Morgunblaðið - 18.06.2014, Síða 36

Morgunblaðið - 18.06.2014, Síða 36
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 169. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Níu sæmdir fálkaorðunni 2. Stöðvar ólögleg gjaldeyrisviðsk. 3. Æxlið góðkynja, segir sig svikinn 4. Lést af slysförum »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Bandaríski barítónsöngvarinn Wintley Phipps heldur tónleika í Að- ventkirkjunni, Ingólfsstræti 9, annað kvöld kl. 20 og er aðgangur ókeypis. Phipps er virtur söngvari og hefur m.a. sungið fyrir Bandaríkjaforseta, Barack Obama, og Nelson heitinn Mandela. Þá hefur hann einnig sung- ið í Páfagarði, fyrir Evrópuráðið og í sjónvarpsþætti Opruh Whinfrey, svo fátt eitt sé upp talið. Tónleikarnir hér á landi eru styrktartónleikar fyrir US Dream Academy, góðgerðarsamtök sem Phipps stofnaði til að hlúa að menntun barna sem eiga foreldra í fangelsi að því er fram kemur í til- kynningu. Þeir sem vilja styrkja mál- efnið geta keypt geisladisk með tón- list Phipps annað kvöld. Wintley Phipps syng- ur í Aðventkirkjunni  Galleríið i8 tekur þátt í listkaup- stefnunni Art Basel sem hófst í gær í Sviss og sýnir þar verk eftir þrjá myndlistarmenn úr SÚM- hópnum sem starfaði á árunum 1965-1972, bræðurna Sigurð og Kristján Guðmundssyni og Hrein Friðfinnsson. Galleríið valdi til sýn- ingar verk frá árunum 1970 til 1980 sem og nýleg verk eftir listamennina. Meðal verka eru myndir úr syrpu Sigurðar, Situ- ations, sem hann vann á áttunda áratugnum. Sýningin stendur til 22. júní. Verk þriggja SÚM- ara sýnd á Art Basel Á fimmtudag og föstudag Suðvestan eða breytileg átt, 3-8 m/s. Skýjað um allt land og dálítil súld eða rigning með köflum en léttskýjað með köflum á Suðausturlandi. Hiti 7 til 16 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Styttir að mestu upp en síðan skýjað eða þokuloft. Hiti 8 til 17 stig en hlýjast norðaustanlands. VEÐUR Önnur umferð riðlakeppni heimsmeistaramótsins hófst í gærkvöldi þegar gestgjafar Brasilíu mættu Mexíkó. Þrátt fyrir marka- lausan leik var hann frábær skemmtun þar sem Guill- ermo Ochoa fór á kostum í marki Mexíkó. Hann hélt Neymar í skefjum og var því líkt við frammistöðu Gord- ons Banks í marki Englands gegn Pele og brasilíska lið- inu árið 1970. »1 Önnur umferð hafin formlega Jürgen Klinsmann, þjálfari bandaríska landsliðsins í knattspyrnu, hefur ekki bara náð í Aron Jóhannsson til Ís- lands, heldur er hann með marga fleiri leikmenn af erlendu bergi brotna í sín- um hópi. John Brooks, sem skoraði sigurmark Bandaríkjanna gegn Gana í fyrrakvöld, er einn af fimm í hópnum hjá Klinsmann á HM frá Þýska- landi og þá er einn sem er fæddur og uppalinn í Noregi í hópn- um. »4 Vildi finna þá bestu með bandarísk vegabréf „Alfreð hafði grun um að ég væri að fara í annað lið en raun varð á. Þegar ég sagði honum undir fjögur augu hvert ég væri að fara mildaðist hann og óskaði mér og fjölskyldunni velfarnaðar,“ segir Guðjón Valur Sigurðsson. Opnuviðtal við Guðjón Val og Aron Pálmarsson um brottför þeirra frá Kiel og viðskilnaðinn við Alfreð Gíslason, þjálfara liðsins, má finna í íþróttablaðinu í dag. »2-3 Guðjón Valur til í að spila fram yfir fertugt ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Hálft í hvoru var þessi tilfærsla á steininum prakkaraskapur – en endar kannski með því að verða minnisvarði um sjálfan mig,“ segir Gunnar Olsen á Eyrarbakka, fyrr- verandi verkstjóri hjá Vegagerð- inni. Á löngum ferli sínum þar kom Gunnar að framkvæmdum víða á Suðurlandi, sem fæstar ef þá nokk- ur er honum merkt. Og þó; glöggir vegfarendur sem eiga leið austur fyrir fjall hafa sjálfsagt margir tek- ið eftir stökum steini sem stendur uppi á klapparholti norðan Suður- landsvegar, við bæinn Kross skammt austan við Hveragerði. Einhverjir ætla líklega sem svo að steininn hafi dagað þarna uppi í þann tíð þegar landið var í mótun. En sú er ekki raunin, þetta eru mannanna verk. Margir vita að sú er raunin en hér er sagan af því öll loksins sögð. Leyndamálið upplýst. Í hálfgerðu brasi Núverandi Suðurlandsvegur frá Reykjavík til Selfoss var tekinn í notkun haustið 1972. Var hann gerður af starfsmönnum Þórisóss hf., Ístaks og fleiri verktakafyrir- tækja sem áberandi voru á þessum tíma. Þegar vegagerðinni sjálfri var lokið tóku starfsmenn Vegagerðar- innar við og sáu um frágang við vegstæðið, svo sem að sá í vegkanta og setja upp ýmis merki og girð- ingar. „Þetta hefur sennilega verið árið 1973. Við lentum í hálfgerðu brasi með stein sem var í miðju stæðinu þar sem setja átti upp staura og strengi. Á þessum tíma var lenska í svona framkvæmdum að koma stórum steinum fyrir hér og þar. Því flaug mér í hug að þessum kletti, sem vegur nokkur tonn, væri vel fyrir komið þarna á klöppinni sem blasir við vegfarendum,“ segir Gunnar Olsen og heldur áfram. „Lúðvík Haraldsson, bóndi á Krossi og landeigandi þarna, gaf leyfi og með það var hafist handa. Óttar Gunnlaugsson frá Rækt- unarsambandi Flóa og Skeiða kom á Caterpillar D6, heljarstórri ýtu á mælikvarða þess tíma, bifaði þessu áfram og stillti steininn af sem þarna stendur enn.“ Bifaðist ekki Óhætt er að segja að steinninn stóri, þetta áberandi kennimark við hringveginn, sé í öruggum sessi. Upptök jarðskjálftans 29. maí 2008 voru nánast beint þar undir. Bjarg- ið bifaðist ekki, þó svo að hundruð húsa löskuðust eða eyðilegðust, vegir skemmdust og skriður féllu úr fjöllum. „Það ég best veit fylgdi engin helgi eða sérstök saga steininum í Ölfusinu, sem er nafnlaus,“ segir Gunnar Olsen. Vísar þar til þess að við vegagerð og skyldar fram- kvæmdir má ekki raska helgum blettum og stundum þarf að ná samkomulagi við álfa og huldufólk. Má þar nefna að árið 1999, þegar Vesturlandsvegur við Grafarholt í Reykjavík var breikkaður, þótti nauðsynlegt að fara varlega þegar svonefndur Grásteinn var færður til, enda til sagnir um meintar álfa- byggðir í honum. Var þá vísað til ýmissa óhappa sem orðið hefðu þegar vegurinn var lagður um 1970. Margar samtóna sögur eru til sem margir taka alvarlega en aðrir telja hindurvitni. Lítið ævintýri „Í girðingarvinnunni í Ölfusinu, sunnan við Ingólfsfjallið, þurftum við að þrasa við fjölda fólks sem var með allt á hreinu. Rifjuðu margir upp þjóðsöguna um Sængurkonu- stein og þarna átti nánast annar hver klettur að vera sá. Sæng- urkonusteinn er hins vegar sam- kvæmt heimildum talsvert norðar og austar,“ segir Gunnar, sem minnist tilfærslu klettsins við Kross sem ofurlítils ævintýris á ferli sín- um hjá Vegagerðinni. Þar starfaði hann í rúmlega þrjátíu ár. Leyndarmálið í Ölfusinu  Klettur á klöpp er minnisvarði vegagerðarmanna Morgunblaðið/Sigurður Bogi Steinn Gunnar Olsen við hið áberandi kennimark við bæinn Kross í Ölfusi. Steinninn, sem vegagerðarmenn komu þar fyrir, blasir við þeim sem fara um Suðurlandsveg. Nú er steinninn orðinn hluti af landslaginu og prýði að.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.