Morgunblaðið - 18.06.2014, Page 32

Morgunblaðið - 18.06.2014, Page 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2014 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Ég er úti að mála húsið mitt,“ segir tónlistarkonan Hafdís Huld þegar blaðamaður slær á þráðinn til að ræða við hana um nýútkomna breið- skífu hennar, Home. Platan átti að koma út fyrir einu og hálfu ári, að sögn Hafdísar. „En svo eignaðist ég barn, eins og stundum gerist. Lífið hefur annað plan en plötufyrirtækið þannig að ég frestaði útgáfunni um eitt og hálft ár og var heima með dóttur mína. Hún var svolítið óvær og það var ekki mikil stemning fyrir tónleikaferðalagi,“ segir Hafdís, létt í lund að vanda. Platan kom út í Bandaríkjunum og Kanada í apríl sl. og Evrópu 5. maí og er gefin út af Reveal Records í Evrópu og OK Good í Ameríku. Hafdís segir plöt- una meira í anda þjóðlagatónlistar en fyrri plötur hennar sem hafi verið poppaðri. „Hún er að fá mjög fína dreifingu og ég er ofsalega ham- ingjusöm með það, sérstaklega í ljósi þess hvað var löng bið eftir plöt- unni.“ Spurð að því hvort þessari miklu dreifingu fylgi ekki mikið tónleika- hald segir Hafdís svo vera. Hún sé nýkomin heim úr tónleikaferðalagi um England með Boo Hewerdine sem sé einnig á mála hjá Reveal Re- cords. „Hann er þekktur innan þessa þjóðlagageira, hefur samið mikið fyrir sjálfan sig og aðra og við spiluðum í menningarhúsum og gömlum leikhúsum í maí,“ segir Hafdís. Nú sé hún komin í örlítið frí og farin að mála húsið sitt, þöku- leggja garðinn sinn og skipuleggja tónleikaferð um Ísland í júlí. Hafdís heldur útgáfutónleika í kaffihúsinu Álafossi í Kvosinni í Mosfellsbæ fimmtudaginn 3. júlí. Tónleika- og skoðunarferð „Maðurinn minn, Alisdair Wright, er útlendingur og ég fékk þá góðu hugmynd að rúnta með honum um landið og sýna honum það og halda tónleika í leiðinni,“ segir Hafdís kím- in. Þau Alisdair hafi gert plötuna saman, enginn annar hafi komið að gerð hennar fyrir utan hljóðblöndun. „Þetta er mikið „beint frá bónda“ stemning. Við gerðum hana alveg frá grunni á þeim tíma þegar við vorum heima með lítið barn þannig að við gerðum þetta alveg eftir eigin höfði. Við vorum að tala um það um daginn að það hefur einhvern veginn aðra merkingu þegar plata sem þú gerðir algjörlega sjálfur fær flotta dóma því þetta er svo persónulegt verkefni,“ segir Hafdís og á þar við erlenda dóma. „Hún er búin að fá fjórar og fjórar og hálfa stjörnu hingað til þannig að ég er voða ham- ingjusöm með það, sérstaklega af því ég leyfði plötufyrirtækinu ekki að hlusta á plötuna fyrr en hún var tilbúin. Ef maður leyfir öllum að fara að tjá sig hafa allir skoðun á því hvernig platan eigi að vera. Það get- ur verið varasamt því þá verður þetta ekki platan sem einhver einn hafði í huga heldur málamiðlun. Þannig að mér fannst ég orðin það fullorðin að ég gæti tekið þetta á þrjóskunni og sagt „ég ætla að gera þetta svona“. Vonandi fílar fólk það og þess vegna þykir mér svo vænt um móttökurnar sem platan er að fá.“ Mótvægi – Tónlistin á plötunni er létt og falleg, á heildina litið en textarnir eru þó ekki allir um blóm og ham- ingju... „Nei, enda væri það nú kannski svolítið einsleitt. Til þess að þetta fallega sé fallegt og hafi meiri þýð- ingu skiptir máli að það sé eitthvað mótvægi, að þú hafir eitthvað til að bera það saman við. Og ég held að það sé enginn alltaf í góðu skapi,“ svarar Hafdís sem virðist þó alltaf vera í góðu skapi. – Það virðast vera býsna drunga- legar sögur á bakvið suma textana, t.d. við lagið „Wolf“. Hafdís hlær. „Það er eina lagið sem ég hef ekki sagt söguna sem býr að baki. Ég hef sagt fólki að það verði að hlusta og búa sér til sína eigin sögu. Þetta er byggt á sann- sögulegum atburðum,“ segir Hafdís og hlær. Sagan sé þó ekki eins ógn- vekjandi og textinn gefi til kynna. „Þetta er svona sveitadrama. Fólk verður að geta í eyðurnar.“ Hafdís og Alisdair hafa nú unnið saman að þremur plötum en Hafdís segir hann þó hafa verið í hljóm- sveitinni hennar frá árinu 2006. Þannig hafi þau kynnst upphaflega. Spurð að því hvort Alisdair eigi jafn- stóran þátt í lögunum hennar og hún sjálf segir Hafdís svo ekki vera en á Home hafi hann samið með henni um helming laganna. Þá vinni þau allar útsetningar saman og Alisdair leiki auk þess á flest hljóðfæri sem komi við sögu. „Hann hefur mikil áhrif á hvernig þetta hljómar,“ segir Hafdís en Alisdair sá einnig um myndskreytingar fyrir umslagið og hönnun þess. Nik Kershaw! „Svo eru þarna einstaka lög samin með Nik Kershaw og Boo Hewer- dine en meirihlutann eigum við Alis- dair saman,“ segir Hafdís. Blaða- maður hváir, á Hafdís við enska söngvarann og lagahöfundinn Kers- haw, þann sama og sló í gegn á ní- unda áratugnum með smellum á borð við „I Won’t Let the Sun Go Down on Me“? Jú, sá er maðurinn. „Hann langaði að semja með mér lag fyrir síðustu plötu, Synchronised Swimmers og hafði samband við um- boðsmanninn minn,“ segir Hafdís en Kershaw samdi lagið „Pop Song“ með Hafdísi fyrir Home. Hafdís seg- ist ekki hafa þekkt til Kershaw fyrir, enda of ung til þess að hafa verið táningur á sítt-að-aftan tímabilinu, ólíkt blaðamanni. Beint frá bónda  Hafdís Huld þurfti að fresta útgáfu Home um eitt og hálft ár vegna barn- eigna  Enska poppstjarnan Nik Kers- haw samdi með henni lag á plötunni Heima Nýjasta breiðskífa Hafdísar, Home, er ekki eins poppuð og þær fyrri, að hennar sögn. Fjölhæfur Myndina á umslaginu teiknaði eiginmaður Hafdísar, Alis- dair Wright. Vefsíða Hafdísar: hafdishuld.com KLASSÍSK ÍSLENSK GÆÐA ARMBANDSÚR www.gilbert.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.