Morgunblaðið - 19.11.2014, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 19.11.2014, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2014 Félagslyndir grasbítar Hestar eru félagsverur og vilja vera á beit með öðrum hrossum. Hér er hópur góðra vina í Laxnesi í Mosfellssveit þar sem rekin er ein af stærstu hestaleigum landsins. Rax Í orði segjast flestir styðja frjálsa, heið- arlega og sanngjarna samkeppni. Á borði er reyndin önnur. Þrátt fyrir umfangsmikla lagabálka og mann- og fjárfrekar eftirlits- stofnanir, til að tryggja göfugt mark- mið um samkeppni, er víða pottur brotinn. Stór hluti íslensks samfélags er annaðhvort án sam- keppni eða líður fyrir takmarkaða samkeppni. Afleiðingarnar eru hærra verð, verri þjónusta, lakari vörur, fábreyttari valkostir og þar með sóun á mannafla og fjármagni. Með aðgerðum og/eða aðgerða- leysi hefur hið opinbera hindrað samkeppni. Fjölmörg lög gera litlum sjálfstæðum atvinnurek- endum eða hugmyndaríkum at- hafnamönnum erfitt fyrir á markaði í baráttu við öflugar fyrirtækja- samsteypur. Flóknar reglugerðir með íþyngjandi ákvæðum gera þeim litlu enn erfiðara fyrir. Órétt- læti sem aldrei hefur verið leiðrétt er krabbamein í íslensku viðskipta- lífi, hinir stórskuldugu fengu líf en hófsamir atvinnurekendur sitja eft- ir. Gefist upp Verst er að ríki og sveitarfélög leggja skipulega steina í götur einkaframtaksins, allt frá verslun til sorphirðu, frá ferðaþjónustu til fjölmiðlunar, frá heilbrigðisþjón- ustu til menntunar. Engan skal undra að einstaklingar gefist upp gagnvart ofurafli (og á stundum of- beldi) opinberra aðila. Steinar Berg Ísleifsson hefur byggt upp glæsilega ferðaþjónustu í Fossatúni í Borg- arfirði á síðustu árum. Árið 2005 opnaði hann tjaldstæði sem mun hafa verið fyrsta fimm stjörnu tjaldstæði landsins. En ranglát samkeppni hefur sann- fært frumkvöðulinn um að rétt sé að hætta að bjóða þessa þjón- ustu. Í viðtali við Skessu- horn 12. nóvember síð- astliðinn segir Steinar Berg: „Ákvörðunin snýst um þær sam- keppnisaðstæður sem ríkja á rekstri tjaldsvæða á Íslandi og framtíðarhorfur. Það gilda tvenns konar leikreglur: Annars vegar fyr- ir einkaaðila sem þurfa að afla tekna til að láta reksturinn ganga upp og greiða sinn skatt af hagnaði. Hins vegar fyrir ríkið og sveita- félög, sem niðurgreiða rekstur sinn með skattpeningum og öðrum íviln- unum. Þessir opinberu aðilar eru markaðsráðandi og halda mark- aðinum sem lágvöruverðsmarkaði t.d. með þátttöku í Útilegukortinu og lágu gjaldi fyrir aðgengi og þjónustu.“ Ójöfn og ranglát samkeppni Því miður er Steinar Berg ekki sá eini sem þarf að glíma við ójafna og rangláta samkeppni frá hendi hins opinbera. Reykjavíkurborg hefur ítrekað reynt að knésetja Gámaþjónustuna. Fyrirtækið óskaði eftir leyfi til að safna lífrænum úrgangi frá heim- ilum í borginni en var neitað, jafn- vel þótt Reykjavíkurborg sinni ekki þessari þjónustu. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem Gámaþjónustan hefur verið beitt ofbeldi. Fyrir um sjö árum var Gáma- þjónustan frumkvöðull í að safna endurvinnanlegum úrgangi með því að bjóða upp á endurvinnslutunn- una. Sú þjónusta er virðisauka- skattsskyld. En borgaryfirvöld sáu ofsjónum yfir starfsemi einkafyr- irtækisins. Í blaðagrein í desember á liðnu ári sagði Elías Ólafsson, stjórnarformaður Gámaþjónust- unnar: „Nokkrum misserum síðar hóf Reykjavíkurborg að bjóða upp á bláa tunnu fyrir pappír og fleira og innheimti fyrir þjónustuna með hækkuðum fasteignagjöldum og var enginn virðisaukaskattur lagður á. Gámaþjónustan benti yfirvöldum samkeppnismála á þetta en ekkert var aðhafst á þeim tíma.“ Elías benti á að árið 2012 hefði almennt sorphirðugjald Reykjavík- urborgar hækkað um 14% en þjón- ustugjald fyrir blátunnu borgar- innar verið lækkað um 12%. Þannig hefðu borgaryfirvöld reynt að bola einkafyrirtæki út af markaðinum. Flestir láta sér fátt um finnast. Ekkert heyrist í Neytendasamtök- unum og yfirvöld samkeppnismála láta lítið fyrir sér fara. Ríkisrekin smásala Steinar Berg og Elías eru í fjöl- mennum félagskap sem þarf að glíma við ójafna samkeppni frá hinu opinbera. Íslenskir kaupmenn standa höllum fæti gagnvart ríkis- rekstri í Flugstöð Leifs Eiríks- sonar. Þar hefur ríkinu tekist að ná undir sig stórum hluta smá- sölumarkaðarins ekki síst í snyrti- vörum. Um þriðjungur smá- söluverslunar með snyrtivörur á Íslandi er í höndum ríkisins í gegn- um Fríhöfnina, sem jafnframt hefur skipulega veikt innlenda birgja (innflytjendur) með því að stunda eigin innflutning. Markaðsráðandi staða ríkisins í snyrtivörum er ekki vegna þess að stjórnendur Fríhafn- arinnar séu snjallari og betri kaup- menn en aðrir. Yfirburðir Fríhafn- arinnar eru vegna „opinberrar meðgjafar í formi skatt- og toll- leysis sem getur numið allt að 40% af vöruverði,“ líkt og kom fram í grein Leifs Þorbergssonar, sér- fræðings hjá Viðskiptaráði Íslands, í Markaðinum fyrir skömmu. Ríkið hefur ekki aðeins tryggt sér forréttindi á sviði smásöluversl- unar. Með sérstökum lögum hefur ríkið komið í veg fyrir sanngjarna samkeppni á fjölmiðlamarkaði. Með skattheimtu og nokkur þúsund milljóna forgjöf hefur yfirburða- staða Ríkisútvarpsins verið tryggð gagnvart einkareknum fjölmiðlum, sem margir hverjir berjast í bökk- um. Krónískir erfiðleikar í rík- isrekstri fjölmiðlunar skipta litlu. Varðmenn ríkisrekstrar eru ein- beittir í því að neyða skattgreið- endur til að leggja aukna fjármuni til ríkisfjölmiðlunar. Á sama tíma er staða einkarekinna áskriftamiðla skert enn frekar með því að hækka virðisaukaskatt úr 7% í 12%. Hvernig tekist verður á við vanda Ríkisútvarpsins og stöðu einkarekinna fjölmiðla er prófsteinn á þingmenn stjórnarflokkanna. Einkarekstur á undir högg að sækja á fleiri sviðum en fjölmiðlun. Komið í veg fyrir frumkvæði Það er miður að ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæð- isflokks skuli ekki hafa tryggt rekstur framsækins framhaldsskóla sem bauð nemendum að ljúka stúd- entsprófi á tveimur árum. Það hefði t.d. verið hægt með því að innleiða ávísanakerfi á framhaldskólastigi sem um leið hefði stuðlað að bætt- um fjárhag allra skóla óháð rekstr- arformi. Þannig hefur ekki tekist að yfirvinna fjandskap vinstri- manna gagnvart einkaframtakinu í rekstri skóla. Afleiðingin er minni samkeppni og fábreyttari valkostir. Kostnaðinn bera nemendur og að lokum samfélagið allt. Með svipuðum hætti og ungt fólk þarf að sætta sig við fábreyttari valmöguleika verða þeir sem þurfa á þjónustu lækna að halda að gera sér að góðu lakari þjónustu en nauðsynlegt er. Þótt lög komi ekki í veg fyrir að heimilislæknar stundi sjálfstæða starfsemi hefur fjárveit- ingavaldið og framkvæmd laga komið í veg fyrir aukna og betri þjónustu. Þess vegna eru þúsundir án heimilislæknis og vel menntaðir læknar eru neyddir til að gerast opinberir starfsmenn, nema þeir séu svo heppnir að fá starf hjá tveimur einkareknum heilsugæslu- stöðvum. Þrátt fyrir góða reynslu af einka- rekstri í menntakerfinu (s.s. Ísaks- skóli, Hjallastefnan, Landakots- skóli, Verslunarskólinn, Hraðbraut) og af einkarekstri í heilbrigðiskerf- inu (s.s. heilsugæslan Salahverfi, sjálfstætt starfandi sérfræðilæknar, hjúkrunarheimili, SÁÁ, sérfræð- ingar í endurhæfingu), virðist lítill áhugi á að efla einkaframtakið og það fremur gert tortryggilegt. Engu skiptir að meiri ánægja er með þjónustu einkaaðila en hins op- inbera og það með minni tilkostnaði fyrir skattgreiðendur. Er nema von að komist sé að þeirri niðurstöðu að eitthvað sé verulega rotið í garði hins opinbera – ríkis og sveitarfélaga. Eftir Óla Björn Kárason »Engan skal undra að einstaklingar gefist upp gagnvart ofurafli (og á stundum ofbeldi) opinberra aðila. Óli Björn Kárason Höfundur er er varaþingmaður Sjálf- stæðisflokks. Það er eitthvað rotið í garði hins opinbera

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.