Morgunblaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 46
Söfn • Setur • Sýningar
Laugardagur 1. nóvember kl. 14:
Ókeypis barnaleiðsögn um Silfur Íslands
Sunnudagur 2. nóvember kl. 14-16: Áttu forngrip í fórum þínum?
Sérfræðingar Þjóðminjasafns greina forngripi gesta.
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
Svipmyndir eins augnabliks. Ljósmyndir Þorsteins Jósepssonar í Myndasal
Natríum sól á Veggnum
Silfur Íslands í Bogasal, Silfursmiður í hjáverkum í Horni
Maðurinn sem stal sjálfum sér örsýning á Torgi
Spennandi ratleikir fyrir alla krakka
Safnbúð og kaffihús
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið frá 11-17 alla daga nema mánudaga.
Listasafn Reykjanesbæjar
FERÐ – Finnur Arnar Arnarson
31. október – 21. desember
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Hönnun - Net á þurru landi
Listasafn Erlings Jónssonar
Opið virka daga 12-17,
helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
Verið
velkomin
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ÍSLANDS
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 10-17, lokað mánudaga.
STEINA & WOODY VASULKA - VÉLRÆN SÝN 3.10. - 2.11. 2014
SÍÐASTA SÝNINGARHELGI!
Næstu sýningar:
JÓN ÓSKAR - NÝ VERK 7.11. 2014 - 8.2. 2015
LISTASAFN ÍSLANDS 1884-2014 - VALIN VERK ÚR SAFNEIGN
7.11. 2014 - 8.2. 2015
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906,
SPOR Í SANDI, Sigurjón Ólafsson Yfirlitssýning 24.5. - 30.11. 2014
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Lokað í des. og jan. www.lso.is
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sýningarnar, HÚSAFELL ÁSGRÍMS og FORYNJUR. Opið sunnudaga kl. 14-17.
Verk úr safneign
Elías B. Halldórsson
Opið 12-17,
fimmtudaga 12-21,
lokað þriðjudaga.
www.hafnarborg.is,
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2014
Tónleikar í röðinni Ungir einsöngv-
arar verða í Langholtskirkju á
morgun, sunnudag, klukkan 17.
Fram koma þau Anna Guðrún Jóns-
dóttir, Árný Björk Björnsdóttir,
Davíð Ólafsson, Gyrðir Viktorsson,
Sigríður Ásta Olgeirsdóttir, Silja
Elsabet Brynjarsdóttir og Solveig
Óskarsdóttir, ásamt píanóleikar-
anum Kristni Erni Kristinssyni.
Ungu einsöngvararnir syngja öll
í Kór Langholtskirkju og stunda
söngnám, annaðhvort í Söngskól-
anum í Reykjavík eða Söngskóla
Sigurðar Demetz. Á tónleikunum
verður meðal annars flutt tónlist
eftir Bizet, Strauss, Mozart, Weber
og Gluck.
Efnileg Ungir einsöngvarar koma fram á tónleikunum á morgun kl. 17.
Ung syngja í Langholtskirkju
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Hún er nokkuð einstök, stað-an sem Taylor Swift er ídag. Ekki jafn rosalega
áberandi og kollegar á borð við
Beyonce, Miley Cyrus, Rihanna,
Lady Gaga eða Katy Perry vegna
þess að hún sleppir því að stíma inn
á sjokkmiðin en sölutölurnar á bak
við hana eru á sama tíma sláandi.
Plötur hennar og lög hafa selst í
tugmilljóna tali og verðlaun af
ýmsu tagi, í popp- og kántrígeir-
anum, skipta tugum.
En þó að hún sé lítið fyrir að
glenna sig fetar hún heldur ekki
dulúðugu slóðirnar sem Lorde og
Lana Del Rey lötra eftir. Hún er
þarna einhvers staðar á milli hins-
vegar og þar með erum við komin
að helsta styrk hennar. Hún er að
brúa bil með mun árangursríkari
hætti en í tilfelli allra þeirra sem ég
taldi upp. Á meðan unglingarnir
hrista hausinn við smellina og lepja
upp myndböndin sitja menningar-
rýnar nefnilega sveittir og rita
djúpspaka langhunda um list henn-
ar fyrir miðla eins og New York
Times og Guardian (nú, eða
Morgunblaðið). Þá á hún um leið
stóreflis aðdáendahóp í Suður-
ríkjum Bandaríkjanna en ferilinn
hóf hún sem kántrístjarna. Það er
eitthvað gamaldags við Swift, eitt-
hvað klassískt og t.a.m. er hún ein
af fáum listamönnum í dag sem
moka út plötum í efnislegu formi.
Þetta sem hægt er að handleika,
man einhver eftir því?
Popparkitekt
Swift er fædd árið 1989, eins og
titill nýjustu plötunnar undirstrikar
og fyrsta plata hennar, samnefnd
henni, kom út árið 2006. Hún hafði
flutt til Nashville fjórtán ára gömul
og fljótlega fór hún að vefja þessu
rammgerða virki kántrítónlistar-
innar um fingur sér. Önnur plata
hennar, Fearless (2008) var mest
selda plata Bandaríkjanna það árið
og á henni hóf hún að færa sig úr
kántríi yfir í poppaðri tónlist, ekki
ósvipað og leiðin sem Shania Twain
fetaði í upphafi tíunda áratugarins.
Á síðustu plötu sinni, Red (2012),
voru þessi umskipti orðin alger,
tónlistin nútíma popp sem teygði sig
í allar áttir og fangaði giska stóran
og fjölskrúðugan hóp hlustenda.
Megnið af plötunni samdi hún sjálf
en þeirri staðreynd að hún geti
raunverulega samið tónlist upp á
eigin spýtur er hampað linnulaust í
miðlum og kannski ekki að undra.
Ein á toppnum
Himnasæla Swift er flutt til New York og fjallar m.a. um það á plötunni.
Meðsemjendur á þeirri plötu eru
m.a. Gary Lightbody úr Snow Pat-
rol, Ed Sheeran og Max Martin,
sænski popparkitektinn sem átti
mikilvæga hlutdeild í farsæld Brit-
ney Spears á sínum tíma.
Nýja platan er steypt í svipað
mót og Swift hefur lýst því opin-
berlega yfir að hún hafi nú rifið af
sér síðustu kántrísnærin. Platan er
því algert „popp“ og segist hún m.a.
undir áhrifum frá glyskenndu meg-
instraumspoppi því sem í gangi var
er hún fæddist og nefnir til aðila
eins og Fine Young Cannibals, Phil
Collins og Annie Lennox. Platan er
kulsæknari en fyrri verk, módern-
ísk svo sannarlega, en aðdáendur
taka þessu öllu saman opnum örm-
um. Platan er ekki að seljast í bíl-
förmum, gámum frekar, og þannig
runnu 600.000 eintök út úr Target-
búðunum bandarísku daginn sem
hún kom út. Billboard spáir milljón
eintaka sölu þessa fyrstu viku og
ríflega það.
Æðrulaus
Merkilegur er þá áhugi popp-
blaðamanna og -fræðinga á Swift
sem lofa hana í hástert, einkum og
sér í lagi fyrir tónlistina (já, það er
skringilegt að þurfa að taka þetta
sérstaklega fram). Á meðan þurfa
Lady Gaga, Katy Perry og Beyonce
venjulega að þola yfirlætisfull skrif
úr póstmódernískum blekbyttum
miðaldra karla þar sem ímynd,
merking, pólitík – allt annað en tón-
list – eru í brennideplinum. En hví
þessi mikli áhugi úr þessari átt?
Hvað er það sem þessir „synir al-
búmsins“ eru að tengja við?
Kannski fortíðarþrá eftir þeim tíma
þegar listamenn eins og Bruce
Springsteen, Michael Jackson, Ma-
donna og Prince gáfu út plötur með
lögum sem áttu eftir að standast
tímans tönn, plötur sem fengust út í
búð og ekkert meira með það. Þetta
er auðvitað einföldun en það er ein-
hver jarðtenging sem virðist heilla
þennan hóp. Swift er um leið engin
dúkka og hún vinnur meðvitað með
þann sjarma sem hún hefur. Í ný-
legu viðtali við Guardian sagði hún
að þetta væri lífið sem hana hefði
dreymt um síðan hún var krakki.
Hún er æðrulaus í því spjalli, þakk-
lát og áhugasöm og minnist aldrei á
hlekki frægðarinnar sem svo marg-
ir grípa í.
Hættumerkin liggja hins vegar
í því að Swift vill höfða til allra og
eins og er þá er hún að komast upp
með það en orkan sem fer í slíka
viðleitni er oft á kostnað listarinnar.
Red er eins og vel heppnað mósaík,
heildstætt verk en samsett úr ólík-
um brotum sem fanga athygli ólíkra
hópa. Á 1989 er haldið á sömu mið.
Hann er ekki amalegur, sá árangur
að það er hægt að spjalla um þig við
mömmu og Gumma frænda, skeggj-
aða „hipsterinn“ sem vinnur á Kex.
Það verður hins vegar forvitnilegt
að sjá hvort Swift haldi þá metn-
aðarfullu sendiför út næstu misseri.
»Hún er æðrulaus íþví spjalli, þakklát
og áhugasöm og minnist
aldrei á hlekki frægðar-
innar sem svo margir
grípa í.
Taylor Swift er ein vinsælasta poppstjarna samtímans
Nýjasta plata hennar, 1989, kom út í upphafi vikunnar
Á tónleikum í
Háteigskirkju á
sunnudag kl. 17
flytur Tríó aftan-
blik tónlist eftir
Johann Sebast-
ian Bach og
sálma eftir Björn
Halldórsson í
Laufási. Úr
smiðju Bach verður flutt trúarleg
tónlist; fögur sönglög og aríur sem
tónlistarunnendur þekkja, á borð
við „Slá þú hjartans hörpustrengi“,
„Air“ og „Mein glaubiges herze“.
Björn Halldórsson er eitt af kunn-
ustu sálmaskáldum þjóðarinnar og
orti bæði veraldleg ljóð og sálma.
Þekktir sálmar hans, á borð við
„Sjá himins opnast hlið og „Á hend-
ur fel þú honum“, fá að hljóma á
tónleikunum. Tríó aftanblik skipa
Gerður Bolladóttir sópran,Victoria
Tarevskaia sellóleikari og Katalin
Lörencz á orgel.
Flytja verk eftir
Bach og Björn
J. S. Bach
Bandaríski bassabarítóninn Samuel
Ramey mun syngja á jólatónleikum
tenórsins Kristjáns Jóhannssonar
sem fram fara í Eldborgarsal
Hörpu 7. desember nk. Ramey á að
baki glæsilegan óperuferil og þykir
einn besti bassabarítónn óperu-
heimsins síðustu áratugi og búa yf-
ir óhemjumikilli breidd.
Auk Ramey syngja með Kristjáni
Herdís Anna Jónasdóttir sópran,
Óperukórinn í Reykjavík og sinfón-
íuhljómsveit leikur undir. Stjórn-
andi á tónleikunum verður Garðar
Cortes.
Á vef umboðsskrifstofunnar Ave,
sem sér um skipulag tónleikanna,
kemur fram að þeir verði léttklass-
ískir og hátíðlegir tónleikar með
fjölda þekktra jólalaga, ásamt völd-
um perlum úr heimi óperunnar í
flutningi einvalaliðs frábærra lista-
manna. Tónlistarstjóri er Sigurður
Snorrason klarinettuleikari.
Samuel Ramey syngur á
jólatónleikum Kristjáns
Stórsöngvari Ramey er einn besti
bassabarítónn óperuheimsins.
Ljósmynd/Tanja Niemann