Morgunblaðið - 19.11.2014, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2014
E-60 Bekkur
Verð frá kr. 59.000
Fáanlegur í mismunandi lengdum.
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Íslensk hönnun og framleiðsla
www.facebook.com/solohusgogn
E-60 Stólar
Klassísk hönnun frá 1960
Hægt að velja um lit og áferð
Verð frá kr. 24.300
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Ráðamenn í Ísrael hótuðu í gær
hefndum eftir að tveir Palestínu-
menn frá Austur-Jerúsalem, dul-
búnir sem strangtrúaðir gyðingar
og vopnaðir hnífum, kjötexi og
byssu, fóru um morguninn í Kehill-
at Bnei Torah, bænahús gyðinga í
vesturhluta borgarinnar, og myrtu
þar fjóra karlmenn og særðu átta.
Öryggisverðir skutu báða árásar-
mennina til bana.
Mahmoud Abbas, forseti Pal-
stínumanna, sagðist í yfirlýsingu í
gær fordæma árásina á bænahúsið
og „öll dráp á óbreyttum borgurum,
hver sem þau fremur“. Benjamin
Netanyahu, forsætisráðherra Ísr-
aels, sagði Hamas-samtökin á Gaza
og Abbas hafa ýtt undir hryðjuverk
með yfirlýsingum sínum að undan-
förnu. „Þetta er bein afleiðing
hvatninga Hamas og Abu Mazen
(Abbas), hvatninga sem alþjóðasam-
félagið hundsar með óábyrgum
hætti,“ sagði Netanyahu.
Hann sagði að gripið yrði til
„harkalegra“ andsvara en útskýrði
þau orð ekki frekar. Ráðamenn í
Bandaríkjunum og Evrópusam-
bandinu hvöttu í gær bæði Ísraela
og Palestínumenn til að sýna still-
ingu.
Gömul vinstrisamtök er nefnast
Alþýðufylkingin
til frelsunar Pal-
estínu, PLFP,
gengust í gær við
tilræðinu. Ha-
mas-menn fögn-
uðu ákaft árás-
inni og hvöttu til
þess að fleiri
yrðu gerðar.
Árásin hefði ver-
ið svar við
meintu morði á palestínskum
strætóstjóra sem fannst nýlega
hengdur í vagni sínum í Jerúsalem.
Ísraelska lögreglan segir að mað-
urinn hafi fyrirfarið sér en Palest-
ínumenn hafna því.
Fái að biðja á Musterishæðinni
Mikil spenna og blóðug átök hafa
verið síðustu mánuði í Jerúsalem
vegna deilna um aðgang að Must-
erishæðinni sem múslímar kalla
Haram al-Sharif. Þar er ein þekkt-
asta moska íslams, al-Aqsa og að-
eins múslímar mega biðjast fyrir á
hæðinni. Gestir hafa þó leyfi til að
koma þangað.
Strangtrúaðir gyðingar hafa kraf-
ist þess að reglum verði breytt og
þeir fái leyfi til að biðjast fyrir á
hæðinni þar sem hið fræga musteri
Salómons var á sínum tíma. Hæðin
er helgasti staður gyðingatrúarinn-
ar.
Blóðbað í
bænahúsinu
Netanyahu hótar hefndum eftir
mannskætt tilræði í Jerúsalem
AFP
Felldir Öryggisverðir og réttarfarssérfræðingar við lík vígamannanna
tveggja í Jerúsalem í gær. Hamas-menn fögnuðu árásinni ákaft.
Benjamin
Netanyahu
Stjórnvöld í Kól-
umbíu hafa slitið
í bili friðar-
viðræðum við
marxista-
samtökin Farc,
sem hafa áratug-
um saman barist
við stjórn-
arhermenn.
Ástæðan er að
nýlega var hers-
höfðingjanum Ruben Dario Alzate
og tveimur öðrum mönnum rænt í
grennd við borgina Quibdo og við-
urkenndi Farc í gær að hafa verið
að verki.
Óvíst er um framhald friðar-
viðræðna sem staðið hafa í tvö ár.
Átökin í Kólumbíu hófust fyrir um
hálfri öld, þúsundir manna hafa
fallið.
Varnarmálaráðherra Kólumbíu,
Juan Carlos Pinzon, stýrir nú að
sögn blaðsins Guardian leitinni að
mönnunum þremur. Forseti lands-
ins, Juan Manuel Santos, sagði í
sjónvarpsávarpi á mánudag að
friðarviðræðunum, sem hafa farið
fram í Havana á Kúbu, yrði hætt
þangað til gíslarnir fengju frelsi.
„Ég krefst þess að Farc sýni
friðarvilja ekki einvörðungu með
orðum heldur einnig gjörðum,“
sagði Santos. Talsmenn Farc sögð-
ust í fyrstu ekki vita neitt um afdrif
gíslanna þriggja. Samtökin hafa
lengi fjármagnað sig með því að
ræna fólki og heimta lausnargjöld,
einnig hafa þau stundað eitur-
lyfjasölu og fleiri glæpi. Þau réðu
lengi yfir allstóru, afskekktu svæði
en hafa orðið fyrir miklum áföllum
síðustu árin.
Friðarviðræðum við
Farc slitið í bili eftir
ný mannrán
Juan Manuel
Santos
KÓLUMBÍA
Bandaríska blaðið Wall Street
Journal segir að evrópska könn-
unarfarið Philae hafi fundið sam-
eindir lífrænna efna á yfirborði
halastjörnunnar 67P/Churyumov-
Gerasimenko. Slíkar sameindir
hafa í sér kolefnisatóm. Blaðið seg-
ist hafa þessar upplýsingar frá
þýskri vísindastofnun er kemur að
evrópsku áætluninni.
Mannlausa geimfarið Rosetta,
sem bar Philae, er nú rétt hjá hala-
stjörnunni í um 500 milljón km fjar-
lægð frá jörðu. 13. nóvember varð
Philae fyrsti manngerði hluturinn
til að lenda á halastjörnu. Efni í
halastjörnum eru einhver þau elstu
sem fyrirfinnast og rannsóknin
gæti varpað ljósi á tilurð alheims-
ins. Búist var við því að kolefnis-
sameindir fyndust en einnig er von-
ast til að finna ákveðnar amínó-
sýrur, byggingarefni allra prótína
á jörðinni. kjon@mbl.is
Kolefnissameindir
fundust á hala-
stjörnunni
ROSETTU-ÁÆTLUNIN
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Barack Obama Bandaríkjaforseti
hyggst láta endurskoða stefnu
stjórnvalda gagnvart ránum á
bandarískum borgurum utanlands.
Leyniþjónustumenn vestra kanna
nú hver aðkoma hryðjuverka-
manna af vestrænum uppruna hafi
verið í máli hjálparstarfsmannsins
Peters Kassig sem Íslamska ríkið,
IS, lét hálshöggva fyrir skömmu.
Endurskoðunin mun m.a. beinast
að því að kanna aðkomu fjöl-
skyldna gíslanna. Ein þeirra, ætt-
ingjar Steven Sotloffs, safnaði fé til
að borga IS lausnargjald en fékk
að vita hjá embættismönnum í
Washington að
það væri laga-
brot að borga.
Ráðamenn
margra Evrópu-
ríkja eru taldir
hafa oftar en
einu sinni greitt
mannræningjum
IS og annarra
íslamista lausn-
argjald þótt ekki fari það hátt. En
bandarísk stjórnvöld hafa ávallt
hafnað að greiða fé fyrir gísla sem
erlend hryðjuverkasamtök taka
eða semja við slíka aðila um þessi
mál. Rökin eru augljós: að með því
að borga sé óbeint verið að hvetja
íslamista til frekari gíslatöku.
Endurskoða stefnuna
varðandi gíslatöku
Stjórn Obama bregst við mannránum og morðum á gíslum
Foreldrar vilja fyrirgefa
» Peter Kassig var þriðji
Bandaríkjamaðurinn sem IS
hefur látið hálshöggva. Hinir
voru James Foley og Steven
Sotloff. Kassig var 26 ára gam-
all, hafði gerst múslími og kall-
aði sig Abdul-Rahman.
» Foreldrar Kassig segjast
biðja um frið fyrir fjölmiðlum
meðan þau gráti og syrgi son
sinn. Þau ætli sjálf að reyna að
fyrirgefa morðingjunum ódæð-
ið og vilji græða sárin.
Peter Kassig
Tveir menn eru nú í haldi í Kína
sakaðir um að hafa sleppt yfir þús-
und músum lausum í litlu þorpi í
Guangdong-héraði. Þrír að auki
flúðu af vettvangi. Reynt er nú að
eitra fyrir dýrin sem yfirvöld óttast
að geti breitt út sjúkdóma.
Óljóst er hvert markmiðið var
með tiltækinu. En í blaðinu Apple
Daily í Hong Kong er sagt að um
„friðþægingaraðgerð“ hafi verið að
ræða til að aðstoða gamlan ættingja
við að ná aftur heilsu. kjon@mbl.is
Nagdýr Fallegar mýs geta verið
skaðvaldar og borið sjúkdóma.
Þúsund mýs
fengu frelsi