Morgunblaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2014 Öflugar kvenfélagskonur Kvenfélagskona setur fyrstu prjónabútana í körfu hjá Kristínu Stefánsdóttur. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þegar hún Rosemarie íGeldingaholti, fráfarandiformaður SSK, kynnti fyr-ir okkur í afmælisnefnd- inni hugmyndina að prjónagöngum í ársbyrjun 2013, leist okkur ekki meira en svo á. Hún hafði fengið þessa leiftrandi hugmynd þegar hún las um konu Halldórs í Bringum í bók eftir Kiljan, en sú kona gekk á milli bæja prjónandi og aldrei varð hjá henni lykkjufall. Í fyrravor byrj- uðum við svo að ganga og prjóna og það reyndist auðveldara en við héld- um, og heldur betur skemmtilegar samverustundir. Efnt var til göngu- ferða í sveitunum og gengið eftir gömlum slóðum. Sumar konurnar prjónuðu gangandi, aðrar prjónuðu þegar þær settust niður,“ segir Elin- borg Sigurðardóttir, núverandi for- maður Sambands sunnlenskra kvenna (SSK), en s.l fimmtudag af- hjúpaði sambandið veggteppi á Heil- brigðisstofnun Suðurlands á Sel- fossi, en það er sett saman úr þeim 1200 prjónabútum sem konurnar prjónuðu í prjónagöngunum. Á sama tíma afhentu þær stofnuninni nýtt fæðingarrúm. Voru fljótar að prjóna „Við vildum með þessu prjóna- gönguátaki minnast formæðra okk- ar en við vildum líka efla samveru og hreyfingu kvenfélagskvenna á svæð- inu. Og við vildum safna fyrir nýju fæðingarrúmi sem við vissum að vantaði. Allt gerðum við þetta í til- efni af 85 ára afmæli Sambands sunnlenskra kvenna,“ segir Elin- borg og bætir við að konurnar hafi ekki verið lengi að þessu, skiluðu öll- um sínum tólfhundruð bútum á af- mælishátíðinni í Þjórsártúni tveimur mánuðum eftir að lagt var upp í fyrstu gönguferðina. „Síðan voru bútarnir sendir út í kvenfélögin aft- ur til að sauma þá saman og það þurfti líka að ganga frá bakhliðinni, stinga þetta allt niður við léreft. Einnig átti eftir að prjóna kant utan um allt saman en það gerði einn heiðursfélaginn, hún Halla Aðal- steinsdóttir í Kolsholti. Við þæfðum síðan Þjórsá inn í þetta og saum- uðum gömlu brúna yfir hana. Að lok- um saumuðum við í teppið hópa af konum sem ganga í átt að Þjórsá, þar sem samtökin voru stofnuð 30. sept. 1928. Þar skín morgunsólin yf- ir og gefur eilífa von um nýjan dag.“ Samvinna og stuðningur Hún segir teppið vera táknrænt myndverk af sambandssvæði kven- félaganna, en svæðið nær yfir Ár- nes- og Rangárvallasýslur og þar Prjónuðu gangandi út um allar sveitir Að ganga og prjóna samtímis er þónokkur áskorun, en það gerðu þær einmitt konurnar í Sambandi sunnlenskra kvenna sem prjónuðu tólfhundruð prjónabúta sem þær svo settu saman og mynduðu Heklu og Búrfell með Þjórsá flæðandi á milli. Auk þess söfnuðu þær áheitum til að kaupa fæðingarrúm. Á vinnslustigi Hekla og Búrfell að myndast við samsetningu bútanna. Einn fremsti vísindamaður í tauga- sjúkdómafræði í heiminum, dr. Mark Holmes, mun halda fyrirlestur í Há- skólanum í Reykjavík í dag kl 14.45 í stofu M101. Holmes hefur s.l 20 ár stundað rannsóknir í taugavísindum (e. neuroscience) og þróun tækni sem getur örvað heilastarfsemi. Markverðar uppgötvanir hafa verið gerðar með því að nota heilalínurit í rannsóknum á einstaklingum með flogaveiki. Í fyrirlestri sínum fer Mark Holmes yfir nokkrar þeirra en heila- línurit (EEG) er aðferð til að taka upp rafboð í heila í gegnum höfuðkúpuna. Háskólinn í Reykjavík hefur markað sér skýra stefnu um eflingu heilbrigðisvísinda á Íslandi og rann- sóknir í taugavísindum. Endilega... ...kynnið ykkur heilalínurit Heili Margt merkilegt gerist þar. Þessir agnarsmáu krókódílar, sem rúmast í lófa manns, komu í heiminn fyrir skömmu í dýragarði sem kallast „Planet of Crocodiles“ eða pláneta krókódílanna og er í Frakklandi. Þeir virðast ósköp hissa á heiminum sem fyrir augu þeirra ber og frekar ósjálf- bjarga, greyin, en ekki líður á löngu þar til þeir verða ógnvænlegri og lítt árennilegir, þegar þeir hafa vaxið í fulla stærð. Um tvö hundruð krókó- dílar af hinum ýmsu tegundum haf- ast við í þessum dýragarði. Dýragarðsins líf Krókódílakrútt sjá heiminn AFP Krókódílar Agnarsmáir og sætir. Haustdagskráin hjá Café Lingua býður upp á margt spennandi þar sem áhersla er lögð á fjölbreytt tungumál og menningu. Auk þess að taka þátt í ævintýralegri sögu- stund, fræðast um tungumál eins og nepölsku, tyrknesku, portúgölsku og taílensku, gefst áhugasömum tækifæri til að fara á „stefnumót“ við fulltrúa ýmissa tungumála og kynnast rithöfundunum Amy Tan og Gabriel García Márquez. Í dag verð- ur fyrsti viðburður vetrarins þegar José Antonio Nuñez Ukumari, frá Perú, segir sögur á töfrandi hátt með aðstoð þátttakenda og ýmissa hljóðfæra. Sögustundin er á spænsku með skýringum á ensku. Hún fer fram í aðalsafni Borgar- bókasafns, Tryggvagötu 15, kl. 17:30. Heitt á könnunni og allir vel- komnir. Dagskrá vetrarins á borgar- bokasafn.is og í facebook: Café Lingua – lifandi tungumál. Vefsíðan www.borgarbokasafn.is Tungumálateiti Sagnamaðurinn José frá Perú hefur frá mörgu að segja. Sögur sagðar á töfrandi hátt Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Hjá Parka færðu flottar flísar í hæsta gæða- flokki frá þekktum ítölskum framleiðendum. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Dalvegi 10-14 • Kópavogi Full búð af flottum flísum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.