Morgunblaðið - 01.09.2014, Side 12

Morgunblaðið - 01.09.2014, Side 12
12 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2014 • 15,6" HD LED Mattur skjár (1366x768) • AMD Dual-Core E2-2000 örgjörvi • AMD Radeon HD7340 skjástýring • 500GB harður diskur • 4GB 1333MHz vinnsluminni • HDMI, 3xUSB2.0, VGA · kortalesari • PowerPlus rafhlaða m. 1000 hleðslum • Windows 8 og Bluetooth 4.0 • 13,3" HD LED Skjár (1366x768) - Mattur • AMD Quad-Core örgjörvi • AMD Radeon HD7340 skjástýring • 128 GB SSD harður diskur • 4 GB DDR3 1333MHz vinnsluminni • HDMI, 2xUSB2.0, 1xUSB3.0, kortalesari • 8 klst. rafhlöðuending • Windows 8 og Bluetooth 4.0 • Hvít MIKIÐ FYRIR LÍTIÐ · ATIV BOOK 9 LITE FRÁBÆR TÖLVA FYRIR FÓLK Á FERÐINNI FÁÐU ÞÉR ÞÚ SÉRÐ ALDREI EFTIR ÞVÍ 84.900TILBOÐ: 109.900TILBOÐ: 129.900 149.900 TILBOÐ: /með snertiskjá: 535U3C-KO1 • 13,3" HD LED Skjár (1366x768) - Mattur • AMD Dual-Core A6-4455M örgjörvi • AMD Radeon HD7500G skjástýring • 500GB harður diskur • 4GB 1333MHz vinnsluminni • HDMI, 2xUSB2.0, USB3.0 · Kortalesari • PowerPlus rafhlaða m. 1500 hleðslum. • Windows 8 og Bluetooth 4.0 • Títan grátt EIN SÚ ALLRA VINSÆLASTANP275E5E-K01 OPIÐ VIRKA DAGA KL.10–18 · LAUGARDAGA KL.11–15 LÁGMÚLA 8 · SÍMI 530 2800 · ormsson.is OPIÐ VIRKA DAGA KL.10–18 · LAUGARDAGA KL.12–16 SÍÐUMÚLA 9 · SÍMI 530 2900 · samsungsetrid.is SAMSUNG-SETR IÐ ER HLUT I AF ORMSSON EHF. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Vandræðaástand skapaðist á Sjálandi í Danmörku og suðvest- urhluta Svíþjóðar í gærmorgun í kjölfar úrhellisrigningar. Var ástandið einna verst í Kaup- mannahöfn og Malmö. Samgöngur fóru úr skorðum þegar flæddi yfir götur og járnbrautarteina. Víða flæddi inn í kjallara og höfðu slökkviliðsmenn og starfsmenn öryggisfyrirtækja nóg að gera við að aðstoða. Talsvert eignatjón varð. Vatnsmagnið var slíkt að það náði sums staðar yfir vél- arhlífar bíla á götum úti. Meðal staða sem voru á floti í Kaupmannahöfn um tíma í gær voru skemmtigarðurinn Tívolí í miðborginni og Vestre fangelsið. Skortur var á heitu vatni víða í Kaupmannahöfn í kjölfar flóð- anna. Mestur hluti úrkomunnar á Sjá- landi varð í skýfalli á innan við þrjátíu mínútum.Mældist úrkom- an þá um 120 mm. Meðalúrkoma fyrir Danmörku alla í ágústmán- uði er rétt innan við 70 mm. Þetta er mesta rigningarveður á Sjá- landi frá því sumarið 2011. AFP Úrhelli Bílstjórar lentu í miklum vandræðum í Malmö í Svíþjóð í kjölfar úrhellisrigningar í gær. Bílar á kaf og vegir lokuðust eftir skýfall  Úrhellið skapaði vandræðaástand í Danmörku og Svíþjóð Flokkur evru- andstæðinga í Þýskalandi hefur náð þeim áfanga að fá menn kjörna á fylk- isþingið í Sax- landi. Fékk flokkurinn um 10% atkvæða í kosningum þar í gær. Frjálsir demókratar, sam- starfsflokkur Kristilegra demó- krata í fylkisstjórninni, náðu ekki tilskildum lágmarksfjölda atkvæða og hafa því nú enga þingmenn. Kristilegir demókratar, flokkur Angelu Merkel kanslara, fékk tæp- lega 40% atkvæða og mun áfram leiða fylkisstjórnina.. En flokkurinn þarf að fá nýjan samstarfsaðila. Stanislaw Tillich, forsætisráðherra Saxlands, hefur ekki útilokað að Kristilegir demókratar taki upp samstarf við flokk evru-andstæð- inga, en það þykir þó frekar ólík- legt þar sem Angela Merkel er and- víg samstarfi við flokkinn. KOSIÐ TIL ÞINGS Í SAXLANDI Evruandstæðingar á þingið í Saxlandi Angela Merkel Bandaríkin eiga að útvega her Úkraínu vopn til að hann geti brugðist við inn- rás Rússa í landið. Þetta segir einn áhrifamesti þingmaðurinn á Bandaríkja- þingi, Robert Menendez, formaður utanrík- ismálanefndar öldungadeild- arinnar. Ummælin féllu í morg- unþætti CNN í gær. „Þarna er um að ræða beina innrás Rússa,“ sagði Menendez og vísaði til ástandsins í Austur-Úkraínu. AUKIN HARKA Í GARÐ RÚSSA Bandaríkin útvegi her Úkraínu vopn Robert Menendez Pútín, forseti Rússlands, vill að búið verði til sjálfstætt ríki í Austur- Úkraínu. Hann sagði í samtali við rússneska fjölmiðla í gær að það yrði að hlusta á kröfur íbúa á svæð- inu. ESB hefur gefið Rússlandi eina viku til að breyta um stefnu í mál- efnum Úkraínu. Sambandið sakar Rússa um að styðja uppreisnar- menn í A-Úkraínu með því að senda þeim vopn og peninga og þjálfa hermenn. Ekki var hægt að greina neinn bilbug á orðum Pútíns í gær. ÚKRAÍNUDEILAN Í HNÚT Vill sjálfstætt ríki í austurhluta Úkraínu Donald Tusk, forsætisráðherra Pól- lands, verður forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins og Federica Mogherini verður utanríkis- málastjóri bandalagsins. Þetta var ákveðið á leið- togafundi Evr- ópusambandsins í Brussel á laug- ardaginn. Tusk hefur verið for- sætisráðherra Póllands frá árinu 2007. Hann tekur við af Belg- anum Herman Van Rompuy. Federica Mogherini, utanrík- isráðherra Ítalíu, verður utanrík- ismálastjóri ESB, en hún tekur við af Catherine Ashton. Nú er búið að skipa nýja menn í þrjú æðstu embætti innan Evrópu- sambandsins en Tusk og Mogherini koma til með að vinna náið með Jean-Claude Juncker, nýjum forseta framkvæmdastjórnar ESB. Tusk er 57 ára gamall. Hann mun gegna embætti forseta leiðtogaráðs- ins í tvö og hálft ár. Hann tekur við 1. desember nk. Mogherini gegnir sínu embætti hins vegar í fimm ár, en hún tekur við 1. nóvember. Í gær var tilkynnt að Margareth Vestager, efnahags- og innanrík- isráðherra Danmerkur, tæki sæti í framkvæmdastjórn ESB. Það þýðir nokkra uppstokkun í dönskum stjórnmálum því hún er formaður annars stjórnarflokksins, Radikale Venstre. Morten Östergerd tekur við embætti flokksformanns. Þá verða einhverjar breytingar á skipt- ingu ráðuneyta og ráðherraskipan dönsku ríkisstjórnarinnar í kjölfarið. gudmundur@mbl.is AFP ESB Donald Tusk og Federica Mog- herini eru nýir valdamenn í Brussel. Tusk og Mogherini í forystu  Skipað í helstu embætti hjá ESB Margreth Vestager Fjórtán liðsmenn bandarísku Sea Shepherd samtakanna voru hand- teknir í Sandey í Færeyjum á laug- ardaginn þegar þeir reyndu að trufla grindhvalaveiðar eyjar- skeggja. Sex þeirra voru handtekn- ir í landi og átta í þremur gúmmi- bátum við ströndina. Færeyska lögreglan og danski herinn höfðu mikinn viðbúnað á staðnum. Eftir handtökurnar héldu grind- hvalaveiðarnar áfram og var alls 33 hvölum slátrað. Bandaríski gamanleikarinn B.S. Sheen styrkti aðgerðir Sea Shep- herd manna með fjárframlagi. Hann fordæmdi harðlega dráp grindhvalanna og handtökurnar. gudmundur@mbl.is Handtóku 14 í Færeyjum AFP Leiðtoginn Paul Watson er foringi hinna róttæku Sea Shepherd samtaka.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.