Morgunblaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2014
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Frá kr.
67.300
Netverð á mann frá kr. 67.300 á Pella Steve m.v. 2 fullorðna og 2
börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 91.500 á Pella Steve m.v.
2 fullorðna í íbúð. 4. sept. í 11 nætur.
Krít 39.900Flugsætifrá kr.
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Harðar deilur eru milli hluthafa í
DV ehf. Eigendur meirihluta hluta-
bréfa í blaðinu eru ósáttir við að
vera í minnihluta í stjórn blaðsins.
Reynir Traustason, ritstjóri DV,
telur hins vegar að um sé að ræða
árás á ritstjórnarlegt sjálfstæði
blaðsins.
Halda átti aðalfund DV síðast-
liðnn föstudag en honum var frest-
að um viku vegna ágreinings um
ársreikning félagsins.
Hafa bara einn
fulltrúa í stjórn
Þorsteinn Guðnason, einn hlut-
hafa DV ehf., segir í fréttatilkynn-
ingu að þeir sem eigi meirihluta í
DV ehf. hafi ekki fulltrúa kjörna í
stjórn í samræmi við hlutafjáreign.
„Krafa okkar sem eigum meiri-
hluta í DV ehf. er að fá fulltrúa
kjörna í stjórn í samræmi við
hlutafjáreign. Brölt Reynis
Traustasonar undanfarið miðar að
því að skapa sér stöðu, með afar
ógeðfelldum aðferðum, til að nú-
verandi stjórn sitji áfram óbreytt.
Reynir og þrír aðrir stjórnarmenn
eiga saman um 10% hlutafjár en
við, sem eigum saman góðan meiri-
hluta í félaginu, eigum einn full-
trúa. Tilraunir Reynis til að taka
yfir stjórnina með þessu eru í
óþökk eigenda og því fjandsamleg-
ar.“
Vill ekki skerða sjálfstæðið
Þá svarar hann þeirri gagnrýni,
að hann ætli sér að skerða rit-
stjórnarlegt sjálfstæði blaðsins.
„Ég hef sem stjórnarformaður
aldrei skipt mér af einstökum
fréttum í blaðinu DV eða á vefnum
dv.is. Á hinn bóginn hef ég um
skeið haft áhyggjur af því að til-
tekin öfl hafi óeðlileg áhrif á rit-
stjórnarstefnu blaðsins. Orðrómur
þess efnis hefur magnast upp á síð-
kastið og hefur nú leitt til þess að
ásakanir hafa verið settar fram á
opinberum vettvangi af Sigurði G.
Guðjónssyni hrl. og Elliða Vign-
issyni, bæjarstjóra í Vestmanna-
eyjum.“
Reynir fékk lán frá Guðmundi
Sigurður G. Guðjónsson hélt því
fram á Pressunni að Reyni
Traustasyni hefðu áskotnast 15
milljónir króna frá útgerðarmanni
til að leggja fram sem hlutafé í DV
ehf. Þá hefði blaðið skrifað fréttir
um deilur útgerðarmannsins við
annan útgerðarmann á forsendum
þess fyrrnefnda.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri
Vestmannaeyja, hélt því fram í
kjölfar yfirlýsingar Sigurðar að út-
gerðarmaðurinn umræddi væri
Guðmundur Kristjánsson, sem
kenndur er við Brim, og fullyrðir
að DV hafi fjallað „á óvæginn og
skekktan máta“ um deilur Vinnslu-
stöðvar Vestmannaeyja og Guð-
mundar í Brimi. Bæði Guðmundur
og Reynir hafa staðfest að lánið
átti sér stað.
Guðmundur sendi frá sér frétta-
tilkynningu í kjölfar ásakananna,
þar sem fram kemur að hann ætli
að stefna Elliða Vignissyni fyrir
rógburð og tilraun til að sverta
mannorð sitt. Jafnframt segir hann
að það sé rangt og fjarri öllum
raunveruleika að hann hafi stjórn-
að ritstjórnarstefnu DV.
Hluthafar deila
hart um stjórn
Guðmundur í Brimi ætlar að stefna
Elliða Vignissyni fyrir rógburð
Af ummælum Elliða
» Elliði Vignisson, bæjarstjóri
Vestmannaeyja, sagði Guð-
mund Kristjánsson í Brimi hafa
lánað Reyni Traustasyni 15
milljónir og gaf í skyn að láninu
hefði fylgt jákvæð umfjöllun.
» Guðmundur og Reynir stað-
festa að lánið átti sér stað, en
hafna því að það hafi haft áhrif
á ritstjórnarlegt sjálfstæði
blaðsins.
» Guðmundur hyggst stefna
Elliða fyrir ummælin.
Morgunblaðið/Ómar
Deilur Reynir Traustason og Sig-
urður G. Guðjónsson á aðalfundi DV.
Ljósmynd/Halldór Elís Ólafsson
Á fiskmarkaði í Japan Fyrstu túnfiskarnir úr afla Jóhönnu Gísladóttur boðnir upp í Tókýó.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Fyrstu 11 túnfiskarnir sem Jó-
hanna Gísladóttir GK veiddi á
þessu hausti voru boðnir upp í
tveimur áföngum á fiskmarkaði í
Japan í liðinni viku. Hver fiskur var
seldur á um 680 þúsund krónur að
meðaltali. Meðalvigt fiskanna, eins
og þeir voru seldir, var 132 kíló og
var kílóverðið því rúmlega fimm
þúsund krónur að meðaltali. Vonast
er til að hærra verð fáist fyrir tún-
fiskinn þegar líður á haustið.
Sendingin vakti athygli
Pétur Pálsson, framkvæmdastjóri
Vísis, segir að gæði fisksins hafi
verið mjög góð og þessi sending frá
Íslandi hafi vakið töluverða athygli
á markaðnum. Fiskurinn eigi hins
vegar eftir að fitna í ætisgöngu
sinni á norðurslóðir og segir Pétur
að þá muni væntanlega fást hærra
verð fyrir hann. Icelandic annaðist
söluna fyrir Vísi.
Jóhanna Gísladóttir kom til hafn-
ar í Grindavík í fyrrinótt með 14
túnfiska til viðbótar og er aflinn því
orðinn 25 fiskar á vertíðinni. Um
tíu tíma sigling er á miðin en þau
eru núna um 100 mílur suður af
landinu. Vegna brælu var túrinn
heldur styttri en vonir stóðu til og
var hún notuð til að landa úr skip-
inu í gær. Aflanum var síðan pakk-
að fyrir flutning með flugi til Jap-
ans í dag. Aflinn verður væntanlega
boðinn upp á miðvikudag eða
fimmtudag.
Höfum lært mikið
„Á einni viku í þessum veiðiskap
höfum við lært mikið og við erum
bjartsýnir á að það sé hægt að búa
til sambærilega afkomu á túnfisk-
veiðum og á öðrum veiðum,“ segir
Pétur Pálsson. „Þegar Japanar
voru hér að veiðum um síðustu
aldamót fengu þeir allt að 30 fiska á
dag, en þeir voru með tvöfalt til
þrefalt lengri línu heldur en við höf-
um verið með.
Fyrst á haustin er túnfiskurinn
nær Íslandi, en fjarlægist þegar líð-
ur á og þá eru veður venjulega orð-
in erfiðari. Við þurfum að finna
okkur veiðiryþma, stilla inn á flug
og læra á geymslutíma fisksins án
þess að hann falli í verði. Við höfum
áhuga á að geta selt til Japans há-
gæðatúnfisk sem er eftirsóttur í
sushi,“ segir Pétur.
15 fiskar sem meðafli
Vísi var úthlutað 25 tonnum af 30
tonna túnfiskkvóta Íslendinga og
auk þess var tekið frá fyrir meðafla
á makrílveiðum og til mögulegra
veiða með sjóstöng. Í síðustu viku
fékk Bjarni Ólafsson AK 15 fiska
sem meðafla í einu hali fyrir austan
land og áður hafði Beitir NK fengið
nokkra fiska.
Hver túnfiskur á um
680 þúsund krónur
Rúmlega fimm þúsund krónur fengust fyrir kílóið á upp-
boði í Japan Fjórtán túnfiskum landað í Grindavík í gær
Karl og kona voru flutt til Reykja-
víkur á slysadeild eftir að húsbíll
sem þau voru í valt og splundraðist
í miklu hvassviðri á Suðurlandsvegi
við Hvamm undir Eyjafjöllum í
gær. Fólkið, sem er erlendir ferða-
menn, er ekki sagt vera alvarlega
slasað. Atvikið átti sér stað
skammt frá Seljalandsfossi á tí-
unda tímanum í gærmorgun.
Sjúkrabifreið ók fólkinu á slysa-
deild í Reykjavík.
Að sögn lögreglunnar á Hvols-
velli er bíllinn í tætlum. Mestu
vindhviðurnar undir Eyjafjöllum
náðu tæplega 50 metrum á sek-
úndu í gær og ferðaveður fyrir
húsbíla því afar erfitt.
Þrír til viðbótar vindi að bráð
Bíllinn fór út af og endaði ofan í
skurði og dreifðust innanstokks-
munir um allt eftir að veggir bíls-
ins gáfu sig. Viðvörunarskilti eru
við Seljaland og víðar á svæðinu
sem vara fólk við að vera á ferð
þegar vindhraði er svo mikill.
Að minnsta kosti þrír húsbílar til
viðbótar skemmdust annars staðar
á landinu í óveðrinu sem gekk yfir
í gærmorgun og fyrrinótt.
vidar@mbl.is
Húsbíll splundraðist
Ljósmynd/Sigurður Guðjónsson
Stormur Húsbíll erlendra ferðamanna splundraðist og endaði ofan í skurði
á Suðurlandsvegi. Gríðarlegur vindhraði var á svæðinu í gærmorgun.
Karl og kona sluppu vel Gríðarlegur vindhraði