Morgunblaðið - 18.06.2014, Page 27

Morgunblaðið - 18.06.2014, Page 27
Tinna hóf nám í líffræði í háskól- anum en ætlaði síðan að stefna á nám í læknisfræði. Áhuginn á leik- list hafði þó lengi blundað í henni, enda alin upp við ást á leikhúsi. Þegar félagar hennar úr Herranótt sögðu henni frá SÁL-skólanum, sem var einkarekinn leiklistarskóli, var hún á báðum áttum. „Það var eiginlega Gunnar Rafn heitinn, vin- ur minn úr menntaskóla, sem tók þessa ákvörðun fyrir mig. Hann sagði einfaldlega: „Þú kemur með,“ og ég hlýddi. Skólinn var kvöldskóli fyrsta árið og ég hélt áfram í há- skólanum á daginn, en svo gekk þetta ekki saman lengur þegar ég var komin á annað ár og leiklistar- skólinn orðinn dagskóli. Tíminn í SÁL var frábær og þarna fann ég ekki bara sjálfa mig, heldur líka ástina í lífi mínu,“ en það var á jólagleði í SÁL-skólanum árið 1974 sem neistinn kviknaði á milli Egils og Tinnu. Tinna varð strax eftirsótt leik- kona í leikhúsunum og árið 1981 bauðst henni fastráðning við Þjóð- leikhúsið. Hún tók að auki virkan þátt í íslenska kvikmyndavorinu bæði sem leikkona og aðstoðarleik- stjóri og oftar en ekki unnu þau Egill saman á þeim vettvangi. Í leikhúsinu lágu leiðir þeirra líka saman, svo sem í söngleikjunum Gæjum og píum og fyrri sviðsetn- ingu á Vesalingunum. Egill og Tinna fluttu á Grettisgötuna með drengina sína og árið 1988 fæddist þeim dóttirin Ellen Erla. Það er rík leiklistartaug í börnum og barnabörnum Herdísar Þorvalds- dóttur. Ólafur sonur Tinnu er leik- ari og handritshöfundur, Gunn- laugur er ballettdansari, bróðir hennar Hrafn er kvikmyndaleik- stjóri og dóttir hans, Tinna, er leik- kona. Tinna var skipuð í embætti þjóð- leikhússtjóra árið 2005 og kveður það starf um næstu áramót eftir tíu ára farsælt starf. Fjölskylda Eiginmaður Tinnu er Egill Ólafs- son, f. 9.2. 1953, tónlistarmaður. Foreldrar hans: Ólafur Ásmunds- son Egilsson, f. 20.6. 1924, d. 14.3. 2012, sjómaður og múrari í Reykja- vík, og Margrét Erla Guðmunds- dóttir, f. 7.7. 1932, fyrrv. kaupkona. Börn: Ólafur Egill Egilsson, f. 18.10. 1977, leikari og leikskáld í Reykjavík, Gunnlaugur Egilsson, f. 26.03. 1979, listdansari við Konung- legu óperuna í Stokkhólmi; Ellen Erla Egilsdóttir, f. 18.10. 1988, snyrtifræðingur í Reykjavík. Barnabörn: Ragnheiður Eyja Ólafsdóttir, f. 24.10. 2008, Egill Ólafsson, f. 3.1. 2012, og Tinna Vig- dís Gunnlaugsdóttir, f. 11.11. 2010. Systkini: Hrafn Gunnlaugsson, f. 17.6. 1948, kvikmyndaleikstjóri í Reykjavík; Þorvaldur Gunnlaugs- son, f. 16.7. 1950, stærðfræðingur í Reykjavík; Snædís Gunnlaugs- dóttir, f. 14.5. 1952, lögmaður á Húsavík. Hálfsystir samfeðra: Júlía María Alexandersdóttir, f. 21.4. 1977, blaðamaður á Morgunblaðinu. Foreldrar: Dr. Gunnlaugur Þórðarson hæstaréttarlögmaður, f. 14.4. 1919, d. 20.5. 1998, og Herdís Þorvaldsdóttir leikkona f. 15.10. 1923, d. 1.4 2013. Úr frændgarði Tinnu Gunnlaugsdóttur Tinna Gunnlaugsdóttir Sara Hermann Kaaber húsfrú í Kaupmannahöfn J. Ludvig J. Kaaber brugghúseigandi í Kaupmannahöfn Ellen Johanne Sveinsson Kaaber húsfrú á Kleppi við Reykjavík Þórður Sveinsson yfirlæknir á Kleppsspítala og prófessor við HÍ Dr. Gunnlaugur Þórðarson hæstaréttarlögmaður í Reykjavík Hörður Þórðarson sparisjóðsstjóri Úlfar Þórðarson augnlæknir Nína Þórðardóttir tannsmiður Agnar Þórðarson rithöfundur Sverrir Þórðarson blaðamaður Sveinn Þórðarson skólameistari og prófessor í eðlisfræði í Kanada Steinunn Þórðardóttir húsfrú á Geithömrum Sveinn Pétursson bóndi á Geithömrum í Auðkúlusókn, A-Hún. Halldóra Sigurðardóttir frá Fljótdalshéraði, húsfrú í Reykjavík Jón Jónsson frá Þverá í Laxárdal, verslunarmaður í Reykjavík María Víðis Jónsdóttir kaupkona í Hafnarfirði Þorvaldur Bjarnason kaupmaður í Þorvaldarbúð í Hafnarfirði Herdís Þorvaldsdóttir leikari í Reykjavík Herdís Nikulásdóttir frá Nýlendu í Leirhöfn, húsfrú á Klöpp í Höfnum Bjarni Tómasson frá Teigi í Fljótshlíð, útvegsbóndi á Klöpp í Höfnum á Rosmhvalanesi ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2014 Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur, varði doktors- ritgerð sína Umhyggja, nám og tóm- stundir: Hlutverk og staða frístunda- heimila fyrir sex til níu ára börn í Reykjavík, í desember 2012. Frístundaheimili fyrir ung börn á skólaaldri er sú tegund dagvistunar sem vex hvað hraðast í Evrópu nú um stundir. Þessi rannsókn kannar hlut- verk og stöðu frístundaheimila í Reykjavík frá sjónarhóli ólíkra hags- munaaðila. Gögnin voru greind út frá tvenns konar fræðilegum sjónar- hornum, þ.e. kenningum um stofnanir og eðli starfssamfélags (e. community of practice) og kenningum um barn- æskuna. Eigindlegri tilviksathugun var beitt til að rannsaka frístundaheimilin. Valin voru tvö ólík frístundaheimili í Reykjavík til nánari rannsóknar. Aðalrannsóknarspurningar voru þrjár: (a) Hver er tilgangur frístunda- heimilanna í Reykjavík og hvernig birt- ist hann í opinberri stefnumótun? (b) Hvernig upplifir starfsfólk frístunda- heimilanna hlutverk sitt? (c) Hvert er álit barnanna á daglegu starfi á frí- stundaheimilinu og hvernig upplifa þau muninn á skóla og frístundaheimili? Rannsóknin leiddi í ljós að í áranna rás hafa áherslur þróast frá um- hyggju yfir til náms og frístunda. Helstu niðurstöður voru þrískiptar: (a) Staða frístundaheimila innan kerfisins var veik, meðal annars þar sem engin sérstök lög gilda um starfsemina. (b) Fagvitund frístundaleiðbeinenda var al- mennt óljós. Meirihluti starfsmanna hafði ekki sérhæfða menntun og réði sig til skamms tíma. Hinsvegar báru verkefnastjórar frístundaheimilanna meginábyrgð á starfinu. (c) Frístunda- heimilin sköpuðu börnum tækifæri til leiks og félagslegrar þátttöku í fjöl- breyttu starfi eftir að skóla lauk. Börnin mótuðu sitt eigið starfssamfélag, þar sem þau skipulögðu félagatengsl, mynduðu eigin reynsluheim og tóku þátt í sköpun þekkingar, bæði í skól- anum og á frístundaheimilinu.  Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir er fædd 22. maí 1971 í Leuven í Belgíu. Foreldrar hennar eru Auður Birgisdóttir og Páll Skúlason, prófessor í heimspeki. Hún lauk BA-prófi í heimspeki haustið 1996 frá HÍ og meistaraprófi í uppeldis- og mennt- unarfræði vorið 2001 frá sama skóla. Kolbrún er lektor í tómstunda- og félags- málafræði við Menntavísindasvið HÍ. Kolbrún er gift Róberti H. Haraldssyni, pró- fessor við Háskóla Íslands, og börn þeirra eru Ragnhildur, Kolbrún Brynja og Páll Kári. Að auki á Kolbrún tvær dætur, Sunnu Ösp og Sóleyju Auði. Doktor Doktor í uppeldis- og menntunarfræði 103 ára Guðrún Jónsdóttir 95 ára Sigurborg Ágústa Þorleifs- dóttir 90 ára Bára Sæmundsdóttir Guðrún Sigurjónsdóttir Þórður Þ. Kristjánsson 85 ára Guðrún Jónsdóttir Kristín Haraldsdóttir Kristín Vilhjálmsdóttir Vilborg S. Guðmundsdóttir 80 ára Guðlaug Jónasdóttir Jón Pálsson Svanur Sveinsson Þórir Björnsson 75 ára Baldur Bragason Egill Árnason Jóhanna Guðjónsdóttir Stella Gísladóttir 70 ára Auður Ágústsdóttir Elías Skaftason Erla Björnsdóttir Guðrún Hannesdóttir Guðrún Ólafsdóttir Hafþór Jónasson Hergeir J.S. á Mýrini Ólafur S. Ögmundsson Pálmi Karlsson Sigurfinnur Sigurfinnsson Skúli Pálsson Stefán Egill Baldursson Svanlaug Vilhjálmsdóttir 60 ára Auður B. Stefnisdóttir Dennis George Wrenn Erna Norðdahl Flovent Elías Johansen Helga Jónsdóttir Sigfríður Magnúsdóttir Urður Björk Eggertsdóttir Viðar Eggertsson 50 ára Anna Björg Sveinsdóttir Anna S. Barkardóttir Auður Elfa Hauksdóttir Fjóla Þ. Hreinsdóttir Gunnar Garðarsson Hafsteinn Óðinn Þórisson Hafþór Ari Kolbeinsson Hreinn Stefánsson Inga Dóra Steinþórsdóttir Ingibjörg H. Þorsteinsdóttir Ingimar Þór Friðriksson Jónas Andrésson Jón Orri Magnússon Kristín Þóra Birgisdóttir Sigurbjörg Bjarnadóttir Sigurður Þórðarson Steingrímur Gunnarsson Þorsteinn H. Þorsteinsson 40 ára Aleksandrs Kulapins Almar Þór Þorgeirsson Auðun Helgason Birna Björnsdóttir Birna Dís Ólafsdóttir Einar Geir Jónsson Eiríkur Þór Björnsson Fanney E. Friðjónsd. And- erson Halldóra Alexandersdóttir Hrafnhildur Guðmundsd. Íris Björg Jónsdóttir Kristjana D. Haraldsdóttir Lára Sveinsdóttir Ragnheiður D. Ragnarsd. Valdimar R. Tryggvason Viðar Másson 30 ára Bjarki Þ. Sigurbjartsson Brynhildur S. Brynjólfsd. Eyrún Ösp Hauksdóttir Halldóra O. J. Sölvadóttir Inuk Már Rannveigarson Óskar Styrmir Hauksson Tómas Beck Eggertsson Vigdís Sveinsdóttir 40 ára Hrafnhildur er Garðbæingur, kennari og rithöfundur og rekur Jafn- vægi heilsurækt. Maki: Arnar Þór Jónsson, f. 1971, lögfræðingur. Börn: Kári Þór, f. 1997, Óttar Egill, f. 2001, Ásdís, f. 2004, Theodór Snorri, f. 2007, og Sigrún Linda, f. 2012. Foreldrar: Sigurður Þórð- arson, f. 1939, og Sigrún Andrésdóttir, f. 1939, bús. í Garðabæ. Hrafnhildur Sigurðardóttir 30 ára Erna er Garðbæ- ingur og er lögmaður hjá LOGOS. Maki: Guðmundur Freyr Ómarsson, f. 1983, við- stkiptafræðingur og við- skiptastjóri hjá Microsoft á Íslandi. Börn: Pétur Ómar, f. 2009, og Eydís Jóna, f. 2012. Foreldrar: Jón Mar Þór- arinsson, f. 1950, og Jóna Guðrún Oddsdóttir, f. 1951. Erna Heiðrún Jónsdóttir 40 ára Kristjana er frá Hlégarði í Hjaltastaða- þinghá, N-Múl. Hún er sölufulltrúi hjá Mjólkur- samsölunni. Maki: Jóhann Þór Sveins- son, f. 1972, kerfisfræð- ingur hjá Advania. Börn: Adam Birkir, f. 2000, Sveinn Andri, f. 2004, og Kristján Þór, f. 2011. Foreldrar: Einar Kr. Ein- arsson, f. 1940, og Daldís Ingvarsdóttir, f. 1944. Kristjana Einarsdóttir Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Sérfræðingar í líkamstjónarétti Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is www.skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms- lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar- lögmaður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.