Morgunblaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 10
PIT er fjörugt og hressandi spil sem
hefur þann helsta kost að það er ætl-
að breiðum aldurshópi. Þau yngstu
geta nefnilega spilað þetta spil á
jafnréttisgrundvelli, hvort sem þau
kunna að lesa eður ei.
Gangur spilsins er sá að hver og
einn leikmaður, sem geta verið frá
þremur og upp í átta, reynir að vera
fyrstur til að safna saman öllum spil-
um einnar dýrategundar.
Spil sem leikmenn hafa ekki not
fyrir eru lögð niður samtímis og sé
heppnin með leikmönnum sjá þeir
um spil sem þeir geta nýtt sér. Hverri
dýrategund fylgja 9 spil og sá sem
fyrstur nær að safna 9 eins slær á
bjölluna sem spilinu fylgir og er það
með búinn að vinna lotuna.
Aldur: 7+
Leikmenn: 3-8
Sölustaðir: Bókabúðir, Hagkaup og
fleiri staðir.
Verð: Frá 2.498 kr.
Spil vikunnar: PIT
Þegar bjallan glymur er leiknum
að öllum líkindum lokið
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2014
STOFNAÐ1987
einstakt
eitthvað alveg
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n S k i p h o l t 5 0 a | S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s
M
ál
ve
rk
:
Si
g
u
rb
jö
rn
Jó
n
ss
o
n
Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbær
Í
búar í Reykjanesbæ hafa
vanist því að ný revía líti
dagsins ljós með reglulegu
millibili, nánast eins reglu-
lega og sveitarstjórnarkosn-
ingar eru. Stjórnmálamenn hafa
enda löngum verið skotspónar revíu-
höfunda og í nýrri revíu Leikfélags
Keflavíkur „Með ryk í auga“ er eng-
in undantekning þar á. Reyndar eru
stjórnmálamennirnir ekki þeir einu
sem horft er á með spégleraugum,
heldur á ýmsa menn og málefni,
enda bæjarfélagið stórt og oft og tíð-
um í fréttum. Handritshópur reví-
unnar er fjölmennur, margir
reynsluboltar en einnig nýliðar sem
hafa verið að læra af þeim eldri og
reyndari. Blaðamaður hitti Hjálmar
Hjálmarsson leikstjóra og Arnar
Inga Tryggvason, Arnór Sindra
Sölvason, Jón Bjarna Ísaksson og
Ómar Ólafsson úr röðum höfunda.
Aðrir sem koma að handritsgerðinni
eru Davíð Örn Óskarsson, Gustav
Helgi Haraldsson og Júlíus Guð-
mundsson.
Arnór Sindri Sölvason og Jón
Bjarni Ísaksson eru yngstu höfund-
arnir í handritshópnum, sá fyrri
flutti að fyrir átta árum en sá síð-
arnefndi er fæddur hér og uppalinn.
Þeir segja ólíka handritshöfunda
einmitt vera kostinn við þessa sam-
vinnu. „Handritshópurinn er á mis-
munandi aldri og öll upplifum við
bæjarfélagið á mismunandi hátt. Við
erum heldur ekki öll héðan, t.d. ég,
svo skiptir líka máli hvort þú ert
Keflvíkingur eða Njarðvíkingur,“
sagði Arnór Sindri. Á hugar-
flugsfundunum var ýmsum hug-
myndum og spurningum kastað á
loft, eins og „Hvað dettur okkur í
hug þegar við heyrum orðið Reykja-
nesbær?“ og unnið var út frá því.
Hvað er gott, hvað er slæmt? Jón
Bjarni sagði þá Arnór hafa unnið
mikið saman og þegar kæmi að laga-
textum væri Arnór sérstaklega
lunkinn. Söngur er alltaf vinsæll í
revíum.
Pólitíkin sjálf hálfgerð revía
Aðspurðir hvort alltaf væri af
nógu að taka í Reykjanesbæ stóð
ekki á svari. „Þetta ár hefur verið
stórt og viðburðaríkt. Það voru
kosningar og upp úr þeim kom ný
bæjarstjórn og nýir einstaklingar
settust við völd. Það er auðvitað ekki
langt síðan nýr meirihluti var mynd-
aður en við erum að fara yfir allt sem
hefur verið í gangi sl. 3 ár. Hér er
líka horft á hvernig fyrri meirihluti
sjálfstæðimanna brást við þegar nýr
meirihluti kom að völdum.“ Ómar
Ólafsson og Arnar Ingi Tryggvason
voru sammála um að pólitíkin væri
þannig að það væri svo auðvelt að
fjalla um hana í þessu leikformi, auk
þess sem hún sæi jafnan um sig
sjálf, væri oft hálfgerð revía. „En
hlutirnir verða oft skýrari í svona
spéspegli, þegar maður greinir
kjarnann frá hisminu þá kemur oft
myljandi fyndni í ljós,“ sagði Ómar.
Arnar Ingi bætti við að þetta væri
eiginlega bara naflaskoðun á sam-
félaginu í víðu samhengi og sagðist
lofa miklu fjöri.
Bæjarlífið eins
og þau sjá það
Leikfélag Keflavíkur frumsýndi í gærkvöldi revíuna „Með ryk í auga“ . Margir
höfundar koma að gerð revíunnar, enda sjá augu betur en auga þegar skoða á
spaugilegu hliðar mannlífsins í sveitarfélagi með yfir 14.000 manns
Samherjar? Þeir Gunnar Þórarinsson og Árni Sigfússon virðast sannarlega
ekki sleppa undan handritshöfundum.
Sjóræningi Trausti Björgvinsson leiðtogi Pírata í Reykjanesbæ sleppur
ekki frá revíuhöfundum þó ekki hafi hann komist að í pólitíkinni.
Á morgun, sunnudaginn 2. nóvember,
munu félögin Hola, félag spænsku-
mælandi á Íslandi, og El Molcajete,
félag Mexíkóa búsettra á Íslandi,
halda upp á „Día de los muertos“ eða
„dag hinna dauðu“ á 1. hæð í aðal-
safni Borgarbókasafnsins á milli
klukkan 14 og 16. Að venju verður
sett upp altari hinna dauðu, boðið
upp á „pan de muerto“, eða brauð
hinna dauðu, og skemmtiatriði fyrir
börnin. Allir eru velkomnir á viðburð-
inn.
„Día de los muertos“ er uppruna-
lega mexíkóskur frídagur og er hon-
um fagnað um allt Mexíkó sem og
annars staðar í hinum spænskumæl-
andi heimi. Þennan dag, 1. nóvember,
safnast fjölskylda og vinir saman til
að minnast þeirra sem látnir eru og
er hann tengdur allraheilagramessu
eða allrasálnamessu sem er 2. nóv-
ember. Nánar á www.hola.is.
Vefsíðan www.hola.is
AFP
Hátíð „Día de los muertos“ verður fagnað á Borgarbókasafninu á morgun.
Degi hinna dauðu fagnað
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
„Með ryk í auga“ þótti gott
nafn á revíuna þó að ekki sé ver-
ið að slá ryki í augu áhorfenda.
Nafnið vísar hins vegar til há-
tíðartónleika Ljósanætur
undanfarin þrjú ár sem hafa
gengið undir yfirskriftinni „Með
blik í auga“ eftir samnefndu
dægurlagi en þar hefur verið
farið yfir íslenska tónlistarsögu,
tónlistarmenn og áhrifavalda.
Tilvísun til
Ljósanætur
GOTT NAFN Á REVÍU