Morgunblaðið - 18.06.2014, Side 28

Morgunblaðið - 18.06.2014, Side 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2014 AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR VW • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. • Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Lífið er eins og dans á rósum hjá þér og þér finnst þú svífa um í draumi. Vinalegt viðmót og hófstilltur talsmáti falla viðkom- andi manneskju einmitt í geð. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú lætur gamminn geisa, ferð í stutt ferðalög, verslar, kaupir og selur og lætur móðan mása við nágranna og systkini. Not- aðu tæknina til að afla þér upplýsinga og svala forvitninni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Vinátta þarfnast kannski meiri fyr- irhafnar en þú ert til í að leggja á þig. Var- astu að senda öðrum misvísandi skilaboð. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú kýst að lifa í sátt og samlyndi við aðra vegna vinsælda sem af því hljótast. Eitthvað mun þó koma þér á óvart. Gefðu þér tíma til að bæta úr áður en lengra er haldið. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hefur lagt hart að þér og ert þreytt/ ur og vilt helst að aðrir taki við ábyrgðinni. Bjóddu þeim sem þú hefur augastað á út. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Segðu það sem þú meinar því mein- ingin skín hvort eð er í gegn. En vertu viðbú- in/n því sem skoðunin leiðir í ljós. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er næstum ómögulegt að hafa yf- irsýn yfir alla atburði dagins ef þú hugsar of mikið. Farðu því að öllu með gát. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ertu að leita að felustað? Það er merki um að þú þurfir að horfast í augu við eitthvað. Haltu ótrauð/ur áfram á sömu braut. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þegar allt kemur til alls er það vináttan sem skiptir mestu máli. Hristu af þér slenið og vertu iðin/n og jákvæð/ur. Ein- beittu þér að því að gera það sem þú gerir best. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það fer ekki vel á því að blanda saman málum heimilisins og vinnustaðarins. Hvít lygi er saklaus lygi ekki satt? Þú vildir allavega vel! 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Hafðu í huga að aukin ábyrgð tengd börnum er líkleg á komandi misserum. Með það í huga tekurðu skynsamlegri ákvarðanir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það eru ýmsar nýjungar að banka upp á hjá þér og þér finnst erfitt að sinna þeim öllum í einu. Haltu þig við það sem þú veist og hugsaðu frekar meira um sjálfa/n þig. Fyrir helgi setti Ármann Þor-grímsson athugasemd á Leir- inn: „Þetta hefur gerst áður“ og bætti við: Oft þó sæki á önnur mið eftir fylgis slaka alltaf kemur íhaldið aftur heim til baka. Svo að Ólafur Stefánsson gat ekki orða bundist: Þó að löngum standi styrr um stórsannleik og lygi Íhaldið er enn sem fyrr okkar helsta vígi. Hilmar Jóhannesson Sauðár- króki orti: Í mjúkum faðmi Framsóknar finn ég skjól hjá vinum. Þúsund litlir Þórólfar þjóna okkur hinum. Það er grafið í Leirinn að Landsmót hagyrðinga verði á Hót- el Heklu 20. september. Hótelið var reist á Skeiðum/Brjánsstöðum fyrir allmörgum árum, Það kveikti neistann í Skírni Garðars- syni: Heklu að klífa hugnast mér, á hátind stefni brattur því klifurgarpur karlinn er, kloflangur og fattur. Ólafur Stefánsson hlakkar til Landsmótsins: Til Brjánsstaða ég flýti för, hvar frægir smiðir þinga. Sorgum firrtur sest við skör súper-hagyrðinga. Ingi Heiðmar Jónsson rifjaði upp, að í nýju bókinni Íslenskar úrvalsstökur sé hestavísa eftir Stefán Vagnsson, sem Jói í Stapa lærði af föður sínum: Þykir heldur harðsnúinn – hræðist keldu ei neina. Þegar kveldar klárinn minn kveikir eld við steina. Hér kemur síðan önnur vísa all- skyld, en höfundarlaus: Ó, ég held að efli frið og eyði hrelldra meinum þegar á kveldin klárgreyið kveikir eld á steinum. Magnús Ólafsson skrifar afsök- unarbeiðni á Leirinn: „ort þegar ég gleymdi að mæta í klippingu en fékk tíma daginn eftir“: Í ellimörkin er að glitta, ekkert þessu breyta fær Enda gleymdi ég að hitta yndisfagra konu í gær. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Um pólitík, landsmót hagyrðinga og fleira gott Í klípu „BÁRÐUR VAR HRIFNASTUR AF HAMINGJUSÖMUM HÆNUM. NEMA ÞEIM SEM VORU FLJÓTAR Í FÖRUM.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞETTA ER TÉKKI FYRIR LEIGUNNI MINNI. GETURÐU EKKI LÁTIÐ HANN FARA NOKKRA HRINGI Í KRINGUM HNÖTTINN?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að koma niður og sjá að morgunmaturinn er tilbúinn. ÞEGAR ÉG VAR UNG BAÐ ÉG ÞIG UM AÐ SENDA MÉR EIGINMANN ... ... ÞÚ GERÐIR ÞAÐ OG ÉG ER ÞAKKLÁT! EN ER OF SEINT AÐ BIÐJA NÚNA UM LEIÐARVÍSI MEÐ HONUM? NÚ ER KOMINN TÍMI TIL AÐ BYRJA Á EINHVERJU. NÚ ER KOMINN TÍMI TIL AÐ HÆTTA AÐ ...Víkverji telur sig að mörgu leytiafar þjóðlegan einstakling og er almennt mjög stoltur af landi sínu og þjóð. Þó að sumir virðist iðulega telja slíkt hina mestu frágangssök og gangi jafnvel svo langt að tengja það við einhverjar annarlega hvatir. Víkverji vísar slíku að sjálfsögðu al- farið á bug. Það er ekkert að þjóð- legum hugsunarhætti á meðan hann er heilbrigður og fer ekki út í neinar öfgar. Bara eins og í öðru. x x x Hvers vegna ætti enda að veraeitthvað að því að vera stoltur og ánægður? Er eitthvað ljótt við það þegar foreldri er stolt af barninu sínu sem kemur heim úr skólanum með góðar einkunnir? Eða þegar barnið stendur sig vel á íþróttamóti og fær jafnvel verðlaun? Er þar með eitthvað tekið frá öðrum? Víkverji getur ekki með nokkru móti séð að það geti staðist. Eins stendur nú yfir heimsmeist- aramótið í knattspyrnu eins og varla hefur farið framhjá nokkrum manni. Þar eru einmitt háðar viðureignir á þjóðlegum forsendum. Þjóðir halda allajafna með sínum liðum, eru væntanlega sæmilega stoltar af þeim og eru ekkert að taka neitt frá neinum með því að gera það. Menn skreyta sig í fánalitum heimalands- ins og fagna þegar liðinu gengur vel en syrgja þegar svo er ekki. x x x En eins og áður segir getur allt far-ið út í öfgar. Líkt og þegar farið er að líta niður á aðrar þjóðir á for- sendum eigin ágætis. Raunverulegs eða ímyndaðs. En það er hins vegar ekki heilbrigður þjóðlegur hugsun- arháttur að mati Víkverja. Það er ekkert að því að vera þjóðlegur og vera stoltur af sér af sínum á meðan það bitnar ekki á öðrum. Þá er komið út í þjóðrembu sem getur vart talist til eftirbreytni. Þeg- ar fólk getur ekki látið sér nægja þá heilbrigðu afstöðu að vera stolt og ánægt yfir sínu heldur finnur hjá sér þörf fyrir að misnota það til þess að níðast með einhverjum hætti á öðr- um. En þá erum við líka komin út í allt aðra hluti. Líkt og í öðru ber að forðast öfgar í þessu en um leið brennimerkja það ekki sem öfgar sem ekki á það skilið. víkverji@mbl.is Víkverji Munnur minn er fullur lofgjörðar um þig, af lofsöng um dýrð þína allan dag- inn. (Sálmarnir 71:8)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.