Morgunblaðið - 19.11.2014, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 19.11.2014, Qupperneq 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2014 Sigurrós amma mín hefur alltaf skipað stóran sess í hjarta mér. Hún var alveg ein- stök og hafði svo fallega orku sem fylgdi henni hvert sem hún fór. Ég á margar af mínu bestu minningum annaðhvort með henni, heima hjá henni eða að stússast í kringum hana. Það var alltaf svo yndislegt að vera í kringum hana. Hún náði að láta manni líða betur ef maður var dapur eða órólegur og alltaf var hægt að leita til hennar með hvað sem var. Minning- arnar um ömmu mína saman- standa af ilmi af pönnukökum og heitu súkkulaði, spjalli, hlátri, gríni og glensi. Ég man allar yndislegu stundirnar á Langholtsveginum. Sem krakki sat ég oft uppi á eldhúsborði og bakaði með henni. Eitt skipti þegar hún var að búa til sína frægu laxakæfu ætlaði ég að vera hjálpsöm og bætti vanillu- dropum út í hjá henni svo hún ekki vissi. Hún smakkaði og skildi ekkert í þessu yfirgnæf- andi vanillubragði sem var af kæfunni. Svo viðurkenndi ég seinna að ég hefði bætt smá dropum í og þá fékk hún eitt af sínum mörgu hlátursköstum og sagði að það hefði greinilega verið eitthvert aukabragð af kæfunni. Henni datt ekki til hugar að skamma mig og það var svo einkennandi fyrir elsku ömmu. Hún var með svo fallega sál og hafði það aldrei í sér að vera reið eða vond við neinn, hvað þá barnabörnin sín, sem henni fannst einstök. Hún amma var falleg kona og ég á ótal minningar um hana. Fyrir stuttu vorum ég, mamma og amma í sumarbú- staðnum okkar. Amma var á þeim tíma orðin frekar léleg í fótunum og átti erfitt með að halda jafnvægi. Samt sem áður krafðist hún þess að baka pönnsur og elda kótilettur í raspi. Hún harðbannaði okkur mömmu að gera nokkurn skap- aðan hlut. Við áttum bara að slaka á, helst leggja okkur og láta hana um þetta. Svona var hún amma mín. Alltaf að hugsa um alla aðra en hún elskaði líka að hafa okk- ur fjölskylduna sína í kringum sig. Við spjölluðum um allt milli himins og jarðar og hlátur- sköstin voru ófá. Ég hef aldrei vitað um neinn með jafnsmit- andi hlátur og það var svo gam- an að hlæja með henni. Því meiri sem fíflagangurinn var því betra. Hún var húmoristi af bestu gerð. Ó hvað var líka gaman að hlusta á hana. Hún hafði þenn- an hæfileika að segja svo fal- lega frá. Það var hægt að hlusta tímunum saman á þegar hún rifjaði upp minningar um gamla tíma. Sögurnar hennar voru svo myndrænar og ég gat séð fyrir mér hvernig var þegar hún var lítil stúlka og maður gat týnst í fallegu röddinni hennar. Þótt hún sé farin, drottning drauma minna, þá á ég yndislegar minningar sem eiga eftir að fylgja mér alla tíð. Minningar um fallega, hlátur- milda og einstaka konu. Ég vildi óska þess að allir væru eins heppnir og ég að hafa átt svona yndislega ömmu. Þá væri Sigurrós R. Jónsdóttir ✝ Sigurrós R.Jónsdóttir fæddist 16. júlí 1924 á Suðureyri í Tálknafirði. Hún lést á Skjóli í Reykjavík 8. nóv- ember síðastliðinn. Útför Sigurrósar fór fram frá Lang- holtskirkju 18. nóv- ember 2014. heimurinn betri. Mikið á ég eftir að sakna hennar. Valgerður Björnsdóttir. Elsku besta amma okkar, nú ertu loksins komin til systra þinna eins og þú vildir. Nú er það okkar að lifa lífinu á jörðinni og gera þig stolta af okkur. Þú varst reynd- ar alltaf stolt af okkur og auð- velt var að greina það í aug- unum þínum. Þú mættir á alla tónleika og messur sem við sungum í og varst klárlega stoltasta amman í salnum. Það var alltaf gaman í kringum þig og alltaf hægt að læra eitthvað nýtt. Þú kenndir okkur að prjóna, baka, spila, hlæja og hafa gaman af lífinu. Þú spar- aðir ekki hrósið og fengum við systkinin oft að heyra frá þér hvað við værum falleg og góð. Við efumst ekki um að þessi góðu gen koma frá þér. Eftirminnileg er nóttin þegar Snorri bróðir fæddist, þegar þú komst og passaðir okkur syst- urnar. Byrjaðir á því að hrópa í sífellu: „Viljiði hringja á sjúkra- bíl, hringiði á sjúkrabíl.“ Síðan þegar mamma og pabbi voru farin á fæðingardeildina vaktir þú með Hafdísi alla nóttina í biðinni eftir litla bróður. Öll þau skipti sem við gistum hjá þér, oft með frændsystkinun- um, voru okkur kær. Þá voru oft bakaðar pönnukökur seint um kvöld sem runnu svo vel niður með heitu súkkulaði. Þrjár þreyttar mýs fóru á skautum út á ís og sungu pollý vollý dúdívollýdey, ísinn var svo þunnur ein þeirra hét Unnur, pollý vollý dúdívollýdey hljómaði oft á andvöku- nóttum og tókst okkur oft að sofna eftir að þú kenndir okkur að segja aftur og aftur í hug- anum „ég er alveg að sofna“. Það var alltaf jafngaman að hlusta á sögurnar þínar og báð- um við alltaf um að fá að heyra þær aftur. Sagan frá því þegar þið systurnar tókuð upp á því að klippa hárið á Ernu er sér- staklega minnisstæð og enda- laust var hlegið. Það var alltaf ánægjulegt að koma til þín eftir skóla á mánudögum og föstu- dögum í dýrindismat og veit- ingar. Þú tókst alltaf á móti okkur opnum örmum og vildir allt fyrir okkur gera. Það er sárt að þurfa að kveðja þig en við munum áfram lifa eftir því sem þú kenndir okkur. Takk fyrir að vera besta amma í heimi. Hafdís María og Vera Hjördís Matsdætur. Amma mín, hún langamma, hún brosti öllum breitt, mikið þykir mér það leitt, að þurfa þig að kveðja, ég vil þig gleðja, elsku langamma mín. Nú held ég að þú sért að baka pönnukökur með hátíðarbrag á himnum. Hún elskaði alla, konur og kalla. Var svo jákvæð og yndisleg, elsku langamma mín. Nú held ég að þú sért að krulla hárið á systrum þínum með hátíðarbrag á himnum. Hún var með fallegt, grátt, glitrandi hár og kóngafjólubláan silkiklút um hálsinn elsku langamma mín. Nú held ég að þú sért sólin að setj- ast með hátíðarbrag á himnum. Embla Einarsdóttir langömmubarn. Samferð Sillýjar móðursyst- ur minnar í sextíu ár hefur ver- ið mér dýrmæt og mikil gæfa. Nærvera hennar í lífi mínu hef- ur verið með þeim hætti að hún hefur ávallt átt sinn dýrmæta stað í hjartanu. Einstakir eig- inleikar hennar og tengsl okkar á milli hafa birst í svo óend- anlega mörgu; djúpri vináttu, einlægri og góðri hlustun, víð- sýni, veglyndi og gleði. Hún hefur verið vegvísir og dýpkað skilning minn á lífinu og tilver- unni á svo margan hátt. Hún deildi með mér og öðrum fjöl- skyldumeðlimum myndum og atburðum úr fortíðinni, frá æskuárum sínum, reynslu, erf- iðleikum, gleði. Einn af mestu kostum hennar var hvað hún var hláturmild. Ekki leið það samtal okkar að við brystum ekki í ærlegt hláturskast, oftast fleiri en eitt. Hún hafði ótrúlega gaman af tilsvörum og aðstæð- um sem hægt var að snúa upp í einlæga gleði og kátínu af besta tagi, kunni líka að gera grín að sjálfri sér. Fjölskyldan var henni einstaklega kær; Eyvi, dæturnar þrjár og fjölskyldur þeirra. Með sanni má segja að hún hafi ávallt verið kletturinn í stórfjölskyldunni sem allir gátu leitað til, speglað sig í sýn hennar á lífið og orðið ríkari eftir hvert samtal. Þess vegna var hún einstök. Ég held að það sé mjög sérstakt að við, afkom- endur þriggja systra hennar, höfum öll tengst henni órjúf- anlegum böndum. Eftir því sem árunum okkar saman fjölgaði urðu tengsl okk- ar enn sterkari. Þegar hún Erna Jóns, eins og við kölluðum hana mömmu mína, komst á efri ár og sigldi inn í tilveru þar sem Alzheimer-sjúkdómurinn varð fylginautur sýndi hún enn og aftur hvað hún var mikil stoð og stytta. Hún var óþreyt- andi að gefa henni af sínum tíma, syngja með henni, rifja upp og hlæja. Þvílíkur gleði- gjafi af Guðs náð. Það er okkur systkinunum ógleymanlegt þeg- ar hún var með okkur nánast samfleytt tvo síðustu sólar- hringana hennar mömmu áður en hún kvaddi. Þar sýndi hún svo óendanlegan kærleika, væntumþykju og góða nærveru. Það er ekki hægt að skrifa minningarorð án þess að rifja upp þegar ég, mamma, Sillý og Gunna fórum í ógleymanlega mæðgnaferð á æskuslóðir systranna frá Suðureyri í Tálknafirði. Við tókum ferjuna Baldur yfir Breiðafjörðinn. Áð- ur en farið var um borð brugð- um við okkur á kaffihús. Þegar út var komið hvarf Sillý, eins og jörðin hefði gleypt hana. Mömmu var fylgt í bílinn og við Gunna hlupum kallandi út um allt og skildum ekkert í því hvað orðið hefði af Sillý. Eftir þó nokkra leit fann Gunna hana – inni í allt öðrum bíl. (Meira að segja allt öðru vísi á litinn.) Þar hafði hún setið og séð okkur hlaupa um allt – og hélt, sér til hrellingar, að mamma væri týnd. Segja má að við höfum hlegið nánast stanslaust yfir allan Breiðafjörðinn. Hvað það var gaman hjá okkur fjórum í þessari ferð. Þá deildu þær með okkur dætrunum gleði, upprifj- unum, trúnaði og reynslu sem dýpkaði skilninginn á tilverunni og lífi kynslóðarinnar á undan. Á kveðjustund hugsa ég um Sillý, frænku mína, sem eina merkilegustu konu sem ég hef kynnst. Minning hennar verður ávallt umvafin aðdáun, virðingu og kærleika. Margrét Theodórsdóttir (Maggý). Á sólríkum sumardegi stóð ég úti á gangstétt í Banka- stræti og var að tala í símann – hallaði bakinu upp að gluggan- um á veitingastað. Var að bíða eftir gömlum skólasystkinum sem ætluðu að hittast. Ég var í slíku hláturskasti að fólkið í bíl- unum sem ók hjá var farið að veita mér athygli. „Það er ald- eilis gaman hjá þessum manni,“ sagði vegfarandi. Áfram héldu ég og viðmælandi minn að hlæja svo tárin láku í stríðum straumum. Þegar eina skóla- systurina bar þarna að og ég hafði lokið símtalinu spurði hún: „Við hvern varstu eigin- lega að tala?“ „Ég var að tala við uppáhaldsfrænku mína – hún er 86 ára. Hlæ aldrei eins mikið og þegar ég tala við hana.“ „Um hvað voruð þið eig- inlega að tala?“ „Bara fífla- ganginn í okkur sjálfum. Og hana Ernu frænku til dæmis. Hún kunni nú aldeilis á fífla- ganginn. Við frænka segjum líka að við hljótum að vera komin með lífsreynslu á við þrjú elliheimili eftir allt sem við höfum lent í. Hún frænka mín er hláturmildasta og besta kona lífs míns,“ sagði ég. Og það eru orð að sönnu. Símtölin við hana Sillý frænku voru mér alltaf eins og sterkur vítamínskammt- ur. Mannbætandi. Betri ein- stakling er ekki hægt að hugsa sér. Það var rætt um allt milli himins og jarðar. Farið yfir fjölskyldumálin og svo gert grín að öllu saman. Í lokin kom svo uppáhaldssetningin okkar þeg- ar ég sagði: „Já og þakka þér svo fyrir komuna, Sillý mín.“ Þá hló frænka sem aldrei fyrr og símtalið hélt áfram um stund. Og svo sagði hún. „Já og sömuleiðis, það er alltaf svo gaman þegar þú ferð.“ Fífla- gangurinn ætlaði stundum aldr- ei að taka enda, áfram var hleg- ið. Sillý var systir Gerðu, móður minnar. Ég á sterkustu minn- ingarnar um hana og Eyjólf og dæturnar Gunnu, Dóru og Kötu frá Langholtsvegi 168 en þar bjó einnig Jón Guðmundsson móðurafi okkar. Ekki langt frá, í Goðheimum, bjó önnur móð- ursystirin, Magga, ásamt Baldri og sex börnum þeirra, Halla, Gumma, Brynju, Halldóru, Nonna og Badda. Og svo var þriðja systirin, Erna, á tímabili skammt undan, í Hlunnavogi, með Tedda og þremur börnum, Maggý, Hadda og Sigrúnu Eddu. Þessi ár mótuðu svip- sterkan hóp og Sillý var gjarn- an miðdepillinn og hrókur alls fagnaðar. Mér fannst ég alltaf kominn í frændgarð, umvafinn mikilli væntumþykju, þegar við fórum úr Hvassaleitinu niður í Vogahverfi – til afa og móð- urfólksins. Heim sem mótaði bernskuna. Við afabörnin vor- um fimmtán en tvö hafa helst úr lestinni. Ég er afar þakk- látur fyrir að eiga allt þetta góða frændfólk að. Við höfum haldið hópinn, síðast í sumar á ættarmóti á Akureyri þar sem Sillý var „mætt“ á skæpinu. Sterk eru böndin og ljúft að bera gæfu til að fá að rækta frændgarðinn með börnum og barnabörnum, mökum og venslafólki. Við munum um ókomin ár minnast systranna frá Tálknafirði. Við munum ylja okkur við að rifja upp hlátur Sillýjar, manngæsku hennar og hlýju, vera þakklát fyrir að hafa fengið að njóta samvista við hana – sem gerði okkur að betra fólki. Ég mun í huga mín- um um ókomna tíð segja: „Elsku besta Sillý, þakka þér fyrir komuna.“ Óttar Sveinsson. Við systurnar, og önnur barnabörn í fjölskyldunni, vor- um svo heppin að detta í þann lukkupott að fá ynd- islegustu ömmu og afa í vöggugjöf sem hugsast getur. Þau hafa kennt okkur svo margt um lífið, kærleik- ann, vináttuna, gildi samveru og ekki síst um sorgina og samheldni. Nú eru liðin nærri 11 ár frá að því amma kvaddi þennan heim en hefði hún lifað hefði hún fagnað 80 ára afmælinu í dag, 19. nóvember. Margs er að minnast og margs er að sakna. Amma var ekki bara ein- stök amma heldur líka yndisleg vinkona og skarðið sem hún skildi eftir sig er stórt. Þau voru ófá sím- tölin þar sem var spjallað, jafnvel tímunum saman, um alla heima og geima, skipst á skoðunum og margt af því sem þar kom fram hefur mótað viðhorf og lífsskoðanir til hins betra. Hún var ákveðin, viss í sinni sök, en á sama tíma svo ljúf og hlý. Uppáhaldsminningarnar með ömmu eru úr sumarbústöðum með henni og afa. Oftast við Laugar- Guðbjörg Valdimarsdóttir ✝ GuðbjörgValdimars- dóttir fæddist 19. nóvember 1934. Hún lést 1. janúar 2004. Útför hennar fór fram 9. janúar 2004. vatn. Sú vika þar sem við barnabörnin fengum að fara með ömmu og afa í bústað var hápunktur sum- arsins og minning- arnar sem þar voru skapaðar munu lifa um ókomna tíð. Spil- að fram eftir kvöldi, bakað, teiknað, göngutúrar, sólböð og ekki má gleyma mini-golfinu! Eftir stendur tilfinn- ing um djúpa vináttu, væntum- þykju, sem aldrei gleymist. Í eitt af síðustu skiptunum sem við spjölluðum saman, á krabba- meinsdeildinni á Landspítalanum, sagði amma við aðra okkar: Þú átt svo eftir að vinna hér. Þá stóð það alls ekki til enda ætlunin að verða sálfræðingur. Á útskriftardaginn sem hjúkrunarfræðingur, um 10 árum seinna, rifjuðust svo upp þessi orð ömmu. Hún vissi sann- arlega sínu viti og þekkti okkur barnabörnin líklega betur en við gerðum sjálf. Minningin um ömmu, þessa ljúfu konu sem mótaði okkur svo mikið, er perla sem aldrei gleym- ist. Við minnumst hennar með bros á vör, kærleika og síðast en ekki síst þakklæti fyrir allt sem hún hefur kennt okkur og gefið með nærveru sinni. Ella Björg og Tinna Rögnvaldsdætur. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699-8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bílar Nýr Ford Transit 17 manna hópferðabíll tilbúinn í túrismann. Á frábæru verði aðeins 5.990 þús. án vsk. miða við hópferðaleyfi. Þegar vsk reglur brey- tast um áramót hækkar þessi um 1 milljón í verði ! www.sparibill.is Fiskislóð 16 – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Bílaleiga HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9 manna--------- Fast verð eða tilboð. CC.BÍLALEIGA S. 861 2319. Til leigu Íbúðir til leigu 2 íbúðir, hæð og ris , önnur með bílskúr. Samtals um 320 m2 á besta stað í suðurhlíðum Kópavogs Hentugast er fyrir einn aðila að leigja allt og leigja svo frá sér. en ekki skilyrði. Íbúðir í toppstandi og allt nýmálað. Upplýsingar h83046@gmail.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.