Morgunblaðið - 19.11.2014, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2014
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Stefnt er að því að hefja uppbygg-
ingu fyrsta áfanga nýrrar Voga-
byggðar í Reykjavík á næsta ári ef
áætlanir ganga eftir. Samkvæmt til-
lögum sem nú liggja fyrir hjá skipu-
lagsyfirvöldum
gætu orðið allt að
1.120 íbúðir í
hverfinu. Sam-
kvæmt heim-
ildum Morgun-
blaðsins úr
fasteignageir-
anum má ætla að
framkvæmda-
kostnaður verði
yfir hundrað
milljarðar króna
og er þá talinn með kostnaður við
uppbyggingu innviða, t.d. gatna,
skóla, torga og fráveitu.
Fram kemur í greinargerð með
deiliskipulagi að Vogabyggð sé nafn
á svæði sem afmarkast af Sæbraut,
Kleppsmýrarvegi, Elliðaárósum og
frárein Miklubrautar að Sæbraut.
Svæðið hefur verið nýtt sem atvinnu-
svæði en í aðalskipulagi Reykjavíkur
2010-2030 er það skilgreint sem þró-
unarsvæði og landnotkun breytt í
miðsvæði og íbúðarbyggð. Á
þróunarsvæði Vogabyggðar er
áformuð uppbygging atvinnu- og
íbúðarhúsnæðis.
Byggja þarf nýjar götur
Hönnun hverfisins er á lokastigi
og eru hér birtar nýjar myndir af
byggðinni eins og hún mun að öllum
líkindum líta út. Hömlur, dótturfélag
Landsbankans, eiga byggingarlóðir í
fyrirhugaðri byggð og hafa stýrt
verkefninu í samstarfi við umhverfis-
og skipulagssvið borgarinnar.
Hannes Frímann Sigurðsson,
verkefnastjóri hjá Hömlum, segir
næsta skref í málinu að fram-
kvæmdin fari í kynningu.
„Borgarkerfið er að skoða vissa
þætti. Umhverfis- og skipulagsráð
borgarinnar hefur fjallað um verk-
efnið og var þessum áformum mjög
vel tekið. Borgin hefur mikinn hug á
að fylgja þessu eftir. Þetta hangir
svolítið á fjárhagsáætlun Reykja-
víkurborgar. Það þarf m.a. að byggja
upp nýjar götur og endurnýja inn-
viði.“
Spurður hvort margir hafi sýnt
áhuga á að koma að uppbyggingu
hverfisins segir Hannes Frímann þá
ákvörðun hafa verið tekna að ljúka
öllum undirbúningi áður en leitað
yrði tilboða í lóðir.
„Við höfum áform um að hefja sölu
á lóðum á næsta ári og gerum ráð
fyrir að þær verði fljótt byggingar-
hæfar. Við skuldbundum okkur til að
klára deiliskipulagið fyrst með borg-
inni. Þarna verða miklar breytingar
á lóðum og lóðamörkum. Huga þarf
að því hvernig hverfið snýr að sólu.
Breytingarnar eru margvíslegar og
það þarf að vinna þær í sátt við hags-
munaaðila, nágranna og fleiri,“ segir
Hannes Frímann sem áætlar að upp-
bygging Vogabyggðar taki sex til
átta ár. Raunhæft sé að fyrstu íbúð-
irnar komi í sölu 2016.
Spurður um kostnað við uppbygg-
inguna segir Hannes Frímann að
verið sé að leggja mat á það. Um sé
að ræða verulegar upphæðir.
Hollenskir arkitektar
Hannes Frímann segir hverfið
marka tímamót í sögu borgarinnar.
„Það eru farnar nýjar leiðir í þessu
hverfi. Horft er til mjög margra
þátta. Gerðar hafa verið umhverf-
isskýrslur og almennt verið lögð
mjög mikil vinna í alla hönnunar-
vinnu,“ segir Hannes Frímann og
bendir á að ásamt arkitektastofunni
Tröð hafi hollensku arkitektastof-
urnar Jaakko van’t Spijker og Felixx
komið að hönnun hverfisins.
Urðu þessar stofur hlutskarpastar
eftir hönnunarsamkeppni sem haldin
var í upphafi árs um skipulag svæð-
isins. „Hollendingarnir hafa mikla
reynslu af þröngu byggðamynstri.
Við nýttum okkur það til hins ýtrasta
og svo kom Tröð með þessi íslensku
einkenni og hefðir. Það var reynt að
skrúfa hverfið ekki upp í verði heldur
hafa umfangið skynsamlegt.“
Hannes Frímann segir að lauslega
megi áætla að 5-10% íbúðanna, eða
50-100 íbúðir, verði lúxusíbúðir í dýr-
ari kantinum, og ekki lægra hlutfall
félagslegar íbúðir.
„Þetta verða íbúðir af þeirri stærð
sem rætt er um að þörf sé fyrir á
markaðnum. Stærstur hluti íbúð-
anna verður smærri íbúðir en miðað
hefur verið við að meðalíbúðarstærð
verði u.þ.b. 110 fermetrar. Hverfið
verður fjölskylduvænt. Reykjavík-
urborg hyggst byggja safnskóla fyrir
hverfið. Við höfum sýnt því áhuga að
fá blandaðan eigendahóp. Ef félög
eins og Búseti hafa áhuga væri það
hið besta mál,“ segir hann.
Borgarhluti hannaður upp á nýtt
Áformað er að hefja uppbyggingu nýrrar Vogabyggðar á næsta ári Byggt upp í þremur áföngum
Um 1.120 íbúðir verða í hverfinu Byggist upp á sex til átta árum Hollensk og íslensk hönnun
Samkeppni Úrslit hönnunarsamkeppni voru ljós 23. janúar sl. Byggðin verður þriggja til fimm hæða.
Grænt Áhersla er lögð á almenningsrými fyrir íbúa og notendur svæðisins.
Áform Geymslu- og iðnaðarhúsnæði mun víkja fyrir íbúðum og ýmiss konar þjónustu.
Tölvuteikningar/Teiknistofan Tröð/arkitektastofurnar/Jaakko van ’t Spijker/Felixx
Nýtt hverfi á grónu svæði Efst á myndinni má sjá fyrsta áfanga Vogabyggðar. Annar áfangi er til suðurs af hon-
um. Sá þriðji suður af öðrum áfanga. Eins og teikningin ber með sér er hönnun alls hverfisins ekki lokið.
Þétt byggð við sjóinn Þegar efnt var til hönnunarsamkeppni var lögð áhersla á þétta byggð og fjölbreytta blöndu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Vistvænar áherslur koma fram í hönnun.
Hannes Frímann
Sigurðsson