunnur Von Matern. Neðri röð f. v. Ragn-
heiður Eyja, Tinna Vigdís, Egill með Egil yngri, Tinna og Ellen.
Leiklistartaug í ættinni
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Þrjár kynslóðir leikkvenna af sömu ætt Tinna Hrafnsdóttir, Tinna Gunn-
laugsdóttir og Herdís Þorvaldsdóttir.
Garðsláttur.
Hafðu samband, þetta gæti verið ódýrara en að kaupa sér nýja sláttuvél.
FÁÐU GARÐSLÁTTINN Í ÁSKRIFT Í SUMAR.
Til fjölda ára hefur Garðlist þjónustað viðskiptavini sína með
garðslátt í formi áskriftar. Við bjóðum upp á fjölmargar
lausnir sem miða af viðhaldsþörf hverrar lóðar.
TRAUST ÞJÓNUSTA Í YFIR 20 ÁR
Frá því Garðlist ehf. var stofnað fyrir 24 árum síðan, höfum við haft það
að leiðarljósi að veita framúrskarandi þjónustu fyrir garðinn á einum stað.
Við þökkum þeim þúsundum einstaklinga, húsfélaga og fyrirtækja sem
við höfum átt í viðkiptum við unandarin ár, á saman tíma og við bjóðum
nýja viðskiptavini hjartanlega velkomna. Tunguhálsi 7 110 Reykjavík 554 1989 www.gardlist.is