Morgunblaðið - 19.11.2014, Síða 21

Morgunblaðið - 19.11.2014, Síða 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2014 -Viðhaldsfríir gluggar Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 30 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Yfir 40 litir í boði! Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Villidýr á verði tiger.is · facebook.com/tigericeland Gamaldags app Notaðu hendurnar Svona leit iPad út í gamla daga. Með honum getur þú ofið lítil hringlaga eða ferköntuð teppi sem þú getur notað í hinum raun- verulega heimi. Vefstóll og nál, þræði og garni. 1.500 kr. Sendum í póstkröfu. Sími 528 8200. Kastljósþáttum í rík- issjónvarpinu er ætlað að vera upplýsandi efni fyrir almenning og eru það oft. Stundum finnst mér þó að þáttastjórn- endurnir séu varla starfi sínu vaxnir og er það einkum áberandi þegar stjórnmálamenn eiga í hlut. Það sem ég á við er að í dagskrá er kynntur þáttur sem auglýstur er sem viðtalsþáttur, við t.d. tiltekinn forystumann í stjórnmálum og um- ræðuefnið tekið fram. Þetta er allt gott og blessað og maður bíður spenntur eftir sjónvarpsviðtalinu. Spyrjandinn og gesturinn setjast við borð og spyrjandinn býður gestinn velkominn en þar með er formlegu ferli háttvísinnar lokið. Spyrjandinn fer í einhverslags árásarham, hann ýfist allur upp eins og reiður fress og ræðst á viðmælanda í anda þess sem maður sér stundum gerast í glæpa- myndum sem sýndar eru á sömu stöð þar sem lögreglan er látin kreista upp úr sakamanni játningu. Viðmælandinn er tekinn í þriðju gráðu yfirheyrslu og spyrjandinn virðist gefa sér strax að hann eigi þarna í höggi við „mafíósa“ sem segi ekki satt orð viljandi og hann skuli sko sýna þjóðinni hvernig farið sé að því að fá svona dela til að meðganga meintar lygar og slótt- ugheit. Stjórn- málamaðurinn sem mættur er í þáttinn til að útskýra þýðing- armikið mál er neyddur í vörn, spyrjandinn eins og „heggur fram klónum“ með því að bera fram sömu spurninguna aftur og aftur og þykist aldrei fá svör. Svo hart er stundum gengið fram að gesturinn hlýtur á köflum að upplifa sig sem sakamann. Þegar þáttastjórnanda tekst best upp þá er sama upp á hverju viðmæl- andi hans bryddar, stjórnandi þátt- arins drepur það allt í fæðingunni með framígaspri og einkum virðist það fara í taugarnar á stjórnanda þegar gesturinn vogar sér að reyna jákvæða umræðu um málin. Þegar hér er komið sögu í þættinum reynir á málfarssnilld viðmælandans og þjálfaða greiningu í hlustun áheyr- andans hvort eitthvað bitastætt kemur út úr þættinum eða ekki. Því engu er líkara en stjórnandi þátt- arins reyni allt sem hann getur til að eyðileggja þáttinn og maður fær það jafnvel á tilfinninguna að hann sé í einhverslags innanhússsamkeppni og segi eftir „viðtalið“ við félaga sína „Sástu hvernig ég tók hann?“ Nema hvað, að lokinni yfirheyrslu takast söguhetjurnar í hendur, stjórnandinn þakkar gestinum hlý- lega fyrir komuna, gesturinn kveður þáttinn reynslunni ríkari og áheyr- andinn reynir að halda einhverju bitastæðu eftir fyrir sig. Ég kalla svona þætti ekki viðtöl, í viðtalsþáttum gerir fyrirspyrjand- inn sig eins ósýnilegan og hann get- ur og lítur á það sem hlutverk sitt að viðmælandinn komi sínu máli á framfæri á eins óþvingaðan hátt og hægt er. Stjórnandinn á að leitast við að skapa þægilegt andrúmsloft í þættinum og að mínu viti færi best á því að þáttastjórnandinn upplifði sig sem einn af áhorfendum þáttarins en ekki eins og hólmgöngumann í bar- daga við gest sinn. Í þessari grein er ég eingöngu að fjalla um þætti þar sem tvær persón- ur eru ríkjandi, stjórnandi (spyrj- andi) og viðmælandi. Áhorfandinn væntir þess að þátturinn höfði til sín og eyru hans bíða eftir því sem gest- ur þáttarins hefur fram að færa. Ef stjórnandinn kemur í veg fyrir að já- kvæð viðhorf fái athygli í umræðunni og leitar sífellt eftir því neikvæða gefur það áhorfandanum ranga mynd af málinu. Hvort sem það er nú ásetningur eða ekki að slíta sjón- varpsþætti þar sem andi ákæru hef- ur litað umræðuna þá er það víst að „leikstýrð“ neikvæðni er niðurrifsafl á meðan jákvæð umræða byggir upp. „Málæðinu fylgja yfirsjónir, en sá breytir hyggilega, sem hefur taum á tungu sinni.“ (OK 10: 19.) Ég bið íslenskri þjóð Guðs friðar. Sástu hvernig ég tók hann? Eftir Ársæl Þórðarson » Stjórnmálamaðurinn sem mættur er í þáttinn til að útskýra þýðingarmikið mál er neyddur í vörn. Ársæll Þórðarson Höfundur er húsasmiður. Fimmtán borð hjá FEBR Mánudaginn 17. nóvember var spilaður tvímenningur á 15 borðum hjá bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík. Efstu pör í N/S: Jón Hákon Jónss. – Örn Ingólfsson 403 Hallgrímur Jónss. – Örn Isebarn 359 Hrafnhildur Skúlad. – Guðm. Jóhannss. 356 Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 327 A/V: Ólafur B. Theodórss. – Ágúst Helgason 364 Gunnar Jónss. – Guðbjörn Axelsson 356 Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 353 Bjarni Guðnason – Guðm. K. Steinbach 349 Spilað er í Síðumúla 37. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Ég er algerlega sammála þingmanni Framsóknarflokks- ins, Frosta Sig- urjónssyni, þar sem hann lýsir yfir mikl- um efasemdum um matarskattinn svo- kallaða og einnig hafa komið fram miklar efasemdir hjá formanni þingflokks- ins, Sigrúnu Magnúsdóttur. Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins sunnudaginn 16. nóvember sl. tek- ur svo af allan vafa þegar höf- undur þess kemst að því að rík- isstjórnin ætli að keyra í gegn matarskatt á lægst launaða fólkið í landinu og síðan segir svo: „Eini ávinningurinn, sem hægt er hugs- anlega að sjá af því er að fá hrós bak við luktar dyr frá ótryggum embættismönnum fyrir að hafa einfaldað virðisaukaskattskerfið með því að fækka skattþrepum þess úr tveimur í tvö. Í stað þess að hætta við ruglið eru boðaðar dularfullar „mótvægisaðgerðir“, sem eru svo sannarlega ekki upp- skrift að því að „einfalda kerfið“. Svo mörg voru þau orð og ansi sterklega til orða tekið og ekki að furða. Afnám vörugjalds er sjálf- sagt allra góðra gjalda vert en það leitar ósjálfrátt á hugann hverjir hagnast mest á því. Þeir, sem hafa lítið á milli handanna og berjast við peningabudduna frá degi til dags eru ekki að kaupa rándýr tæki eins og ísskápa, þvottavélar og þurrkara heldur kaupa það not- að því oft á tíðum er það hægt og sjálfur keypti ég til dæmis flottan ísskáp á 25 þúsund krónur. Þetta fólk skiptir heldur ekki um parket hjá sér einu sinni á ári ef þá er nokkurt parket á þeirra gólfum. Það eru til ótalmargar leiðir til að afla peninga í ríkiskassann, t.d. að setja aftur á sykurskattinn, auð- mannaskatturinn, skattur á ferða- þjónustuna (gistingin) og auðvitað að drífa í því að ná í aðilana í skattaskjólunum en þar virðist fjármálaráðherra vera að draga lappirnar. Og að lokum ganga þær sögur, sem ég veit ekkert um hvort eru sannar, að matvöruverslunin leggi á 25,5% virð- isaukaskatt en skili bara 7%. Á ýmsan hátt er hægt að smeygja sér framhjá lögum og reglum en það er náttúrlega al- gjört skilyrði að af- nema allar und- anþágur. Svo væri það auðvitað mikil hjálp í því fyrir eldra fólk, öryrkja og alla þá, sem mikil lyfja- kaup íþyngja, að lyf verði í allra lægsta virðisaukaskattsþrepi. Þessum orðum mínum vil ég ljúka með því að benda á það aftur að það eru til margar leiðir til að ná í peninga, en fyrst og fremst hugsið um fólkið, sem hefur lítið á milli handanna, það eru alltof margir í þessu landi sem berjast í bökkum. Það er tómt mál að tala um ein- hverjar mótvægisaðgerðir, sem svo bara er til að flækja málin og auka á ruglið. Engan matarskatt, Framsókn. Trúi því ekki að Framsókn styðji matarskattinn Eftir Hjörleif Hallgríms Hjörleifur Hallgríms » Það eru til svo marg- ar leiðir til að ná í peninga inn í ríkiskass- ann. Opnið bara augun. Höfundur er framkvæmdastjóri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.