Morgunblaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 11
eru starfandi 26 kvenfélög. „Þetta
var stór stund þegar við afhjúpuðum
teppið og frábært að finna að hægt
er að framkvæma svona bjartsýnis-
hugmynd með samvinnu. Einnig var
sérlega ánægjulegt að finna stuðn-
ing hvar sem við leituðu aðstoðar.
Ullarvinnslan á Þingborg gaf okkur
ullarkembur og íslenskt kambgarn
til að prjóna úr fengum við gefins frá
Nettó á Selfossi. Við létum útbúa
gjafa- og samúðarkort með mynd af
veggteppinu og verður það til sölu á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands á
Selfossi til að byrja með. Allur ágóði
fer til líknarmála.“
Afhjúpun og afhending F.v. Margrét Þórðardóttir, Jónína Valdimars-
dóttir, Elinborg Sigurðardóttir, Kristín Stefánsdóttir, Rósa Finnsdóttir og
Jóhanna Lilja Þrúðmarsdóttir. Stoltar hjá teppinu góða við afhendingu.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2014
Samband sunnlenskra kvenna
(SSK) hefur gefið nýburum sem
fæðast á Heilsustofnun Suður-
lands á Selfossi gjafir sem
kvenfélagskonur prjóna.
Þetta byrjaði með húfuverk-
efni sem Kvenfélagasamband
Íslands stóð fyrir 2010-2011, en
svo ákvað SSK að halda áfram
með samskonar verkefni og
hafa konurnar gefið hosur og
smekki en nú gefa þær treyjur.
FALLEGAR GJAFIR
Prjóna handa nýburum
Við mannfólkið sláum oft hlut-unum á frest. Við finnumokkur ýmislegt til dundurs
frekar en að skrifa ritgerðina, panta
tíma hjá lækninum, gera skatta-
skýrsluna ofl. Gerum frekar það
sem er skemmtilegra eða minni
áreynsla og höfum fyrirsláttinn á
reiðum höndum. Við ætlum að gera
hitt seinna og lendum svo í tíma-
þröng og veseni. Fyrst að lesa póst-
inn, fara aðeins á netið, gá hvað er
að gerast á facebook. Úps! dagurinn
bara hvarf!
Að ákveða að gera seinna er ekki
vont í sjálfu sér, ef fyrir því er skyn-
samleg ástæða. En oft vinnur frest-
un gegn manni; veldur stressi,
sektarkennd, dregur úr afköstum og
getur haft slæm áhrif á samskipti og
framgöngu okkar í vinnu, skóla og
lífinu almennt.
Af hverju gerum við þetta? Er
þetta óttinn um að standa sig ekki
nógu vel? Verkefnið er yfirþyrm-
andi; „þetta er svo mikið og ég verð
að gera það fullkomið.“ Trúin á að
maður vinni best undir pressu; Er
það kannski bara ein undankomu-
leiðin frá verkefninu?
Sókn í vellíðan á trúlega drjúgan
þátt í frestun; við forðumst nei-
kvæða líðan og ýtum frá okkur erf-
iði. Gott til skamms tíma en verra
seinna. Úr vanlíðan yfir í vellíðan
strax. Frestun endurspeglar eðl-
islæga sókn lífverunnar í að líða vel
núna, bregðast við aðstæðum hér og
nú fremur en til lengri tíma.
Getum við hugsað það til enda ef
eðli okkar væri ekki slíkt; að sækja
úr van- yfir í vellíðan? Ber okkur
ekki að virða og meta eiginleika okk-
ar og eðli – vera þakklát fyrir það
sem við höfum og erum? Við erum
mannleg en ekki vélmenni. Við erum
mistæk, gerum ekki alltaf alla hluti
vel, en reynum oftast að gera okkar
besta. Við höfum einnig kostinn
góða – sveigjanleika. Tölvan frestar
ekki, hún er óskeikul en einnig
ósveigjanleg. Hún framkvæmir ná-
kvæmlega það sem hún er beðin um
eða er frosin eða biluð og gerir ekk-
ert; um hana má gilda „fullkomið
eða ekki neitt!“ Jú, oft drögum við
verkið fram á síðustu stundu, en kýl-
um svo á það og klárum „nógu
snemma“ – Er það þá ekki bara allt í
lagi? Kannske stress, en líka ögr-
andi! Næ ég þessu? Nútíminn gefur
okkur meira val um hvernig við verj-
um tíma okkar. Á tímum erfiðrar
lífsbaráttu var það dyggð „að falla
aldrei verk úr hendi“, en tölum við
ekki núna um það sem vandamál að
vera „vinnualki“?
Okkur er líka hollt að hvíla stund-
um hug og hönd og dunda okkur.
Sem leiðir hugann að Bangsimon og
félögum; Jakob þótti skemmtilegast
að gera „ekkert“ og Bangsimon
spurði á sinn einstaka hátt: „Nú,
hvernig gerir maður það?“ Jakob
svarar: „Það er svoleiðis að full-
orðna fólkið spyr: Hvað ertu að fara
að gera? og þú segir: Ekkert. Og svo
ferðu bara og gerir það!“
Ef reynslan kennir okkur að „gott
strax en verra seinna“ (fá dótið núna
– borga seinna) sé ekki alltaf þess
virði, þá lærum við að það virkar oft
vel að fresta ánægjunni og uppskera
ríkulega síðar. Njótum þess að vita
til þess að eitthvað sé á leiðinni til
okkar. Erum við þá ekki komin með
„Gott strax og gott seinna?“ Eft-
irvænting er notaleg tilfinning; mun
betri en sú sem fylgir: „Oh, að ég
skuli ekki vera komin með…“
Í raun er þetta spurning um val:
Þú ákveður hvað þú vilt vera og
gera. (Lengri útgáfa á heilsustod-
in.is)
Stofnum bandalag frestara
……. á morgun!
Bangsimon Góður í að gera ekkert.
Heilsupistill
Heiðdís Sigurðardóttir
sálfræðingur
Heilsustöðin sálfræði- og ráðgjafa-
þjónusta Skeifunni 11a, Rvk.
www.heilsustodin.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
4
0
7
1