Morgunblaðið - 19.11.2014, Síða 11

Morgunblaðið - 19.11.2014, Síða 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2014 Í dag bregður Café Lingua Borgar- bókasafns sér í kaffihús Tjarnarbíós, Tjarnargötu 12 í Reykjavík. Þar verða kynntar væntanlegar og útkomnar bækur frá íslensk-portúgalska forlag- inu Sagarana. Lesið verður úr þremur útkomnum bókum, „10.01 nótt“ eftir Ölmu Mjöll Ólafsdóttur, „Þar sem sprengjurnar féllu“ eftir Örn H. Bjarnason og „Maðurinn sem hvarf“ eftir Sigurstein Másson. Einnig verð- ur lesið úr væntanlegum bókum bæði á frummáli og í íslenskri þýðingu. Það eru bækurnar „Vindurinn sem var ekki“ eftir danska verðlaunahöf- undinn Josefine Klougart og „Sumar- frí, aftur“ eftir argentínska höfund- inn Alejandro V. Di Marzio og les höfundur sjálfur upp á frummálinu. Hamingjustundin hefst kl. 17.30 og er í umsjón Bókmenntaborgarinnar. Ókeypis og allir velkomnir. Argentínski höfundurinn Alejandro V. Di Marzio mætir Morgunblaðið/Styrmir Kári Sigursteinn Hann ætlar að lesa upp úr bók sinni Maðurinn sem hvarf. Hamingjustund á Cafe Lingua Hinn 13. nóvember var haldin fyrsta Íslandsmeistarakeppnin í matar- handverki og fór hún fram í Norræna húsinu. Alls voru 110 vörur kynntar og keppnisflokkarnir átta. Keppendur voru frá öllum Norðurlöndum. Sam- hliða keppninni sem Matís og Ný nor- ræn matvæli II standa að, var haldin ráðstefna þar sem hægt var að fræð- ast um hvernig matarframleiðsla úr héraði hefur verið markaðssett í ná- grannalöndunum. Íslenskar vörur unnu til nokkurra verðlauna í keppn- inni og má þar til dæmis nefna Klett frá Sjónarskeri sem er þurrkrydd- aður, saltaður og reyktur lærvöðvi. Hann hlaut gullverðlaun í flokki kjöt- afurða. Í flokki fiskafurða voru silfur og bronsverðlaun veitt fyrir makríl- paté og heitreyktan makríl frá Sól- skeri. Urta Islandica fékk silfur- verðlaun fyrir nýsköpun í matar- handverki fyrir Sprett, orku- og úthaldsjurtate fyrir íþrótta- og fjall- göngufólk. Nánari upplýsingar um úr- slitin eru á www.matis.is. Íslandsmeistarakeppnin í matarhandverki Morgunblaðið/Styrmir Kári Keppni Keppt var í matarhandverki. Súrdeigsbakstur, makríll, mjólkurafurðir og margt fleiraYnni ég þér yfirleitt yxu þykkri sneiðar um bein mín og safar byltust í hvítu leðri bei bí en hér er frost um nætur snautt af draumum Dýrmæddir klárarnir í gerðinu Morgunblaðið/Golli Ljóðskáld Sigurbjörgu finnst mjög skemmtilegt að glíma við orð og búa til ný orð, getur gleymt sér í því. kemur fyrir í ljóðabókinni, það er orðið marpíur. „Ég vaknaði með þetta orð án þess að vita hvaðan það kom, og það er svo skýrt og gegn- sætt að ég gat notað það.“ Líkt og að horfa í bergvegg Ef hægt er að tala um rauðan þráð í þessari bók, þá er hann á ein- hvern hátt lík- amlegur, enda kem- ur skinnið í bókartitlinum oft fyrir. „Þessi ljóð fjalla m.a. um það hvernig fólki líður í eigin skinni, hvernig það er að vera manneskja. Snerting er grunnþáttur í samlífi og samskiptum og þá snertir fólk húð. Þau fjalla líka um allskonar innri og ytri veruleika. En líka um ýmislegt fleira sem fellur undir orðið skinn, til dæmis handrit á kálfskinni. Ég er líka að leika mér með tímann, fremst í bókinni er ég með tilvitnun í Hall- grím Pétursson sem varð 400 ára á þessu ári, þar segir: „Innvortis er samt hljótt …“ Brotið á bókar- kápunni vísar að sumu leyti í Birtingstímann og grunnlitirnir á kápunni kallast á við það sem Miró og fleiri málarar voru að gera á sinni tíð. Mig langaði að ná utan um ýmislegt, en samt hafa þetta leik og sirkus – ekki fyrirsjáanlegt.“ Um myndskreytingu bók- arinnar sá Birta Fróðadóttir og Sigurbjörg er ánægð með hversu myndirnar hennar eru opnar fyrir túlkun. „Úr þeim sér fólk margt misjafnt, sumir sjá hest, manneskju, loftmynd borgar- skipulags, sníðablöð, nánast hvað sem er. Að horfa á þessar myndir er líkt og að horfa í bergvegg, þú sérð alltaf eitthvað nýtt.“ Um þessar mundir fer örmyndahátíðin Ör- varpið fram öðru sinni á netinu á slóðinni www.ruv.is/orvarpid í samstarfi við Rúv, Bíó Paradís og Nýherja. Eru allir áhugasamir um kvikmyndalist hvattir til að taka upp myndavélina og gera örmynd og senda inn, eða senda Örvarpinu örmyndir sem eru þeg- ar tilbúnar. Örvarpið er fyrsta og eina kvik- myndahátíðin af þess- ari gerð á Íslandi og er ákveðið svar við vax- andi þróun í kvik- myndalist og tækni- væðingu. Hugmyndasmiðir og framkvæmdastjórar örmyndahátíðarinnar Örvarpið eru þær Dóra og Harpa, en þær eru afar glaðar með að hafa í haust fengið styrk frá Kvik- myndasjóði Íslands sem gerði þeim kleift að halda áfram með hátíðina, en þetta er í annað sinn sem hún fer fram. Á örmyndahátíðinni er valin ein mynd í hverri viku til birtingar á ruv.is/orvarpid. Í vor verður svo hald- in örmyndahátíð í Bíó Paradís þar sem allar þessar myndir verða sýndar ásamt öðrum sérstaklega völdum af valnefnd. Það er því um að gera fyrir fólk á öllum aldri að nýta sér þetta tækifæri til að fá útrás fyrir sköp- unarraftinn. Valnefndina skipa Guð- mundur Arnar kvikmyndaleikstjóri og Björg Magnúsdóttir, rithöfundur og umsjónarmaður síðdegisútvarps á Rás 2. Nú er lag að senda inn örmyndir á Örmyndahátíðina Dóra og Harpa Hugmyndasmiðir góðir. Í hverri viku er valin örmynd til birtingar á vef Ríkisútvarpsins Hádegismóum 4, 110 Reykjavík | Sími 547 0000 | premis.is Er tölvukerfið þitt komið í aðgerð? •Traustur rekstur tölvukerfa • Örugg hýsing gagna •Vandað verkbókhaldskerfi • Sérsniðnar forritunarlausnir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.