Morgunblaðið - 01.11.2014, Page 37

Morgunblaðið - 01.11.2014, Page 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2014 ✝ Ingibjörg Sig-ríður Sigurðar- dóttir fæddist 15. september 1924 í Sauðhaga á Völl- um. Hún lést á hjúkrunardeild Heilbrigðisstofn- unar Austurlands á Egilsstöðum 22. október 2014. Foreldrar Ingi- bjargar voru hjónin Magnea Herborg Jónsdóttir, f. 26. janúar 1892, d. 17. mars 1967, og Sigurður Björnsson, f. 17. september 1886, d. 2. desem- ber 1939. Systkini Ingibjargar eru Anna Björg, f. 11. nóvember 1920, d. 13. febrúar 2003, Páll Hermann, f. 22. júlí 1926, Björn, f. 20. september 1927, d. 20. jan- úar 2007, Magnús, f. 5. nóv- ember 1927, Jón Benedikt, f. 11. október 1931, d. 20. júlí 2013. Ingibjörg eignaðist tvo syni. Þeir eru: 1) Sigurður Jónsson, f. Sævar, f. 15. september 1997. Ingibjörg ólst upp í Sauðhaga á Völlum. Hún var í barnaskóla Vallahrepps og stundaði einnig nám við Húsmæðraskólann á Hallormsstað. Fyrri hluta æv- innar starfaði hún sem matráðs- kona í Skógrækt ríkisins á Hall- ormsstað og í barnaskóla Vallahrepps á veturna, síðar starfaði hún við ræstingar í grunnskólanum á Hallormsstað. Ingibjörg bjó lengst af ævi sinni í húsi sínu á Hallormsstað sem hún nefndi Laufskóga. Ingi- björg var þekkt fyrir dugnað, vandvirkni og einstakan mynd- arskap í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Hún var gestrisin og naut þess að taka á móti fólki og var því oft gestkvæmt hjá henni. Eftir hana liggur mikið handverk og þá sér í lagi hekl- aðir munir. Síðustu árin dvaldi Ingibjörg á Heilbrigðisstofnun Austurlands á Egilsstöðum, fyrst á sambýli fyrir aldraða í tvö ár og síðan tvö ár á hjúkr- unardeild. Útför Ingibjargar verður gerð frá Egilsstaðakirkju í dag, 1. nóvember 2014, og hefst at- höfnin kl. 11. Jarðsett verður í Vallaneskirkjugarði. 24. janúar 1947, d. 6. mars 2000. Eftir- lifandi maki Ína Gunnþórunn Gunn- laugsdóttir, f. 18. maí 1952. Börn þeirra: Magnús, f. 16. apríl 1970, maki Halldóra Magna Sveinsdóttir, f. 2. júní 1972. Börn þeirra: Sigurður Orri, f. 26. apríl 1999, Jóhann Ingi, f. 27. mars 2001, Gunnþór Sveinn, f. 7. sept- ember 2010. Ingibjörg Sigríður, f. 8. júlí 1980, maki Þorsteinn Jó- hannsson, f. 7. ágúst 1976. Barn þeirra Emil Jóhann, f. 9. ágúst 2002. 2) Magnús Ólafsson, f. 27. maí 1955. Maki Birna Björns- dóttir, f. 2. apríl 1960 (þau skildu). Börn þeirra eru Hrönn, f. 26. nóvember 1989, sambýlis- maður Steven Zarah, f. 10. októ- ber 1982, Magnea Herborg, f. 28. desember 1995, og Sigurður Stjörnuskin lýsir Tifa ljós norðurs Næturbirta vetrar lýsir upp hjarn Ljós kemur Ljós er Ljós var Ljós sem lýsti vegferð hvarf Komin er stund saknaðar Vetur fer um fagra sveit Hugur flýgur hratt um gengna slóð Glitrar jörð í vetrarskrúða Lýsast perlur minninga Ljómar sál Þakkað er í þögn Það er óendanleg kyrrð Sólbirta vermir um ókomna tíð (Maggi) Magnús Ólafsson. Við lát Ingu, móðursystur okkar, frá Sauðhaga hrannast upp minningar frá löngu liðnum dögum austur á Héraði. Við Gunnlaugsstaðakrakkarnir átt- um mörg sporin yfir hálsinn og í Sauðhaga. Þar var okkur alltaf vel tekið af þeim ömmu og Ingu og öðru Sauðhagafólki. Göngu- leið var á milli bæjanna, um það bil klukkutíma gangur, og voru þessar ferðir alltaf ánægjuefni. Alltaf var gott að koma í Sauð- haga. Ætíð var eitthvað gott á borðum og minnisstætt er líka hversu allt var fínt í kringum þær ömmu og Ingu og þannig var það hjá Ingu alla tíð, allt svo fínt og fallegt hvernig sem húsnæðið annars var. Seinna heimsóttum við hana í húsið hennar í skóginum, sem hún kom sér upp með fádæma elju og dugnaði. Þangað var notalegt að koma enda Inga einstaklega gestrisin og höfð- ingi heim að sækja. Inga sat aldrei auðum hönd- um, ef hún hafði lausa stund sat hún gjarnan og heklaði milli- verk, dúka eða teppi, allt var þetta svo fallega unnið – sann- kölluð meistarverk. Þegar við minnumst Ingu kemur matur ósjálfrátt upp í hugann en Inga var matargerð- arkona af guðs náð og töfraði fram alls konar krásir og eng- inn fór svangur frá hennar borði. Hennar ævistarf varð líka matseld og ræstingar. Hún starfaði sem ráðskona bæði í barnaskóla sveitarinnar og á sumrum var hún ráðskona hjá Skógrækt ríkisins á Hallorms- stað og vann á vetrum við barnaskólann á Hallormsstað eftir að hann tók til starfa. Inga var mikill dugnaðar- forkur, hamhleypa til allra verka og vann framan af við erfiðar aðstæður þar sem lítið var um nútímaþægindi. Það er erfitt fyrir nútímafólk að ímynda sér matargerð og bakstur fyrir hópa af fólki þar sem alla hluti varð að vinna með höndunum og ekki hlaupið í búðir eftir hverju atviki. Inga og hennar kynslóð lifðu þá sér- kennilegu tíma þar sem horfið var frá hreinni forneskju til vél- væðingar og tölvualdar. Lífið var henni ekki áfalla- laust en stærsta áfallið var son- armissirinn en Sigurður sonur hennar lést rúmlega fimmtugur, mikill ágætis- og dugnaðarmað- ur. Inga var afskaplega góðgerð- arsöm, vildi alltaf vera að gefa en helst ekkert þiggja og sífellt að hugsa um hag sinna nánustu og ef eitthvað bjátaði á hjá ein- hverjum var hún fljót að rétta fram hjálparhönd ef hún gat mögulega komið því við. Það er margs að minnast en öll eigum við góðar minningar um Ingu, hún fylgdist með okk- ur og fjölskyldum okkar og var okkur alla tíð einstaklega vel- viljuð. Við systkinin sendum syni hennar Magnúsi, barnabörnum og fjölskyldum innilegar sam- úðarkveðjur. Guðrún, Pálína, Sigurður og Valgerður frá Gunnlaugsstöðum. Það var á níunda áratug síð- ustu aldar sem leiðir okkar og Ingu lágu saman, en á þeim ár- um hófum við báðar störf við Hallormsstaðarskóla, reyndar ekki sama árið, en með fárra ára millibili. Strax á fyrstu starfsdögun- um varð okkur báðum ljóst að Inga var í raun bindingsverkið í skólahúsinu og lykilstarfsmaður sem eins gott væri fyrir okkur að koma sér vel við, enda hafði hún hafið störf við Hallorms- staðarskóla áður en hann hóf starfsemi sína. Já, Inga sá nefnilega um að elda ofan í verkamennina sem byggðu skólann og þegar skólinn var tilbúinn varð það hennar starf að sjá um öll þrif í skólahúsinu – ein. Já, hún Inga var einstök eljukona og var í daglegu tali, hjá nemendum Hallormsstaðar- skóla, kölluð „Inga ræst“ sem var fyrst og fremst virðingar- heiti. Þegar hún gjóaði til okkar augunum, kannski með nokkr- um vel völdum orðum, þá skild- um við að við þurftum að standa okkur betur í tiltektinni. Það gerðum við með glöðu geði en aðeins Ingu leyfðist að ala okkur upp með þessum hætti. Það verður að játast að við þurftum að hafa nokkuð fyrir því að vinna okkur inn að hjarta Ingu. Ástæða þess var að báðar höfðum við tileinkað okkur kennsluhætti þar sem nemend- um var ætlað að sanka að sér efniviði skógarins, setja upp skordýragildrur og jafnvel halda húsdýr, s.s. mýs. Lengst gengum við þó, að mati Ingu, þegar við settum á laggirnar sjávarker sem fyllti skólastof- una af fiskiflugum, með viðeig- andi óþrifnaði og ólykt. Já, svona gekk þetta fyrir sig fyrstu árin en smátt og smátt náðum við saman. Það var ekki hvað síst með sinni geislandi góðu, en stundum svolítið grá- tóna kímnigáfu, sem Inga vann hjarta okkar. Með því að svara í svipaðri mynt urðum við hennar konur og fyrir það verðum við endalaust þakklátar. Síðan kynntumst við hinni hliðinni á Ingu okkar, Ingu í Laufskógum. Hún var þvílíkur höfðingi heim að sækja. Ekkert jafnaðist á við að setjast inn í eldhúsið hennar með kaffiboll- ann og horfa á hana tína fram smákökusortir, brúntertuna með kreminu, kex með hrúta- berjahlaupi að ógleymdum pip- arostinum sem var uppáhaldið hennar. Síðan var spjallað og boðið upp á konfekt og smá „Gróft“. Inga er eina konan sem við þekkjum sem hefði get- að boðið okkur upp á „Gróft“ án þess að við hugsuðum okkur tvisvar um að þiggja það. Frá því að við kynntumst því „Grófa“ með Ingu hefur ekki hvarflað að okkur að betra sérrí fyrirfinnist og við munum vafa- laust hittast áfram og drekka „Gróft“ Ingu til heiðurs. Og handverkin. Hvað við dáðumst að heklinu hennar með hárfínu heklunálinni og örmjóa þræðinum og fallegu milliverk- unum sem hún framleiddi langt fram á efri ár! Sennilega eru þau orðin æðimörg sjö rósa milliverkin hennar Ingu í sæng- urfatnaði fólks vítt og breitt um landið. Við nutum líka góðs af því. Við kveðjum elsku Ingu með söknuði og minnumst hennar sem kjarkmikillar konu sem hélt reisn sinni fram á það síð- asta. Elsku Magnús og allt fólk- ið hennar Ingu! Við, Onni, Jón og krakkarnir okkar sendum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Megi minningin um einstaka konu styrkja ykkur í sorginni. Sif og Kristín Björk. Ingibjörg Sigríður Sigurðardóttir ÚTFARARÞJÓNUSTA Vönduð og persónuleg þjónusta Sími: 551 7080 & 691 0919 ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is Inger Steinsson IngerRósÓlafsdóttir önnumst við alla þætti þjónustunnar Þegar andlát ber að höndum Með virðingu og umhyggju að leiðarljósi Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is Við þjónum allan sólarhringinn Elín Sigrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri Ellert Ingason útfararþjónusta Þorsteinn Elísson útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Ísleifur Jónsson útfararstjóri Jón G. Bjarnason útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Frímann Andrésson útfararþjónusta Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, INGU RÓSU ÞÓRÐARDÓTTUR, Hjallabrekku 38, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks meltingar- og krabbameinslækningadeilda Landspítalans fyrir nærgætni og frábæra umönnun. . Guðmundur Steingrímsson, Berglind Rós Guðmundsdóttir Markús H. Pétursson Sunna Björk Guðmundsdóttir Magnús I. Aðalmundsson Þórður Ingi Guðmundsson Agnes Gísladóttir og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengda- föður, afa, langafa og langalangafa, GARÐARS HANNESSONAR, Ásbraut 2, Hvammstanga. Fjóla Eggertsdóttir, Sigurósk Garðarsdóttir, Örn Guðjónsson, Bára Garðarsdóttir, Haraldur Pétursson, Arndís Sölvadóttir, Hanna Garðarsdóttir, Sigfús Eiríksson og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar, BJARNA ÞÓRS FRIÐÞJÓFSSONAR, Hringbraut 57, Keflavík. Sérstakar þakkir sendum við vinum Bjarna í Reykjanesbæ og starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir vinsemd og alúðlega umönnun. Hulda Friðþjófsdóttir, Jón Kristinn Stefánsson, Sesselja Sveinbjörg Stefánsdóttir, Lilja Svanhvít Stefánsdóttir, Stefán Jóhann Stefánsson, Haraldur Hersir Stefánsson, Elín Þóra Stefánsdóttir og fjölskyldur. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN GEIRSSON frá Reyðará, sem andaðist föstudaginn 24. október á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands, verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju í Hornafirði laugardaginn 8. nóvember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands. Geir Þorsteinsson, Björk Pálsdóttir, Gunnar Bragi Þorsteinsson, Guðbrandur Ragnar Jóhannsson, Kristín Kristjánsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og fjölskyldur. ✝ Hugheilar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð, vináttu og stuðning við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, DÓRU ERNU ÁSBJÖRNSDÓTTUR, Borgartanga 3, Mosfellsbæ. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heimahlynningar og líknardeildarinnar í Kópavogi fyrir einstaka umönnun. Sigurgeir Ingimarsson, Ásbjörn Sigurgeirsson, Kristín Siemsen, Gústav M. Ásbjörnsson, Guðný Indriðadóttir og synir, Dóra Erna Ásbjörnsdóttir og sonur, Birna Kristín Ásbjörnsdóttir, Erna Óðinsdóttir, Helgi Kjartansson og börn, Ása Óðinsdóttir, Eyþór Árnason og börn, Geir Ísak Åsengen Óðinsson, Bente Ingela Åsengen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.