Morgunblaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 26
Á flótta vegna átaka í Austur-Úkraínu
Heimild: Flóttamanna-
fulltrúi SÞ
430.059
Á flótta í Úkraínu
KÆNU-
GARÐUR
Donetsk
Krím
UNGVERJALAND
HVÍTA-RÚSSLAND
SLÓV.
PÓLLAND
MOLDÓVA
RÚMENÍA
ÖNNUR
ESB-LÖND
Svarta-
haf
Sevastopol
ÚKRAÍNA
Innlimað í Rússland
100 km
Lúhansk
Á valdi aðskilnaðarsinna
387.355
RÚSSLAND
30.581
23.801
5.627
5.447
1.528
flóttamenn
6.600
95% frá
austurhéruðunum
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Jens Stoltenberg, framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins, var-
aði í gær stjórnvöld í Rússlandi við
því að viðurkenna úrslit kosninga
sem aðskilnaðarsinnar í austurhér-
uðum Úkraínu efna til á yfirráða-
svæðum sínum á morgun, sunnudag.
„Yfirlýsingar embættismanna í
Rússlandi um að landið ætli að viður-
kenna þessar svokölluðu kosningar
sýna að Rússar halda áfram að grafa
undan Úkraínu,“ sagði Stoltenberg.
Hann bætti við að kosningarnar í
„alþýðulýðveldum“ aðskilnaðarsinna
í Donetsk og Lúhansk græfu einnig
undan tilraunum til að binda enda á
átök sem hafa kostað yfir 3.700
manns lífið frá því í apríl. Kosning-
arnar væru brot á vopnahléssamn-
ingi sem stjórn Úkraínu og leiðtogar
aðskilnaðarsinnanna undirrituðu í
Hvíta-Rússlandi í september.
Stórt skref í sjálfstæðisátt?
Petro Porosénkó, forseti Úkraínu,
Francois Hollande, forseti Frakk-
lands, og Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, ræddu í gær í síma við
Vladímír Pútín Rússlandsforseta og
hvöttu hann til að viðurkenna ekki
úrslit kosninganna. Talsmaður Pút-
íns sagði að hann hefði hvatt til við-
ræðna milli stjórnvalda í Úkraínu og
aðskilnaðarsinna.
Áður en stríðið hófst voru um
fimm milljónir skráðra kjósenda á
svæðunum þar sem kosið verður á
morgun en hundruð þúsunda hafa
flúið þaðan vegna átakanna. Allir
frambjóðendurnir í leiðtogakosning-
unum eru hlynntir sjálfstæði austur-
héraðanna og auknum tengslum við
Rússland. Engir alþjóðlegir eftirlits-
menn hafa verið sendir á svæðin.
Konstantín Kalatsjev, stjórnmála-
skýrandi í Moskvu, telur að kosning-
arnar geti verið mikilvægt skref í
baráttu austurhéraðanna fyrir sjálf-
stæði þótt óljóst sé hvaða ríki viður-
kenni „alþýðulýðveldin“.
Vara Rússa við því að
viðurkenna leiðtogakjör
Aðskilnaðarsinnar sagðir grafa undan friðarumleitunum
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2014
Rústir húss í yfirgefnu þorpi við eldfjallið Sinab-
ung á vesturhluta eyjunnar Súmötru. Eldgos
sem hófst þar í febrúar kostaði 17 manns lífið og
33.000 þurftu að flýja heimili sín. Þetta er annað
gosið í Sinabung-fjalli frá árinu 2010 þegar það
tók að gjósa eftir að hafa legið í dvala í fjórar
aldir. Indónesía er á svæði sem nefnt hefur verið
„Eldhringurinn“ og liggur umhverfis Kyrrahaf.
Þar eru meira en 75% eldfjalla heimsins.
Eldfjallið Sinabung olli usla eftir að hafa legið í dvala í fjórar aldir
Yfir 33.000 manns flúðu heimkynni sín
AFP
Ítalskur maður
sem skrifaði orð-
in „staðfest“ og
„ebóla“ á kaffi-
bolla til að stríða
dóttur sinni þarf
að greiða 2.500
evrur, eða rúmar
383.000 krónur, í
sekt vegna at-
hæfisins.
Maðurinn var í
flugvél þegar hann skrifaði á boll-
ann og mikið uppnám varð þegar
áhöfn vélarinnar rak augun í text-
ann.
Maðurinn var á leið á ráðstefnu á
Írlandi og voru kona hans og dóttir
hans með í för. Þau voru öll hand-
tekin við lendingu í Dublin. Svæðið
í kringum flugvélina var einnig girt
af. 142 farþegar voru í flugvélinni.
Maðurinn sagði að dóttir sín væri
frekar sýklahrædd og því hefði
hann ákveðið að skrifa þetta á boll-
ann til að stríða henni.
ÍRLAND
Farþegi sektaður
fyrir ebólugrín
Ebóla er ekkert
grín.
Blaise Compaore,
forseti Búrkína
Fasó, tilkynnti í
gær að hann hefði
sagt af sér vegna
óeirða sem bloss-
uðu upp þegar
hann reyndi að
knýja fram
stjórnar-
skrárbreytingu til
að geta gegnt forsetaembættinu
lengur. Compaore hafði verið við völd
í 27 ár.
Tugir þúsunda mótmælenda fögn-
uðu ákaft á götum Ouagadougou, höf-
uðborgar landsins, þegar talsmaður
hersins greindi frá afsögn forsetans.
Daginn áður kveiktu mótmælendur í
þinghúsinu og stjórnarbyggingum
eftir að Compaore boðaði breytingu á
stjórnarskránni. Seinna sagði Com-
paore að hann myndi ekki sækjast
eftir endurkjöri en sitja áfram þar til
á næsta ári. Stjórnandstaðan var ekki
sátt við þetta og krafðist þess að for-
setinn léti tafarlaust af embætti.
Stjórnmálaskýrendur sögðu að fall
Compaore gæti haft áhrif í öðrum
Afríkuríkjum þar sem þaulsætnir
þjóðhöfðingjar hafa íhugað stjórnar-
skrárbreytingu til að halda völd-
unum.
Forsetinn
knúinn til
afsagnar
Afsögninni fagnað.
Þaulsætinn leið-
togi gaf loks eftir
Trjáklippingar
Trjáfellingar
Stubbatæting
Vandvirk og snögg þjónusta
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is