Morgunblaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2014
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Sýningarnar Flatland eftir Sirru Sig-
rúnu Sigurðardóttur og Veraldir og
vegir með verkum austurríska
myndlistarmannsins Gunter Dam-
isch verða opnaðar í Hafnarhúsinu,
Listasafni Reykjavíkur, í dag, laug-
ardag, klukkan 16. Sýning Damisch,
sem er fæddur árið 1958, gefur gott
yfirlit yfir sköpun hans frá því
snemma á níunda áratugnum til
dagsins í dag. Hann sýnir grafíkverk
og skúlptúr en listamaðurinn hefur
gefið Listasafni Reykjavíkur verkin.
Hann varð þekktur í Evrópu strax á
níunda áratugnum sem einn „hinna
villtu“, Neue Wilde, hóps ungra lista-
manna sem brást við hnignum mál-
verksins með því að mála kröftugar
myndir. Hann hefur frá árinu 1992
verið prófessor við Listaháskólann í
Vínarborg.
Damisch segist hafa þekkt verk
Errós síðan á unglingsárum og þau
hafi haft mikil áhrif á sig. Þeir eru á
mála hjá sama galleríi í Vín og það er
að heyra sem það hafi haft áhrif á þá
ákvörðun listamannsins að gefa safn-
inu öll þess kröftugu og athygl-
isverðu grafíkverk.
„Ég hef árum saman verið afar
áhugasamur um norræna menningu;
upphaflega menningu kelta, þá ís-
lenska og síðan skandinavíska,“ segir
hann. „Ég er áhugasamur um krafta
náttúrunnar og um bókmenntir – ég
hef lengi verið aðdáandi Halldórs
Laxness, og hef dáðst að því hvernig
land jafn fámennt og Ísland getur al-
ið svo marga áhugaverða listamenn.
Nú hef ég unnið lengi að list minni
og þar hefur farið mikið fyrir jafn-
vægisdansi milli abstraksjónar og
konkret hluta. Þessir konkret þættir
eru í raun ekkert annað en lífið og at-
hafnir mannanna. Í verkunum er
leikur sem ég nýt, með staði og að-
stæður manna og dýra.“
Damisch segist hafa alist upp við
ríkulega sagnalist og þess megi sjá
stað í verkunum. „Og ég held að slík-
ur sagnaarfur sé nær yfirborði
menningarinnar hér á Íslandi en í að
minnsta kosti flestum öðrum lönd-
um,“ segir hann. „Sögur skipta lík-
lega enn meira máli í löndum þar sem
fólk býr í nánu sambýli við öfluga
náttúru. En mig hafði lengi langað til
að koma til Íslands og lét loks verða
af því síðasta sumar. Það var ánægju-
legt að geta boðið safninu úrval verka
eftir mig. Þetta eru allt grafíkverk en
ég hef unnið í grafíkmikiðilinn síðan
ég hóf ferilinn. Og þótt ég hafi málað
mikið og gert skúlptúra, einnig samið
tónlist, þá er grafíkin á vissan hátt
kjarninn í allri minni sköpun. Í þess-
um miðli er svo spennandi að koma
hugmyndum á framfæri, og það er
auðveldara líka en til að mynda í
stórum málverkum.“
Í fyrra setti Damisch upp stóra
sýningu með grafík í hinu virta Al-
bertina-safni í Vín og hér gefst tæki-
færi til að njóta hluta verkanna.
Gengist inn á valdið
Sirra Sigrún sýnir í salnum á jarð-
hæð Hafnarhússins og meðal annars
myndbandsverkið „Panoptigon“ í
myrkvuðu átthyrndu rými sem hefur
verið byggt í honum miðjum.
„Það byggist á arkitektúrískri
hugmynd sem kom upp undir lok 18.
aldar sem form á fangelsi,“ segir hún.
Á veggjum salarins má sjá að-
greindar mannsmyndir sem eru
kvikmyndaðar með innrauðri tækni.
„Þetta átti að vera hringlaga bygging
þar sem fanganir væru í einkaklefum
með útveggjum, á mörgum hæðum.
Þeir sæju ekki hver annan en í varð-
turni í miðjunni þyrfti bara eitt vak-
andi auga til að fylgjast með öllum.
Það eru til svona byggingar, í Suður-
Ameríku og Bandaríkjunum.
Í dag birtist ákveðið sjónarhorn á
þessa hugmynd, í þessu netvædda
samfélagi þar sem hægt er að fylgj-
ast með okkur öllum stundum. Og við
göngumst flest inn á það vald.“
Titill sýningarinn, Flatland, er vís-
un í bók sem kom út árið 1884. „Það
er stærfræðiskáldsaga um ferning
sem lifir í tvívíðum heimi. Svo fær
hann heimsókn frá þvívíðum heimi og
þá verður bylting. Mér fannst áhuga-
vert að nota það sem útgangspunkt,
að með því að skipta um sjónarhorn
megi öðlast aðrar víddir.“
Austurrísk grafík og „Panoptigon“
Damisch og
Sirra Sigrún sýna
í Hafnarhúsinu
Morgunblaðið/Einar Falur
Damisch Austurríski listamaðurinn segir grafíkverk vera að vissu leyti
kjarnann í sinni sköpun. Hann gefur Listasafni Reykjavíkur verkin.
Morgunblaðið/Einar Falur
Myndbandsverk Sirra Sigrún byggir þetta verk sitt, þar sem sjá má ein-
angraðar manneskjur í hólfum, á hugmynd frá átjándu öld.
Framleiðslufyrirtækið Join Motion
Pictures leitar nú að ungum leik-
urum fyrir kvikmyndina Hjarta-
stein eftir Guðmund Arnar Guð-
mundsson sem áætlað er að fari í
tökur í ágúst á næsta ári. Strákar
á aldrinum 11-17 ára og stelpur
12-17 ára eru hvött til að sækja
um en áheyrnarprufur verða
haldnar í þessum mánuði.
Hjartasteinn gerist um sumar í
litlu sjávarþorpi á Íslandi og
fjallar um sterka vináttu tveggja
drengja sem eru að taka sín fyrstu
skref inn í unglingsárin og upp-
götva ástina, eins og segir í til-
kynningu. Guðmundur er handrits-
höfundur og leikstjóri
myndarinnar
sem verður
fyrsta kvikmynd
hans í fullri
lengd.
Áhugasömum
er bent á að
sækja um með
því að senda
eina til þrjár ný-
legar ljósmyndir
og fullt nafn,
aldur og hæð, símanúmer og nafn
forráðamanns á netfangið cast-
ing@joinmotionpictures.com fyrir
15. nóvember. Nánari upplýsingar
má finna á www.facebook.com/-
heartstonethemovie.
Leitað að ungum leikurum í kvikmynd
Guðmundar Arnar, Hjartastein
Guðmundur A.
Guðmundsson
Söngskemmtunin Töfrar Tom Jon-
es verður frumsýnd í Austurbæ í
kvöld kl. 20. Á henni verða fluttir
allir helstu smellir hins heims-
kunna söngvara Toms Jones, af
söngvurum og hljómsveit, lög á
borð við „Delilah“, „Sex Bomb“,
„It’s Not Unusual“, „What’s New
Pussycat“, „You’ll Never Walk
Alone“, „Green Green Grass of
Home“ og „You Can Leave Your
Hat On“.
Matthías Matthíasson, Friðrik
Ómar, Jógvan Hansen, Erna
Hrönn og Margrét Eir syngja lög-
in við undirleik hljómsveitar en
hana skipa trompetleikararnir Ív-
ar Guðmundsson og Ari Bragi
Kárason, básúnuleikarinn Bergur
Þórisson, saxófónleikarinn Steinar
Sigurðarson, bassaleikarinn Ró-
bert Þórhallsson, píanóleikarinn
Stefán Örn Gunnlaugsson, tromm-
arinn Benedikt Brynleifsson, Diddi
Guðnason sem leikur á pákur og
slagverk og gítarleikarinn Krist-
ján Grétarsson. Yesmine Olsson
sér um dansa sýningarinnar.
Ljósmynd/Gassi
Fjör Af þessari mynd að dæma verður mikið fjör á Töfrum Tom Jones í kvöld.
Helstu slagarar Jones fluttir í Austurbæ
BRÁÐSKEMMTILEG
MYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
Ísl. tal
-H.S., MBL
POWERSÝNING
KL. 10:10
Töff, naglhörð og
dúndurskemmtileg
hefndarmynd sem ætti
alls ekki að valda
hasarunnendum
vonbrigðum.
-T.V. - Bíóvefurinn.is
Hörku spennumynd
Keanu Reeves
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
16
16
16
L
L
L
JOHN WICK Sýnd kl. 5:50-8-10:10 (power)
GRAFIR OG BEIN Sýnd kl. 6 - 8
BORGRÍKI 2 Sýnd kl. 3:45-5:50-8-10:10
FURY Sýnd kl. 10:10
KASSATRÖLLIN 2D Sýnd kl. 1:45 - 3:50
KASSATRÖLLIN 3D Sýnd kl. 1:40
SMÁHEIMAR 2D Sýnd kl. 1:40 - 3:45
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
MARGUR ER
KNÁR
ÞÓTT HANN SÉ
SMÁR...