Morgunblaðið - 19.11.2014, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 19.11.2014, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2014 Ármúli 32, 108 Reykjavík Sími 568 1888 www.parketoggolf.is Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ólafur Kr. Guðmundsson, varamað- ur fyrir Sjálfstæðisflokkinn í um- hverfis- og skipulagsráði Reykjavík- ur, telur að núverandi meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur sé í markvissri eyði- leggingarstarf- semi á sam- göngukerfi borgarinnar. Hann segir að Hjálmar Sveins- son, formaður umhverfis- og skipulagsráðs, hafi sagt ósatt hér í Morgunblaðinu sl. laugardag, þegar hann sagði að tillagan um þrengingu Grensásvegar frá Miklu- braut að Bústaðavegi til borgarráðs væri bara fyrsta hugmynd sem síðan ætti að nota til að hanna verkefnið og setja svo í kynningu. Í gögnunum komi berlega í ljós að þetta sé búið að vera í vinnslu frá fyrri hluta árs 2012 þar sem þetta var lagt fram til kynningar 7. júní 2012. Í þeim gögn- um standi að þetta sé til kynningar, en nú sé erindið til afgreiðslu. Ólafur sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær: „Samkvæmt tillög- unni á Grensásvegur áfram að vera með 50 kílómetra hámarkshraða. Það á að setja „strætókryppur“ á tveimur stöðum á götunni beggja vegna, við Heiðargerði og Breiða- gerði. Ein þessara hindrana við Heiðargerðið er í miðri beygjunni fyrir þá sem eru á akreininni til Miklubrautar og þá sem koma úr Heiðargerði. Það verður mjög hættulegt fyrir t.d. bifhjólamenn og reyndar aðra og ég hef hvergi séð slíkt gert. Það á aldrei að setja 15 kílómetra hraðahindranir í 50 km götur. Það er yfirleitt bannað í Evr- ópu og gerir ekkert annað en að ýta þeirri litlu bílaumferð sem eftir verður inn í 30 km göturnar. Það er reynslan annars staðar, svo sem í Grafarvogi, þar sem umferðin af Strandveginum fluttist í Spöngina þegar þetta var gert. Þar fyrir utan mun mengun aukast, óþarfa sóun á eldsneyti og gjaldeyri, auk skemmda á bílum og strætisvögn- um.“ Gatnamótin verði eyðilögð Ólafur segir að verði þrengingin á Grensásvegi samþykkt verði gatna- mót Grensásvegar og Bústaðavegar endanlega eyðilögð, með því að fjar- lægja hægribeygjuvasa. Þá sé slysa- sagan á þeim gatnamótum frá 2007 til áramóta 2014 eftirfarandi: 3 al- varleg slys, 4 slys með litlum meiðslum og 35 eignatjón. Allt hafi þetta verið óhöpp á bílum, en ekkert á óvörðum vegfaranda. (Sjá töflu um slysasögu). „Afkastageta götunnar mun minnka um meira en helming við þessar aðgerðir að mínu mati. Ég get ekki betur séð en að þessi að- gerð sé enn ein aðförin að notendum fjölskyldubílsins,“ segir Ólafur og bendir á að reynslan af Hofsvalla- götu, Snorrabraut, Borgartúni, Strandvegi og fleiri þrengingum hafi sýnt, að við það færist umferðin á aðrar götur í nágrenninu og þar með í einhverjum tilfellum inn í íbúagöt- ur með 30 kílómetra hámarkshraða. Aðför að notendum fjölskyldubílsins  Afköstin við þrengingu minnki a.m.k. um helming  Ólafur segir Grensásveg öruggan með tveimur akreinum í hvora átt Ólafur Kr. Guðmundsson Slysasaga Grensásvegar 2007 - 2013 Öll slys á Grensásvegi Gatnamót Milli gatnamótanna Samtals gatnamótin Samtals milli gatnamóta Samtals gatnamótin Grensásvegur/Bústaðavegur Grensásvegur/Miklabraut Grensásvegur/Suðurlandsbraut Bústaðavegur - Miklabraut Miklabraut - Suðurlandsbraut 3 2 3 0 0 0,00% 0,00% 8 100,00% 0 0,00% 8 4 28 8 4 10 7,41% 18,52% 40 74,04% 14 25,93% 54 35 194 55 28 35 8,07% 10,09% 284 81,84% 63 18,16% 347 42 224 66 32 45 7,82% 11.00% 332 81,17% 77 18,83 409 alv.sl. alv.sl. Lítið sl. Lítið sl. Eignatj. Eignatj. Samtals Samtals Heimild: Samgöngustofa Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar skorar á Reykjavíkurborg að endur- skoða nú þegar samþykktir sínar um Hlíðarendasvæðið með það að mark- miði að byggðin og neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar eigi samleið. Kemur þetta fram í bókun sem sam- þykkt var á fundi bæjarstjórnar. Umræða um málefni Reykjavíkur- flugvallar fór fram í bæjarstjórn í gær að frumkvæði Njáls Trausta Friðbertssonar, bæjarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins. Hann er áhugamað- ur um samgöngur og er annar af tveimur formönnum flugvallarsam- takanna Hjartað í Vatnsmýri. Njáll fór yfir málið og lagði fram tillögu að bókun þar sem lýst er yfir áhyggjum af framtíð flugvallarins vegna áforma meirihluta borgarstjórnar um byggingar í Vatnsmýri. Fordæmi í Stokkhólmi Í lok bókunarinnar kemur fram að þar sem Reykjavíkurflugvöllur er lífsnauðsynleg tenging landsbyggð- arinnar við höfuðborg sína komi það ekki á óvart að Alþingi láti málið til sín taka, þegar sérhagsmunir gangi fyrir almannahagsmunum. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Bjartrar framtíðar í bæjarstjórn vildu þetta ákvæði út og greiddu atkvæði á móti bókuninni í heild þegar átta bæjar- fulltrúar höfnuðu því. Njáll Trausti lítur á þessa sam- þykkt sem stuðning við inngrip Al- þingis í skipulag flugvallarsvæðisins. Bendir hann á að framsóknarmenn hafi þegar flutt um það tillögu. Hann nefnir sem fordæmi að sænska þing- ið hafi gripið inn í málið þegar sveit- arfélögin í Stokkhólmi hafi ætlað að leggja niður Bromma-flugvöll sem er miðsvæðis í höfuðborginni og tryggt að gert verði ráð fyrir honum til ársins 2038. Styður inngrip Alþingis í skipulag  Bæjarstjórn Akur- eyrar hefur áhyggjur af Vatnsmýrinni Morgunblaðið/Ernir Reykjavík Flugfarþegar ganga frá borði á Reykjavíkurflugvelli. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is „Allar tuskur og vefnaðarvörur eru inni í samningnum en sængur eru það ekki,“ segir Elías Gíslason hjá EG heildverslun en fyrirtækið ætl- aði sér að nýta sér tollafríðindi í frí- verslunarsamningi við Kína til þess að flytja út æðardúnsængur til landsins. „Þetta er alveg furðulegt og ég skil ekki hvernig svona getur komið upp. Ég hef sjálfur flutt inn sængur frá Kína og borgað toll af þeim og því gengur þetta að sjálf- sögðu í báðar áttir,“ segir Elías. Hann segist ekki hafa fengið skýr- ingu á því hvers vegna málum sé svo háttað, en þegar leitað var til utan- ríkisráðuneytisins kom fram að ekki hefði verið felldur niður tollur á æð- ardún að beiðni kínverskra stjórn- valda. Við samningagerðina voru ekki felldir niður tollar á einstaka vöruflokka. Þannig lögðu íslensk stjórnvöld áherslu á að viðhalda tollavernd á landbúnaðarvörum en kínversk á iðnaðarvöru. Vantar meiri samræmingu Dæmi eru um að hnökrar hafi ver- ið á innleiðingu samningsins. Þannig njóta sumar fisktegundir ekki tolla- fríðinda enn sem komið er þrátt fyr- ir að tilgreint sé í samningnum að svo eigi að vera, að sögn Guðmundar Ingasonar, fiskútflytjanda hjá G. Ingason. Ber þar að nefna tegundir eins og eldislax, bleikju, regnboga- silung, humar og langlúru. „Það vantar meiri samræmingu á milli embættismanna, Matvælastofnunar, utanríkisráðuneytisins og tollsins. Það eru allir af vilja gerðir að gera hlutina betri en það hefur vantað upp á betri útfærslu á samningnum. Það er ekki nóg að þetta sé tilgreint í samningnum heldur þarf viðskipta- fulltrúi í sendiráðinu í Kína einnig að samþykkja tegundirnar og það hef- ur hann ekki ennþá gert,“ segir Guð- mundur. Hann telur að skýra þurfi betur hvaða vörur það eru sem njóta fríðinda í samningnum. Að öðrum kosti sé hætta á því að fyrirtæki lendi í því að vara stoppi í Kína og að hana þurfi að flytja að nýju til Ís- lands. Morgunblaðið/Kristinn Æðarfugl Æðardúnn frá Íslandi nýtur ekki tollfríðinda í Kína. Dúnsængur njóta ekki tollfríðinda Fríverslunarsamningur » Æðardúnn nýtur ekki tolla- fríðinda, að beiðni kínverskra yfirvalda. » Íslendingar lögðu áherslu á að vernda landbúnaðarvörur en Kínverjar á iðnaðarvörur. Vantar upp á betri útfærslu samningsins, að sögn útflytj- anda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.