Morgunblaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 43
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2014
arafræðum vorið 2011.
Karen vann á frístundaheimilinu
Frístund, síðar Halastjarnan, með
háskólanámi, en á sumrin vann hún
við slátt á Laugarvatni og síðar hjá
Skógrækt ríkisins í Haukadalsskógi.
Hún hóf störf við leikskólann
Vinagerði sumarið 2011 en fékk um
næstu áramót afleysingastöðu í
Foldaskóla sem umsjónarkennari 7.
bekkjar. Haustið 2012 settist Karen
svo aftur á skólabekk og tók annað ár
í íslensku við Háskóla Íslands.
Ekkert taflfélag í Grímsey?
Eftir starf á ferðaþjónustubýlinu
Efsta Dal II sumarið 2013 flutti Kar-
en þvert yfir landið, á fjærstu
byggðu eyjuna, til að kenna við
Grímseyjarskóla í átta mánaða fæð-
ingarorlofi þáverandi skólastjóra.
Eitthvað teygðist úr þessum átta
mánuðum en nú í haust var hún ráðin
skólastjóri Grímseyjarskóla.
Urðu það ekki viðbrigði að vera
allt í einum komin út í Grímsey?
„Jú, óneitanlega, svona fyrst um
sinn. Helstu viðbrigðin voru kannski
þau að geta ekki sest upp í bíl og ekið
í burtu. En þó að þetta sé fámennt
samfélag og afskekkt, er það afar líf-
legt með miklu félagslífi. Hér eru all-
ir bókaðir fram að jólum. Kvenfé-
lagið er alltaf eitthvað að bralla, sem
og Kiwanisklúbburinn. Auk þess
halda Grímseyingar sinn eigin
þjóðhátíðardag sem er fæðingardag-
ur Daniels Willards Fiske, Íslands-
vinar og skákáhugamanns sem gaf
Grímseyingum bókasafn og hverju
heimili taflmenn og skákborð á sín-
um tíma.“
Hver er formaður Taflfélagsins?
„Það er því miður ekki starfrækt í
dag en skólinn heldur sína skákhátíð
og auðvitað er hægt að tefla þó að
ekki sé formlegur skákklúbbur.“
Karen starfar með kvenfélaginu
Baugi í Grímsey: „Ég fer líka reglu-
lega út að ganga með Ipodinn, dansa
með og svo les ég mikið. Það hefur
reyndar alla tíð verið mitt aðaláhuga-
mál. Það má segja að ég hafi nánast
farið lesandi í gegnum lífið.“
Fjölskylda
Systkini Karenar eru Birta Huld
Halldórsdóttir, 14.8. 1979, grunn-
skólakennari á Hellu en unnusti
hennar er Þorsteinn Darri Sigur-
geirsson, grunnskóla- og íþrótta-
kennari, og eiga þau fjögur börn, Al-
mar Mána, Svövu, Halldór Darra og
enn ónefndan dreng; Sævar Þór
Halldórsson, f. 30.10. 1985, land-
vörður og verkefnastjóri hjá þjóð-
garðinum á Þingvöllum, stundakenn-
ari við líf- og umhverfisvísindadeild
Háskóla Íslands og meistaranemi í
landfræði við Háskóla Íslands, bú-
settur á Laugarvatni en unnusta
hans er Erla Dóra Vogler, verðandi
ferða- og menningarmálafulltrúi
Djúpavogshrepps, jarðfræðingur og
óperusöngkona; Snorri Elís Hall-
dórsson, f. 24.5. 1989, starfsmaður í
þjóðgarðinum á Þingvöllum og nemi
í kerfisfræði, búsettur á Laugar-
vatni.
Foreldrar Karenar eru Valgerður
Sævarsdóttir, f. 14.2.1964, bóka-
safns- og upplýsingafræðingur, for-
stöðumaður bókasafns Mennta-
skólans að Laugarvatni og formaður
byggðaráðs Bláskógabyggðar, og
Halldór Páll Halldórsson, f. 29.8.
1957, skólameistari Menntaskólans
að Laugarvatni. Þau eru búsett á
Laugarvatni.
Úr frændgarði Karenar Nætur Halldórsdóttur
Karen Nótt
Halldórsdóttir
Finnur Sveinbjörnsson
skipstj. í Eyrarsveit
Halla Halldórsdóttir
verkak. og húsfr. í
Eyrarsveit
Halldór Finnsson
sparisjóðsstj. og oddviti
í Grundarfirði
Pálína Gísladóttir
kaupm. og húsfr. í
Grundarfirði
Halldór Páll Halldórsson
skólameistari Menntask.
að Laugarvatni
Gísli Karel Elísson
verkam. í Eyrarsveit
Jóhanna H. Jónsdóttir
húsfr. í Eyrarsveit
Guðmundur Kjartan
Guðmundsson
sjóm. á Siglufirði
Valgerður K. Þorsteinsdóttir
síldarstúlka og húsfr. á
Siglufirði
Jóhann Sævar
Guðmundsson
húsasm. á Selfossi
Þóra Björg Ögmundsdóttir
verslunarm. á Selfossi
Valgerður Sævarsdóttir
forstöðum. bókasafns
ML og form. byggðaráðs
Bláskógabyggðar
Ögmundur Ólafsson
vélstj. í Vestmannaeyjum
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Vestmannaeyjum
Á fyrsta árinu Karen Nótt varð
snemma mikill bókaormur.
Björn Ólafsson verkfræðingurfæddist í Múlakoti í Hörg-landshreppi í Vestur-
Skaftafellssýslu 1.11. 1930, sonur
Ólafs Bjarnasonar, blikksmiðs í
Reykjavík, og Sigríðar Jónínu
Tómasdóttur húsfreyju.
Foreldrar Ólafs voru Bjarni
Bjarnason, bóndi í Hörgsdal, og k.h.,
Helga Pálsdóttir húsfreyja, en for-
eldrar Sigíðar Jónínu voru Tómas
Jónsson, bóndi á Saurum í Stað-
arsveit, og k.h., Margrét Jónsdóttir
húsfreyja.
Eftirlifandi eiginkona Björns er
Hulda Sigurbjörg Guðmundsdóttir,
fyrrv. bankastarfsmaður og eign-
uðust þau fjögur börn.
Björn lauk stúdentsprófi frá MR
1952, fyrrihlutaprófi í bygging-
arverkfræði frá HÍ 1955 og verk-
fræðiprófi frá RWTH í Aachen í
Þýskalandi 1962.
Björn var verkfræðingur hjá
Vegagerð ríkisins 1962-66 og starf-
aði þá m.a. við hönnun og eftirlit með
Reykjanesbrautinni og var umdæm-
isverkfræðingur Suðurlands 1963-
66, var verkfræðingur og yfirverk-
fræðingur hjá Framkvæmdanefnd
byggingaráætlunar í Reykjavík
1966-70 og starfrækti eigin verk-
fræðistofu frá 1970 sem lengst af sá
einkum um eftirlit, samninga, hönn-
un og hönnunarstjórnun.
Björn var framkvæmdastjóri
byggingaráætlunar Vestmannaeyja
1973-75, hönnunarstjóri hjá fram-
kvæmdadeild Innkaupastofnunar
ríkisins 1988, sá um hönnun, eftirlit
og umsjón með framkvæmdum við
flugvelli 1990, ásamt fleiru.
Björn sat í Stúdentaráði, var for-
maður Félags verkfræðinema, vara-
borgarfulltrúi í Reykjavík og sat í
stjórn Veitustofnana, í skipulags-
nefnd Kópavogs, var bæjarfulltrúi í
Kópavogi, sat þar í bæjarráði og var
formaður bæjarráðs í tvígang, í ýms-
um nefndum og ráðum á vegum bæj-
arfélagsins, í fulltrúaráði Sambands
íslenskra sveitarfélaga, í stjórn
SASÍR og SSH, var formaður nýt-
ingar Krísuvíkurskóla og formaður
skólanefndar Tækniskóla Íslands.
Björn lést 12.6. 1992.
Merkir Íslendingar
Björn
Ólafsson
Laugardagur
90 ára
Aðalbjörg Vigfúsdóttir
85 ára
Elín B. Kristbergsdóttir
Hafsteinn Ágústsson
80 ára
Arnþór Sigurðsson
Halla Haraldsdóttir
Pálmi Jónsson
Stefán Kjartansson
75 ára
Esther Stefanía
Guðmundsdóttir
Gunnar Ágústsson
Reynir Torfason
70 ára
Anna Magnúsdóttir
Anna S. Ingvarsdóttir
Bergljót Frímann
Björn Úlfar Sigurðsson
Davíð Pétursson
Erlendur Örn Eyjólfsson
Hu Dao Ben
Jón S. Friðjónsson
Kjartan Kjartansson
Margrét Dóra Jónsdóttir
Margrét Geirsdóttir
Viðar Norðfjörð Sigurðs-
son
60 ára
Bergljót Sigvaldadóttir
Elín S. Kristjánsdóttir
Jón Magnússon
Kolbrún Guðmundsdóttir
Kristján Ágúst Baldursson
María Anna Þorsteins-
dóttir
Ragna Sigríður
Kjartansdóttir
Vilborg Hjálmarsdóttir
Þórður Axel Ragnarsson
50 ára
Aðalheiður Þorsteinsdóttir
Anna Lóa Ólafsdóttir
Arne Wehmeier
Guðmundur L. Pálsson
Guðmundur Skúli
Hartvigsson
Heiðar Stanley Smárason
Hildur Guðnadóttir
Iða Mary Guðmundsdóttir
Ingunn Sigurðardóttir
Kristrún Olly Smáradóttir
Margrét Pétursdóttir
María Gunnarsdóttir
Nabeeh Tawfik Naimi
Ólafur Guðjón Reynisson
Sigríður Jóakimsdóttir
40 ára
Atli Þór Þórsson
Brynjólfur Borgar Jónsson
Grzegorz Andrzej Halys
Harpa Hrönn Grétarsdóttir
Jóhann Þór Línberg
Kristjánsson
30 ára
Arnar Ómarsson
Arngrímur Vídalín
Stefánsson
Birgir Alexandersson
Birkir Helgason
Brynhildur Jóhannsdóttir
Brynjar Ýmir Birgisson
Davíð Örn Þorkelsson
Helga Dögg Reynisdóttir
Hjalti Daðason
Jón Viðar Viðarsson
Orri Wiium
Sigurður Haukur Bjarna-
son
Sóley Valdimarsdóttir
Véný Guðmundsdóttir
Sunnudagur
90 ára
Sigríður Vilmundardóttir
85 ára
Guðmundur Sigurðsson
Hjördís A. Briem
Jórunn Erla Þorvarð-
ardóttir
Sigríður V. Árnadóttir
Valgerður Ólafsdóttir
Þorsteinn Þórðarson
80 ára
Haraldur Kristjánsson
Jósep Guðmundsson
Sigríður Kristín Árnadóttir
75 ára
Davíð J. Óskarsson
Pétur Haukur Jónsson
Sveinbjörn Runólfsson
Þórleif Skarphéðinsdóttir
70 ára
Ari Guðmundsson
Ágústa Bárðardóttir
Ása Sigurjónsdóttir
Einar Long Siguroddsson
Guðjón Antonsson
Halldóra Ragnarsdóttir
Hjördís Björg Kristinsdóttir
Jóna Garðarsdóttir
Jón Guðlaugur
Sigtryggsson
Jón Sigfús Bjarnason
Svanhvít Ragnarsdóttir
Sveinbjörn Benediktsson
Sveinbjörn Steingrímsson
60 ára
Hansína Sigurðardóttir
Hjalti Sævar Hjaltason
Jóhanna Bogadóttir
Jón Haukur Edwald
Jón Oddsson
Jón Reynir Sigurvinsson
Lúðvík Matthíasson
Magnea Traustadóttir
Marvin Raiss
Pétur Heimisson
Þorvaldur H. Kolbeins
Þröstur Elfar Hjörleifsson
50 ára
Arnar Gústafsson
Ágúst Liljan Sigurðsson
Ásta Sigrún Helgadóttir
Bergþóra Sigurðardóttir
Guðni Elísson
Hafsteinn Þ. Benediktsson
Hulda Jóhanna
Eðvaldsdóttir
Hörður Harðarson
Jacinto E. De O. Sousa
Araujo
Jóhann Gylfason
Ólafur Haukur Ólafsson
Ronald Björn Guðnason
Sigríður Thorsteinson
Stefano Rosatti
Þór Sigfússon
40 ára
Áslaug Baldursdóttir
Bjarni Rúnar Hallsson
Erla Sigurðardóttir
Halldóra Halldórsdóttir
Hjalti Guðjónsson
Laufey Heimisdóttir
Víðir Ágústsson
30 ára
Björk Þorgrímsdóttir
Finnur Loftsson
Friðrik Steinn Friðriksson
Hannes Þór Kvaran
Heiðdís Jóna
Ingibjörnsdóttir
Karen Sif Sverrisdóttir
Karl West Karlsson
Katarzyna Ciechanowska
Runólfur Þór Sanders
Sif Hermannsdóttir
Sindri Viðarsson
Til hamingju með daginn
Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150
60 ára reynsla á Íslandi
Fæst í öllum helstu
raftækjaverslunum
Með losanlegum grillplötum
• Ný Permacoat húðun, viðloðunarfrí
húðun sem veitir 3x lengri endingu
• Bakki sem tekur við fitu
• Allt að 42% fita
lekur af kjötinu
Nýju Russell Hobbs grillin
(George Foreman) eru komin
Með losanlegum grillplötum
semmega fara í uppþvottavél
3 stærðir