Morgunblaðið - 19.11.2014, Blaðsíða 27
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2014
stofuna og hefur starfað þar síðan.
Hann hefur líka verið stundakennari
og prófdómari við HÍ frá 2004.
Lárus sat í ritstjórn Skólablaðs
MR og í stjórn Listafélagsins þar,
var varamaður í stjórn SUS 1989-91,
í stjórn Heimdallar 1990-91, í rit-
stjórn Stefnis 1989-91 og sat í stjórn
félags sjálfstæðismanna í Hlíða- og
Holtahverfi 1989-92. Hann var ritari
stjórnar körfuknattleiksdeildar Vals
1990-91 og formaður deildarinnar
1991-92, gegndi svo aftur stjórnar-
störfum fyrir körfuknattleiksdeild
Vals 2004-2012 og var formaður
deildarinnar 2007-2011. Hann tók
sæti í stjórn Körfuknattleiks-
sambands Íslands 2013, situr í móta-
nefnd sambandsins, sat í stjórn for-
eldrafélags Austurbæjarskóla
2010-2014 og í skólaráði Austurbæj-
arskóla frá 2014. Þá hefur hann setið
í stjórn lestrarfélagsins Krumma frá
stofnun árið 2004.
Lárus hefur verið sæmdur silfur-
merki Vals, gullmerki Vals og silfur-
merki Körfuknattleikssambands Ís-
lands.
Og hvað gerir svo Lárus þegar
hann er ekki á Hagstofunni?
„Á veturna tek ég þátt í að halda
utan um meistaraflokka körfubolta-
deildar Vals og vinn að uppbyggingu
körfuboltans á vegum Körfuknatt-
leikssambands Íslands.
Á sumrin erum við fjölskyldan
mikið á Grenivík og á Langanes-
ströndinni þar sem fjölskyldur okk-
ar hjóna eru með aðstöðu. Þar njót-
um við útiveru og förum í veiði.“
Fjölskylda
Eiginkona Lárusar er Anna Krist-
ín Jónsdóttir, f. 13.5. 1965, frétta-
maður hjá RÚV. Foreldrar hennar
eru Laufey Þorbjarnardóttir, 14.4.
1941, húsfreyja, og Jón Sigurðsson,
17.4. 1941, fyrrv. bankastjóri.
Börn Lárusar og Önnu Kristínar
eru Laufey Blöndal, f. 6.2. 1992,
nemi í ensku og málvísindum við HÍ;
Benedikt Blöndal, f. 5.10. 1993, nemi
í stærðfræði við HÍ og stærð-
fræðikennari við MR; Guðrún Blön-
dal, f. 12.2. 2000, grunnskólanemi.
Systkini Lárusar eru Karl Blön-
dal, f. 6.11. 1961, aðstoðarritstjóri
Morgunblaðsins, búsettur í Reykja-
vík, og Anna Ben. Blöndal, f. 8.12.
1968, leikskólakennari, búsett á Sel-
tjarnarnesi
Foreldrar Lárusar: Guðrún
Karlsdóttir, f. 14.9. 1936, húsfreyja í
Reykjavík, og Benedikt Blöndal, f.
11.1. 1935, d. 22.4. 1991, hæsta-
réttardómari.
Úr frændgarði Lárusar Blöndal
Lárus Blöndal
Guðrún Jósefsdóttir
húsfr. í Rvk
Jón Brynjólfsson
skósm. og kaupm.
í Rvk
Anna Margrét Jónsdóttir
húsfr. í Rvk
Karl Kristinsson
forstj. í Rvk
Guðrún Karlsdóttir
húsfr. í Rvk
Kristjana Elínborg
Jónsd.
húsfr. í Rvík
Kristinn Magnússon
skipstj. í Rvík
Kristinn Karlsson
félagsfræðingur
Magnús Jónsson
forstj. leðurverzl. Jóns Brynjólfssonar
Jón Gunnar Zoëga
hrl. og fyrrv. form.
Vals
Björn Zoëga
framkvæmdastj.
Nexcode og form.
Vals
Guðrún Sigríður
Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Halldór Blöndal
fyrrv. ráðherra
Bjarni Benediktsson
forsætisráðherra
Sveinn Benediktsson
framkvæmdastj.
Ólöf Benediktsdóttir
framhaldsskólakennari
Guðrún Benediktsdóttir
húsfr. í Rvík
Kristín Blöndal
kennari
Haraldur Blöndal
lögfræðingur
Ragnhildur Blöndal
bókavörður á Íþöku
Margrét H. Blöndal
myndlistarmaður
Lárus Ari Knútsson
stjórnmálafræðingur
Guðrún
Pétursdóttir
frá Engey,
kvenréttinda-
frömuður
Benedikt Sveinsson
alþm. og ritstj. í Rvík
Kristjana Benediktsdóttir
húsfr. í Rvk (seinni kona Lárusar og stjúpmóðir
barna hans: Margrét Ólafsdóttir)
Lárus H. Blöndal
Alþingisbókavörður
Benedikt Blöndal
hæstaréttardómari
Margrét Auðunsdóttir
húsfr. á Eyrarbakka
Haraldur Blöndal
ljósmyndari á
Eyrarbakka
Björn Bjarnason
fyrrv. alþm
Benedikt Sveinsson hrl.
og fyrrv. stjórnarform.
Guðrún Guðjónsdóttir
kennari
Benedikt Jóhannesson
stærðfræðingur
Lárus Árnason
viðskiptafræðingur
Kristjana Stella Blöndal
dr. í uppeldisfræði
Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra
Páll Matthíasson
forstjóri Landspítalans
Ingunn Rán
Kristinsdóttir
þroskaþjálfi
Bertel Thorvaldsen mynd-höggvari fæddist 19.11.1770. Hann er talinn fæddur
í Kaupmannahöfn en sú sögn var
lengi lífseig í Skagafirði að hann
hefði fæðst á eða við Hofsós, er for-
eldrar hans voru að heimsækja
æskuslóðir föður hans.
Foreldrar Bertels voru Gottskálk
Þorvaldsson, tréskurðarmeistari í
Kaupmannahöfn, fæddur á Reyni-
stað í Skagafirði en alinn upp á
Miklabæ í Blönduhlíð, og k.h., Karen
Degnes frá Jótlandi.
Gottskálk sigldi til Kaupmanna-
hafnar árið sem hann fermdist, lærði
þar tréskurð og bjó þar síðan.
Bertel þótti snemma afburða-
teiknari, hóf nám í fríhendisteikn-
ingu í undirbúningsdeild Fagurlista-
skólans í Kaupmannahöfn 1781,
vann fljótlega til verðlauna í skól-
anum og hlaut síðan öll verðlaun
sem þar voru veitt, síðast hin svo-
kölluðu stóru gullverðlaun, árið
1793. Þeim verðlaunum fylgdi utan-
fararstyrkur sem varð til þess að
hann fór til Rómar 1796 og starfaði
þar til 1838. Bertel vann högg-
myndir í nýklassískum hetjustíl og
varð brátt virtasti og eftirsóttasti
myndhöggvari Evrópu. Á meðal
þekktari verka hans má nefna stytt-
urnar af Nicolaus Copernicusi og Jó-
zef Poniatowski í Varsjá, styttuna af
Maximilian I. í München og minnis-
merkið um Píus páfa VII. í St. Pét-
urskirkjunni í Róm.
Er Bertel sneri heim til Kaup-
mannahafnar, 1838, og var honum
tekið sem þjóðhetju. Thorvaldsen-
safninu var fundinn staður við hlið-
ina á Christiansborgarhöll og er
hann lést var hann borinn til grafar í
húsgarði safnsins.
Bertel gaf Dómkirkjunni í
Reykjavík skírnarfont kirkjunnar
1838. Árið 1874 gaf Kaupmanna-
hafnarborg Reykjavík fyrstu
myndastyttu bæjarins, sjálfslíknesi
Bertels sem stóð lengi á Austurvelli
en er nú í Hljómskálagarði. Þá voru
skreytingar eftir hann á gamla
Reykjavíkurapóteki við vestan-
verðan Austurvöll, enda heitir
strætið þar Thorvaldsensstræti.
Bertel lést 24.3. 1844.
Merkir Íslendingar
Bertel Thor-
valdsen
90 ára
Halla S. Jónatansdóttir
85 ára
Hörður Viktor Jóhannsson
Sigurjón Helgason
80 ára
Bjarni Kristjánsson
Ívar Kolbeinsson
María Margrét Einarsdóttir
Þórir Kristinsson
75 ára
Gary Allen Severe
Guðfríður G. Jónsdóttir
Guðlaugur H. Helgason
Karl Vignir Dyrving
70 ára
Edda Árnadóttir
Eiríkur Örn Kristjánsson
Elísabet Bjarnadóttir
Eyjólfur Friðgeirsson
Haraldur Friðriksson
Jórunn Jörundsdóttir
Kristján B. Þórarinsson
Ólafur K. Óskarsson
Rannveig Agnethe J.
Óskarsdóttir
Þórir Jensen
60 ára
Bjarni Jónas Jónsson
Daði Örn Jónsson
Einar Ólafur Haraldsson
Guðmundur Ingason
Jakob Gunnarsson
Kamilla Suzanne Kaldalóns
Óskar Óli Jónsson
Ragnheiður A.
Gunnarsdóttir
Rúnar Geirmundsson
Vilhelmína I. Eiríksdóttir
50 ára
Arnar Matthíasson
Árni Stefánsson
Bjarni Þór Ólafsson
Davíð Sigurðsson
Fjóla Karlsdóttir Waldorff
Helga Sigfríður
Snorradóttir
Kristjana E. Guðlaugsdóttir
Stefán Ingi Óskarsson
Zdzislaw Antoni Podsiadlo
Þórhalla Guðbjartsdóttir
40 ára
Alicja Kolakowska
Auður Ásgeirsdóttir
Erna Ragnhildur Gísladóttir
Fífa Lísa Óskarsdóttir
Gaukur Garðarsson
Heiðrún Gunnarsdóttir
Kjartan Hafsteinn
Óskarsson
Kristín Björk
Hermannsdóttir
Kristjana Jenný
Ingvarsdóttir
Nanna Baldvinsdóttir
Ólafur Kristján Ragnarsson
Patrycja Wodkowska
30 ára
Elwira Katarzyna
Kolakowska
Jóhann Hermann
Ingason
Kolbrún Sigurðardóttir
Málmfríður Sigurðardóttir
Þorbjörg Daphne Hall
Til hamingju með daginn
30 ára Matthildur ólst
upp á Akureyri, lauk
sveinsprófi í klæðskurði
2012, í kjólaklæðskurði
2013, vinnur í Vogue og
saumar á eigin vegum.
Maki: Einar Kristinsson, f.
1982, viðskiptafræðingur
og sálfræðinemi.
Stjúpsynir: Víkingur, f.
2002, og Róbert, f. 2005.
Foreldrar: Benedikt Þór-
isson, f. 1953, bifvélavirki,
og Elínborg Birna Stur-
laugsdóttir, f. 1952, húsfr.
Matthildur B.
Benediktsdóttir
40 ára Ólafur ólst upp í
Ólafsvík, býr í Hafnarfirði,
er húsasmíðameistari og
er nú sjómaður á frysti-
togara.
Maki: Steinunn Rut Æg-
isdóttir, f. 1976, húsfreyja.
Börn: Arnar Logi, f. 1993;
Sonja Lára, f. 1995, Krist-
ín Sólborg, f. 2000, og
Margrét Líf, f. 2010.
Foreldrar: Ingi Arnar
Pálsson, f. 1952, og Krist-
ín Sólborg Ólafsdóttir, f.
1954, d. 1999.
Ólafur Ragnar
Ingason
30 ára Elísabet ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
MSc-prófi í markaðsfræði
og alþjóðaviðskiptum við
HÍ og starfar hjá Terra
Nova.
Maki: Ólafur Jónsson, f.
1981, bankastarfsmaður.
Börn: Bjarki Leó Ólafs-
son, f. 2010, Laufey Katla
Ólafsdóttir, f. 2012, og
Hekla Karen, f. 2014.
Foreldrar: Ragna Har-
aldsdóttir, f. 1958, og Leó
Jónsson, f. 1958.
Elísabet Eydís
Leósdóttir
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Gómsætt og girnilegt konfekt Ensk jólakaka, lagkaka Stollen
Gjafakörfur með
ýmsu góðgæti
Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver
Gómsætar jólagjafir
Jólakonfektkaka