Morgunblaðið - 19.11.2014, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2014
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
30% brotaþola segja aldrei frá
því að þeir hafi orðið fyrir
kynferðislegu ofbeldi.
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Ný sending af glæsilegum ullarkápum
Síðar og millisíðar
St.36-52
fi p y j g p
C p iar acc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam
með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté prikmeð pa
mauki Bruchetta íreymeð tv
ðlatu hangikjöti, bal- samrau
og piparrótarsósu heBruc
ta með hráskinku, balsam
rægrill uðu Miðjarðar- h a f s g
meti Krabba a- s a l
ðboferskum kryddjurtum í brau
Bruchetta rðameð Miðja
hafs-tapende aRisa- rækj
spjóti með peppadew Silunga hrogn i simeð japönsku majónes
nepsrjóma-osti á bruchettu Birkireykt-ur lax alioá bruchettu með
grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar ddju, 3 smáar á spjóti m/kry
taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum ufyVanill
tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum nguKjúkli
satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is
Möndlu Mix og Kasjú Kurl
er ekki bara hollt snakk. Líka
gott í salatið. Hollt og gott
frá Yndisauka.
Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum,
Melabúðinni, Fjarðarkaup,
Þín verslun Seljabraut, Kjöthöllinni,
Hreyfingu, Garðheimum, Mosfellsbakaríi
og Bakaríinu við brúna Akureyri.
Hverfisgötu 105 • www.storarstelpur.is
Munið bílastæði á bak við hús
STÓRAR
STELPUR
tískuvöruverslun
Bjóðum í dag
25%
afslátt
af öllum vörum
Opið frá kl. 11-20
Við eigum
afmæli
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Peysuúrval - Blúndublússur
Sparibolir - Loðskinnskragar
Kasmírtreflar - Hanskar
Gjafakort o.m.fl.
Gjafainnpökkun
Vandaðar jólagjafir
konunnar
„Okkur finnst mikilvægara að
læra um hvað er að gerast í
Úkraínu, Palestínu og Ísrael en
það sem gerðist í Frakklandi og
Bandaríkjunum fyrir mörgum
öldum. Við viljum læra hvenær
Alþingi var stofnað en viljum að
minni áhersla verði lögð á það og
viljum frekar vita hvað er að ger-
ast á Alþingi núna,“ sagði Lilja
Hrund Ava Lúðvíksdóttir eftir
fund með ríkisstjórninni í gær-
morgun. Hún lýsti þar einu af
fjölmörgum áherslumálum sem
sex ungmenni kynntu ríkisstjórn-
inni.
Ungmennin eru fulltrúar ung-
mennaráða Barnaheilla, UNICEF
og ráðgjafahóps umboðsmanns
barna. Tilefni fundarins er að nú
eru 25 ár liðin frá því barnasátt-
máli Sameinuðu þjóðanna var
samþykktur. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra
sagði ánægjulegt að fá tækifæri
til þess að hlýða á ungmennin.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sjónarmið Þrír ráðherrar ríkisstjórnarinnar með fulltrúum úr ungmennaráðunum. Allir voru ánægðir að lokum.
Vilja læra um það
sem er að gerast
Ungi maðurinn sem leitað var að í og við Ölfusá
aðfaranótt síðastliðins föstudags segist hafa farið
út í ána í bílnum en náð að komast út úr honum
eftir að bíllinn hafnaði í ánni og í kjölfarið í land.
Búið er að taka skýrslu af manninum og er rann-
sókn lögreglunnar á Selfossi á lokastigi.
Að sögn lögreglu er málið rannsakað sem slys
og hefur lögregla ekki ástæðu til að ætla að um
saknæmt athæfi hafi verið að ræða.
Maðurinn fannst blautur, kaldur og hrakinn við
flugvöllinn á Selfossi fyrir hádegi síðastliðinn
föstudag. Kom maðurinn gangandi á móti björg-
unarsveitarmönnum sem höfðu leitað hans á
svæðinu. Ölfusárbrú.
Maðurinn komst út úr bílnum
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Þróunarfyrirtækið Margildi ehf. og
þekkingarfyrirtækið Mannvit hf.
hafa gert með sér samstarfssamning
í tengslum við undirbúning bygging-
ar nýrrar verksmiðju til framleiðslu
á gæðalýsi úr uppsjávarfiski. Nýja
verksmiðjan mun rísa á Austfjörð-
um, og er gert ráð fyrir að byggingu
fyrsta áfangans verði lokið á fyrri
hluta ársins 2016.
Afkastageta fyrsta áfanga verk-
smiðjunnar verður um 10.000 tonn á
ári og er áætluð aukning útflutnings-
verðmætis þess lýsis sem framleitt
verður allt að 3-4 milljarðar á ári.
Þegar lokið verður við annan áfanga
verksmiðjunnar er áætlað að af-
kastagetan muni tvöfaldast. Er gert
ráð fyrir að þar muni skapast að
minnsta kosti 70 ný störf á sviði
framleiðslu, rannsókna og þróunar.
Hrálýsi úr loðnu, síld og makríl
Í fréttatilkynningu frá fyrirtækj-
unum segir að samningurinn marki
nýtt upphaf í fullvinnslu sjávaraf-
urða úr uppsjávarfiski. Verksmiðjan
muni fullvinna hrálýsi úr loðnu, síld
og makríl til manneldis og eru sögð
gríðarleg tækifæri til aukinnar verð-
mæta- og þekkingarsköpunar í
sjávarútvegi.
Í fréttatilkynningunni segir að til
þessa hafi hrálýsi og fiskimjöl úr
fyrrnefndum fisktegundum verið
unnið sem hráefni til fóðurgerðar
fyrir dýraeldi svo sem lax- og sil-
ungaeldi. Hins vegar hafi Margildi
um nokkurt skeið unnið að þróun
nýrrar vinnslutækni og markaða fyr-
ir hrálýsið til manneldis, í samvinnu
við aðila eins og Háskólann á Ak-
ureyri og Matís, svo dæmi séu nefnd.
Verksmiðjan komi til með að skapa
góðan grunn til frekari nýsköpunar á
þessu sviði og muni afurðir hennar
nýtast sem til dæmis hráefni til mat-
vælavinnslu omega-3 bættra mat-
væla svo sem markfæðis og barna-
matar.
Vilja búa til gæðalýsi
Margildi ehf. og Mannvit hf. undirbúa byggingu nýrrar
verksmiðju Boða nýtt upphaf í fullvinnslu sjávarafurða
Ljósmynd/Margildi
Verksmiðja Við undirritun samningsins. F.v.: Erlingur Viðar Leifsson,
Haukur Óskarsson, Snorri Hreggviðsson og Stefán Karl Snorrason.
- með morgunkaffinu