Morgunblaðið - 01.09.2014, Side 9

Morgunblaðið - 01.09.2014, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2014 VERTU VAKANDI! blattafram.is 93% þolenda þekkja þann sem beitir þá kynferðislegu ofbeldi! F A S TU S _H _3 2. 06 .1 4 Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16 - 2.hæð. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is Veit á vandaða lausn Resource Senior Active Sérhannaður drykkur fyrir aldraða sem þurfa næringarviðbót og fá ekki uppfyllt orku- og næringarþörf sinni úr fæðunni Heildstæður næringardrykkur sem er ríkur af: • Hitaeiningum (orkuefnum) • Kalsíum • Próteinum • D-vítamínum • Omega3 fitusýrum Notist samkvæmt ráðleggingum læknis og/ eða næringarfræðings Jarðarber Karamella Vanilla 200ml 300 kcal 3g trefjar 1000 IU D3 vítamín 20g prótín Næringarvörur eru í samningi við Sjúkratryggingar Íslands Þessar vörur fást í verslun Fastus og í flestum apótekum Aukablað um bíla fylgir Morgunblaðinu alla þriðjudaga Rangt haft eftir Í frétt um lögreglurannsókn á lekamáli var rangt farið með lýs- ingu á stöðu innanríkisráðherra í tilvitnun til Bjargar Thorarensen. Ráðherra er að sjálfsögðu ekki æðsti handhafi dómsvalds heldur æðsti yfirmaður stjórnkerfisins í málefnum dómstóla, lögreglu og ákæruvalds. Beðist er velvirðing- ar á þessum mistökum. LEIÐRÉTTING Gunnar Finnsson, rekstrarhagfræðingur og stofnandi Hollvina- samtaka Grensáss, er látinn. Gunnar fæddist í Reykjavík 1. nóv- ember 1940. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1960. Cand. oecon frá Há- skóla Íslands 1964 og MBA í rekstrarhag- fræði frá Indiana Uni- versity, Graduate School of Business, í Bloomingon í Indiana í Bandaríkjunum, 1966. Gunnar starfaði hjá Flugfélagi Ís- lands sem fulltrúi hjá forstjóra frá 1964 til 1969 er hann flutti til Mont- real í Kanada þar sem hann starfaði hjá Al- þjóðaflugmálastofn- uninni (ICAO) sem deildarstjóri og sér- fræðingur í rekstri flugvalla og flugmála- stjórna. Hann flutti til Íslands árið 2001 og starfaði sem sérfræð- ingur og ráðgjafi í flug- málum. Gunnar lét málefni Endurhæfingardeildar Landspítala við Grens- ás sig miklu varða og var meðal stofnenda og formaður Hollvinasamtaka Grens- áss frá upphafi. Eftirlifandi eiginkona Gunnars er Kristín Erla Albertsdóttir. Andlát Gunnar Finnsson Sæbjörg, skólaskip Slysavarna- skóla sjómanna, kom til Reykja- víkur í fyrradag eftir hringferð um landið sem hófst fyrir um tveimur mánuðum, en eftir helgi hefjast námskeið að nýju í skip- inu. Í ferðinni voru haldin samtals 14 mismunandi eins til tveggja daga námskeið í Vestmannaeyjum (2), Neskaupstað (3), á Seyðisfirði (3) og Akureyri (6), þar sem skipið fór í slipp. Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjó- manna, segir að fyrir tilstuðlan og með styrk frá Samherja hafi þessi ferð verið möguleg. 193 manns hafi sótt námskeiðin og á Ak- ureyri hafi áhafnir skipa Samherja auk annarra sjómanna sótt þau. Haldið var frá Reykjavík 25. júní en á meðan skipið var í slipp fór áhöfnin í sumarfrí. Níu manns sáu um kennsluna og tveir til við- bótar voru í áhöfninni. Alþjóðakröfur Skipulögð hafa verið námskeið í Reykjavík fram í júlí auk þess sem farið verður út á land og haldin námskeið fyrir áhafnir skipa um borð í skipum þeirra á viðkomandi stöðum. Hilmar segir að öll námskeiðin séu í samræmi við alþjóðakröfur og menn sem þau sæki séu því gjaldgengir nánast hvar sem er. steinthor@mbl.is Námskeið hefjast aftur í Sæbjörgu Morgunblaðið/Þórður Sæbjörg Skip Landsbjargar er nýkomið úr slipp á Akureyri. Tveir heppnir lottóspilarar voru með allar töl- urnar réttar í útdrætti laugardagsins og skiptu með sér fyrsta vinningnum. Fengu þeir rúmar 53 milljónir króna hvor í sinn hlut. Báðir mið- arnir voru keyptir á heimasíðunni www.lotto- .is. Þrettán voru með bónusvinninginn og hljóta þeir 100.290 kr. í vinning. Einn var með allar Jókertölurnar réttar og fær hann í sinn hlut tvær milljónir. Tveir heppnir lottóspilarar fengu 53 milljónir króna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.